Morgunblaðið - 07.12.2007, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 07.12.2007, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 43 Félagsstarf Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leirmótun kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leik- fimi kl. 10, bingó kl. 13.30. Uppl. í síma 411 9430. Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofa opin 9- 16.30, jóga kl. 9, versl- unarferð í Bónus kl. 10, há- degismatur kl. 12, kaffi kl. 15 og söngstund við píanóið kl. 15.30. Bingó fellur niður. Árskógar 4 | Bað kl. 9-16.30, smíðast. kl. 9-16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hár- greiðsla, böðun, handavinna, fótaaðgerðir, kertaskreyting. Aðventuskemmtun og jóla- hlaðborð kl. 17. Bíóferð frá Bólstaðarhlíð 11. des. kl. 13.15, á myndina Veðramót eftir Guðnýju Halldórsd. Miðaverð kr. 1.000, rútugjald kr. 500. Skráning í s. 535 2760. Félag eldri borgara í Kópa- vogi | Gleðigjafarnir syngja í Gullsmára kl. 14. Kaffiveit- ingar fáanlegar að söng lokn- um við vægu verði. Stjórn- andi er Guðmundur Magnússon. Félag eldri borgara, Reykja- vík | Bókmenntaklúbbur kl. 13, umsjón Sigurjón Björns- son. Félag kennara á eft- irlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur 8. des. í Stangarhyl 4 kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Málm- & silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, aðventufagn- aður kl. 14, leikskólabörn frá Skólatröð syngja jólalög. Harpa og söngur á aðventu, dagskrá með ljóðaupplestri o.fl., sr. Íris Kristjánsdóttir flytur hugleiðingu, hátíð- arkaffihlaðborð. Félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leikfimi kl. umræðunnar er þjáning og hógværð. Einnig er umræðu- hópur á ensku. Boðið er upp á unglinga- og barnadagskrá. Guðþjónusta kl. 12. Björgvin Snorrason mun predika. Tón- list. Aðventsöfnuðurinn í Hafn- arfirði | Guðþjónusta og bibl- íurannsókn kl. 11. Maxwell Ditta er ræðumaður sam- komunnar. Maxwell er frá Pakistan en starfar á Íslandi. Barna- og unglingadagskrá. Hressing í boði eftir sam- komuna. Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með boccia og bæna- stund á Dalbraut 27 kl. 10.15. Sóknarprestur Áskirkju verður með guðsþjónustu á Norðurbrún 1 kl. 14. Furu- gerðiskórinn leiðir söng und- ir stjórn Ingunnar Guð- mundsdóttur sem einnig leikur á orgel. Breiðholtskirkja | For- eldramorgunn kl. 10-12. 13, guðsþjónusta kl. 14. Kaffi. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl 9.15- 14.30, handavinna kl. 10.15, spænska – byrjendur kl. 11.45, hádegisverður kl. 13.30, sungið við flygilinn kl. 14.30, kaffiveitingar kl. 14.30, dansað í Aðalsal. Kirkjustarf Aðventkirkjan á Suð- urnesjum | Biblíurannsókn kl. 11. Gavin Anthony fer yfir efnið „þjáning og hógværð“. Gavin gaf nýverið út bók um hlutverk þjáningar í lífi okkar. Hann mun einnig predika í guðþjónustunni kl. 12. Súpa og brauð á eftir. Aðventkirkjan í Árnesi | Biblíurannsókn kl. 10 þar sem bæði fullorðnir og börn fá eitthvað við sitt hæfi. Guð- þjónusta kl. 10.45. Guðjóna Þorbjarnardóttir predikar. Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn kl. 11. Efni 10.30, matur kl. 11.40, Gleði- gjafarnir kl. 14. Laufa- brauðsbakstur á morgun, laugardag, karlakór kemur í heimsókn. