Morgunblaðið - 21.12.2007, Qupperneq 28
Það hljómar ekki ama-
lega geitaostur og ham-
borgarhryggur á kletta-
salati og hins vegar
kalkúnakebab með satay-
sósu. Þetta eru réttirnir
sem Jón R. Sigurðsson
benti Guðbjörgu R. Guð-
mundsdóttur á að tilvalið
væri að gera úr afgöng-
um af jólasteikinni.
J
ón R. Sigurðsson mat-
reiðslumaður var bara
lítill gutti þegar hann
var að sniglast í eldhús-
inu á Búðum en þá var
mamma hans, Sigríður Gísladóttir
myndlistarkona, þar hótelstýra.
„Ég var til ama og leiðinda í eld-
húsinu á Búðum, alltaf að sniglast
þar og líklega hefur áhuginn
kviknað þegar ég var að fylgjast
með Rúnari Marvinssyni yfir pott-
unum,“ segir Jón þegar ég spyr
hann um áhugann á matargerð.
Hann útskrifaðist síðan sl. vor
sem matreiðslumaður frá Grillinu
og réð sig beint á Búðir.
„Það var gaman að spreyta sig
á að búa til rétti úr jólaafgöng-
unum,“ segir Jón og býður upp á
fjóra rétti úr mismunandi kjöti
sem oft er á borði landsmanna á
aðfangadagskvöld eða jóladag.
„Ég hef ekki gert mikið af því að
elda úr afgöngunum frá jólum því
við erum bara að kroppa í kjötið
frameftir öllu kvöldi á jólunum.“
Tveir aðalréttir á jólaborðið
Þegar hann er spurður hvað
hann borði sjálfur á jólum eru
tveir aðalréttir á boðstólum, ham-
borgarhryggur og læri. Ástæðan
er einfaldlega sú að fjölskyldan er
stór, við borðið sitja tólf manns og
þá eru tveir réttir til að velja um.
Fyrir þessu er komin hefð en í
staðinn er aldrei hægt að ganga
að vissum eftirrétti vísum því
hann tekur breytingum frá ári til
árs.
Af réttunum sem Jón býður hér
upp á segir hann að fyrir sinn
smekk sé hamborgarhryggur og
geitaostur mest spennandi fyrir
bragðlaukana. „Þetta passar eitt-
hvað svo vel saman, ekki ósvipað
og parmaskinkan og osturinn.“
Kalkúna-kebab
í satay-sósu
Kalkúnninn er skorinn niður í
munnbita og settur á pinna og í
eldfast mót
Satay-sósa
1 dós af kókosmjólk
½ b af grófu hnetusmjöri
½ laukur rifinn eða fínt saxaður
1 msk. sojasósa
2. msk. púðursykur
½ rauður chili fínt saxaður
Allt sett í pott á lágan hita og
eldað þar til hráefnin hafa bland-
ast saman, hitað að suðu og hrært
í reglulega. Sósan er tekin af hita,
og hellt yfir kalkúninn og sett inn
í heitan ofn á 150°C hita í um
fimm mínútur.
Með þessu er borið fram epla-
salat eða waldorf-salat sem passar
einstaklega vel með kebabinu og
gefur smásætu í réttinn.
Waldorf-salat
3-4 græn epli ekki skræld,
kjarninn skorinn úr og eplin skor-
in í litla munnbita og geymd í
köldu vatni
1 msk. sítrónusafi
1⁄3 b rúsínur
2⁄3 b saxað sellerí
1⁄3 b valhnetur
1⁄3 b majónes eða sýrður rjómi
1 msk. sykur
Veltið eplabitunum upp úr
Jólamatur í nýjum búningi Hamborgarhryggur með geitaosti.
Kokkurinn Jón R. Sigurðsson hafði gaman af að breyta jólaafgöngunum í nýja listarétti.
Dýrindis krásir
úr afgöngum
af jólasteikinni
Mauksoðin önd Malt og appelsín sýrópið er skemmtileg nýjung.
Hnossgæti Köld gæsabringa með ristuðum sætkartöfluteningum.
Öðruvísi góðgæti Kalkúna-kebab með satay-sósu og waldorfsalati.
matur
28 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