Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 27
u.þ.b. frá kl. 18-20 (verð á aperitivo
er yfirleitt á bilinu 4-10 evrur). Um
er að ræða allt frá litlum pítsum,
snittum og ólífum til veglegra pasta-
og hrísgrjónasalata.
Órjúfanlegur hluti
fordrykkjarins
Þegar rætt er um ákjósanlegustu
staðina fyrir fordrykkjarserimón-
íuna, l’aperitivo, eru þeir hæst á blaði
sem bjóða girnilegasta úrvalið af
léttum réttum og „stuzzichini“ eða
pinnamat.
Á þessu gæða gestir sér svo með
vínglasinu, sem oftar en ekki er
þurrt freyðivín eða freyðivíns-
kokteilar (t.d. Mimosa eða Bellini),
vermút, hvítvínsglas, Campari soda
eða hinir vinsælu óáfengu aperitivo-
drykkir eins og Crodino og San Bit-
ter.
Á Ítalíu er nánast litið á það sem
guðlast að drekka vín á fastandi
maga enda líta Ítalir á vín sem órjúf-
anlegan hluta af máltíðinni og að
sama skapi er maturinn órjúfanlegur
hluti fordrykkjarins. Orðið aperitivo
kemur úr latínu og merkir opna (í
þessu samhengi er átt við það sem
opnar magann) og hér er vísað til lys-
taukandi léttáfengs drykkjar.
Matar- og drykkjarmenning Ítala
einkennist – ef svo má taka til orðs –
af heimilislegri fágun. Þeir eru ekki
uppfullir af endalausum siðareglum
og serímóníum eins og nágrannar
þeirra Frakkar, heldur er eðal-
hráefni í mat sem drykk borið fram
og látið njóta sín á fágaðan máta og
þess svo neytt að sama skapi á fín-
legan og hófsaman hátt. Mikið er
lagt upp úr því að snittum og öðrum
réttum sé raðað fallega á barborðin
svo augun verði nú örugglega svöng
á undan maganum.
Fyrir augu og maga
Ítölsk matarorð eru svo ein og sér
þekkt fyrir að fanga einstaklega vel
eðli hvers hráefnis og réttar. E.t.v. er
þetta komið til vegna hinnar miklu
matarástar Ítala. Tökum sem dæmin
orðin „stuzzichini“ (pinnamatur) og
„vino frizzante“ (freyðandi vín). Til-
finningin við það eitt að bera fram
orðið „stuzzichino“ er ekki ósvipuð
því og væri maður að narta í hnetu
eða ólífu og svo er einhver sjarm-
erandi léttleiki yfir orðinu og við það
að bera fram „vino frizzante“ sér
maður fyrir sér fjörugar loftbólur í
kampavínsglasi sem nýbúið er að
hella í köldu freyðivíni. Það er ein-
hver sjarmerandi léttleiki yfir orðinu
og það sama á við um ítalska bari,
sem eru allt í senn: kaffibarir, óhefð-
bundnir veitingastaðir, félagsmið-
stöðvar, vín- og smáréttabarir.
Algengast er að Ítalir innbyrði
lystaukapakkann sinn og kaffið við
barinn „al banco“, en það er ódýrara
og þannig er maður líka í betra tal-
sambandi við barþjónana og aðra
viðskiptavini. Íslenska þýðingin á
orðinu, lystauki, nær fyrirbærinu
mun betur en fordrykkur, því það er
nákvæmlega það sem aperitivo er
ætlað að vera – lystauki.
Barahefð Ítala (og þar með lyst-
aukahefðin) veitir líka félagsþörfinni
útrás í smáskömmtum, en algengt er
að menn fari einnig á barinn á
morgnana í morgunkaffi, í hádeginu
og fái sér léttan hádegisverð, t.d.
grillað brauð eða salat og margir
koma við í eftirmiðdaginn fyrir „caffè
di lavoro“ (vinnukaffibolla) og spjalla
þá í leiðinni við vini og kunningja.
Félags- og drykkjarþörfum Ítala er
því vel fullnægt í smáskömmtum yfir
daginn og víndrykkjan er semsagt
aldrei ein á báti, heldur alltaf tengd
mat. Það skapast því seint þörf fyrir
Ítali „að detta í það“ um helgar og
fara á „trúnó“, því þeir eru meira og
minna á trúnaðarskeiðinu (mismiklu)
allan daginn: við barþjóninn, við bak-
arísafgreiðslukonuna, skósmiðinn,
kunningjana á barnum o.s.frv.
