Morgunblaðið - 07.12.2007, Side 25
mælt með …
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 25
NÝ OG GLÆSILEG
BÓKAVERSLUN!
Ein glæsilegasta bókaverslun landsins, Bóksala stúdenta, hefur verið
opnuð á hinu nýja Háskólatorgi Háskóla Íslands. Við bjóðum alla
hjartanlega velkomna – það verða frábær tilboð á jólabókum og
ýmsar uppákomur í versluninni fram að jólum.
Háskólatorgi Sæmundargötu 4 101 Reykjavík Sími 570 0777 boksala@boksala.is www.boksala.is
- Mikið úrval bóka við allra hæfi
- Óvænt opnunartilboð á hverjum degi til jóla
- Lesið verður úr nýjum bókum
- , nýr veitingastaður á næstu grösum, með kaffi og meðlæti
Afgreiðslutími til jóla:
Virkir dagar 9–18
Laugardagur 8. des. 11–16
Laugardagur 15. des. 11–16
Laugardagur 22. des. 11–18
Þorláksmessa 11–18
Vefverslun opin allan
sólarhringinn www.boksala.is
P
L
Á
N
E
T
A
N
2
0
0
7
Tilboð: 3.493 kr.
Alm. verð: 4.990 kr.
Tilboð: 1.344 kr.
Alm. verð: 1.680 kr.
Tilboð: 3.360 kr.
Alm. verð: 4.480 kr.
Tilboð: 2.919kr.
Alm. verð: 4.490 kr.
25%
afsláttur
Tilboð: 3.368 kr.
Alm. verð: 4.490 kr.
20%
afsláttur
Tilboð: 2.944 kr.
Alm. verð: 3.680 kr.
30%
afsláttur
Tilboð: 1.883 kr.
Alm. verð: 2.690 kr.
35%
afsláttur
30%
afsláttur
20%
afsláttur
25%
afsláttur
20%
afsláttur
Tilboð: 3.584 kr.
Alm. verð: 4.480kr.
Kakó í kuldanum
Það er kannski ekkert sérstaklega
kalt þessa dagana, en heitt kakó með
rjóma á engu að síður einstaklega vel
við er þrammað er á milli verslana í
leit að réttu jólagjöfinni fyrir vini og
ættingja. Næstu þrjá laugardaga
munu verslunareigendur í mið-
bænum, Hjálpræðisherinn og Nor-
ræna félagið leitast við að skapa
skemmtilega jólastemningu í mið-
bænum með því að bjóða gestum og
gangandi upp á heitt súkkulaði og
piparkökur, tónlist og söng. Á morg-
un verða slíkar trakteringar í boði á
sjö stöðum frá kl. 14-18 og það er því
tilvalið að gera smáhlé á búðarápinu
er söngur heyrist álengdar og gleðja
bæði tóneyra og bragðlauka með
stuttu stoppi frá amstri dagsins.
Jólastund með Hugleik
Hvernig væri síðan að bregða sér
á Jóladagskrá leikfélagsins Hugleiks
í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnu-
dagskvöldið? Félagar í Hugleik und-
irbúa komu jólanna þetta árið með
því að bjóða upp á fjóra leikþætti,
tónlist og jafnvel föndur sem efalítið
hentar vel þeim sem hafa fima
föndurfingur. Húsið verður opnað kl.
20.30 en dagskráin hefst kl. 21.
Á vit fortíðar
Aldnir og ungir í Eyjafirði geta
síðan skemmt sér við að kynnast
jólastemningu fortíðar í Gamla bæn-
um í Laufási á sunnudaginn frá kl.
13.30-16. Það gefst gestum og gang-
andi kostur á að fylgjast með und-
irbúningi jólanna eins og hann var í
gamla sveitasamfélaginu og bragða
um leið á indælis hangikjöti.
Jólabókaupp-
lestur í Kópavogi
Jólabækurnar eru órjúfanlegur
hluti jólanna í huga margra og líkt og
fyrri ár kennir margra grasa í bóka-
útgáfunni og kynna höfundar bækur
sínar víða með upplestri. Í Kórnum í
Bókasafni Kópavogs gefst gestum til
að mynda gott tækifæri til að kynn-
ast jólabókum fjögurra rithöfunda,
kl. 14 á sunnudag. Þar lesa þá þær
Alma og Freyja upp úr bókinni
Postulíni, Bubbi Morthens úr Að
kasta flugu í straumvatn er að tala
við Guð, Edda Andrésdóttir úr Í
öðru landi og Einar Kárason úr End-
urfundum.
Jólamarkaður Ketilhúsi
Þeir eru orðnir mýmargir jóla-
markaðirnir sem haldnir eru á að-
ventunni og því fer fjarri að þeir séu
bara haldnir á suðvesturhorninu.
Þannig hafa Akureyringar til dæmis
úr tveimur jólamörkuðum að velja nú
um helgina. Annars vegar í Ketilhús-
inu í Listagilinu í dag á milli kl. 16 og
21 og eins á morgun frá kl. 12-18 í
galleríBOX í Kaupvangsstræti. Í
Ketilhúsinu er um að ræða norð-
lenskan handverksmarkað með fjöl-
breyttu úrvali muna sem m.a. eru
unnir úr ull, beinum, steinum, silfri,
gleri, viði og keramiki. Markaðurinn
í galleríBOX er hins vegar hönn-
unarmarkaður þar sem finna má
fjölda muna frá yngri og eldri hönn-
uðum.
Morgunblaðið/ Ásdís Haraldsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Séra Hjálmar Jónsson skrifarVísnahorninu: „Skírnir
Garðarsson vígðist prestur vorið
1976 og varð þá prestur í
Búðardal. Við lukum um haustið
’76 nokkrir og vorum yfir
lestrinum að hugsa til þess hvernig
séra Skírni gengi nú að semja
ræðurnar. Við Davíð Baldursson,
nú prófastur á Eskifirði, keyptum
skýringarrit, e.k. ræðusafn, í Máli
og menningu og sendum Skírni
vestur í Búðardal með þessari vísu:
Ræðugerð er prestsins puð,
pokinn þungann stynur.
Þessi er upp á þrjúhundruð
þorskhausana, vinur.“
Skírnir leigði sér bændagistingu,
sem reyndist vera gamalt fjós,
ekkert rafmagn og engin
eldunaraðstaða, og hann orti:
Býr í fjósi, búkinn lemur,
brennir ljós við skarn og kol.
Sig á dósum seðja nemur,
sumir kjósa eymd og vol.
Og Skírnir orti á sínum tíma:
Ána sá ég ánni á,
áninn kjánalegi,
ána brá við ána þá,
ána sá að á á á.
Hálfdan Ármann Björnsson
yrkir að síðustu um Hjálmar og
Skírni:
Skelegg eru Skírnismál,
– skálda búin trafi.
Þar er að baki þingeysk sál,
það er enginn vafi.
Þörf er á presti að leggja lið
Leirs- að hemja -skanka,
einn ræður Hjálmar ekkert við
okkar syndaþanka.
VÍSNAHORNIÐ
Af prestum
og þorski
pebl@mbl.is