Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 29
sítrónusafanum, sýran í sítrónu-
safanum kemur í veg fyrir að epl-
in verði brún. Rúsínurnar eru
bestar þegar þær eru hitaðar.
Setjið rúsínurnar í skál og hellið
heitu vatni yfir þær og látið
standa í nokkrar mínútur á meðan
þær draga í sig vatnið og mýkjast.
Þurrkið þær vel, setjið allt hráefn-
ið í skál og blandið vel saman með
sykrinum og majónesinu (eða
sýrða rjómanum).
Salatið er þá klárt, það er einn-
ig gott að kæla það yfir nótt og
nota það daginn eftir.
Geitaostur og
hamborgarhryggur
á klettasalati með
trönuberjasultu
Hamborgarhryggurinn er skorinn
í þunnar sneiðar og geitaosturinn
skorinn í bita.
Sneiðarnar eru síðan vafðar utan
um ostinn og þræddar á pinna og
settar inn í ofn á 160°C í um þrjár
mínútur.
Klettasalatið er kryddað með salti
og pipar og msk. af olíu í lokin.
Sneiðarnar eru settar ofan á sal-
atið og ein skeið af trönuberja-
sultu borin fram með þeim.
Trönuberja- og fíkjusulta
Hentar vel með kalkún eða ham-
borgarhrygg
3 msk. sykur
safi úr tveimur appelsínum og
börkur af annarri þeirra
½ laukur fínt saxaður
¼ b rúsínur
¼ b ristaðar pistasíur (má
sleppa)
250 g trönuber (1 dós)
8 fíkjur gróft saxaðar (mega vera
þurrkaðar)
3 msk. fínt saxaður engifer
1 kanilstöng
1 tsk. cayenne-pipar
1 msk. Dijon-sinnep
salt og hvítur pipar, eftir smekk
Laukurinn er rétt hitaður í potti
með matskeið af olíu og síðan er
allt sett í pott og eldað á lágum
hita og hrært reglulega þar til
sykurinn leysist upp. Þá er hitinn
hækkaður og látið sjóða þangað til
trönuberin springa eða í um það
bil þrjár mínútur. Setjið sultuna
þá í skál og kælið.
Gott er að geyma sultuna í
krukku eða í plastíláti með góðu
loki.
Mauksoðin önd og
hangikjötsolíusósa með
malt- og appelsín-sírópi
Önd frá deginum áður
garðablóðberg og rósmarín (má
vera þurrkað)
2 lárviðarlauf
1 negulnagli
½ hvítlaukur
gulrætur og laukur eða annað
grænmeti (sellerí eða fennel t.d.)
3 dl ólífuolía
½ l vatn
salt
pipar
Öndin er sett í pott ofan í gott
kryddsoð og elduð í mauk á lágum
hita í þrjá tíma. Kryddið soðið eft-
ir smekk. Þegar öndin er mauk-
soðin sigtið þá soðið, hreinsið frá
grænmeti og kjötið af beinunum
og setjið í skál.
Bætið smásoði út í skálina með
kjötinu. Ef vill má salta meira og
pipra. Setjið í form og kælið. Þeg-
ar öndin er orðin köld og stíf má
skera hana niður í sneiðar.
Hangikjötsolíusósa
2 b hangikjöt skorið í litla bita
1 b rauðrófur gróft saxaðar (má
vera úr krukkunni)
½ b rauðlaukur fínt saxaður
1½ b extra virgin-olía
½ steinselja, söxuð
½ b balsamedik, hvítt eða svart
Blandið öllu saman í olíuna og
kælið.
Malt- og appelsín-síróp
1 malt í gleri
1 appelsín í gleri
100 g sykur
Soðið niður í síróp.
Köld gæsabringa með
sætkartöfluteningum
og rauðkálsmauki
Gæsin er skorin í þunnar sneiðar
og það er best ef hún er ennþá
rauð.
Ristaðir sætkartöflu-
teningar
Sætu kartöflurnar eru skornar í
teninga og steiktar á pönnu með
salti og pipar, krömdu hvítlauks-
rifi og nokkrum rósmarínnálum.
Þegar búið er að brúna teningana
og „rista“ eru þeir settir í eldfast
mót og inn í 140° heitan ofn í um
20 mínútur. Miðað er við að ten-
ingarnir séu 2 x 2 sm.
Rauðkálsmauk
300 g rauðkál
50 g smjör
100 ml rjómi niðursoðinn
Hitið rauðkálið og setjið í mat-
vinnsluvél að því loknu. Maukið
aðeins og bætið niðursoðnum
rjóma út í smám saman. Í lokin er
smjöri bætt saman við.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 29
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Þvottavél verð frá kr.:
99.900
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
www.eirvik.is
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þvottavél W1714 172.286 128.464
1400sn/mín/6 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg
Eirvík kynnir
sportlínuna
frá Miele
Miele gæði
TILBOÐ