Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 54
…en það gengur eitt-
hvað erfiðlega að ná í
sjónvarpsstjórann… 58
»
reykjavíkreykjavík
Í kvöld verður útgáfu Of gott …
fagnað á Gauki á Stöng. Þetta er
þriðja sólóplata Sesars A, en hann
gaf síðast út plötuna Gerðu það sjálf-
ur árið 2002. Hugmyndafræðin á
bak við þá plötu var keyrð út í öfgar
við gerð Of gott … „Hugmyndin var
að eiga frumkvæði, að bíða ekki eftir
öðrum, heldur bara gera hlutina
sjálfur. Núna geri ég bókstaflega
allt sjálfur, ég er gjaldkerinn, fram-
kvæmdastjórinn og skúringakonan í
mínu fyrirtæki. Ég fór í rauninni
hamförum og get ekki kennt neinum
um neitt nema sjálfum mér,“ segir
Eyjólfur Eyvindarson, kokkur, kvik-
myndagerðarmaður og maðurinn á
bak við rapparann Sesar A.
Of gott … er ansi seint á ferðinni
og Eyjólfur ætlar ekki að blanda sér
í jólaplötuslaginn í ár. Eina leiðin til
þess að eignast diskinn strax er að
mæta á tónleikana í kvöld. „Það hef-
ur gengið á ýmsu við að koma henni
út og ég tek því sem fyrirboða um að
ég eigi að bíða með hana. Hún fylgir
með aðgöngumiðanum [í kvöld], en
verður ekki dreift meira á þessu
ári.“
Hann segir að mikil þróun hafi átt
sér stað frá síðustu plötu. „Ég er að
vinna tónlistina mína á alveg nýjan
hátt, ég fór úr því að vinna aðallega
með glefsur eða „sömpl“ yfir í það að
spila melódíur sem ég fékk í kollinn
og vinna þær frekar með hljóðfæra-
leikurum.“
Um upphitun í kvöld sjá Mc Gauti,
meginþorri strákanna úr Forgotten
Lores og 7Berg. Svo tekur Sesar A
við og frumflytur efni af Of gott …
Meðal gesta hjá honum verða Dóri
DNA, Blazroca og Diva de la Rósa.
Kvöldið endar á því að rappbræðing-
urinn Fullorðins kemur í fyrsta
skipti fram á höfuðborgarsvæðinu.
Þar renna XXX Rottweiler, Sesar A
og Intró saman og koma fram sem
ein heild.
Gaukurinn opnar klukkan níu í
kvöld og tónleikarnir byrja klukkan
hálfellefu. Aðgangur að tónleikunum
kostar 1500 krónur og Of gott …
fylgir í kaupbæti.
Hamfarir Sesars A
Morgunblaðið/Golli
Rappkokkurinn Sesar A heldur útgáfutónleika í kvöld þar sem gestir fá
meðal annars að smakka á rappbræðingnum Fullorðins.
Er gjaldkeri, framkvæmdastjóri og skúringakona í einu
Það hefur lík-
lega ekki farið
framhjá neinum
að hinn þekkti
söngleikur And-
rews Lloyds Web-
bers og Tims
Rice, Jesus Christ Superstar, verð-
ur frumsýndur í Borgarleikhúsinu í
næstu viku. Samkvæmt áreið-
anlegum heimildum Morgunblaðs-
ins er ásóknin í miða gríðarleg og
allt að 250 miðar eru seldir á degi
hverjum uppi í Borgarleikhúsi.
Fyrstu 10 sýningarnar eru þá upp-
seldar sem þýðir að þeir sem eru að
vakna úr rotinu í dag verða að bíða
fram í miðjan janúar til að geta séð
Krumma í Mínus fara með hlutverk
frelsarans syngjandi.
Viðtal við þá Krumma og Björn
Hlyn leikstjóra verður í Reykjavík
Reykjavík um helgina.
Uppselt á fyrstu
10 sýningarnar
Það er kannski merki um rólega
og þægilega tíma þegar aðal-
áhyggjumál landsmanna er 60 sek-
úndna auglýsingahlé sem á að
troða inn í Áramótaskaupið. Sitt
sýnist hverjum og Ómar R. Valdi-
marsson náði svo sannarlega háu
nótunum í Kastljósinu á miðviku-
dag. Annar vinsæll álitsgjafi er Eg-
ill Helgason sem er á öndverðum
meiði við Ómar og segir að Skaupið
sé í raun ábyrgt fyrir því að eyði-
leggja áramótapartí síðustu 40 ára
– hvorki meira né minna. Bendir
hann réttilega á að Skaupið hafi
orðið til þegar enginn var fyndinn í
íslensku sjónvarpi en nú sé öldin
önnur, allir séu stöðugt að reyna að
vera fyndnir fyrir framan sjón-
varpsmyndavélina.
