Morgunblaðið - 07.12.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 29
d eldri borgara, Félag að-
eimerssjúklinga, Að-
g heimilisfólks á Skjóli,
plaugarstöðum, Félag
drunarþjónustu og Að-
g aldraðra, voru sammála
a bæri að taka aðgerða-
alda fagnandi og að með
nist viss sigur í baráttunni
jörum aldraðra.
Fulltrúarnir lýstu yfir ánægju með
þann vilja sem fælist í áætluninni og
vonuðust til að frekari aðgerða væri að
vænta.
Rík ástæða væri þó til að vekja at-
hygli á þeim grundvallaratriðum sem
orðið hefðu útundan og brýn þörf væri
að leysa úr sem fyrst. Þar bæri hæst
málefni vistmanna á hjúkrunarheimilum
landsins, en engar úrbætur væru þar í
augsýn.
Samkvæmt áskoruninni sem félögin
munu senda ráðamönnum á næstu dög-
um, kemur fram að engin ný hjúkr-
unarrými verða tekin í notkun á næsta
ári haldist ástandið óbreytt og að bið-
listar til vistana séu orðnir alltof langir.
Sambýli, mannekla
og lág daggjöld
Of algengt sé að fólk búi í sambýli á
herbergjum með sér alls ókunnu fólki
og að dæmi séu um að einstaklings-
herbergi séu ekki nema 8 fermetrar að
stærð. Á hjúkrunarheimilum sé vaxandi
mannekla, sem að hluta til sé hægt að
rekja til lélegra aðstæðna fyrir starfs-
fólk og daggjöld séu of lág, sem skili sér
í lítilli þjónustu við heimilismenn.
Gylfi Páll Hersir, frá Aðstandenda-
félagi heimilisfólks á Skjóli, sagði óvið-
unandi að engin áþreifanleg niðurstaða
hefði komið út úr þeim ótal fundum sem
aðstandendafélög heimilisfólks hjúkr-
unarheimila hefðu átt með ráðherrum
og heilbrigðisnefndum. Það væri t.d. vit-
að mál að skortur væri á starfsfólki.
Fyrir einu og hálfu ári hefði það verið
staðfest af Landlæknisembættinu að úr-
bóta vegna manneklu væri þörf um allt
land, en enn hefði ekkert gerst.
Fulltrúar félaganna sjö fögnuðu
þeirri ákvörðun stjórnvalda að dagpen-
ingar vistmanna á sjúkrastofnunum
yrðu hækkaðir á næsta ári. Þeir vildu þó
jafnframt vekja athygli á því óréttlæti
sem fælist í því að svipta fólk fjárræðinu
þegar það færi inn á sjúkrastofnanir.
Það væri mannréttindabrot sem þyrfti
að afnema og að heimilisfólk ætti að
hafa tækifæri til að ráða sínum fjár-
málum eins lengi og kostur væri.
Brit J. Bieltvedt frá Félagi stjórn-
enda í öldrunarþjónustu sagði mik-
ilvægt að hækka laun starfsmanna á
hjúkrunarheimilum og bæta menntun
þeirra. Þeir starfsmenn sem þar ynnu
stæðu sig í flestum tilfellum frábær-
lega, en ynnu starf sitt af hugsjón
vegna lágra launa. Hún vonaðist til að
framhald yrði á starfi ríkisstjórn-
arinnar í þessum málum og að upp-
bygging hjúkrunarheimilanna yrði
næst á dagskrá.
Málaflokkur án
heildstæðrar stefnu
Margrét Margeirsdóttir frá Lands-
sambandi eldri borgara, sagðist vona
að viðhorfsbreytingar væru að verða í
þjóðfélaginu í málefnum aldraðra. Mik-
ilvægt væri að huga að búsetumálum
með því að sníða heimili eftir að-
stæðum og aldri fólks og taka jafn-
framt upp sjálfstæða búsetu. Gamla
„elliheimilisformið“ væri heimilisfólki
ekki boðlegt en væri því miður enn
víða við lýði.
Fram til þessa hefðu málefni aldr-
aðra verið málaflokkur án heildstæðrar
stefnu. Forgangsatriði væri að svara
loks spurningunni sem aldrei hefði ver-
ið svarað: Hvernig viljum við koma til
móts við eldri borgara í framtíðinni?
