Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
HALDIÐ var upp
á þau tímamót
víðsvegar um
Evrópu í gær að
Schengen-svæðið
stækkaði veru-
lega á miðnætti í
nótt, úr 15 ríkjum
í alls 24.
Íbúafjöldi
stækkaða svæðis-
ins er alls um 400 milljónir manna,
en samningurinn um Schengen
tryggir einstaklingum frjálsa för um
innri landamæri samstarfsríkjanna,
án persónueftirlits á landamærum,
frá Tallinn í Eistlandi í norðri, suður
til Lissabons í Portúgal, svo dæmi sé
tekið. Áfram verður hægt að krefja
einstaklinga um persónuskilríki en
vegabréfs er ekki krafist.
Þýska lögreglan áhyggjufull
Þýsku lögreglusamtökin héldu því
fram í gær að stækkunin myndi leiða
til glæpahrinu í landinu. Einkum
væri afnám eftirlits með landamær-
um Þýskalands að Póllandi og Tékk-
landi „heimboð til glæpamanna“.
Inntur eftir því hvort hann deildi
áhyggjum þýsku lögreglunnar um
vaxandi glæpatíðni hér heima vegna
stækkunarinnar sagði Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra „ekki unnt
að bera saman stöðuna á Íslandi og
Þýskalandi, þegar persónueftirliti er
hætt á landamærum Póllands og
Þýskalands“.
Björn benti einnig á að hinn öflugi
gagnabanki sem hefði orðið til í ald-
anna rás og ætti eftir að stækka væri
í „raun öflugra eftirlitstæki með ein-
staklingum heldur en að skoða skil-
ríki þeirra á landamærum“.
Björn sagði:
„Ég er þeirrar skoðunar, að með
því að binda hugann við persónueft-
irlit á landamærum, þegar hugað er
að öryggismálum í tengslum við
Schengen sé aðeins verið að horfa á
það, sem er augljóst og auðveldar
fólki ferðalög, en ekki hitt, sem sést
ekki en er hluti af Schengen, en það
er miklu öflugra lögreglusamstarf
um alla Evrópu en nokkru sinni fyrr.
ESB-ríkin eru stöðugt að efla lög-
reglusamstarf sitt nú síðast með svo-
nefndum Prüm-samningi, sem er til
skoðunar hjá mér, en þar er byggt á
nánara samstarfi evrópskra lög-
regluliða en áður hefur þekkst.“
Spurður um nýja reglugerð um för
yfir landamæri, sem gekk í gildi í
gær, sagði Björn þau nýmæli hennar
er vörðuðu almenning ekki þess eðl-
is, að þau breyttu neinu fyrir þá, sem
eru að ferðast. „Nýmælin snúa meira
að þeim, sem halda uppi landamæra-
eftirliti og tekið er af skarið um ein-
stök atriði á skýrari hátt en áður hef-
ur verið,“ sagði Björn, sem tók dæmi
um áhrif stækkunarinnar.
„Frá og með 30. mars 2008 þurfa
þeir, sem farið hafa í leiguflugi til
Tékklands og Slóveníu, svo að dæmi
séu tekin, ekki lengur að fara út af
Schengen-svæðinu.“
Schengen stækkar
Átta A-Evrópuþjóðir og Malta bætast við Schengen-svæðið
Björn Bjarnason segir gagnabanka hafa eflt eftirlitið
Björn Bjarnason
Í HNOTSKURN
»Ísland hefur verið þátttak-andi í Schengen frá 2001.
»Ríkin sem bættust við eruTékkland, Ungverjaland,
Eistland, Lettland, Litháen,
Malta, Pólland, Slóvakía og Slóv-
enía.
»Fyrir í Schengen voru Ísland,Danmörk, Svíþjóð, Noregur,
Finnland, Þýskaland, Lúxem-
borg, Spánn, Portúgal, Frakk-
land, Belgía, Ítalía, Grikkland,
Austurríki og Holland.
RUDY Giuliani, fyrrverandi borg-
arstjóri í New York, sem lengi var
talinn líklegastur til að verða for-
setaefni repúblikana í kosningunum
næsta haust, er nú á hraðri niðurleið
í skoðanakönnunum. Ætlar hann
ekki að beita sér neitt í forkosninga-
baráttunni í fyrstu tveimur ríkj-
unum, Iowa og New Hampshire, en
vonast til að koma sterkur inn í
Florida í febrúar. Horfurnar eru
samt svo slæmar, að það er haft eft-
ir hans eigin fólki, að það sé borin
von að hann verði útnefndur for-
setaframbjóðandi flokksins.
Giuliani hafði ýmis tromp á hendi
er hann ákvað að sækjast eftir því
að vera forsetaefni repúblikana.
Hann var hetjan frá því í hryðju-
verkaárásunum 11. sept. 2001, hafði
verið útnefndur „Borgarstjóri
Bandaríkjanna“ og „Maður ársins“.
Þrátt fyrir það og
mikla siglingu
framan af var
grasrótin í
flokknum aldrei
almennilega sátt
við hann og
„vinstrisinnaðar“
skoðanir hans á
ýmsum sam-
félagsmálum.
Fréttaskýrendur segja hins vegar,
að það hafi ekki verið skoðanir hans,
sem hafi riðið baggamuninn, heldur
persónan sjálf. Um það sagði í hinu
íhaldssama dagblaði New York Sun:
„Hinn óþægilegi sannleikur er sá,
að því meira sem hann sýndi sig í
New Hampshire, þeim mun minna
var fylgið í skoðanakönnunum.“
Með öðrum orðum: Repúblikanar í
ríkinu komust að því, að þeim líkaði
ekki við Rudy Giuliani. Aðrir benda
á tvö mál, sem hafa reynst Giuliani
erfið. Í fyrsta lagi vinátta hans við
Bernard Kerik, lögreglustjóra í
New York, en hann er aftur sakaður
um óbein tengsl við mafíuna. Hitt
málið er Judith Nathan, sem var
hjákona Giulianis í tvö ár en er nú
kona hans. Sagt er, að hann hafi
alltaf farið á hennar fund í fylgd lög-
reglu, sem beið hans á hóteli
skammt frá, og reiknað hefur verið
út, að hver ástarfundur þeirra hafi
kostað skattborgarana nærri
190.000 ísl. kr.
Frá þessu máli, sem hefur verið
kallað „Sex on the City“, hefur verið
sagt í fjölmiðlum og í kjölfarið hefur
fylgið hrunið af Giuliani. Sagt er, að
repúblikanar í New York séu nú að
huga að áætlun B en í henni sé ekki
gert ráð fyrir Rudy Giuliani.
Giuliani búinn að vera?
Sagt er að jafnvel hans eigin stuðningsmenn hafi nú
afskrifað hann sem líklegan forsetaframbjóðanda
Rudy Giuliani
EID-hátíðin meðal múslíma stendur nú sem hæst en þá
minnast þeir þess, að Abraham var fús til að fórna syni
sínum að boði drottins. Í Írak er ekki minna um að vera
en annars staðar þrátt fyrir allt, sem á undan er geng-
ið, en þar virðist loksins vera að færast nokkur ró yfir
samfélagið. Myndin var tekin í skemmtigarði í austur-
hluta Bagdad-borgar og stingur vissulega í stúf við
aðrar fréttamyndir frá landinu á síðustu árum.
AP
Gleði og gaman í skemmtigarði