Morgunblaðið - 07.12.2007, Side 56
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Skiptar skoðanir
Kaupþing stóð að baki því að
ákveðið var að gengi á viðskiptum
Baugs við FL Group yrði 14,7.
Landsbankinn og ákveðnir hluthafar
í FL Group töldu að gengið ætti að
vera hærra, eða 19. » Forsíða
Slapp úr landi
Karlmaður, pólskur ríkisborgari
sem er einn þeirra sem eru grunaðir
um að hafa nauðgað ungri konu á
Selfossi í haust, fór úr landi í fyrra-
dag og braut þar með gegn far-
bannsúrskurði. » 2
Ekki bindandi
Fjármálaráðherra er sammála
niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um
að samkomulag við Landsvirkjun
um yfirtöku vatnsréttinda í neðri
hluta Þjórsár sé ekki bindandi fyrir
ríkissjóð. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Þjóðin og tungumálið
Forystugreinar: Djúp lægð fram-
undan? | Tímabærar kjarabætur
Ljósvaki: Útvarp eins og það á að …
UMRÆÐAN»
Veistu hvað er að gerast við …?
Jákvæður viðsnúningur …
Hversu oft á að fara til augnlæknis?
Mikilvægt er að þekkja fyrstu …
Konungur allra vega
Jólagjafir fyrir bíladellufólkið
Nýstárlegur söluturn Volkswagen
Grænir Bretar knýja vörubíl með …
BÍLAR »
4%
4 4%%
4 4
4% %4 4%%%
&4%
5 $6")0!"-
!$
7!
!! ""("$
0" %4 4
4 4% %4%
4%% &4&
&4
/8 2 )
4&
%4 4 4 4% %4 4%%&
9:;;<=>
)?@=;>A7)BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA)8"8=EA<
A:=)8"8=EA<
)FA)8"8=EA<
)3>))A("G=<A8>
H<B<A)8?"H@A
)9=
@3=<
7@A7>)3-)>?<;<
Heitast 1°C | Kaldast -13°C
Hæg austlæg eða
breytileg átt og dálítil
él við ströndina í flest-
um landshlutum. Kald-
ast í innsveitum síðdegis. » 10
Íslenska fjölskyldu-
myndin Dugg-
holufólkið verður
frumsýnd í dag auk
þriggja erlendra
mynda. » 51
KVIKMYNDIR»
Bíófrum-
sýningar
MYNDLIST»
Gera grín að listaverki
Þórarins Inga. » 46
Ásgeir H. Ingólfsson
segir Íslensku bók-
menntaverðlaunin á
röngum tíma til að
auðga bókmennta-
umræðuna. » 49
AF LISTUM»
Á röngum
tíma
FÓLK»
Frú Beckham getur víst
sungið. » 55
TÓNLIST»
Trommuleikarinn Einar
gefur út Cycles. » 46
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Skagapiltur pantaði viðtal við Bush
2. Ökufantur gaf sig fram
3. Alvarlegt umferðarslys …
4. Eiginkonan vissi að … væri á lífi
ostur.is
Kynnið ykkur úrvalið á ostur.is
Gómsæt gjöf fyrir sælkera
Sælkeraostakörfur
SKÍÐASVÆÐIÐ
í Bláfjöllum verð-
ur opnað um
helgina en þar
hefur snjóað
nægilega mikið í
vikunni til að
leyfa takmarkaða
opnun fyrir al-
menning. Það
þýðir að einungis
tvær lyftur verða
opnar og þá verður skíðasvæðið
ekki opnað fyrr en klukkan 14 og
gildir það bæði á laugardag og
sunnudag.
Magnús Árnason, fram-
kvæmdastjóri skíðasvæðanna, segir
að stólalyftan Gosi á Suðurgili verði
opin og jafnvel ein lyfta í viðbót.
Hann tekur fram að ókeypis verði í
lyfturnar.
