Morgunblaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 31
Þann 21. desember gægist Gluggagægir inn umgluggann þinn. Hann er að kanna hvort þú átt
eitthvað sem hann getur tekið. Ef hann er staðinn að
verki skammast hann sín ekki einu sinni. Nei, hann
grettir sig bara framan í þig! Um nóttina, þegar allir
sofa, kemur hann aftur og stelur því sem hann langar
í! En ef einhver segir við hann: „Þú tekur hluti án
þess að spyrja hvort þú megir það, það gengur alls
ekki!“ þá svarar Gluggagægir: „Heyrðu nú! Ég skil
gjafir eftir handa þér! Það kalla ég vöruskipti!“
Kertasníkir leysir frá skjóðunni - Anja og Markus Kislich
Gluggagægir – 21. desember
Kristján Bersi Ólafsson orti bragtil minningar um tré sem
veðurofsinn lagði að velli síðari
roknóttina í liðinni viku. Hann
skrifar: „Það er ekki af vangá sem
lokahendingin er höfð með annarri
stuðlasetningu en línan á undan
hefur. Það er stílbragð til að
undirstrika hve mikið ég sé eftir
gamla heggnum sem hefur verið
vinur minn frá barnæsku.“
Gamall heggur í garði mínum
gladdi mig oft á vorin;
með blikandi hvítum blómum sínum
hann bar mig og létti sporin.
Ég hélt að hann stæði styrkum fótum
og stæði af sér alla vinda,
en bálviðrið upp hann reif með rótum.
– Ég á síðan um sárt að binda!
Davíð Hjálmar Haraldsson
heyrði Sigrúnu Haraldsdóttur
flytja vísur í útvarpsþætti Arnþórs
Helgasonar og varð að orði:
Sigrún er hagyrt og yrkir mér ljúfari ljóð
og les þau með rödd sem er fegurri
minni og blíðari.
Í hljóðnemann talar svo hæversk og
kurteis og góð
en huggun mér verður að ég er þó
töluvert fríðari.
Sigrún Haraldsdóttir svaraði:
Við Davíð höfum dumbrautt blóð og
drekkur mjólk og lýsi.
Með pennum okkar párum ljóð
en pissum öðruvísi.
Jón Arnljótsson orti um Davíð
Hjálmar, sem sendi nýverið frá sér
vísnabókina Aðra Davíðsbók:
Þegar kemur þriðja bókin,
þennan eftir fagra mann,
ekki verður ævin flókin,
aðeins þarf að lesa hann.
VÍSNAHORNIÐ
Heggur og
bálviðri
pebl@mbl.is
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Gleðileg jól
Glæsilegar jólagjafir
M
b
l 9
26
36
2
Undirföt • náttföt • náttkjólar • sloppar
Gjafabréf
(í sama húsi og Bílaapótek og NC Næs Connection)
Hæðasmára 4 · Kópavogur · 555 7355
Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355
Ný ver
slun
Opið til kl. 21 alla daga til jóla
www.jonogoskar.is Laugavegur / Smáralind / Kringlan
Glæsilegt úrval
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 7
2
5
1
0
og skartgripa frá
steinaúra