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 12, námskeið í ullarþæfingu kl. 13, jólagleði FEBG kl. 19 í safnaðarheimilinu Kirkju- hvoli, rúta frá Jónshúsi kl. 18.30 og annars staðar frá skv. samkomulagi við Þorlák í s. 869 1380. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, m.a. bókband, prjóna- kaffi/bragakaffi kl. 10, leik- fimi kl. 10.30, í ÍR-heimilinu við Skógarsel, umsj. Júlíus Arnarsson íþróttakennari, kaffi og spjall. Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 14.20. Furugerði 1, félagsstarf | Aðstoð við böðun kl. 9, smíð- ar/útskurður. Framhaldss. kl. 14, kaffi kl. 15. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 13, boccia kl. 13.30, dansleikur kl. 20.30, Þorvaldur Hall- dórsson leikur og syngur. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Opin vinnu- stofa, postulínsmálun kl. 9- 12. Böðun fyrir hádegi. Há- degisverður kl. 11.30. Hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Jóla- fundur bókmenntahóps 11. des. kl. 20. Jólahlaðborð 14. des. kl. 17, húsinu lokað kl. 15. Verð 3.800 kr. Jólaheimsókn leikskólans Jörva 20. des. Skapandi skrif á mánud. kl. 16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi, blaðaklúbbur kl. 10, létt leikfimi kl. 11, jóla- gleði kl. 17.30. Norðurbrún 1 | Smíðastofa/ vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16. Myndlistarnámskeið kl. 9, Hafdís leiðb., leikfimi kl. dagbók Í dag er föstudagur 7. desember, 341. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.) Samtökin ’78 og Mannréttinda-skrifstofa Íslands bjóða til fyr-irlestrar næstkomandi laug-ardag kl. 13.30 í Regnbogasalnum, Laugavegi 3, 4. hæð. Fyrirlesturinn er hluti af viðburða- dagskránni Lifandi laugardagur og Evr- ópuári jafnra tækifæra, en þar ætlar Sandra Lyngdorf lögfræðingur, starfs- maður Mannréttindaskrifstofu Íslands að flytja erindið Transgender – Laga- legt tómarúm á Íslandi. „Í fyrirlestrinum fjalla ég um það lagalega tómarúm sem er á hér á landi þegar kemur að málefnum transgender einstaklinga. Ég segi frá þeirri tog- streitu sem transgender fólk upplifir þegar líffræðilegt kyn og kynverund eru ekki hið sama og fjalla um viðfangsefnið í sögulegu og læknisfræðilegu sam- hengi,“ segir Sandra. Ólíkt flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við eru engin lög til staðar á Íslandi sem fjalla um réttindi transgender einstaklinga og margskon- ar lagalegar hindranir standa í vegi fyrir lagalegri viðurkenningu og lækn- isfræðilegri meðferð: „Hjá þessum ein- staklingum kemur oft fram togstreita milli kynsamsemdar og líkamlegs kyns snemma á lífsleiðinni, sem getur valdið miklum andlegum þjáningum. Einnig geta þeir erfiðleikar sem fylgja meðferð verið þungbærir og er það sorgleg stað- reynd að um helmingur transgender fólks deyr fyrir þrítugt, margt fyrir eig- in hendi,“ útskýrir Sandra. „Þessir ein- staklingar mæta ótal fyrirstöðum í lífinu og ættu ekki að þurfa að standa frammi fyrir óþörfum hindrunum í kerfinu.“ Sandra segir brýnt að gera ýmsar lagabreytingar hér á landi til að bæta stöðu og réttindi transgender fólks: „Það væri t.d. góður kostur að fara þá leið sem farin hefur verið víða hjá ná- grannaþjóðunum: að setja heild- arlöggjöf um málefni þessa hóps. Í Þýskalandi taka lögin m.a. gott tillit til aðstæðna fólks bæði fyrir og eftir kyn- leiðréttingu, og í lögum Hollands og Bretlands er kveðið á um heimild til að breyta nafni á meðan enn er verið að undirbúa meðferð,“ segir Sandra. „Æskilegt væri að taka sem fyrst það skref að gera nauðsynlegar breytingar á nafnalögum og reglum um Þjóðskrá, en Íslendingar gætu í framhaldinu til- einkað sér það besta úr löggjöf annarra Evrópuþjóða.