Morgunblaðið - 21.12.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!
!"#$
%& !"#$
'("#$
) !"#$
*((+("#$
,#$(-(!#.*/0*
12
* ( !"#$
3 !4(/"#$
) +(0* "#$
- 5 67 8$+$"#$
9-("#$
: "#$
;<"#$
*#
2"#$
*(2(
9
*(2=
*
-=>
((
*/ !"#$
? 9
12
* (2 !"#$
*"#$
@"
8("#$
=A 9//(/-(6&6("#$
B(* &6("#$
!
C
9* -( - , ("#$
,-!(68"#$
" # $ %
&
B(6(!(
/(
(*+ 6D* /E
3 !*
;F$G$<H
H<$F$HF
F$;$GG
$;H$<
G$F$<$I
I$<F<$GF
$GGI$<GF
G$H$G$GH
I$I$II;
IH$F$FIF
H$$;
;$G<F$I
;$;$<FG
;$G$H
;;;$G$<
;$F<$HH;
;F$;
$<F$<F
$F$
;H$G$
5
;FG$G<$I
5
5
<$<F$
5
5
IJH<
JH
HJF
J
GJH
;J
GJ
FFJ
;J
J
J<
IHJF
JIF
<JFH
GJ
<<J
HJ
JI
H;J
JGG
IFJ
G;JG
FJG
5
5
;;J
5
5
IJF
<JF
FJ
JH
GJF
;JF
GJH
F<;J
;J
J
JG
IFJ;
GJ
<JI
GJ
<HJ
FJ
JI
HFJ
JG
IIJG
G;JH
FJG<
<J
5
;J
5
5
8&* (
%(6(!
I
G
G
FH
;
I
;
H
;
<
<
5
G
H
;
F
<
5
HG
5
5
<
5
5
/
(/
%(6$%
6
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
I$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
G$G$GH
F$G$GH
G$G$GH
<$G$GH
GG$F$GH
G$G$GH
H$G$GH
G$$GH
ÞETTA HELST ...
● HAGVÖXTUR verður 1% á næsta
ári og 3,5% árið 2009, að mati grein-
ingardeildar Landsbankans, en hag-
vöxtur ársins í ár stefnir í 3%, sem er
umfram fyrri spár bankans.
Landsbankinn spáir 9% lækkun
fasteignaverðs á næsta ári og að
verðið standi því sem næst í stað ár-
ið 2009. Lækkandi fasteignaverð
skili sér í því að markmið Seðlabank-
ans um 2,5% verðbólgu muni nást
tímabundið við lok næsta árs en
verðbólgan muni síðan aukast á nýj-
an leik. Þá telur bankinn að stýrivext-
ir hafi nú náð hámarki og að for-
sendur til lækkunar skapist um mitt
næsta ár. Óvissa um horfur í alþjóð-
legum efnahagsmálum mun vara
fram á mitt næsta ár, segir greining-
ardeild Landsbankans.
1% hagvöxtur og 9%
lækkun fasteigna
● LÍTILSHÁTTAR hækkun varð á úr-
valsvísitölu aðallista kauphallar
OMX á Íslandi í gær, 0,05%, og nam
gildi hennar við lokun markaðar
6.217,13 stigum. Mest hækkun
varð á bréfum Atlantic Petroleum,
2,89%, en bréf Spron lækkuðu
mest, um 7,92%.
Heildarvelta í viðskiptum í kaup-
höllinni í gær nam ríflega 32 millj-
örðum króna en þar af var velta með
hlutabréf fyrir 7,6 milljarða. Mest
velta var með bréf Kaupþings, 2,6
milljarðar króna.
Lítilsháttar hækkun
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
BANKASTJÓRN Seðlabanka Ís-
lands telur að með óbreyttum stýri-
vöxtum nú megi ná verðbólgumark-
miði Seðlabankans, 2,5%, um miðbik
ársins 2009. Þetta kom fram í máli
Davíðs Oddssonar, seðlabanka-
stjóra, í gær, en hann sagði við sama
tilefni að óróleiki sá sem ríkt hefur á
fjármálamörkuðum gæti varað allt
fram á næsta haust.
Sagði Davíð að verðbólga hafi ver-
ið meiri síðastliðna tvo mánuði en
Seðlabankinn bjóst við í nóvember.
Eftirspurn hafi aukist hraðar á
þriðja fjórðungi ársins en áætlað var
og vísbendingar séu um svipaða
framvindu á yfirstandandi fjórðungi.
Verðbólguhorfur til skamms tíma
séu því lakari en við síðustu vaxta-
ákvörðun. Hins vegar hefur ekki
orðið afgerandi breyting á verð-
bólguhorfum sé litið til lengri tíma,
að því er fram kom í máli Davíðs.
