Morgunblaðið - 07.12.2007, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
DAVID Miliband,
utanríkisráð-
herra Bretlands,
segir í grein í
breska blaðinu
Financial Times
að Bretar muni
þrýsta á um
auknar refsiað-
gerðir gegn
Írönum vegna
umdeildra kjarnorkutilrauna
þeirra. Bandarískir leyniþjónustu-
menn telja nú að Íranar hafi hætt
tilraunum til að smíða kjarnavopn
árið 2003. En Miliband segir að
Írönum hafi ekki tekist að eyða tor-
tryggni umheimsins vegna tilrauna
sinna og að þeir verði að hætta að
auðga úran. Auðgað úran er notað í
kjarnorkuvopn.
Hertar
aðgerðir
David Miliband
EINN lést og fimm særðust þegar
bréfasprengja sprakk í París í
Frakklandi í gær. Atburðurinn
varð í byggingu þar sem lögmanns-
skrifstofur eru til húsa. Forseti
Frakklands, Nicolas Sarkozy, hafði
eitt sinn skrifstofu á staðnum.
Sprengja í París
FJÖLDI búddamunka hefur flúið
höfuðborg Búrma, Yangon, í kjöl-
far þess að herforingjastjórn lands-
ins braut uppreisnina á bak aftur í
haust. Hafa margir munkanna leit-
að skjóls í afskekktum bæjum og
þorpum eða kastað kuflinum.
Fjarvera munkanna hefur trufl-
að mjög hefðbundið líf borgarbúa
en munkar gegna þar að jafnaði
lykilhlutverki. Fjöldi klaustra
stendur nú auður en hermenn réð-
ust inn í sum þeirra, handtóku fólk
og börðu. Seldar eru með leynd
upptökur með bænasöng og sögum
tveggja virtra munka í nokkrum
verslunum höfuðborgarinnar.
Leynilegt andóf í
höfuðborg Búrma
„NÚ VERÐ ég frægur,“ skrifaði
Robert Hawkins, 19 ára maður sem
á miðvikudag skaut átta til bana í
verslun í Omaha áður en hann
framdi sjálfsvíg. Honum er lýst sem
hæglátum, þunglyndum pilti. Ný-
lega sleit hann sambandi við kær-
ustu til langs tíma og hann var rek-
inn úr starfi fyrir fáeinum dögum.
Reuters
Viðbúnaður Liðsmaður sérsveita
lögreglu við verslunina í Nebraska.
Vildi frægð
TOYOTA-verksmiðjurnar japönsku
sýndu í gær ný vélmenni, öðru
nafni þjarka, sem eru svo háþróuð
að þau geta leikið á fiðlu, eitt tækj-
anna sést hér sýna snilli sína. Það
er um hálfur annar metri á hæð, er
með alls 17 liðamót í handlegg og
hönd og lék Pomp and Circum-
stance eftir Bretann Edward Elg-
ar. Tækinu tókst vel upp en
kunnáttumenn töldu þó að leik-
urinn hefði verið fremur stífur – og
vélrænn.
Fyrirtækið hóf að nota vélmenni
í bílaverksmiðjum sínum á níunda
áratugnum, að sögn forstjórans,
Katsuaki Watanabe. Talið er að
hægt verði að láta vélmenni stunda
umönnunarstörf á heimilum aldr-
aðra og á sjúkrahúsum. Meðalaldur
er hærri í Japan en í flestum öðrum
ríkjum heims og vaxandi skortur á
starfsfólki til að sinna þörfum aldr-
aðra en strangar hömlur eru á inn-
flutningi vinnuafls til Japans.
Vélræn
innlifun
í Japan
AP
KONA í sambandsríkinu Slésvík-
Holstein í Þýskalandi er grunuð um
morð en fimm börn hennar fundust
myrt á hrottafenginn hátt á heimili
þeirra í smáborginni Darry. Börnin
voru á aldrinum þriggja til níu ára.
Myrti börnin
EIGINKONA 57 ára gamals Bret-
ans Johns Darwins, sem talinn var af
eftir meint slys á barkarbáti fyrir
fimm árum en kom fram í Bretlandi
um sl. helgi, viðurkenndi í gær í við-
tölum við götublöð að um svik hefði
verið að ræða. Konan, Anne Darwin,
sem nú býr í Panama, innleysti líf-
tryggingu mannsins eftir að hann
var úrskurðaður látinn.
Hjónin dvöldust undir fölsku nafni
í Panama en mynd sem birtist á vef-
síðu fyrirtækis er þau leigðu íbúð hjá
kom upp um svikin. Lögreglan yf-
irheyrði í gær manninn sem hefur
borið því við að hafa misst minnið í
nokkur ár. Tveir synir hjónanna,
sem ekki vissu neitt um svikin og
stóðu í þeirri trú að faðirinn hefði
drukknað, fordæmdu foreldrana í
sameiginlegri yfirlýsingu.
Sögðust þeir vera „ruglaðir og
reiðir“ og hafa lent í ólgusjó tilfinn-
inga eftir að faðirinn gaf sig fram við
lögreglu, fyrst taumlausrar gleði en
síðan örvæntingar eftir að móðirin
játaði í fjölmiðlum að um svik hefði
verið að ræða. Ef blöðin hefðu rétt
eftir móðurinni fyndist þeim sem
þeir væru fórnarlömb svikanna.