“ Sjá nánar á www.samtokin78.is og www.mannrettindi.is Jafnrétti | Fyrirlestur á laugardag um transgender og lagaumhverfi Hindranir á kynjaðrinum  Sandara Lyng- dorf fæddist í Sví- þjóð 1981. Hún lauk Cand. Jur. gráðu frá Háskól- anum í Uppsölum 2006. Hún hefur starfað við Mann- réttindaskrifstofu Íslands frá mars 2007, en var áður starfsmaður Sænska sendiráðsins í Reykjavík og starfs- nemi við höfuðstöðvar Sameinuðu Þjóðanna í New York 2006. Sambýlis- maður Söndru er Þorvarður Atli Þórs- son, ritari utanr.ráðun. Leiklist Brekkuskóli Akureyri | Jólasöngleik- urinn Kraftaverk á Betlehemstræti, sýning nemenda í 6.-10. bekk Brekku- skóla, verður sýndur kl. 17.30. Miða- verð 500 kr. Myndlist Grafíksafn Íslands | Grafíkfélagið opnar árlega jólasýningu 8. des. kl. 15, í sal Íslenskrar Grafíkur, Tryggva- götu 17, hafnarmegin. Léttar veit- ingar í boði. Sýningin verður opin næstu tvær helgar kl. 14-18. Tónlist Fella- og Hólakirkja | Jólatónleikar Kyrjanna verða laugardaginn 8. des- ember kl. 17. Yfirskrift jóla- tónleikanna í ár er „Sú vonanna sól, verði stjarnan um jól“, innlend og er- lend jólalög. Stjórnandi er Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari kórsins er Halldóra Aradóttir. Hallgrímskirkja | Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju verður 8. des. kl. 12- 17. Klais-orgelið 15 ára. Fjöldi kóra og orgelleikara kemur fram með Klais- orgelinu og viðstaddir syngja jóla- söngva með. Aðgangur er ókeypis en safnað er til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffihús er í suðursal Hallgríms- kirkju. Sjá nánar á listvinafelag.is. Hveragerðiskirkja | Strengjakvartett úr Reykjavík, Júlíkvartettinn, heldur tónleika 8. desember kl. 16. Gestur Júlíkvartettsins verður Fjóla Dögg Sigurðardóttir, fiðlunemandi í Tón- listarskóla Árnesinga. Á efnisskránni eru verk eftir Purcell, Vivaldi og Dvo- rák. Ketilhúsið, Listagili | Tónleikar Málmblásarakvintetts Norðurlands kl. 12.15. Jólatónlist úr ýmsum áttum meðan tónleikagestir snæða mat frá Einari kokki á Karólínu. Verð 1.500 kr. Organ | Bandaríska hljómsveitin Ak- ron/Family heldur tónleika ásamt sveitinni Hjaltalín. Skemmtanir Aflagrandi 40 | Jólafagnaður í fé- lagsmiðstöðinni. Húsið opnar kl. 18, fordrykkur og jólahlaðborð. Senjo- rítukórinn flytur jólalög. Guðrún Stephensen flytur jólasögu. Ræðu- maður kvöldsins er Helgi Hjörvar. Miðaverð 3.300 kr. Uppákomur Ketilhúsið, Listagili | Norðlenskur handverksmarkaður. Þar má m.a. finna muni unna úr ull, beinum, stein- um, silfri, gleri, viði, keramik o.fl. Veitingasala á vegum kvenfélagsins Baldursbrár. Opið kl. 16-21. Rósenborg | Jólamarkaður Huglistar í Rósenborg kl. 14-18. Mikið af hand- unnum hlutum til jólagjafa. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA- samtakanna er 895 1050. Frístundir og námskeið Rósenborg | Jólaföndur í Punktinum í Rósenborg kl. 13-17. Hægt verður að sauma, þæfa, smíða og leira, jóla- skraut og/eða jólagjafir. Efni og kennsla verður á staðnum. Ekki þarf að skrá sig. Börn Dimmuborgir | Jólasveinarnir taka á móti gestum á Hallarflöt í Dimmu- borgum í Mývatnssveit alla daga í desember kl. 13-15. FRÉTTIR NÝLEGA fékk Soromtimistaklúbbur Grafarvogs fram- kvæmdastjóra FORMA, Ölmu Geirdal í heimsókn til að fræðast um verkefni samtakanna. Alma Geirdal flutti er- indi um samtökin ásamt sinni eigin sögu af átrösk- unarsjúkdómi. Klúbburinn vildi leggja málefninu lið og lagði fram 150.000 kr. styrk til samtakanna. Myndin er tekin þegar styrkurinn var afhentur, á henni eru: Alma Dröfn Geirdal, framkvæmdastjóri FORMA, Ingibjörg Ragna Óladóttir, Sigrún Árnadóttir og Hjördís Svavarsdóttir frá Soroptimistaklúbbi Grafarvogs. Styrkja FORMA með peningagjöf Rangt föðurnafn Í FRÉTT í blaðinu í gær um bíl sem tekinn var á ólöglegum hraða var farið rangt með föð- urnafn Kristjáns Ól. Guðnason- ar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Er hann beðinn velvirðingar á þess- um mistökum. LEIÐRÉTT JÓLAMARKAÐURINN á Elliðavatni hefur verið opinn und- anfarnar tvær helgar og mörg hundruð manns hafa lagt leið sína þangað. Næstu helgi, 8. og 9. desember klukkan 14 sér Helena Óladóttir frá Náttúruskóla Reykjavíkur um Barnastundina á laugardag en á sunnudaginn klukkan 14 kemur Áslaug Jónsdóttir barnabókahöf- undur í heimsókn. Nú er kominn gangur í jólatréssöluna og hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur er enginn skortur á jólatrjám. Opið verður allar helg- ar fram að jólum klukkan 11-18. Ekið er inn í Heiðmörk af Suðurlandsvegi um Rauðhóla og skilti vísa veginn að Jólamarkaðinum á Elliðavatnsbænum. Jólamarkaður á Elliðavatni FIMMTA stefnumót umhverfisráðuneytisins og stofnunar Sæ- mundar Fróða er í dag, föstudag kl. 12, í fundarsal Þjóðminja- safnsins. Yfirskrift fundarins er: Erlendar tegundir, bölvun eða blessun? Fjallað verður um áhættuna sem fylgir því þegar erlendar plöntur eða dýr eru flutt inn til landsins. Erindi flytja Snorri Bald- ursson frá Náttúrfræðistofnun Íslands og Þröstur Eysteinsson frá Skógrækt ríkisins. Fjalla um erlendar plöntur AMNESTY International stendur fyrir fjölmörgum uppákomum á aðventunni. Bréfamaraþon verður í Reykjavík, Ísafirði og Ak- ureyri laugardaginn 8. des- ember. Þar láta félagar gott af sér leiða í þágu mannrétt- inda á aðventunni og skrifa kort til þolenda mannrétt- indabrota sem geta verið ómetanleg huggun á erfiðum tímum, segir í fréttatilkynn- ingu. Bréfamaraþonið verður haldið í hliðarsal Hornsins, Hafnarstræti 15 í Reykjavík kl. 13-17.30, Akureyr- arAkademíunni á Akureyri kl. 13-17 og í Edinborgarhús- inu á Ísafirði kl. 13-17. Í tilefni af alþjóðlega mann- réttindadeginum stendur Am- nesty fyrir uppákomu í Iðu- húsinu 10. desember kl. 20, þar sem lesið verður upp úr bókunum Hermaður gerir við grammófón eftir Sasa Staniši, Frjáls eftir Ayaan Hirsi Ali, Velkominn til Bagdad eftir Davíð Loga Sigurðsson, Um langan veg eftir Ishmael Beah og Í felulitum við frið- argæslu í Bosníu með breska hernum eftir Hildi Helgadótt- ur. Tatu Kantomaa leikur á harmonikku. Bréfamaraþon og uppákoma í Iðu           1. Meiri virkni. 2. Mun meiri andoxunarefni. 3. Minni líkur á aukaverkunum. 4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.     !  "  #  $ #  $    % # &     %  ' ( ) www.ginseng.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.