Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 2
Ungur kúhegri heimsækir Ísland
SJALDGÆFUR fugl sást á ferð í Mýrdalnum í gær.
Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar telja hann vera
ungan kúhegra (Bubulcus ibis). Kúhegri dvelst helst
við Miðjarðarhaf. Þetta mun vera annar kúhegrinn sem
sést á Íslandi, áður sást til slíks fugls fyrir um hálfri
öld.
Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson
Meira á Vefvarpi mbl.is
2 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 365
miðla til að greiða Magnúsi Ragnarssyni, fyrrver-
andi sjónvarpsstjóra Skjás Eins, 1,5 milljónir
króna í miskabætur vegna ummæla sem birt voru í
prentmiðlum fyrirtækisins, DV og Fréttablaðinu.
365 miðlum var jafnframt gert að greiða Magnúsi
480 þúsund krónur til greiðslu kostnaðar við birt-
ingu dómsins og forsendna hans í dagblöðum. Um-
mælin voru að lokum dæmd dauð og ómerk.
Umrædd ummæli birtust í dagblaðinu DV 29.
september á síðasta ári. Fyrirsögn umfjöllunar
um Magnús var á þá leið: „Skilnaðarfaraldur skek-
ur Skjá Einn“, og var þar fjallað um hjúskap-
armálefni stefnanda. Fleiri ummæli sem birtust í
umfjölluninni voru dæmd ómerk, s.s.: „í tómu tjóni
í einkalífi“, og að Magnúsi „gangi illa að fóta sig í
einkalífinu“.
Einnig fór Magnús fram á ómerkingu ummæla
sem birtust í Fréttablaðinu 26. janúar sl. en þar
var vísað til Magnúsar sem „Magga glæps“. Þá
krafðist Magnús ómerkingar ummæla í Frétta-
blaðinu 10. febrúar sl., en í blaðinu var birt mynd
af honum og fyrir ofan var fyrirsögnin „Geðþekk-
ur geðsjúklingur“.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur m.a. fram sú
afstaða dómsins að ummæli sem birt voru í DV
hafi verið til þess fallin að skapa hjá lesendum
miður góða ímynd af stefnanda. Þau séu móðgandi
og meiðandi. Svipaða sögu var að segja af ummæl-
um í Fréttablaðinu. Segir í dóminum að viðurnefn-
ið „glæpur“ sé mjög gildishlaðið og ummælin
móðgandi og meiðandi. Með fyrirsögninni „Geð-
þekkur geðsjúklingur“ hafi þá verið dróttað að
geðheilsu Magnúsar, þrátt fyrir að umfjöllunin
hafi ekki snúið beint að honum heldur dagskrár-
stefnu Skjás Eins.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp
dóminn. Finnur Þór Vilhjálmsson hdl. sótti málið
af hálfu Magnúsar og Einar Þór Sverrisson hdl.
varði 365 miðla.
Magnúsi Ragnarssyni dæmd-
ar 1,5 milljónir króna í bætur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir ummæli í Fréttablaðinu og DV dauð og ómerk
„HÉRAÐSDÓMUR hefur fellt
sinn dóm um stjórnendur fé-
lagsins 365-miðla, markaður-
inn hefur einnig fellt sinn dóm
um stjórnendur félagsins og
móðir mín yrði vonsvikin með
uppeldi mitt ef ég færi að
sparka í liggjandi menn,“ sagði
Magnús Ragnarsson, fyrrum
sjónvarpsstjóri Skjás Eins,
inntur eftir viðbrögðum við dómnum. Magnús
vildi ekki tjá sig efnislega um niðurstöðuna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem 365-miðlar eru
dæmdir til að greiða bætur vegna ummæla í miðl-
um sínum. Í október sl. dæmdi Hæstiréttur félagið
til að greiða 1,2 milljónir kr. í bætur vegna um-
mæla um sálfræðing sem birtust í DV.
Felldu sinn dóm
REIKNA má
með að allt að 90
íbúðir muni
skemmast um
jólin og áramót-
in vegna kerta-
bruna, sam-
kvæmt
upplýsingum frá
Sjóvá-Almenn-
um. Kertabrun-
um hefur þó
fækkað nokkuð í desembermánuði
undanfarin ár, en að meðaltali
hafa slík óhöpp verið 120 í desem-
ber. Sjóvá hvetur fólk til að gæta
varúðar við meðferð kerta og
bendir á að flestir brunar verði
vegna þess að kerti eru látin loga
án eftirlits. Reikna má með að 13-
15% heimila séu með ótryggt
innbú.
Sjóvá beinir þeim ráðleggingum
til fólks að hafa ávallt kerta-
skreytingar á óbrennanlegum
stjökum eða undirlagi sem ekki
leiðir hita og er stöðugt. Einnig
ætti aldrei að láta kerti loga inn-
anhúss án eftirlits. Þá getur drag-
súgur stuðlað að kertabruna.
Varað er
við kerta-
bruna
Aðgát Gæta þarf
að kertunum.
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
fallist á beiðni nefndar, sem fjallar
um starfsemi Breiðavíkurheimilis-
ins, um að nefndin fái einn mánuð til
viðbótar til að ljúka störfum. Nefnd-
in átti samkvæmt erindisbréfi að
skila skýrslu til forsætisráðherra um
áramót en skilar nú að óbreyttu 31.
janúar.
Nefndinni var falið í fyrstu að
kanna starfsemi vistheimilisins
Breiðavíkur á árunum 1950-1980. Í
tilkynningu frá nefndinni segir, að
könnunin sé lokastigi, en hún hafi
verið umfangsmikil. Hefur nefndin
þegar rætt við rúmlega 100 einstak-
linga, fyrrum vistmenn og starfs-
menn og aðra sem hún hefur talið að
geti varpað ljósi á starfsemi Breiða-
víkurheimilisins.