Á góðri stundu Lystaukahefðin
veitir félagsþörfinni útrás.
Lystaukandi Þeir staðir sem bjóða upp á girnilegasta úrvalið af léttum
réttum eru vinsælastir þegar kemur að l’aperitivo.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 27
með sinni voldugu
rödd. Víkverji hefur
séð og heyrt ýmislegt
til Kristjáns Jóhanns-
sonar, en fátt eins
magnað og þennan
söng í iðrum jarðar.
x x x
Nú bylja jólalögin áhlustum, þegar
Víkverji opnar fyrir út-
varpið. Er nú svo kom-
ið að þessi tónlist fer
inn um annað eyrað og
út um hitt, enda hófst
spilavertíðin áður en
aðventan gekk í garð.
En athygli Víkverja
náði jólaplata Ragnars Bjarnasonar
þar sem hann syngur lög Gunnars
Þórðarsonar. Víkverji er alveg heill-
aður og segir að þessi plata verði að
vera til á öllum betri heimilum!
x x x
Þriðja tónlistarviðburðinn verðurVíkverji að lofa, en það er
myndbandið REI, REI ekki um jólin
– dagur í lífi starfsmanns Orkuveitu
Reykjavíkur haustið 2007. Þessi
húmor beinlínis yljar í svartasta
skammdeginu og gott að sjá fólk,
sem tekur sjálft sig ekki of hátíð-
lega, en skemmtir sjálfu sér og öðr-
um þegar tilefni er til.
. Ein er sú bók semVíkverji hvarflar
ítrekað til þessa dag-
ana; ekki vegna þess
að hún sé svo leiðinleg
aflestrar, heldur er
hún þvert á móti stór-
skemmtileg og hafsjór
af fróðleik. Þetta er
bók Bill Bryson; Stikl-
að á stóru um næstum
allt. Í inngangi segir
höfundur, að hug-
myndin með bókinni
hafi verið „að athuga
hvort ekki væri mögu-
legt að skilja og meta -
undrast, jafnvel
skemmta sér við - und-
ur og afrek vísindanna á einhvern
þann hátt sem ekki væri of vísinda-
legur og krefjandi en heldur ekki of
yfirborðslegur.“ Víkverji fær ekki
betur séð, en bókin standi undir
þessu.
x x x
Jólatónleikarnir sem verktaka-fyrirtækið Arnarfell bauð starfs-
fólki sínu til í Ufsarveitugöngum
Kárahnjúkavirkjunar á þriðjudag-
inn voru skemmtilegir og hátíðlegir
að sögn fréttaritara Morgunblaðs-
ins. Víkverji sá í sjónvarpinu um
kvöldið, þegar Kristján Jóhannsson
lét Hamraborgina „vaða út í bergið“
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Nokkrir ákjósanlegir barir í Mílanó
fyrir lystaukaserímóníuna, l’aperi-
tivo
Gin Rosa, Galleria San Babila 4/B,
www.gin-rosa.it
Straf-barinn, Via San Raffaele 3,
www.straf.it
Bar Basso, Via Plinio 39, www.bar-
basso.com
Cova, Via Montenapoleone 8,
www.pasticceriacova.it
Victoria Café, Via Clerici 1 (til hlið-
ar við Scalaóperuhúsið)
Bar Bianco, Parco Sempione,
www.barbianco.com (sérstaklega á
sumrin)
Sheraton Diana Majestic, Viale
Piave 42, www.starwoodhotels.com
Il Noon, Via Boccaccia 4, www.no-
onmilano.com
Executive Lounge, Via A. Di Toc-
queville 3, www.executivelounge.it
Caffè Malafemmena, Via Monte
Grappa 9
Visavis á Grand Visconti Palace-
hótelinu, Via Isonzo 14,
www.grandviscontipalace.com
5. hæð Rinascente-verslunarmið-
stöðvarinnar í Corso Vittorio Em-
anuele (við Dómkirkjutorgið)
Lystaukandi
staðir
og skemmtilegur markaður, þannig
er það líka erlendis, sem er
skemmtilegt að kynnast og vinna
með.“
Samverustundir fjölskyldunnar
– Eru krakkarnir ekki hættir í
borðspilum og komnir í tölvurnar?
„Nei, þetta er spurning um sam-
veru og félagsskap. Og svo vilja for-
eldrarnir gjarnan ná þeim úr
tölvunum að fjölskylduborðinu.“
– Og hvað er nýja spilið í ár?