ætt verði úr húsnæðismálum aldraðra
Morgunblaðið/Ómar
skorun sem þeir hyggjast
málaflokknum.
Í HNOTSKURN
»Ríkisstjórnin tilkynnti á miðviku-dag að 5 milljarðar króna yrðu
veittir til að bæta úr kjörum aldr-
aðra og öryrkja.
»Samtök um málefni aldraðrafagna ákvörðun stjórnvalda en
krefjast skýrrar stefnumótunar í
málaflokknum og að áhersla verði
lögð á búsetumál og uppbyggingu
hjúkrunarheimila.
»Engin ný hjúkrunarrými verðatekin í notkun miðað við núver-
andi áætlanir, að sögn fulltrúa sam-
takanna, mannekla ríkir á heim-
ilunum, biðlistar eru langir og
plássið af skornum skammti.
»Félag aðstandenda alzheim-ersjúklinga bendir á að sérhæfð-
um úrræðum fyrir aldraða með
heilabilun sé sárlega ábótavant, sér-
lega þurfi að sinna málum fólks
undir 67 ára aldri sem hafi aðrar fé-
lagslegar þarfir en þeir sem yngri
eru.
eftirspurnin reynist vera umfram tíu
milljarða króna, sem menn eru ekkert allt
of bjartsýnir á. Einnig er bent á að Baugi
takist þarna að koma í verð í skráðu félagi
fasteignasafni sínu í Landic Properties,
óskráðu félagi, sem til stóð á sínum tíma
að skrá á markaði, en horfið var frá, að
minnsta kosti um stundarsakir.
Jón Ásgeir mun einnig hafa talið, að
kjölfestufjárfestirinn í Glitni, FL Group,
yrði að vera fjárhagslega sterkt félag og
vitanlega hefur það ekki skemmt fyrir, að
með þessari aukningu náði Baugur undir-
tökunum í Glitni. Menn eru sammála um
að Jón Ásgeir geti nú ráðið því sem hann
vill ráða, bæði í FL Group og Glitni.
Minnugir rifja upp, að með þessari nið-
urstöðu sé gamall draumur Jóns Ásgeirs
orðinn að veruleika: Hann ráði nú yfir
Glitni (áður Íslandsbanki) og trygginga-
félagi, Tryggingamiðstöðinni. Auk þess
ráði hann yfir stærsta fasteignafélagi
Norðurlanda. Ekki eru svo mörg ár frá
því að baráttan um Íslandsbanka var í al-
gleymingi, en sú barátta stóð frá árinu
2000 fram á haust 2002. Þá var Jón Ás-
geir Jóhannesson í hópi fjárfesta Orca-
hópsins, sem reyndu allt hvað þeir gátu
til þess að ná ráðandi hlut í þá stærsta
banka landsins, Íslandsbanka, og Trygg-
ingamiðstöðinni, en þeir urðu undir í
þeirri baráttu. Nú heitir Íslandsbanki
Glitnir og er ekki lengur stærsti við-
skiptabankinn, heldur sá minnsti, og Jón
Ásgeir kominn með þau völd í bankanum,
sem hann sóttist eftir fyrir rúmum fimm
árum.
Við þær breytingar sem verða á eðli
starfsemi FL Group eftir að fasteigna-
safn Baugs rennur inn í félagið má segja
að grunnstarfsemin sé nú þríþætt: fjár-
málastarfsemi (Glitnir), tryggingastarf-
semi (TM) og eignaumsýsla (fasteigna-
safnið). Þetta segja fjármálasér-
fræðingar vera öruggustu samsetningu
fjárfestingafélags. Þeir segja að tekju-
streymi sé oftast nær nokkuð öruggt hjá
slíkum félögum.
Það er komin fjárþurrð á hlutabréfa-
markaðinn. Enginn banki lánar til hluta-
bréfakaupa í dag og þeir sem hafa þurft
að sinna veðköllum lánastofnana að und-
anförnu hafa fæstir getað fengið aukin
lán, til þess að setja að veði fyrir hluta-
bréfaeign sinni, og hafa því þurft að setja
eignir að veði.
Væntanlega mun það skýrast á næstu
vikum og mánuðum hverjir þurfa að selja
hluta af eða allt hlutabréfasafn sitt og
ganga frá borði slyppir og snauðir, jafn-
vel í umtalsverðu tapi, eftir þær breyt-
ingar sem urðu á verði FL Group, þegar
það féll á milli daga um fjórðung, þ.e. úr
19,25 við lok markaðar á mánudag, í 14,7
síðdegis á þriðjudag.
