Morgunblaðið - 11.01.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 11.01.2008, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉFAMARKAÐIR vestan- hafs tóku kipp upp á við þegar líða tók á daginn í kjölfar ummæla Ben Bern- anke, seðlabankastjóra Bandaríkj- anna, þess efnis að efnahagshorfur fyrir árið hefðu versnað og því gæti verið nauðsynlegt að lækka vexti frek- ar. Þegar upp var staðið höfðu helstu vísitölur vestanhafs hækkað, Dow Jones um 0,9% og Nasdaq um 0,6%. Í Evrópu var stemningin öllu daprari og varð lækkun á öllum helstu mörk- uðum álfunnar. FTSE-vísitalan lækk- aði um 0,8% og DAX um 0,9%. Nor- ræna vísitalan, OMXN40, lækkaði um 0,8%. Bernanke til bjargar ● HVORKI Eng- landsbanki né Seðlabanki Evr- ópu sáu ástæðu til þess að breyta stýrivöxtum sín- um í gær og eru stýrivextir í Bret- landi því 5,5% og á evrusvæðinu eru þeir 4%. Jean- Claude Trichet, bankastjóri ECB, sagði á blaða- mannafundi í gær að stjórn bankans hefði ákveðið að breyta ekki vöxtum en senda markaðnum engu að síður hörð skilaboð. Varað er við því að hleypa launaskriði af stað, fari svo verði vextir hækkaðir. Stýrivextir óbreyttir í Bretlandi og Evrópu Jean-Claude Trichet ● NOVATOR, fjárfestingarfélag Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að fresta tillögum sínum um skipulagsbreytingar á finnska síma- félaginu Elísu. Eftir sem áður sækist Novator eftir tveimur stjórnarsætum í félaginu. Boðað hefur verið til hlut- hafafundar að ósk Novators þann 21. janúar næstkomandi. Tillögur Nova- tors gengu m.a. út á að skipta Elísu í tvennt; í eignarhaldsfélag og rekstrar- félag. Andstaða hefur verið við það hjá öðrum hluthöfum. Novator frestar til- lögum um breytingar TRYGGINGAÁLAG á skuldabréf íslensku bankanna hækkaði umtals- vert í gær samkvæmt Reuters. Þar segir að áhyggjur fjárfesta af efna- hagsreikningum bankanna séu ástæðan, bankarnir séu mjög skuld- settir og áhyggjur af því að þeim stafi hætta af lánaþurrðinni á al- þjóðamarkaði hafi fengið byr undir báða vængi í kjölfar hremminga ís- lenskra fjárfestingarfélaga að und- anförnu og er Gnúpur nefndur sér- staklega í því samhengi. Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hækkaði töluvert í fyrradag og segir í Morgunkorni Glitnis að fréttir af Gnúpi spili þar einnig inn í. „Óvissan varðandi fjármálafyrir- tækin tengist stöðu ríkissjóðs sem að hefur það hlutverk að grípa inn í sem lánveitandi til þrautarvara til að verja stærstu fjármálafyrirtæk- in greiðslufalli,“ segir í Morgun- korni. Álagið á bréf ríkisins var 126,7 punktar við lokun markaða í fyrradag og er bent á í Vegvísi Landsbankans að þar með jafnist það á við það sem gerist hjá þjóðum á borð við Búlgaríu, S-Afríku og Rússland. Guðni N. Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar Kaup- þings, segir einnig að fréttirnar af Gnúpi hafi nokkur áhrif auk þess sem margir séu að kaupa trygg- ingar á bréf íslensku bankanna í að- draganda fyrirhugaðrar skulda- bréfaútgáfu Glitnis. Þá ríki mikil óvissa á mörkuðum og það hafi einnig áhrif á íslenska útgefendur. Álag á bréf Kaupþings var 375 punktar við lokun markaða í gær og hækkaði það um 45 punkta, álagið á Glitni var 280 punktar – 31 punkts hækkun – og álagið á Landsbank- ann var 235 punktar sem er hækk- un um 58 punkta. Álagið á bréf rík- isins lækkaði um 6,7 punkta í gær. Tryggingaálag á bréf banka og ríkis hækkar skuldatryggingaálagi íslensku bank- anna átt sinn þátt í að draga mesta móðinn úr fjárfestum í gær. Mest var sveiflan á bréfum Existu sem virðast vera mjög næm fyrir