Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 25
Jólastuð Hringur knúsaði vinkonur sínar Áslaugu leikskólakennara og
Önnu Mörtu sem gaf honum líf.
|föstudagur|21. 12. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Guðjón Guðmundsson segir
ævintýrin sem leynst geta í
borðspilum góða leið til að
skemmta sér og öðrum. »26
daglegt
Að bera hamborgarhrygginn
fram með geitaosti og kletta-
salati er góð leið til að nýta af-
gangana. »28
matur
Hátíðarvín frá Hermitage og
Bordeaux eiga vel við með jóla-
matnum að mati Steingríms
Sigurgeirssonar. »30
vín
Ísbjörninn Hringur hefur vakið miklalukku meðal barna hér á BarnaspítalaHringsins og koma hans er kærkomintilbreyting fyrir börn sem þurfa að liggja
inni á spítala. Hans er beðið með óþreyju í hvert
sinn sem hans er vænst. Börnin safnast saman
hér á leikstofunni þegar von er á honum og taka
honum fagnandi. Hann fer líka stundum á
bráðamóttökuna, dagdeild og legudeildir. Hann
er með hinar ýmsu uppákomur og hefur
skemmt ungum sem öldnum með leik, tali og
söng,“ segir Áslaug Jóhannsdóttir, leikskóla-
kennari á leikstofunni á Barnaspítala Hrings-
ins, en ísbjörninn Hringur hefur komið þangað í
heimsókn vikulega allt síðastliðið ár.
Á það til að rappa og vera svalur
„Við sem störfum hér erum afskaplega
ánægð með þetta verkefni og þakklát þeim
hjónum Önnu Mörtu og Ingólfi fyrir framtakið,“
segir Áslaug og bætir við að Hringur sé nú yfir-
leitt frekar stilltur, enda megi hann ekki hræða
börnin. „Hann er stór og sumum börnunum
verður hverft við þegar þau sjá ísbjörn hér í
fyrsta sinn. En þetta er allt á léttu nótunum og
spilað eftir stemningunni hverju sinni. Hann er
svo góður og mjúkur og það er gott að knúsa
hann. Það eru líka dæmi um að hann hafi gert
svolítil kraftaverk. Börn sem hafa kannski ekki
viljað fara fram úr rúmi eftir aðgerð, þau hafa
braggast við að hitta hann og komið sér af stað.
Hann nær góðu sambandi við börn á öllum aldri
og er líka duglegur að laga sig að börnunum
hverju sinni. Hann á það jafnvel til að rappa fyr-
ir unglingana ef stemning er fyrir því.“
Viljum láta Hring lifa áfram
Hugmyndin um Hring varð til fyrir tveimur
árum þegar Anna Marta Ásgeirsdóttir og Ing-
ólfur Örn Guðmundsson giftu sig og báðu brúð-
kaupsgesti sína að leggja andvirði brúðargjafa
inn á reikning sem notaður var til að glæða
Hring lífi.
„Við hjónin erum óendanlega þakklát öllum
þeim sem standa að Hring, fyrir að láta ósk okk-
ar og fleiri verða að veruleika. En til að verk-
efnið lifi um ókomna tíð þá þarf meira fjármagn.
Við leggjum því til að vinir okkar og vandamenn
láti jólakortakostnað þetta árið renna til Hrings
svo hann geti haldið áfram að gleðja börnin sem
eiga um sárt að binda á Barnaspítala Hrings-
ins.“ Anna Marta og Ingólfur vonast til að al-
menningur leggi verkefninu líka lið og að þetta
ævintýri verði öðrum hvatning til að láta gott af
sér leiða.
Ísbjörn gleður lítil hjörtu
Morgunblaðið/RAX
Gaman Hringur lék sér meðal annars við hann Ásgeir Mána og mamma hans Guðrún skemmti sér líka vel.
Sumar brúðargjafir geta gætt
mjúkan ísbjörn lífi. Kristín
Heiða Kristinsdóttir hitti ís-
björninn Hring sem heimsótti
börnin á Barnaspítala Hrings-
ins í gær.
Þeir sem vilja styrkja Hring geta lagt inn á
reikninginn Vinir Hrings:
515-14-106500, kt. 520207-1470.
Fjörutíu prósent norskra karlmanna
óska sér 50 tomma flatskjás í jóla-
gjöf. Þetta sýnir ný rannsókn sem
könnunarfyrirtækið Norstat gerði
fyrir raftækjaverslunina Elkjøp þar
í landi og vefmiðill Aftenposten
greinir frá.
Í könnuninni voru 1.000 manns
spurðir hvaða raftæki þeir vildu sjá
undir jólatrénu í ár og af svörunum
má sjá að stærðin skiptir máli.
Upplýsingafulltrúa samtaka sölu-
og þjónustuaðila raftækja í Noregi
kemur ekki á óvart að svo marga
karlmenn dreymi um svo stóran
flatskjá enda segir hann það í takt
við þróunina. „Fólk fær sér stöðugt
stærri sjónvarpsskjái,“ segir Erik
Andersen. „Reyndar bendir margt
til þess að unglingarnir á heimilinu
vilji stóra skjái til að spila tölvuleiki
við en að pabbi og mamma ráði á
endanum stærðinni og útlitshönn-
uninni.“
Andersen bætir því við að stór
flatskjár sé dæmigerð gjöf „til fjöl-
skyldunnar frá fjölskyldunni“. Hann
á von á að salan á flatskjám muni
verða í kring um 550 þúsund eintök í
Noregi í ár.
Faxtæki alveg glatað
Rannsóknin sýndi líka að þeir sem
vilja halda fjölskyldufriðinn um jólin
ættu að forðast eins og heitan eldinn
að setja faxtæki eða nasaháraklipp-
ur í jólapakkana því 96 prósent að-
spurðra sögðust engan veginn vilja
slíkar græjur í jólagjöf. Átöppunar-
vél fyrir bjórflöskur lenti líka neðar-
lega á listanum því aðeins sex pró-
sent gátu hugsað sér slíka gjöf.
Greinilegur munur var á viðhorf-
um kynjanna því aðeins 29 prósent
kvenna langaði í 50 tomma flatskjá.
39 prósent þeirra gátu þó vel hugsað
sér 42 tomma sjónvarp.
Karlmenn vilja 50 tomma flatskjá í jólagjöf
Morgunblaðið/Golli
Flatskjáir Stærðin skiptir víst máli.
Fæstir vilja
nasaháraklippur
Hringur var með tösku fulla af jóla-
nammi sem hann gaf börnunum þegar
hann leit við í heimsókn í gær á barna-
spítalanum. „Fyrst þegar ég kom hingað
þá var ég rosalega mikið lasinn og þá
var ég á gamla spítalanum. Mamma mín
sendi mig hingað af því að læknarnir á
Íslandi eru svo góðir en mamma býr á
Norðurpólnum. Ég og systir mín búum
núna á Íslandi. Ásgeir læknir læknaði
mig alveg og ég er búinn að eignast
ótrúlega marga vini hér á barnaspít-
alanum. En konurnar hérna niðri vilja
aldrei gefa mér mat þegar ég kem í
heimsókn. Þær segja alltaf að ég þurfi
að borga. Fiskur er á óskalistanum mín-
um yfir jólagjafir og mig langar líka í
fullan kassa af íspinnum og súkkulaði.
Svo langar mig líka svolítið til að
mamma komi til mín,“ segir ísbjarn-
arstrákurinn Hringur sem segist vera
sex ára.
Langar í fisk og íspinna í jólagjöf