Skilyrði hafa enn versnað
Óhagstæðari gengis- og launaþró-
un en fólst í grunnspánni í nóvember
gæti tafið fyrir hjöðnun verðbólgu,
að mati Seðlabankans, en kjaravið-
ræður standa nú yfir. Enn sjáist
þess ekki ótvíræð merki að dregið
hafi úr spennu á vinnumarkaði og
gæti afleiðingin orðið óhagstæðari
launaþróun gagnvart verðbólgu en
spáð var í nóvember. Verði niður-
staðan sú eða verðbólguhorfur
versni af öðrum ástæðum muni
bankastjórnin bregðast við, sam-
kvæmt forsendum bankastjórnar.
„Skilyrði á erlendum fjármála-
mörkuðum hafa enn versnað. Vegna
þess og hárra stýrivaxta hafa inn-
lendir vextir hækkað verulega frá
síðustu vaxtahækkun bankans og
framboð lánsfjár dregist saman,“
sagði Davíð. „Vextir verðtryggðra
langtímaskuldabréfa, sem lengi tóku
lítt mið af auknu peningalegu að-
haldi, hafa hækkað skarpt í ár, ekki
síst eftir síðustu hækkun stýrivaxta.
Verð hlutabréfa hefur einnig lækkað
verulega undanfarna mánuði sem
eykur fjármagnskostnað fyrirtækja
og veikir efnahagsreikning þeirra og
heimilanna. Þessi þróun leiðir vænt-
anlega til lækkunar á verði fasteigna
á næstu misserum eins og þegar hef-
ur orðið víða erlendis. Slík fram-
vinda mun hafa bein áhrif á verð-
bólgu í gegnum húsnæðislið vísi-
tölunnar og óbein áhrif vegna minni
innlendrar eftirspurnar.“
Í samræmi við væntingar
Bankastjórn Seðlabankans telur
að langtímaverðbólguhorfur sem
birtust í Peningamálum í nóvember
hafi enn ekki breyst svo óyggjandi
sé. „Bankastjórnin telur að með
óbreyttum stýrivöxtum nú megi ná
verðbólgumarkmiðinu innan svipaðs
tíma og fólst í grunnspánni sem
kynnt var í Peningamálum í nóvem-
ber sl., þ.e. um miðbik ársins 2009.“
Ákvörðun Seðlabankans var í
samræmi við spár sumra greining-
ardeilda, en í Hálffimmfréttum
Kaupþings segir að í rökstuðningi
bankans kveði við nýjan tón þar sem
nú sé vísað til fjármálastöðugleika
fremur en verðstöðugleika. Að mati
greiningardeildar bankans hafa
skapast forsendur fyrir hraðara
vaxtalækkunarferli hjá Seðlabank-
anum en áður hefur verið gert ráð
fyrir þó mögulegt umrót á gjaldeyr-
ismarkaði gæti þó tafið fyrir vaxta-
lækkunum.
Greiningardeild Landsbankans
hafði gert ráð fyrir 0,25 prósentu-
stiga hækkun og telur rökstuðning
Seðlabankans nú réttlæta slíka
hækkun.
Greining Glitnis telur ákvörðun
Seðlabankans og rökstuðning hans
hins vegar renna stoðum undir þá
skoðun greiningardeildarinnar að
frekari hækkana stýrivaxta sé ekki
að vænta.
Gengi krónunnar veiktist í gær
um 0,86%, en smávægileg hækkun
var hins vegar á gengi hlutabréfa í
Kauphöllinni. Hækkaði Úrvalsvísi-
talan um 0,05%, í 6.217,13 stig.
Verðbólgumarkmið
náist um mitt ár 2009
Morgunblaðið/Ómar
Þróun Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, sagði hugs-
anlegt að bankinn gripi til aðgerða kæmi til óhagstæðrar launaþróunar.
Meiri verðbólga
en gert hafði verið
ráð fyrir í spám
HLUTABRÉF í Exista og Spron
héldu áfram að hrapa í verði í gær.
Lækkun Exista nam 6,5% í gær og
verðhrunið losar nú 20% í þessari
viku.
Grétar Axelsson, yfirmaður hluta-
bréfagreiningar hjá Glitni, segir að
mikið verðfall bréfa í Exista megi
enn sem fyrr líklegast rekja til þess
að fjárfestar séu að bera saman FL
Group og Exista.
„Margfaldað innra virði íslensku
fjárfestingarfélaganna hefur verið
1,6, þ.e. verðið hefur verið 60% yfir
innra virði félaganna. Okkur hefur
fundist þetta heldur hátt verð en er-
lend fjárfestingarfélög eru sum hver
í dag verðlögð undir 1. Margfaldari
þeirrar starfsemi sem var inni í FL
Group fyrir hlutafjáraukninguna um
daginn var 1,2, miðað við gengið 14,7,
og markaðurinn er augljóslega að
endurmeta Exista með tilliti til verð-
matsins á FL. Menn eru ekki tilbún-
ir til að borga sama álag fyrir
áhættufjárfestingar og áður,“ segir
Grétar.
Spron lækkaði um 7,9% í gær en
verð bréfanna hefur nú tekið rúm-
lega 56% lækkun frá fyrstu viðskipt-
um með bréfin í Kauphöll hinn 23.
október sl.
