Morgunblaðið - 11.01.2008, Side 22

Morgunblaðið - 11.01.2008, Side 22
Schumann, Bartók og Brahms Þeir sem vilja nýta helgina til fulls geta t.a.m. sótt fjórðu tónleika Kammermúsík- klúbbsins sem verða haldnir í Bústaðakirkju á sunnudag kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir Schumann, Bartók og Brahms, sem ættu að vera dágott veganesti út í nýja vinnuviku. Franskar ræmur Frönsk kvikmyndahátíð hefst í Háskólabíói um helgina og stendur til 24. janúar. Þar getur að líta brot af því besta sem verið hefur í frönskum kvikmyndahúsum undanfarin miss- eri. Opnunarmyndin á hátíðinni er teikni- myndin Persepolis. Létt lipurtá Dari Dari Dance Company, sem skipað er dönsurunum Guðrúnu Óskarsdóttur, Ingu Maren Rúnarsdóttur, Kötlu Þórarinsdóttur og tónlistarkonunni Lydíu Grétarsdóttur, sýnir dansverkið Hoppala í Norræna hússinu á laug- ardag og sunnudag kl. 20.00. Rýmið sem dans- verkið gerist í er almenningsklósett þar sem atvikin lifna við en verkið byggir á atvikum úr daglegu lífi fólks hvarvetna í samfélaginu. Veggjalist í miðbænum Sýning Davíðs Arnar Halldórssonar opnar í Galleríi Ágúst á laugardag. Þar sýnir hann lit- ríkar myndir sem eru málaðar á vegg og við- arplötur og unnar með blandaðri tækni. Sýn- ingin stendur til 23. febrúar. Bók í bóli Þeir sem ekki hafa komist í gegnum jóla- bókaflóðið á náttborðinu hafa nú gott tækifæri til að kúra í mjúkum sófa með bók í hönd og framlengja notalegheitin frá því um jólin um nokkra daga. Heitt te og súkkulaðimoli spilla ekki fyrir. Slenið hrist af Þeir sem eru á djammbuxunum geta sótt op- inberan Ed Banger-gleðskap á Organ á laug- ardagskvöld. Aðalplötusnúður kvöldsins verð- ur Busy P, umboðsmaður Justice, Daft Punk og Cassius. Búast má við stuði og stemningu sem betri dansfífl bæjarins vilja varla missa af. Skundað á skíði Þeir höfuðborgarbúar sem klæjar orðið mik- ið í skíðafótinn ættu að fylgjast vel með stöðu mála í Bláfjöllunum því svo gæti farið að þar yrði opnað fyrir almenning um helgina. Allt veltur þó á veðurfari og hvernig starfsmönnum í fjöllunum gengur að ryðja snjó í brautir. Upplýsingar um opnun og færð má nálgast á www.skidasvaedi.is. mælt með ferðalög 22 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ sey-skútum á London Boat- sýningunni í janúar 2006. Til að gera langa sögu stutta fjárfesti hann í þremur 45 feta skútum, sem skírðar voru Íslandssól, Sóllilja og Ég vissi hvorki hvað sneriaustur né vestur, norðureða niður, þegar égákveð að fara að kynna mér siglingafræðina. Ég sat við símsvörun í fyrirtæki hér í borg. Mér fannst lífið eitthvað svo dap- urlegt og leiðinlegt svo ég fékk þá skyndihugdettu haustið 2005 að skella mér í pungaprófið í Fjöl- tækniskóla Íslands án þess að ég hefði hugmynd um hvernig sú skrýtna ákvörðun myndi gagnast mér í framtíðinni enda var mark- miðið með náminu það helst að drepa tímann á kvöldin. Ég hafði aldrei siglt eða spáð í sjávarföllin en óhætt er að segja að líf mitt hafi tekið algjöra u-beygju eftir námskeiðið,“ segir Kristín Guðmundsdóttir, sem nú siglir eins og ekkert sé við suðurstrendur Tyrklands og tekur á móti ferða- mönnum, sem vilja reyna fyrir sér í skútusiglingum, bæði byrjendum og lengra komnum í faginu. Kolféll fyrir skútubransanum Kristín starfar fyrir íslenska skútufyrirtækið Seaways-sailing, sem nú er farið að vinna sér sess á Tyrklandsmarkaði ekki síður en á Íslandsmarkaði þaðan sem ferða- mönnum fjölgar stöðugt enda þykir sunnanvert Tyrkland einkar áhuga- vert siglingasvæði fyrir skútu- áhugamenn. Íslenska skútufyrirtækið er í eigu hjónanna Önundar Jóhannssonar og Sigurveigar Guðmundsdóttur, sem er systir Kristínar, en þar sem Sigurveig starfar sem flugfreyja hjá Lufthansa ákvað Kristín að sigla suður í Miðjarðarhaf með punga- prófið upp á vasann og standa skútuvaktina með Önundi mági sín- um sem hugðist fara í rólega gírinn kominn á starfslokasamning eftir farsæla flugstjóratíð þegar hann kolféll fyrir Jeanneau Sun Oddys- Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Skútulíf Lífið um borð í skútunum, sem taka allt að tíu manns í einu, er þægilegt. Auðvelt er að sigla á svæðinu og leigjast skúturnar frá apríl til nóvember. Kristín Guðmunds- dóttir, sem er 45 ára gömul og móðir tveggja uppkominna dætra, ákvað að venda sínu kvæði í kross með því að fylgja bullandi sí- gaunaeðlinu, sem blundar í henni. Hún sagði Jóhönnu Ingv- arsdóttur af skútulífi skipstjórans við suður- strönd Tyrklands undir tyrkneskum tónum. Skipstjórinn Kapteinn Kristín Guðmundsdóttir á siglingu um Fethiye- flóann í Miðjarðarhafinu við suðurströnd Tyrklands. Mæðgur Kristín er hér ásamt yngri dóttur sinni Sylvíu Mekkín, sem heimsækir mömmu stundum í sólinni í Tyrklandi. Tobba trunta, en fyrir átti Önni, eins og hann er kallaður af vinum og vandamönnum, hlut ásamt öðrum Íslendingum í Sölku Völku, 49 feta skútu, sem er einnig í útleigu ef eig- endurnir eru ekki að nota hana. Kristín hefur fengið eldraunina í siglingabransanum hjá mági sínum Önundi sem hófst þegar glænýjum skútunum var hleypt af stokkunum Skútusiglingar líka dömuferðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.