„Hjá okkur er það Party & Co
Extreme. Það er stóra spilið.“
– Hvernig er það frábrugðið
Party & Co?
„Það er með nýjum þrautum og
erfiðari, sem eru allt öðruvísi en
hinar og höfða til fólks sem er
eldra. Nú teikna keppendur til
dæmis með gleraugum, sem valda
því að þeir sjá ekki hvað þeir eru að
teikna, aðeins samherjarnir. Einnig
reynir á hversu vel fólk þekkist inn-
byrðis. Svo raular fólk eða hummar
lög. Og það reynir einnig á hið
óvænta.“
– Hvað fleira?
„Svo erum við með barnaspilið
Draugastigann, þýskt spil sem hef-
ur verið kosið spil ársins í sjö lönd-
um. Þar er gengið upp draugalegan
stiga og óreiða skapast, sem getur
valdið því að keppendur missa sjón-
ar á eigin peði.“
– Og svo?
„Svo eru það ellefu útgáfur af
Top Trumps-spilunum. Þetta eru
spil sem koma frá Englandi og selj-
ast þar í fleiri milljónum eintaka á
hverju ári. Þau hafa verið þýdd og
eru fræðandi og skemmtileg, en
bjóða líka upp á söfnun. Við byrj-
uðum með sex í vor og önnur fimm
komu í haust. Það hefur gengið
mjög vel. Leikurinn felst í því að
tveir eða fleiri spila og sá sem hefur
hæsta gildið í einum af fimm flokk-
um vinnur umferðina, til dæmis
þegar rándýr eru annars vegar, þá
er keppt í hæð, þyngd, lengd, hraða
og drápseðli. Þannig fær gaupa
hundrað fyrir lengd, 46 fyrir hraða
og þrjá fyrir drápseðli, en það er á
skalanum 1 til 10. Í skýjakljúfum er
World Trade Center 929 þúsund
fermetrar, 110 hæðir og 417 metrar
á hæð. Einnig eru til spil um geim-
inn, risaeðlur, Simpsons, Harry
Potter, Marvel, Pirate of the Carib-
bean 3, náttúruundur veraldar, há-
karla og Transformers.“
Töfrateningurinn vinsæll á ný
– Er engin knattspyrna?
„Ekki fyrr en í vor þegar
Evrópukeppnin kemur á spjöldum.“
– Svo er það fatapóker!
„Nei, hann er gamall,“ segir Guð-
jón með semingi þegar blaðamaður
teflir fram stokki sem hann fann á
borðinu með þremur tegundum af
póker. „Þetta eru þrjár gerðir og
leiðbeiningar fylgja, þ.e. fatapóker,
fimm teninga póker og póker með
32 eða 33 spilum.“
– Og hér má finna töfrateninginn!
„Sá gamli góði,“ segir Guðjón
brosandi. „Við hófum innflutning á
honum í haust, nokkrum gerðum,
líka einfaldari útgáfu fyrir krakka
með færri litaflötum. Töfratening-
urinn er ennþá afar vinsæll hér
heima og erlendis. Heimsmeistara-
mótið var til að mynda haldið í
Búdapest í október. Þar er keppt
blindandi og sá fljótasti var 13 sek-
úndur að raða upp litunum. Heims-
metið á Ron Van Bruchem, sem var
aðeins 9,55 sekúndur að því á hol-
lenska meistaramótinu.“
Það vekur athygli blaðamanns að
Bruchem bætti metið um 0,22 sek-
úndur, en áður átti það samlandi
hans, Erik Akkersdijk. Skemmti-
legt nafn það.
„Kubburinn hefur rokið upp í
vinsældum út af myndinni Pursuit
of Happiness, en Will Smith var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
hana á síðasta ári,“ segir Guðjón.
„Myndin fjallar um fátækan
blökkumann og einstæðan föður,
sem átti ekki þak yfir höfuðið.
Hann fékk vinnu út á það að leysa
þrautina [á töfrateningnum] fyrir
forstjórann og varð síðar millj-
arðamæringur.“
Guðjón horfir íbygginn á blaða-
mann:
„Á næsta ári kemur nýr töfraten-
ingur, Rubiks Revolution, sem talar
við notendur á íslensku og allt að
sex geta spilað í einu.“
Hann stekkur út í bíl og kemur
aftur með kubbinn, opnar umbúð-
irnar með búrhníf, og svo byrjar
teningurinn að tala.
„Þú ert kominn á ljóshraða!“