Hannes Smárason, eigandi Oddaflugs,
var stærsti einstaki eigandinn að FL með
20,52% hlut. Eignarhaldsfélag Hannesar,
Primus, er samkvæmt heimildum blaða-
manns mjög skuldsett. Eignarhlutur
Hannesar er enn að minnka og sömuleið-
is þeirra Magnúsar Ármann og Þorsteins
M. Jónssonar. Fons, eignarhaldsfélag í
eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristinssonar, keypti í gær bréf
af þessum aðilum, fyrir milligöngu Glitn-
is. Samtals keypti Fons tæp 7% á genginu
16,1 eða fyrir rúma tíu milljarða króna.
Heimildir herma að Fons muni kaupa
aukinn hlut í FL Group innan tíðar.
Staða Jóns Ásgeirs mjög sterk
Staða Baugs og Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar hefur vitanlega styrkst umtals-
vert við þá hlutafjáraukningu sem nú er
orðin í FL. Raunar eru margir þeirrar
skoðunar að með þessum leik sínum hafi
Jón Ásgeir enn einu sinni sýnt, hversu út-
sjónarsamur og hæfur hann er í viðskipt-
um. Talað hefur verið um snilldarleik
Jóns Ásgeirs. Bent er á að Jón Ásgeir
leggi enga peninga inn í félagið, en ef
hlutafjáraukningin fer samkvæmt áætl-
un, þá geti Baugur fengið í sinn hlut um
fimm milljarða króna, þegar selt verður
til fagfjárfesta. Það sé að vísu háð því að
úar á þessu ári. Bara síðastliðinn mánu-
dag lækkaði verð FL Group um 15 millj-
arða króna. Þar við bættist svo hrunið úr
19,25 í 14,7, sem er fall um rúm 23%.
Með þeirri innspýtingu fasteignasafns
Baugs, sem ákveðin var á þriðjudag,
verður eigið fé FL Group um 180 millj-
arðar króna, sem hlýtur að teljast ágætt.
Fullyrt er að Jón Ásgeir Jóhannesson
muni sem stjórnarformaður hafa mun
meiri áhrif á ákvarðanir og fjárfestinga-
stefnu félagsins en hann gerði í forstjó-
ratíð Hannesar Smárasonar.
Félagið situr uppi með stórar eignir í
hlutabréfum, sem eru ekki mjög vel selj-
anlegar, eins og hlutur FL í Finnair. Þess
er vænst að félagið hverfi frá slíkum fjár-
festingum.
Fæstir fjármálaspekúlantar sem rætt
hefur verið við treysta sér til þess að full-
yrða að markaðurinn hafi róast og virðast
flestir telja að tímabil mikilla sveiflna sé
framundan.
„Barnum lokað, partíið búið“
Sérfræðingarnir eru á hinn bóginn
sammála um að hinni miklu grósku á ís-
lenska hlutabréfamarkaðinum sé lokið,
að minnsta kosti um stundarsakir.
Ómögulegt sé hins vegar að fullyrða um
hversu lengi stöðnun muni ríkja.
Einn viðmælandi orðaði það svo:
„Barnum hefur verið lokað. Partíið er bú-
ið og það er verið að kveikja ljósin. Menn
munu verða mjög timbraðir á næstunni.“
Þessi viðmælandi var þó þeirrar skoðun-
ar, að íslenski markaðurinn hefði færst
nær raunveruleikanum, með þeim miklu
lækkunum sem orðið hefðu að undan-
förnu, ekki bara hjá FL Group, heldur
hjá flestum félögum. Nú væri búið að
tappa ákveðnu lofti af hlutabréfaverðinu
og því myndi starfsemi hlutabréfamark-
aðar á árinu 2008 og 2009 væntanlega
verða mun betur jarðtengd en hún hefði
verið undanfarin ár og vonir stæðu til
þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn
færi að virka í samræmi við aðra markaði.
telja heimildarmenn að þeir Jón Ásgeir
og Hannes hafi í sameiningu reynt að
fegra hlut Hannesar og að Jón Ásgeir
hafi viljað tryggja, að Hannes fengi að
ganga út úr félaginu með þokkalegri
reisn. Menn hafi almennt verið sammála
um að honum hafi mistekist forystuhlut-
verkið og yrði því að víkja.
