Morgunblaðið - 07.12.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 21
SÝNING á verkum 22 listamanna
lífs og liðinna stendur nú yfir í
Listasafni ASÍ. Það er Reykjavíkur-
höfn sem er viðfangsefnið, en sýn-
ingin er haldin í tilefni 90 ára afmæl-
is hafnarinnar. Sýningarstjóri er
Hulda Stefánsdóttir myndlistar-
maður en sýningin er unnin í sam-
vinnu við Kristínu G. Guðnadóttur,
forstöðumann Listasafnsins, og
Ágúst Ágústsson hjá Faxaflóa-
höfnum.
Hér sjáum við verk eftir ólíka
listamenn, allt frá Jóni Stefánssyni
og Þórarni B. Þorlákssyni til Dieter
Roth og Haraldar Jónssonar svo
einhverjir séu nefndir, málverk,
myndbönd og skúlptúra. Hulda hef-
ur valið hvorutveggja verk sem sýna
höfnina á nokkuð raunsæjan máta,
eins og t.d. málverk Jóns Stefáns-
sonar sem Björn Th. kallar einn af
þremur hornsteinum listar hans.
Ekki síður forvitnilegt er málverk
Þórarins B. Þorlákssonar af skips-
bruna í Reykjavíkurhöfn árið 1900.
Ein af skipamyndum Kjarvals er
hér, en að eigin sögn voru það skip
sem fengu Kjarval til að byrja að
teikna og mála, rétt eins og hvít segl
heilluðu bæði Gunnar Gunnarsson
og Þórberg Þórðarson. Auðvitað eru
hér líka Snorri Arinbjarnar, Ás-
grímur, Nína og fleiri. Dieter Roth
birtir höfnina í aksjón þar sem lit-
um, ljósum og bókstöfum er brugðið
upp á hreyfingu. Hulda Hákon og
Einar Garibaldi kalla fram íslenska
stemningu en nærvera hafsins birt-
ist í teikningum Birgis Andréssonar,
myndbandi Hönnu Styrmisdóttur
og á huglægan máta í skúlptúr Mar-
grétar H. Blöndal. Sambland hins
kvika yfirborðs, birtubrigða hafs og
himins ásamt reglulegum formum
bygginga sameinast í veggverki
Svövu Björnsdóttur sem er mögnuð
blanda óefniskenndra og form-
sterkra eiginleika. Ljósmyndir af
tónlistarhúsinu sem nú rís við höfn-
ina fá sinn sess og heimildir um
gjörning þeirra Haraldar Jónssonar
og Ólafar Björnsdóttur, sem þar var
framinn, birta breytt hlutverk hafn-
arinnar í dag.
Sýning sem þessi, þar sem verkin
eru valin af víðsýni, sýnir ekki að-
eins mikilvægi listarinnar og brýnt
hlutverk listamanna í samfélaginu á
öllum tímum, heldur hverfa einnig í
skuggann óþarfa málalengingar um
mikilvægi einstakra miðla eða
vinnuaðferða en samspil listar og
samfélags fyrr og nú er í brenni-
depli. Þetta er fjölbreytt, fróðleg og
lifandi sýning sem enginn ætti að
láta framhjá sér fara.
Ragna Sigurðardóttir
Listin er ómissandi
MYNDLIST
Listasafn ASÍ
Til 16. desember. Opið þri. til sun. frá kl.
13-17.
Kvikar myndir, afmælissýning Reykjavíkur-
hafnar, verk eftir 22 listamenn.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölbreytt Reykjavíkurhöfn er viðfangsefnið í verkunum í Listasafni ASÍ.
EKKI er sama hvernig tónleikar eru
haldnir. Það er ekki nóg að spila vel,
efnisskráin verður líka að vera vel
samsett og í klassíska geiranum þyk-
ir nauðsynlegt að hafa sæmilega
greinargóðar upplýsingar um verkin
í tónleikaskrá. Nú, og svo verður auð-
vitað að auglýsa tónleikana almenni-
lega svo einhverjir komi til að hlusta.
Fæst af þessu var í lagi hjá Liene
Circene píanóleikara, sem hélt tón-
leika í Salnum á miðvikudagskvöldið.
Circene er prýðisgóður píanóleikari,
en tónleikarnir virðast ekki hafa ver-
ið nægilega vel auglýstir, a.m.k. var
tónleikasókn með allra dræmasta
móti.
Efnisskráin, eða lagalistinn eins og
hún er kölluð í poppheiminum, var
líka einkennilega samansett. Það var
undarlegt að spila um tíu lettneskar
vögguvísur eftir ýmsa höfunda strax
á eftir öfgakenndri Novelettu eftir
Schumann, og svo brjálæðislega, en
örstutta þrjá Argentínska dansa eftir
Ginastera á eftir vögguvísunum. Það
var eins og að sýna grínmynd, gefa
áhorfandanum svefnpillu og hella
yfir hann kaldri vatnsfötu, nánast allt
í sömu andránni. Vögguvísurnar
komu of snemma á eftir Novelett-
unni, þær voru alltof margar, og
dansarnir eftir Ginastera of fáir til að
þeir næðu að skapa viðeigandi mót-
vægi.
Annað á dagskránni var ekki held-
ur sérlega kræsilegt, sónata nr. 8 eft-
ir Gagnidze, sem hér var frumflutt,
var að vísu frábærlega vel leikin af
Circene, en það dugði ekki til að gera
verkið áhugavert. Tónlistin var í svo-
kölluðum naumhyggjustíl, lítil tón-
hugmynd var endurtekin hvað eftir
annað áður en sú næsta skaut upp
kollinum og er auðvitað ekkert að
slíku tónlistarformi. En þá verða
hugmyndirnar að vera svo bitastæð-
ar að þær verðskuldi að vera endur-
teknar aftur og aftur. Sú var ekki
raunin hér, þetta voru aðallega klisj-
ur, holt bergmál tónlistar sem oft
hefur heyrst áður.
Óþarfi er að telja allt upp sem Cir-
cene lék, en langbesta verkið var það
fyrsta, sónata eftir Edgars Rag-
inskis, en hann er fæddur árið 1984.
Sónatan hans er gríðarlega kraft-
mikil og byggist á áleitnum tónhug-
myndum sem snilldarlega er unnið
úr. Circene spilaði verkið sérlega
glæsilega; af hverju var ekki meira
svona af tónleikunum?
Því miður voru engar upplýsingar
um verkin í tónleikaskránni, í staðinn
hélt Jónas Ingimundarson stutta tölu
á undan hverju þeirra. Það kom ekki
nægilega vel út, Jónas var fremur
dauflegur og sú stemning sem Cir-
cene náði að skapa með hverri tón-
smíð dó alltaf um leið og hann hóf
upp raust sína. Betur hefði farið á að
hafa prentaðar upplýsingar í tón-
leikaskránni.
Svefninn langi
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Verk eftir Raginskis, Severac, Gagnidze,
Schumann, Ginastera og fleiri. Liene
Circene lék á píanó. Miðvikudagur
21. nóvember.
Píanótónleikar Jónas Sen
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Langar þig að breyta til?
www.austurat.is
Jólatónleikar Kyrjanna
Árlegir jólatónleikar Kyrjanna verða laugardaginn 8. desember nk.
kl. 17:00 í Fella- og Hólakirkju. Yfirskrift jólatónleikarnna í ár er „Sú
vonanna sól, verði stjarnan um jól.“ - innlend og erlend jólalög.
Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari
kórsins er Halldóra Aradóttir einnig spilar Agla Eir Sveinsdóttir
á þverflautu.
Miðasala við innganginn og er miðaverð kr. 2.000