Morgunblaðið - 11.01.2008, Síða 42

Morgunblaðið - 11.01.2008, Síða 42
vinkonur hennar eru í eilífri útlitsuppreisn og ganga flestar eins langt og þær geta í að sýna lokk af hári … 49 » reykjavíkreykjavík Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is EIN stærsta sumarmynd ársins mun væntanlega verða Leynd- ardómar Snæfellsjökuls (Journey to the Center of the Earth 3D), en í henni leikur íslenska leikkonan Anita Briem annað aðalhlutverkið á móti Brendan Fraser, en Anitu sáu íslenskir bíógestir síðast í austfirska hreindýraþrillernum Kaldri slóð. Myndin er byggð á samnefndri sögu Jules Verne, þar sem Snæfellsjökull geymir innganginn að miðju jarðar, og nú hafa fyrstu myndirnar birst á vefsíðunni comingsoon.net. Brendan Fraser leikur vísinda- manninn Trevor sem heldur til Ís- lands í leit að týndum bróður sínum og með honum í för er frændi þeirra bræðra, hinn ungi Sean (Josh Hutc- herson). Anita leikur svo íslenska leiðsögumanninn Hönnu sem leiðir þá um hálendi landsins, en óvíst er hvort hún er jafn kunnug jarð- armiðjunni sem þau enda í, en þar búa risaeðlur og fleiri fornald- arskrímsli og hafa ekki hugmynd um þær kenningar jarðneskra vísinda- manna um að miðja jarðar sé ein- ungis grjót og glóandi kvika. Jarðarmiðja í þrívídd Það er Erik Brevig sem leikstýrir myndinni en þetta er frumraun hans í leikstjórastólnum. Hann hefur hins vegar unnið tæknibrellur fyrir á þriðja tug kvikmynda eftir leikstjóra á borð við Steven Spielberg, James Cameron, Paul Verhoeven, Brian De Palma, Roland Emmerich, Michael Bay og Barry Sonnenfeld. Það verður væntanlega ekki ónýtt að hafa brellumeistara í leik- stjórastólnum fyrst myndin verður tekin í þrívídd, en Bjólfskviða hin nýjasta virðist hafa komið þeirri tækni í tísku aftur – og svo er bara spurning hvenær fólk byrjar að ganga með þrívíddargleraugun nið- ur Laugaveginn til þess að veröldin utan kvikmyndasalarins verði nú örugglega í þrívídd líka. Úr iðrum jarðar Vasaljós Hanna (Anita Briem) hefur vonandi pakkað nógu mörgum raf- hlöðum fyrir öll þessi vasaljós, enda lítið um sólarljós í iðrum jarðar. Fyrstu myndirnar úr Leyndardómum Snæfellsjökuls  Frá því var sagt á dögunum að Björk Guð- mundsdóttir kæmi fram í hinni frægu tónleika- höll Budokan í Japan. Vonandi lætur Björk verða af því að hljóðrita tónleikana og gefa út – þó ekki væri nema fyrir það að nafn plötunnar yrði hag- anlega stuðlað fyrir vikið. Björk mun hins vegar ekki spila á ómerk- ari stað þegar hún kemur fram í Sydney, því þá verður hljómleika- staðurinn forgarður óperuhússins í Sydney, sem telst ein frægasta bygging heims og er m.a. á heims- minjalista UNESCO. Húsið var hannað af danska arkitektinum Jørn Utzon í lok fimmta áratugar síðustu aldar en sagan segir að Ut- zon hafi sjálfur aldrei stigið fæti inn í óperuhúsið vegna ósættis sem skapaðist milli hans og stjórnenda óperunnar um endanlegt útlit húss- ins. Tónleikar Bjarkar við óp- eruhúsið fara fram miðvikudaginn 23. janúar. Leikur í forgarði óp- eruhússins í Sydney  Skipuleggjendur væntanlegra tónleika hér á landi, þar sem Tommy Lee lemur húðir undir tón- list plötusnúðs nokkurs – sem færri virðast hafa áhuga á – láku óska- lista trommarans í fjölmiðla í fyrra- dag. Af listanum að dæma virðist fljótandi fæði vera í miklum metum hjá trommaranum, en eitt atriði er þar að finna sem gæti komið heim- sókn hans í uppnám. Herra Lee fer nefnilega fram á að honum verði útveguð forsetasvíta á fimm stjörnu hóteli. Hvar skipuleggjendurnir hyggj- ast finna fimm stjörnu hótel í Reykjavík verður fróðlegt að sjá. Babb í bát Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA leggst alveg ótrúlega vel í mig og ég er alveg ógeðslega spennt,“ segir Fríða Sóley Hjartardóttir, 17 ára fyrirsæta sem fer til New York í dag þar sem hún mun taka þátt í keppni um titilinn Super Model of the World. Fríða sigr- aði í Ford-keppninni sem var haldin hér á landi í september og verður því fulltrúi Íslands í Banda- ríkjunum. Keppnin sjálf verður haldin næsta miðvikudag, 16. janúar, og því fær Fríða nokkra daga til að undirbúa sig. „Við munum fara á gönguæfingar, í mynda- töku og fleira í þeim dúr til að búa okkur undir keppnina,“ segir hún. Alls munu 50 stúlkur frá öllum heimshornum taka þátt í keppninni, en sigurvegarinn fær 250.000 dollara samning við Ford Models, sem mun vera ein virtasta umboðs- skrifstofa heims í þessum geira. Aðspurð segir Fríða að svona keppni geti vissulega verið töluvert álag fyrir svo ungar stúlkur, en hún treystir sér þó fyllilega í hana. „Ég ræð alveg við þetta, ég get verið í skóla og er auk þess að æfa ballett, þannig að það er ekki svo mikið mál,“ segir Fríða, sem er á fyrsta ári í Kvennaskólanum í Reykjavík. Ákveðnin skiptir máli En hvaða möguleika á hún í keppninni? Mun hún jafnvel bera sigur úr býtum? „Já, já, segjum það bara,“ segir hún og hlær. Það var hollenska fyrirsætan Sanne Nijhof sem sigraði á síðasta ári, en síðan þá hefur hún starfað sem fyrirsæta bæði í París og Mílanó. Að minnsta kosti tvær íslenskar fyrirsætur hafa náð nokkuð langt eftir þátttöku í keppninni, þær Andrea Brabin og Elísabet Davíðsdóttir. Fríða segir að undirbúningur hafi staðið yfir alveg frá því hún sigraði í keppninni hér heima. „Ég er búin að vera á gönguæfingum og í myndatökum, en hef líka farið í vax og hand- og fótsnyrtingu og þannig,“ segir hún, en bætir því þó við að það sé nægur tími fyrir skólann og ball- ettinn líka. Hvað framtíðina varðar segist Fríða vel geta hugsað sér að leggja fyrirsætustörfin fyrir sig, þrátt fyrir að ýmsar skrítnar sögur fari af þess- um bransa. „Þetta hljómar allavega spennandi, og ég held að það sem skipti mestu máli sé að vera nógu ákveðin.“ Íslensk fegurð í New York Fríða Sóley Hjartardóttir er fulltrúi Íslands í keppninni Super Model of the World  „Það sem skiptir mestu máli er að vera nógu ákveðin“ Morgunblaðið/Eggert Fallegir ferðafélagar Fríða ásamt Bryndísi Jónsdóttur frá Reykjavík Casting, en hún verður Fríðu til halds og trausts í stórborginni. „Þetta leggst alveg ótrúlega vel í mig,“ segir Fríða um keppnina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.