Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 46
…allt tal um að það
sé ekki hægt að
keppa í list þykir mér kjána-
legt þvaður… 49
»
reykjavíkreykjavík
ÞAÐ leið skammur tími frá því
fyrstu fréttir tóku að berast af við-
búnaði lögreglu, vegna vídeó-
listaverks íslenska listnemans Þór-
arins Inga Jónssonar, þar til
teiknimynd hafði verið gerð um
hann og sett á YouTube, undir nafni
DangerBoysProduction Channel,
sérstakrar rásar á vefnum, ef rás er
hægt að kalla.
Í stuttu máli, fyrir þá sem ekki
hafa fylgst með fréttum, skildi Þór-
arinn eftir pakka í listasafni í To-
ronto sem á stóð: „Þetta er ekki
sprengja“ og leiddi það til þess að
sprengjusveit var kölluð út og við-
burðum í nágrenni safnsins aflýst.
Netverjar hafa verið iðnir við að
níða af Þórarni skóinn og á YouTube
má sjá fyrr-
nefnda teikni-
mynd.
Teiknimyndin
ber yfirskriftina
„Art“. Ungur
maður stendur á
sviði og muldrar
að hann heiti Þór-
arinn Ingi Jóns-
son og ætli að búa
til verk sem líkist
sprengju og skilja það eftir í lista-
safni. „Ég er viss um að ekkert
slæmt hlýst af því að búa til gervi-
sprengju. Það verður mjög list-
rænt!“ segir „Þórarinn“. Hann held-
ur ásamt vinum sínum á safnið,
skilur sprengjuna eftir og muldrar
að það sé nú ekki eins og rör-
sprengjur séu yfirleitt til. Þegar út
er komið er hann handtekinn af
tveimur lögreglumönnum sem segja
honum að það að koma fyrir gervi-
sprengju í listasafni sé ekki list. Þór-
arinn svarar löggunum því að þær
skilji ekki list hans, hún sé of flókin
fyrir þá. Því næst er hann barinn og
honum hent í fangelsi. Í klefanum
segir „Þórarinn“ að þetta sé sann-
arlega listræn reynsla.
Sannast sagna er teiknimyndin
heldur illa gerð og ósmekkleg.
Áhorfendur hafa gert athugasemdir
við myndina, m.a. bent á rétt manna
til tjáningar- og skoðanafrelsis. Ann-
ar bendir á að „fíflið/listamaðurinn“
hafi eytt peningum skattgreiðenda.
Hæðst að Þórarni
Tölvuteiknimyndin Hinn tölvuteiknaði Thorarinn segir í myndinni stuttlega frá verkinu
á sviði, að ekkert slæmt geti nú mögulega hlotist af því að koma fyrir gervisprengju.
Teiknimynd gerð um gervisprengjuna í Toronto
Þórarinn Ingi
Jónsson
Mótmæli fem-
ínista við kvenna-
fæð í Silfri Egils
vöktu tilskilda at-
hygli fólks á dög-
unum og sitt sýn-
ist hverjum. Eftir
síðasta þátt þykir ljóst að Egill ætl-
ar ekki að láta hanka sig á þessu
aftur því þá bauð hann kjarnakon-
unum Guðfinnu S. Bjarnadóttur,
Kolbrúnu Halldórsdóttur og Mar-
gréti Pálu Ólafsdóttur í þáttinn.
Og ættu þá ekki allir að vera sátt-
ir? Ónei. Andrés Magnússon,
blaðamaður og hægrisinni, bendir á
það á bloggsíðu sinni andres.blog.is
að í þættinum hafi heldur betur
hallað á viðmælendur hægra megin
við miðju en kosningaúrslit og
skoðanakannanir bendi til þess að
hægrisinnuð viðhorf njóti nokk-
urrar útbreiðslu í þjóðfélaginu.
Hvað gerir Egill nú?
Hvað hefur Egill á móti
hægrisinnum?
Og af öðrum
hægrimanni með
sterkar skoðanir.
Sigurður Kári
Kristjánsson
þingmaður Sjálf-
stæðisflokks furð-
ar sig á því á
bloggsíðu sinni (sigurdurk-
ari.blog.is) að í hvert sinn sem
minnst er á Atla
Gíslason, þing-
mann Vinstri-
hreyfingarinnar
græns framboðs,
sé hann ávallt titl-
aður sem Atli
Gíslason, þing-
maður og hæsta-
réttarlögmaður. Og Sigurður Kári
spyr: „Af hverju taka fjölmiðlamenn
það alltaf sérstaklega fram að Atli
sé einnig hæstaréttarlögmaður?“
Sigurður Kári spyr hvort Atli þurfi
eitthvað sérstaklega á fleiri vegtyll-
um að halda því Jón Magnússon,
þingmaður Frjálslynda flokksins og
hæstaréttarlögmaður, sé aldrei titl-
aður annað en þingmaður Frjáls-
lynda flokksins í fjölmiðlum.
