Fréttablaðið - 14.04.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 14.04.2009, Síða 8
8 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR Þú vilt góða yfirsýn. Þess vegna er Vöxtur fyrir þig. Vöxtur er Vildarþjónusta Kaupþings ÍS LE N S K A S IA .I S K A U 4 55 13 0 4/ 09 Kynntu þér málið á www.kaupthing.is FRAMSÓKN framsokn.is RÉTT LÆTI FYRIR OKKUR ÖLL Leiðréttum skuldir heimilanna Endurreisum SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Fréttablaðsins, alls 58 prósent, vill banna nektardans með lögum. Fleiri konur en karlar vilja banna dansinn, og vinstrimenn vilja frekar bann en hægrimenn. Alls vildu 73,8 prósent kvenna banna nektardans, en 42,7 prósent karla. Lítill munur var á afstöðu fólks eftir búsetu, en heldur fleiri íbúar á landsbyggðinni voru hlynntir banni á nektardansi. Talsverður munur var á afstöðu fólks eftir því hvaða flokk það myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. Mikill meiri- hluti stuðningsfólks Samfylking- ar og Vinstri grænna, tæplega sjötíu prósent, vill banna nektar- dansinn. Um helmingi lægra hlutfall stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins, um 36 prósent, styður bann. Tæplega 56 prósent stuðn- ingsmanna Framsóknarflokks styðja bann við nektardansi. Hringt var í 800 manns þriðju- daginn 7. apríl og skiptust svar- endur jafnt eftir kyni og hlutfalls- lega eftir búsetu. Spurt var: Á að banna nektardans með lögum? Alls tóku 89,3 prósent afstöðu til spurningarinnar. - bj Mikill munur á afstöðu kynjanna til nektardans: Meirihlutinn vill banna nektardans NEKTARDANS Mikill meirihluti vill banna nektardans samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fleiri vinstrimenn og fleiri konur vilja banna hann. 1. Hvaða tónlistarmaður syngur um Bubba Morthens á nýju plötunni sinni? 2. Hvað heitir framleiðandi heimildarmyndarinnar Draumalandið? 3. Frá hvaða landi eru sjó- ræningjarnir sem hafa verið í fréttum síðustu daga? SVÖR Á SÍÐU 34 Karlar Konur Já Nei Á AÐ BANNA NEKTAR- DANS MEÐ LÖGUM? SAMKVÆMT KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 7. APRÍL 100 80 60 40 20 0% SRÍ LANKA, AP Norðmenn sjá ekki lengur um að miðla málum í deilu stjórnvalda og tamíla á Srí Lanka. Ólíklegt er þó að það breyti miklu, því friðarviðræðurnar, sem Norð- menn höfðu milligöngu um, hafa legið niðri um langa hríð. Stjórnin á Srí Lanka sagðist ekki lengur vilja þiggja aðstoð Noregs eftir að hópur tamíla gerði árás á sendiráð Srí Lanka í Ósló á sunnudag. Norska stjórnin hefði greinilega brugðist því hlut- verki sínu að verja sendiráðið. Bæði stjórnarherinn og tamíl- tígrar gerðu í gær og í dag hlé á átökum. Stjórnvöld hvöttu íbúa átakasvæðanna til að nota vopna- hléið til að forða sér á friðsælli slóðir. Fáir virtust þó fara að þessum ráðum. Herinn segir það hugsan- lega stafa af því, að uppreisnar- menn hafi bannað fólki að fara burt. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 100 þúsund almennir borg- arar séu innikróaðir ásamt upp- reisnarsveitum tamíla á tuttugu ferkílómetra svæði. Stjórnar- herinn segist láta þetta svæði í friði, en bæði uppreisnarmenn og mannréttindasamtök fullyrða að stjórnaherinn hafi gert árásir þar og tugir manna hafi látist. - gb Fáir íbúar á Srí Lanka fóru að ráðum stjórnar landsins um að notatveggja daga vopnahlé til að forða sér: Norðmenn ekki lengur milligöngumenn SENDIRÁÐIÐ Í ÓSLÓ Esala Ruwan Weerakon, sendiherra Srí Lanka í Noregi, skoðar skemmdirnar. NORDICPHOTOS/AFP VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.