Ýmsir hafa í því sambandi haft á orði,
að enn eigi eftir að fara ofan í kjölinn á
óheyrilegum rekstrarkostnaði FL Group
að undanförnu. Hann hafi verið 2,7 millj-
arðar fyrir árið 2006 og 3,1 milljarður
króna eftir fyrstu níu mánuði þessa árs.
Menn spyrja hvernig það megi vera, að
rekstrarkostnaður félags, sem stendur
ekki í neinum rekstri, kaupir bara og sel-
ur hlutabréf, skuli hlaupa á milljörðum og
starfsmenn félagsins þurfi að vera 41
talsins.
Helstu eignir FL Group eru eins og
kunnugt er 31% eignarhlutur í Glitni,
3,8% hlutur í Commerzbank, 22,4% hlut-
ur í Finnair og um 20% hlutur í Royal
Unibrew. Félagið átti, þar til í síðustu
viku, rúm 9% í bandaríska flugfélaginu
AMR, en seldi stærstan hlut sinn þar eins
og fram kom í liðinni viku, með 15 millj-
arða króna nettó tapi. Ómögulegt er að
segja hversu mikið brúttó tap félagsins
var á þeirri fjárfestingu, því ekki liggja
fyrir upplýsingar um það hversu skuld-
sett kaupin voru. Varlegt þykir þó að
áætla, vegna fjármagnskostnaðar við
kaupin, að tapið nemi um tveimur til
þremur milljörðum króna að auki.
Þrettán milljarða söluhagnaður FL
Group í easyJet á sínum tíma er fljótur að
gleymast í svona tölulegu samhengi.
Verðfall um 23% á milli daga
Fjárfestingar FL Group hafa skroppið
ótæpilega saman í verðmætum á undan-
förnum misserum, þannig að þegar síð-
ustu viðskipti voru með bréf í FL Group í
Kauphöllinni sl. mánudag hafði verðmæti
FL Group hrunið um 130 milljarða króna
frá því að gengi bréfanna fór hæst í febr-
ækið í fjárfestingum sínum
með glæsilegum árangri,
a hefur komið í ljós á und-
uðum.
afa þar fleiri þættir áhrif en
usókn, því markaðir hafa
kkað mikið um víða veröld,
ð hefur komið fram í frétt-
ón Ásgeir Jóhannesson og
ason hafi báðir talað þannig
fundinum á Hótel Hilton,
ætti sem forstjóri af fúsum
lja og það væri ekki van-
es að skipta um forstjóra,
ð verja ólíka hagsmuni
3 97 $
#
8
6# 8
5#!48
$#438
4#""8
5#758
#!58
##
$2$ $ #
345 6
7$
385 7$
0 *#
9
7$
3:;#
#7$
7$
<
7$
7 7 =
7
6
6
C D"< 6"< " : + +=" : " " D"<
2$ $C-
E<5
+ @ -
F5< 6 + + 0#38
#38
#8
13#$8
#$8
3
5
>:3 5
4
7 ? /
%( 0
356$ @
7 ?
3 5$
2# ,"+ + 6"<
48
38
385 7$
0 *#
= 7 7 1 #$28
- &
>:?6 47 /
%( 0
"!$ $
6
#? #
6
7
5$ 7
5
7
>:3 5
A 7
4?
67 /
%( 0 $
6
)!!'$
3 57
#?#
5
4? $
; KHL
URN
ankinn hefur fengið öll
Tryggingamiðstöðinni að
num sínum til FL Group.
ankinn telur að hluthafar í
eru með lán í bankanum
réfum sínum, hafi sett
r tryggingar fyrir lánum
ngi er greinileg eftirsjá að
ðum sem hvíla á ýmsum
í fasteignasafni Baugs,
n hefur talið trygg veð.
eir Jóhannesson er með
g hagldirnar bæði í FL og
hlutafjáraukninguna.
ráðið því sem hann vill.
ga á eignarhlutur annarra
a, sem voru í hópi 10
n eftir að minnka. Sumir
a að selja.
mun hlutur Fons, eign-
félags í eigu Pálma Har-
g Jóhannesar Krist-
ukast í FL Group enn
stunni, en Fons keypti 7%