Exista er ein mikilvægasta eign
Spron og telur Guðmundur Hauks-
son, forstjóri Spron, að rekja megi
lækkunina á Spron til þróunarinnar
á hlutabréfum Exista. Fjárfestar líti
til þess að eignir Spron hafi minnkað
og því sé eðlilegt að gengi bréfa í
Spron lækki í kjölfarið.
Enn hrun
hjá Exista
og Spron
;
;
G
G
$ G$ ;$$ G$ ;$G$ ;$
'& &(&#) * &(&
+&
,-
./
$$
!
01)
#*&
02)
!& &(&
0223
K4563
K5761
FJG<
HJF
;GJF
FJI
GUÐRÚN Erlingsdóttir, stjórnar-
formaður Lífeyrissjóðs Vestmanna-
eyja, segir við Morgunblaðið að
bréf sjóðsins í Vinnslustöðinni
(VSV) séu langtímafjárfesting og
ekki standi til að selja þau. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær
samþykkti stjórn sjóðsins að hafna
tilboði Ísfélagsins og Kristins ehf. í
bréfin.
„Samþykkt stjórnarinnar var ein-
róma og átakalaus. Við tókum þá
stefnu fyrr á árinu að selja ekki
bréfin. Þetta er fjórða tilboðið sem
við fáum í bréfin og það næst-
lægsta. Við höfum ekki breytt um
stefnu og teljum vænlegast að eiga
bréfin áfram,“ segir Guðrún en áð-
ur hefur sjóðurinn hafnað tilboðum
á genginu 8,5 og 8,0. Tilboð Ís-
félagsins var upp á 7,90 en alls á
sjóðurinn 5,3% í VSV.
VSV langtímafjárfesting
● ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið Fitch
Ratings hefur staðfest lánshæf-
iseinkunn Straums-Burðaráss. Lang-
tímaeinkunn bankans er BBB-,
skammtímaeinkunnin F3, óháð ein-
kunn C/D og stuðningseinkunnin er
3 og eru horfur stöðugar samkvæmt
fréttatilkynningu frá Straumi.
Í skýrslu Fitch segir að einkunnin
endurspegli fjárhagslegan styrk
Straums auk umbóta í rekstri bank-
ans og haldi bankinn áfram umbóta-
ferlinu renni það stoðum undir hækk-
un einkunnarinnar.
Þá kemur fram að lausafjárstaða
Straums sé sterk og að fjárhags-
legur styrkur bankans veiti sveigj-
anleika til frekari vaxtar.
Fitch staðfestir
einkunn Straums
www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is
Sendiherrar Íslands
í Berlín og Peking
verða til viðtals í janúar sem hér segir:
Berlín – Ólafur Davíðsson, sendiherra,
fimmtudaginn 3. janúar.
Auk Þýskalands er umdæmi sendiráðsins Búlgaría, Króatía og Pólland.
Peking – Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra,
fimmtudaginn 10. janúar.
Auk Kína er umdæmi sendiráðsins Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía,
Norður-Kórea, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Víetnam.
Fundirnir eru ætlaðir fyrir tækjum sem vilja ræða viðskiptamöguleika,
menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmum
sendiráðanna, þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Þau fyrir tæki sem hafa hug á að bóka viðtöl eru hvött til að gera það
sem fyrst, í síma 511 4000 eða hjá utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni 35.
Nánari upplýsingar veita:
Svanhvít Aðalsteinsdóttir, svanhvit@utflutningsrad.is
og Andri Marteinsson, andri@utflutningsrad.is.
P
IPA
R
• S
ÍA
• 7259
0
ALLAR helstu hlutabréfavísitölur
heims hækkuðu í gær þrátt fyrir að
afkoma bandaríska fjárfestingar-
bankans Bear Stearns hafi verið und-
ir væntingum greinenda. Bankinn
tapaði 854 milljónum dala á fjórða
ársfjórðungi, sem er fjórum sinnum
meira en spár höfðu gert ráð fyrir, og
er það í fyrsta skipti síðan bankinn
var skráður á markað sem hann skil-
ar tapi á einum fjórðungi. Mestu
munar þar um fjárfestingar í ótrygg-
um veðlánum í Bandaríkjunum en
bankinn neyddist til þess að afskrifa
slík lán fyrir 1,9 milljarða dala á
fjórðungum. Greinilegt er þó að af-
koma Bear Stearns var yfir vænting-
um markaðarins því gengi hlutabréfa
bankans hækkaði um 0,9% í gær.
Best stóðu hlutabréf tæknifyrir-
tækja sig á mörkuðum vestanhafs í
gær og hækkaði Nasdaq töluvert
meira en Dow Jones-iðnaðarvísital-
an. Það var hugbúnaðarfyrirtækið
Oracle sem dró vagninn með góðu
uppgjöri.
Hækkanir á
mörkuðum
♦♦♦