Morgunblaðið - 11.01.2008, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 45
Föstudagur
<til fjár>
Barinn
Ghozt (Flex Music) og AJ
(Bigroom Effect)
Prikið
DJ Danni Deluxe
Players
Vítamín
Café Oliver
DJ Óli Dóri / Gullfoss & Geysir
Hressó
Public / DJ Maggi
Vegamót
DJ Símon
Sólon
DJ Brynjar Már
Gaukur á Stöng
DJ Lex Intro
Laugardagur
<til lukku>
Vegamót
DJ Símon / DJ JBK
Organ
Ed Banger gleðskapur
Café Oliver
DJ Haukur / PS Daði
Prikið
DJ Cold Hands
Players
Geirmundur
Valtýsson
Hressó
Tepokinn / DJ Maggi
Sólon
DJ Brynjar Már
Gaukur á Stöng
DJ Lex Intro
Morgunblaðið/Golli
Ghozt Spilar ásamt AJ á Barnum í kvöld.
ÞETTA HELST UM HELGINA»
SAMÞYKKT var á fundi borg-
arráðs Reykjavíkur í gær að auka
fjárveitingar til Höfuðborg-
arstofu um þrjár milljónir á þessu
ári, til að kynna kvikmyndaborg-
ina Reykjavík í samstarfi við inn-
lenda og erlenda aðila. Þá stend-
ur til að efla til muna Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðina í Reykjavík
og kanna möguleika á að reisa
kvikmyndaver eða kvikmynda-
þorp í borginni.
Í tillögu frá Degi B. Eggerts-
syni borgarstjóra, sem var sam-
þykkt á fundinum, segir að Höf-
uðborgarstofa verði miðstöð í
samskiptum Reykjavíkurborgar
og kvikmyndagerðarmanna þar
sem þeir geta fengið úrlausn er-
inda sinna á einum stað. Hlutverk
Höfuðborgarstofu verði m.a. að
tengja aðrar stofnanir og svið
sem hlut eiga að leyfisveitingum
og annarri þjónustu við kvik-
myndagerð.
Samkvæmt tillögunni verður
skipulags- og byggingarsviði falið
að kanna raunhæfni og hugs-
anlegar staðsetningar fjölnota
kvikmyndavers eða kvikmynda-
þorps í Reykjavík á grundvelli
fyrirliggjandi þarfagreiningar og
áhuga af hálfu fjölmargra lyk-
ilaðila í reykvískri kvikmynda-
gerð.
Í sérstakri bókun lýsir borg-
arráð yfir eindregnum vilja til
þess að skapa sem ákjósanlegust
skilyrði í borginni fyrir innlenda
og alþjóðlega kvikmyndagerð.
Skemmst er að minnast fundar
sem borgarstjóri átti með þeim
Baltasar Kormáki, Quentin Tar-
antino og Eli Roth um möguleika
Reykjavíkur sem kvikmyndaborg-
ar og lítur allt út fyrir að nú
muni draumur leikstjóranna um
bíóborgina Reykjavík rætast.
Kvik-
mynda-
borgin
Reykjavík
Borgarstjóri Dagur B. Eggertsson
og borgarstjórnarmeirihlutinn vill
efla kvikmyndaiðnaðinn í borginni.
101 Reykjavík Bíóvæðing Reykja-
víkur heldur áfram, hvenær kemur
röðin að Grafarvoginum?