„Hvernig gat mamma okkar haldið
áfram að telja okkur trú um að pabbi
hefði dáið þegar hann var sprelllif-
andi?“ spyrja bræðurnir. „Við höfum
ekki talað við foreldra okkar eftir að
pabbi var handtekinn og sem stend-
ur viljum við ekki hafa neitt sam-
band við þau.“
Konan sagðist hafa vitað að eig-
inmaðurinn ætlaði aftur til Bret-
lands en ekki að hann hygðist láta
lögregluna vita af sér.
Hafna
sambandi
við for-
eldrana
Rabat. AFP. | Múslímar mega sem
kunnugt er ekki drekka áfengi en
léttvín frá arabalöndum njóta nú
vaxandi hylli á mörkuðum eftir ára-
tuga lægð. Bókstafstrúarmenn, m.a.
í Egyptalandi, eru afar ósáttir og
reyna að fá vínyrkju bannaða eða
a.m.k. að hækka á hana skattana en
hafa ekki haft erindi sem erfiði.
Um 50.000 manns starfa við fram-
leiðsluna í arabalöndum og ekki falla
þeir allir fyrir freistingunni. Eftir 20
ára vinnu á vínbúgarði í Egyptalandi
sagðist yfirmaðurinn vera sannur
múslími og að hann hefði aldrei
smakkað dropa!
Mest er framleiðslan í Túnis, Alsír
og Marokkó en Alsír var eitt sinn
fjórði mesti vínframleiðandi í heimi.
Einnig fer vínframleiðsla hratt vax-
andi í Líbanon og Jórdaníu og hefst
senn í Sýrlandi. Reglur í Evrópu-
sambandinu, sem bönnuðu innflutn-
ing svonefndra blandaðra vína, áttu
mikinn þátt í að draga úr útflutn-
ingnum og gæðum hrakaði í kjölfar
þjóðnýtingar. Óorð komst á arabísk
vín sem voru jafnvel kölluð í háðung-
arskyni „Chateau Migraine“ með
vísan til höfuðveikinnar mígrenis.
Arabísk vín verða æ vinsælli
Sanntrúaðir múslímar ósáttir við þróunina
Peking. AFP. | Að minnsta kosti sjötíu
námamenn fórust og óttast var um
26 til viðbótar þegar sprenging
varð í kolanámu í Linfen-borg í
Shanxi-héraði í Norður-Kína í gær.
Fimmtán björguðust á lífi, að sögn
Xinhua-fréttastofunni.
Talsmaður stjórnvalda sagði að
sumir þeirra sem fórust hefðu verið
úr hópi björgunarmanna sem þust
höfðu ofan í námuna eftir spreng-
inguna. Ljóst var þó þá að gas í loft-
inu í göngunum var hættulegt
mönnum. Ekki var vitað hvers
vegna sprengingin varð.
Reuters
Sorg Ættingjar og vinir gráta örlög þeirra sem dóu í námuslysinu.
Hátt í
hundrað
fórust
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
GEORGE W.
Bush Bandaríkja-
forseti greindi í
gær frá því að
samkomulag hefði
náðst við veðlána-
stofnanir og fjár-
festa um frystingu
vaxta á svokölluð
ótrygg fasteigna-
lán eða áhættu-
húsnæðislán. Fastlega hafði verið
reiknað með því að vextirnir færu
hækkandi á næstu mánuðum og því
óttuðust menn aðra holskeflu gjald-
þrota einstaklinga og fjárnáma, enda
myndi hækkun þýða dýrari lán og
hærri greiðslubyrði.
„Það finnst engin fullkomin lausn,“
sagði Bush þegar hann greindi frá
samkomulagi sem náðist fyrir tilstilli
stjórnvalda við lánastofnanir. Fryst-
ing vaxtanna nær til fimm ára en til-
gangurinn er sá að verja húsnæðis-
eigendur og sagði Bush að með þessu
mætti ná til 1,2 milljóna manna. Þar
yrði um að ræða ábyrga heimiliseig-
endur sem geta komist hjá því að
lenda í fjárhagsvandræðum ef aðeins
þeir fá til þess aðstoð. Ekki væri
meiningin að hjálpa lánveitendum,
fasteignabröskurum eða fólki sem
réðst í húsnæðiskaup jafnvel þó að
það vissi að það hefði ekki efni á því.
Bush sagði að aðeins hluti lántak-
endanna myndi fá frystingu lána, öðr-
um yrði hjálpað til við endurfjár-
mögnun og flutning yfir í lán sem
bandarísk húsnæðismálayfirvöld
tryggðu. Fyrr í gær hafði verið greint
frá því að eignarnám í fasteignum
fólks hefðu verið fleiri á þriggja mán-
aða tímabili, júlí – september, en
nokkurn tíma fyrr, fjárnámsprósenta
allra fasteignalána var 0,78%; en þar
er um það að ræða að lánveitendur
ganga að veði viðkomanda vegna van-
skila.
Stjórnvöld rétta lán-
takendum hjálparhönd
Í HNOTSKURN
»Áhættuhúsnæðislán (e. sub-prime mortgages) eru lán til
aðila með slæma skuldastöðu
sem eru líklegri til vanskila. Af-
sláttarkjör voru veitt á lánunum
í upphafi, vextir oftast 7 eða 8%,
en hafa farið í allt að 11% sl.
mánuði sem þýðir umtalsverða
hækkun greiðslubyrði.
George W. Bush
USB minnislyklar með rispufríu lógói.
Frábærir undir myndir og gögn.
Ódýr auglýsing sem lifir lengi.
www.alltmerkt.is sala@alltmerkt.is
S: 511 1080 / 861 2510
(512 MB, 1 GB, 2 GB og 4 GB)