40 ára leiðindi
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Má ég hringja í þig eftir hálftíma í þetta núm-
er? Ég er nefnilega á fundi.“ Þannig svarar Árni
Beinteinn Árnason fjöllistamaður í símann, ný-
orðinn 13 ára. Maður er vanari því að fá slík
svör frá framkvæmdastjórum eða annars konar
stjórum, en þetta er sjálfsagt lýsandi fyrir Árna.
Hann er ekki dæmigerður 13 ára strákur.
Árni hefur á árinu sem er að líða leikstýrt og
framleitt stuttmynd með fullorðnum atvinnu-
leikurum og tökuliði, leikið í fjölda leikrita, ver-
ið með stutt viðtöl eða yfirheyrslur í Laug-
ardagslögunum og leikið í Duggholufólkinu, svo
eitthvað sé nefnt. Árni talar hratt og örugglega,
án hikorða og það er engu líkara en blaðamaður
sé að ræða við listamann sem er öllu vanur í
bransanum og gamall í hettunni.
Árni fékk fyrsta hlutverk sitt á tíu ára afmæl-
inu, 12. desember 2004, og hefur leikið í hverju
leikritinu á fætur öðru upp frá því; Híbýlum
vindanna, Annie, Ronju ræningjadóttur, Sitji
guðs englum og leikur þessa dagana í Gosa og
Skilaboðaskjóðunni.
Leikstýrði Sigurði Skúlasyni
„Nú er ég eiginlega búinn að klára nánast allt
fyrir jólin, er bara núna í jólafríi að fara að
vinna að hlutum sem mig hefur langað til að
vinna í en ekki getað, klippa mínar eigin stutt-
myndir og svoleiðis,“ segir Árni, inntur eftir
stöðu verkefna. Hann eigi eftir að klippa
„stærstu stuttmyndina sína hingað til“, Flagð
undir fögru skinni. Í henni leikstýrði hann at-
vinnuleikurunum Sigurði Skúlasyni, Guðjóni
Þorsteini Pálmarssyni og Jóhannesi Hauki Jó-
hannessyni.
Á næsta ári verður frumsýnd kvikmyndin
Stóra planið sem Árni leikur í og mun hann
áfram leika í Skilaboðaskjóðunni og Gosa. Þá
kemur út plata Guðmundar Inga Þorvaldssonar
á næsta ári. Árni syngur á henni nokkur lög en
af öðrum listamönnum á henni má nefna Bubba
Morthens og Selmu Björnsdóttur. „Það verður
vonandi sumarplata næsta árs, ef allt gengur að
óskum. Rosalega skemmtileg lög og mikið fag-
fólk sem stendur að því.
Ég var að fá rosalega stórt hlutverk í útvarps-
leikriti, aðalhlutverkið, langstærsta hlutverk
sem ég hef fengið hingað til í útvarpsleikhúsi og
alls staðar annars staðar. Það verða upptökur á
því í janúar og Sigrún Edda Björnsdóttir leik-
stýrir því, það heitir Engill í vesturbænum,“
segir Árni og blaðamaður þarf að hafa sig allan
við að ná þessu öllu saman.
Ertu einhvern tíma í fríi? Geturðu farið út í
fótbolta, t.d?
„Nei, mér finnst leiðinlegt í íþróttum. Ég á
náttúrulega frí núna, jólafrí,“ segir Árni. Hann
hafi varla tíma til að fara í skólann, nýbúinn að
ljúka jólaprófum með einkunnina 10 í öllum!
Ekki að spyrja að því.
Framtíðarlistamaður
Eru ekki allar líkur á því að þú leggir listina
fyrir þig í framtíðinni, þegar þú verður fullorð-
inn?
„Það er náttúrlega stefnan ennþá [...] mér
finnst gaman að vera fyrir framan myndavélina
og reglulega skemmtilegt að vera fyrir aftan
hana. Þetta er bara spurning um hvað maður
vill hverju sinni. Stundum er gott að ráða, fá að
stjórna öllu, stundum er gott að vera bara leik-
ari.“
Ef þú lítur yfir árið 2007, hvað er þá eft-
irminnilegast?
„Það var náttúrlega geðveikt að taka upp
fyrstu atvinnumanna-stuttmyndina sína,“ svarar
Árni og einnig að hafa fengið að semja, leik-
stýra og klippa kynningarmyndband fyrir Út-
varpsleikhúsið sem sýnt var í Sjónvarpinu í sum-
ar. „Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið
að prófa það.“
Af öðrum hápunktum nefnir Árni frumsýn-
ingu á Duggholufólkinu, að fá að afhenda
Grímu-verðlaun og skemmta á árshátíð Glitnis
með Brynhildi Guðjónsdóttur og síðast en ekki
síst að stökkva inn í Skilaboðaskjóðuna með
skömmum fyrirvara. Framtíðin er sannarlega
björt hjá þessum unga manni.
„Ég er nefnilega á fundi“
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Árni Beinteinn Árnason marga fjöruna sopið
Morgunblaðið/Golli
Árni Beinteinn Hefur trúlega meira að gera en flestir aðrir 13 ára gamlir unglingar.