Jón og hrl. Jón
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ eru meiri líkur en minni á að sá sem þetta
les hafi einhvern tíma heyrt trommuleik Einars
Scheving, svo afkastamikill hefur hann verið un-
dafarin ár í spilamennsku fyrir margvíslega tón-
listarmenn þar sem allur skalinn er undir. Þann-
ig leikur hann á trommur á um tug platna fyrir
þessi jól en ein af þeim er algerlega hans eigin,
og ber hún nafnið Cycles. Plötuna vann hann
með miklum kanónum, þeim Eyþóri Gunn-
arssyni, Óskari Guðjónssyni og Skúla Sverr-
issyni.
Ísland kallar
„Ég hef alla tíð samið músík,“ segir Einar. „Ég
lærði ungur á píanó þannig að ég hef alltaf búið
að því að geta sest niður og komið melódíunum
frá mér. Ég hef alltaf verið að garfa í þessu með-
fram og ástríðan fyrir þessari hlið á tónlist-
arstússinu hefur vaxið ört síðustu árin. Maður
hefur kannski verið með meira sjálfsöryggi sem
trommuleikari en tónskáld en þetta síðarnefnda
siglir nú hraðbyri upp að hinu.“
Platan var tekin upp í New York en hljóð-
blönduð í Ósló og ekki er örgrannt um að andi
ECM, hinnar mögnuðu þýsku útgáfu, svífi yfir
vötnum.
„Upptökumaðurinn, James Farber, hefur mik-
ið unnið fyrir ECM og sá sem hljóðblandaði, Jan
Erik Kongshaug, sömuleiðis. ECM er að sönnu
frábær útgáfa og í framtíðinni mun ég óhikað
nýta mér tengslin.“
Einar segir plötuna lágstemmda og mel-
ódíska.
„Það eru engin læti í gangi, og það er afslapp-
að flæði út í gegn. Ég tók meira segja nokkuð
hraðar lagasmíðar og henti þeim út, þar sem
þær eyðilögðu heildarstemninguna.“
Einar flutti aftur heim í fyrra eftir níu ára
dvöl í Bandaríkjunum. Lengst af bjó hann í
Miami þar sem hann stundaði nám en svo var
hann einn vetur í New York, þar sem hann tók
einmitt plötuna upp.
„Ég stundaði nám í djassdeild en það sem
hafði mest áhrif á mann var bara þetta mikla
tónlistarumhverfi. Maður er spilandi upp á
hvern einasta dag með hinum og þessum; sköp-
unarkrafturinn er allt í kring og nýjar hug-
myndir á hverju strái.“
Á þessum árum kynntist Einar eðlilega fullt af
fólki og upprunalega ætlaði hann að taka upp
plötu með félögum sínum þar.
„En því meira sem lögin þróuðust fann ég að
það var einhver íslenskur blær yfir þeim sem
hreinlega kallaði á íslenska spilara. Þeir Eyþór,
Skúli og Óskar smellpössuðu við þetta og sum
lögin voru meira að segja samin með þá í huga.“
Tónlistinni þjónað
Einar segist hafa passað sig á því að halda í
stemningu þá sem myndaðist þegar fereykið var
að hljóðrita. Hann varaðist markmiðsbundið að
bæta einhverju við eða flækja það sem spratt
upp úr samspilinu.
„Tæknileg geta er góð og gild en hún þarf
fyrst og síðast að þjóna tónlistinni. Það gengur
ekki að vera með einhverja leikfimi. Annars er
ég mjög glaður með að vera loksins búinn að
koma plötu frá mér. Ég er kominn á bragðið
mætti segja, ég á nóg af efni, og hugmyndir að
fleiri plötum eru þegar farnar að staflast upp í
hausnum.“
Tónskáldið togaði í …
Einar Scheving trommuleikari gefur út Cycles, sem er hans fyrsta plata
Morgunblaðið/Sverrir
Töffari Einar Scheving er kominn heim úr víking og í farteskinu er hann með sína fyrstu sóló-plötu.
einarscheving.com