Nokkrir einstaklingar til viðbótar
hafa óskað eftir að veita nefndinni
upplýsingar. Þá bíður nefndin enn
eftir ákveðnum gögnum frá stjórn-
völdum og greinargerðum sérfræð-
inga, sem hún hefur leitað til varð-
andi tiltekna þætti.
Breiðavík-
urnefnd fær
lengri frest
♦♦♦
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
felldi í gær dóm yfir fjórum einstak-
lingum vegna þjófnaðar úr verslun-
um á höfuðborgarsvæðinu á tíma-
bilinu júlí til september. Þyngsti
dómurinn var tíu mánaða fangelsi en
hinir vægari og jafnvel skilorðs-
bundnir. Tveir ákærðu voru sýknað-
ir af öllum ákæruliðum auk þess sem
hluta ákærunnar var vísað frá dómi.
Þá var öllum bótakröfum vísað frá
dómi.
Ákæruliðirnir í málinu voru fimm-
tán talsins og vörðuðu flestir stór-
felldan þjófnað úr verslunum.
Ákærðu voru m.a. sökuð um að hafa
stolið fjölda rakvélablaða, snyrtivara
og fatnaði. Ekki var sakfellt í öllum
tilfellum, í einhverjum vegna sönn-
unarskorts en einnig var fundið að
rannsókn lögreglu.
Meðal þess sem fundið var að var
myndsakbending sem fór fram í
verslun án þess að verjendur hinna
grunuðu væru viðstaddir. Lögreglu-
maður tjáði vitninu að hin grunuðu
væru á myndunum fjórtán sem
sýndar voru og benti vitnið á þrjá
einstaklinga. Annað vitni, starfsmað-
ur í sömu verslun, skoðaði svo mynd-
irnar degi síðar í versluninni og
þekkti eina ákærðu í málinu. Þótti
ekki hægt að byggja á myndsak-
bendingunni sökum annmarka.
Þá var sakarefni í einum ákærulið
á hendur tveimur ákærðu það sama
og á hendur tveimur öðrum ákærðu í
málinu. Sömu rannsóknargögn
fylgdu báðum ákærum og sama
bótakrafa, auk þess sem ákærurnar
voru gefnar út sama dag. Héraðs-
dómur vísaði báðum liðum frá.
Í nokkrum tilvikum var ekki ann-
að hægt en að sýkna þar sem upp-
tökur úr eftirlitsmyndavélum voru
óskýrar.
Dæmt fyrir þjófnað
úr verslunum
Rannsókn og ákæra haldin annmörkum
Klapparstígur 33
101 Reykjavík
Iceland
t. +354 551 3666
f. +354 578 3667
info@i8.is
www.i8.is
DARRI LORENZEN
EggERt PÉtuRssON
ELÍN HANsDÓttIR
FINNbOgI PÉtuRssON
gjöRNINgAkLúbbuRINN
guÐRúN EINARsDÓttIR
HRAFNkELL sIguRÐssON
HREINN FRIÐFINNssON
HöRÐuR ÁgústssON
ÍVAR VALgARÐssON
kARIN sANDER
kAtRÍN sIguRÐARDÓttIR
kEEs VIssER
kRIstjÁN guÐmuNDssON
LAwRENcE wEINER
ÓLAFuR ELÍAssON
RAgNA RÓbERtsDÓttIR
RAgNAR kjARtANssON
RONI HORN
sIguRÐuR guÐmuNDssON
tHOmAs RuPPEL
ÞÓR VIgFússON
Við bjóðum upp á vaxtalaus lán til listaverkakaupa.
PÓLVERJI, sem er einn þeirra sem
rufu farbann vegna gruns um aðild
að nauðgun á Selfossi, var handtek-
inn af pólsku lögreglunni við landa-
mæri Póllands og Þýskalands sl.
mánudag.
Íslenska ríkið gerði kröfu um að
hann yrði framseldur til Íslands en
yfirvöld í Póllandi hafa nú upplýst að
pólsk lög heimili ekki framsal eigin
þegna til annarra landa.
Maðurinn fór úr landi, og braut
þar með gegn farbannsúrskurði,
hinn 5. desember. Lögreglan á Sel-
fossi hafði ekki látið lögregluna á
Suðurnesjum, sem fer með löggæslu
í Leifsstöð, vita af því að maðurinn
væri í farbanni.
Lögreglan á Selfossi telur að ann-
ar Pólverji, sem grunaður er um að
hafa tekið þátt í nauðguninni, hafi yf-
irgefið landið. Lýst var eftir þeim
báðum á Schengen-svæðinu.
Hand-
tekinn í
Póllandi
Grunaður um
nauðgun á Íslandi
KRISTÍN Steins-
dóttir rithöf-
undur hlaut í
gær viðurkenn-
ingu rithöf-
undasjóðs Rík-
isútvarpsins.
Kristín hefur
aðallega skrifað
bækur fyrir börn
og unglinga, en
einnig hefur hún samið leikrit og
sent frá sér tvær skáldsögur fyrir
fullorðna. Kristín hefur áður hlotið
verðlaun og viðurkenningar fyrir
ritstörf sín, m.a. Íslensku barna-
bókaverðlaunin, Barnabókaverð-
laun Fræðsluráðs Reykjavíkur og
Norrænu barnabókaverðlaunin, að
því er segir á vefnum bokmennt-
ir.is.
Kristín fær
verðlaun
Kristín Steinsdóttir
♦♦♦