breytingum. Mest hækkun í gær varð á bréfum Spron, þau hækkuðu um 4,04% og næst mest varð hún á bréfum Ice- landair, sem hækkuðu um 2,67%. Mikil viðskipti voru í kauphöllinni í gær og nam heildarvelta tæpum 63 milljörðum króna. Hið sama var uppi á teningnum og undanfarna daga, þ.e. skuldabréfavelta var mjög mikil, um 48,2 milljarðar. Fyrsti græni dagur ársins í kauphöllinni  Tilkynning frá Existu eyddi óvissu  Spron hækkaði mest Morgunblaðið/Kristinn Exista Hlutabréf félagsins virðast vera mjög næm fyrir öllum breytingum á markaði. Í gær hækkuðu þau skarpt í upphafi en döluðu svo. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ÚRVALSVÍSITALA kauphallar OMX á Íslandi sneri við í gær, a.m.k. tímabundið, og hækkaði um 1,18% frá deginum áður. Þetta var fyrsti hækk- unardagur ársins en eins og fram hef- ur komið einkenndi töluverður drungi hlutabréfaviðskipti hérlendis. Leiða má líkur að því að tilkynning sú er barst frá Gnúpi í fyrradag hafi dregið úr óvissu á markaðnum, auk þess sem Exista sendi frá sér tilkynningu stuttu fyrir opnun markaðar í gær. Þar kom fram að Exista hafði um áramót „tryggt lausafé sem svarar til endurfjármögnunarþarfar félagsins til næstu 50 vikna, og til næstu 42 vikna ef öll skuldbinding félagsins í fyrirhuguðu forgangsréttarútboði Kaupþings banka (35 milljónir hluta) er meðtalin.“ Einhverjar efasemdir voru á markaði um að félaginu tækist að fjármagna skuldbindingu sína varðandi fjármögnun Kaupþings á kaupunum á hollenska bankanum NIBC en þeim hefur nú verið eytt. Í kjölfar tilkynningar Existu hækk- aði gengi félagsins skarpt, fór hæst í 16,2 krónur á hlut innandags, en lækkaði þegar líða tók á daginn og við lok viðskipta nam hækkunin 0,33%. Hið sama á við um úrvalsvísitöluna, hún hækkaði um ríflega 4% snemma dags en dalaði síðan. Ekki er auðvelt að benda á nákvæma ástæðu þess en eflaust hafa fregnir af hækkandi Í HNOTSKURN » Kauphöllinni í Osló barstí gær tilkynning frá Existu þess efnis að félagið væri búið að endurfjár- magna 3,7% hlutafjár í Storebrand, sem er rúmur þriðjungur eignar Existu í félaginu. » Lokagildi úrvalsvísitöl-unnar í gær var 5.533,32 stig og hefur hún því lækkað um 12,42% frá áramótum. Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is INNLENDIR hlutabréfasjóðir bankanna endurspegla nú þær lækkanir sem hafa átt sér stað á ís- lenskum hlutabréfum síðastliðið hálft ár. Gengislækkun tveggja vin- sælustu sjóða Landsbankans og Glitnis með íslenskum bréfum nem- ur um og yfir 60% síðasta hálfa ár- ið. Sambærileg lækkun sjóða Kaup- þings er heldur minni, eða tæp 35%. Dæmi eru um fólk sem fjárfesti í hlutabréfasjóði fyrir sjö milljónir króna í september sl. en sú eign hefur rýrnað um tvær milljónir. Áhætta sem fylgir sjóðum með innlendum hlutabréfum þykir vera í meira lagi, samkvæmt stigagjöf við- skiptabankanna þriggja. Áhættu- stig nefndra sjóða eru sex af sjö mögulegum hjá Kaupþingi og Landsbankanum, en fjögur og fimm af sjö hjá tveimur sjóðum Glitnis. Hlutabréf til lengri tíma „Markmið fjárfesta eru helstu viðmiðin þegar kemur að ráðgjöf við hlutabréfakaup,“ segir Tómas Möller, forstöðumaður verðbréfa- og lífeyrissviðs Landsbankans. „Hvort fjárfestingin á að vera til lengri eða skemmri tíma skiptir höfuðmáli. Ef menn ætla að kaupa hlutabréf verða þeir að geta beðið af sér nokkrar sveiflur á markaðn- um.