Í Bláfjöllum er um þessar mundir
um 20-30 cm þykkur snjór og hefur
verið unnið að því í vikunni að dreifa
snjónum og troða hann. Snjór hefur
víða safnast fyrir við snjógirðingar
og hefur moksturstækjum verið
beitt til að sækja snjó þangað og
flytja hann inn á skíðabrautir.
Snjóar í
Bláfjöllum
Skemmtun Nú má
draga fram skíðin.
Tvær skíðalyftur
opnaðar á morgun
LITLU mátti muna að eggvopn sem
árásarmaður beitti gegn Rögnvaldi
Ólafssyni leigubílstjóra í fyrrakvöld,
í misheppnaðri ránstilraun, færi í
auga Rögnvaldar. „Hann sat fyrir
aftan mig og svo kom allt í einu hnef-
inn á loft. Ég sá að það blikaði á eitt-
hvað og það stefndi bara beint á aug-
að,“ sagði Rögnvaldur í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Árásarmaðurinn, sem Rögnvaldur
hafði tekið upp í Kringlunni og keyrt
að Hátúni, hafði nokkru áður vikið út
úr bílnum, að sögn til að ná í peninga
fyrir farinu. Rögnvaldur telur hins
vegar víst að hann hafi einungis ver-
ið að ganga úr skugga um að enginn
yrði vitni að ráninu. Að sögn Rögn-
valdar hafði farþeginn virst í full-
komnu jafnvægi fram að þessu og
því kom það fullkomlega á óvart þeg-
ar hann heimtaði peninga. Rögn-
valdur neitaði og án nokkurs hiks
lagði árásarmaðurinn til hans með
hnífi. Með naumindum tókst Rögn-
valdi að beygja sig fram þannig að
lagið kom fyrir ofan hægri augabrún
en við það opnaðist skurður og blóð
fossaði út þannig að hann sá lítið sem
ekkert með auganu. Við tóku snörp
átök, „glíma upp á líf og dauða,“ eins
og Rögnvaldur lýsir þeim. Þegar
hnífslagið dugði ekki til lét árásar-
maðurinn höggin dynja á Rögnvaldi
sem varði sig eftir mætti en átti
óhægt um vik þar sem hann var í bíl-
belti. „Þegar ég var búinn að losa
það reif ég upp hurðina. Og þá hljóp
hann, þá var kjarkurinn búinn.“
Rögnvaldur hefur ekið leigubíl í 22
ár og að hans mati hefur ástandið
snarversnað. Áður hafi sumir verið
„fullir og leiðinlegir“ en nú séu alltof
margir á efnum sem geri þá upp-
tendraða og hættulega. Þetta hafi
hvorki verið fyrsta né síðasta árásin
á leigubílstjóra og þeir hljóti að
hugsa um hvort rétt sé að koma fyrir
e.k. öryggisbúnaði, s.s. gleri milli
ökumannssætis og farþega til að
koma í veg fyrir árásir.
„Upp á líf og dauða“
Leigubílstjórinn sem varð fyrir árás í Hátúni segir ástandið
hafa snarversnað Bílstjórar hugi að öryggisbúnaði
Í HNOTSKURN
» Um leið og leigubílstjór-anum tókst að losa örygg-
isbelti flúði maðurinn af hólmi.
» Maður sem er grunaður umárásina náðist í gær.
DANÍEL Ágúst Haraldsson söngvari hefur ákveðið að
ganga til liðs við hljómsveitina Ný dönsk að nýju, en
hann sagði skilið við sveitina fyrir tólf árum.
„Það hefur alltaf verið gott að vinna með strákun-
um,“ segir Daníel sem hlakkar mikið til að skapa aftur
tónlist með sínum gömlu félögum. | 53
Mikil tímamót hjá einni vinsælustu hljómsveit landsins
Daníel aftur í Ný dönsk
Morgunblaðið/Eggert