“ Tómas bendir á að fjárfestingar í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum séu almennt hugsaðar til lengri tíma, fimm ára eða svo. Helena Jónsdóttir, forstöðumað- ur eignastýringar Glitnis, tekur í sama streng. „Markaðsaðstæður hafa alltaf áhrif á ráðgjöf, ásamt öðrum þátt- um. Þegar lækkanir á hlutabréfa- mörkuðum byrjuðu í haust bjóst enginn við þeirri stöðu sem við sjáum í dag. Við áttum von á erf- iðum vikum eða mánuðum. Fjár- festum var á þeim tíma auðvitað gerð grein fyrir þáverandi stöðu og því að enginn vissi nákvæmlega hvert stefndi.“ Hlutabréfasjóðir lækkað um 60% „Þegar lækkanir byrjuðu í haust bjóst enginn við þeirri stöðu sem við sjáum í dag“                 ! "#   $          %&' &'  ( (  ( !( ! ( ! "( GNÚPUR fjárfestingarfélag á, eftir breytingar miðvikudagsins, enn eft- ir ríflega 334 milljónir hluta í FL Group – 2,46% hlut í félaginu. Einn- ig má gera ráð fyrir að félagið eigi enn einhvern hlut í Kaupþingi þar sem engin viðskipti með bréf bank- ans hafa numið nærri því jafnmiklu og eign Gnúps. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær var 8,65% hlutur Gnúps í FL Group seldur í tveimur skömmtum, þann stærri keypti Fons, en ekki hefur komið fram hver keypti minni skammtinn. Fyrir opnun markaðar í gær voru stór viðskipti með hlutabréf í FL Group en ekki hefur komið fram hverjir áttu þar hlut að máli. Þar var um að ræða um það bil jafnstóran hlut í fé- laginu og Gnúpur seldi í minni skammtinum en gera má ráð fyrir að einhver lánardrottna félagsins hafi keypt þann hlut og síðan selt áfram. Aðspurður vildi Þórður Már Jó- hannesson, forstjóri Gnúps, ekkert tjá sig um það í gær hvort fyrir- tækið hygðist halda eftirstandandi eign sinni í Kaupþingi og FL Group. Í gær barst kauphöllinni leiðrétting á flöggun Fons vegna eignarhalds félagsins í FL Group. Þar kemur fram að Fons eigi 12,21% hlut í FL Group en ekki 10,76% eins og fram kom í flöggun í fyrradag. Þá barst leiðrétting frá Gnúpi þar sem m.a. kemur fram að Birkir Kristinsson sé einn hluthafa félags- ins. Gnúpur á enn hluti í FL Group og Kaupþingi             !" # $ % & & $ )* + * , -++  * , ./, 0 * ,     +, 1 .&+ $!  234   * ,    $- +,    +! , 5 4, 6789   & "-  '0' , :4;&, < , '  ()   =#, ) 43, ) 3) >; ) 364 *4 &6?0 .+- + 0$ * , 0@ *;- + 234 3 * , 9A,4 , : ;$$ $& ,    , # *  (+ , B4  ;) & &B* 1-  , 1& , - . / &                                                                                         $  : **+ $    # DEE #F= #FF FE = #D EG# G# % GEG FD EF  D F=G G%= % F% E= F ## % # GF DD =F  =#E F F% #  %# E EE % FGE #% % GD # #D %D =F# F= F FG %E = = %= = # GF # G# E# F DF D %G=  # DE %G F E GE " " " % EG  GDE G " EHG% #HE #H% HG# %H# =%HG %HF# DG#H =%H H# DHEE =H #HDG EH HEE HF EFH#  D% GF%H HF #DH GHG %=H% " " = G H " EH# #%H= #H= H# %H% =%HD# %DH D#H =%H# %H FH# =HD #HDE EHD %H HE %H  D#% GE#H HF% %H GHG " " " = F H H 0   % GG  FF   % F% GG E #F  %% D  % F =% E  % E " " " D  " I$4  $ + 4    %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F   %F E  %F  % %D %% F %D   %F   %F %  %D 85J0 85J1   ( ( 85J2 3-J  ( ( I*>K* 4 9 L       ( ( 0: . I)J     ( ( 85J4# 85J*G    ( ( ● ÁLRISINN Alcoa, sem starfrækir álverið í Reyðarfirði, hagnaðist um 2,6 milljarða dollara á síðasta ári, jafnvirði um 164 milljarða króna. Þetta er aukning um 14% milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri í sögu félagsins. Þá námu tekjurnar 30,7 milljörðum dollara árið 2007, eða nærri tvö þúsund milljörðum króna. Ef aðeins er tekinn síðasti ársfjórðungur ársins þá jókst hagn- aður Alcoa á því tímabili um 76% miðað við sama fjórðung árið 2006. Tekjur drógust þó saman á þeim fjórðungi miðað við árið áður. Methagnaður og af- koma 2007 hjá Alcoa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.