Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Sjáðu bara, hr. Haarde, það er búið að sprengja allar stóru fínu blöðrurnar þeirra.
VEÐUR
Það er augljóst að það getur ekkialltaf verið auðvelt að vera for-
maður vinstri grænna, eins og ber-
lega hefur komið í ljós í málflutn-
ingi Steingríms J. Sigfússonar,
þegar hann hefur tjáð sig um ný-
gerða kjarasamninga.
Steingrími J.er það að
sjálfsögðu mjög
eðlislægt að vera
í grundvall-
aratriðum á móti
öllu sem ríkis-
stjórnin á ein-
hverja aðild að,
en svo neyðist
hann til þess að
fagna því, á afar
máttlausan hátt, að með nýgerðum
kjarasamningum hafi verið stigið
skref til þess að bæta í raun kjör
hinna lægst launuðu.
Í aðra röndina segir SteingrímurJ. að samningarnir séu góðra
gjalda verðir, svo langt sem þeir
nái, en allt of skammt sé gengið.
Þetta var inntak málflutnings hans
á Alþingi í gær.
Við sama tón kvað í málflutningiSteingríms J. í síðdegisútvarpi
Rásar 2 í fyrradag, þar sem hann
hafði flest á hornum sér, hvað varð-
ar þátt ríkisstjórnarinnar í nýgerð-
um kjarasamningum.
Þáttastjórnandi spurði SteingrímJ. hvað hann hefði gert, ef
hann hefði verið í þeirri ríkisstjórn
sem nú ákvað aðgerðirnar, sem
m.a. urðu til þess að samningar
náðust.
Hverju svaraði Steingrímur?Nákvæmlega engu og komst
upp með það!
Gagnrýni er þörf og allra góðragjalda verð, en þarf maður
ekki líka að hafa lausnir á taktein-
um?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Vandræðagangur Steingríms J.
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"! #!
#
$$
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
#
#
# #
#
#
#
# #
#
##
*$BC !!!
!"
#
$
% "&&'
#(
)
*
) #
(
"!!
+
!
#
*!
$$B *!
%"& ' ! !& ! ()
<2
<! <2
<! <2
% ' $!* +,!-$.
C8-D
/
,)
* " ( '
*#
<7
%
$
%
#
-.
#
/
$
!
#
<
0
%
$ )
!#
/
$
1
/0$$!"!11 $ !("!2 (!* +
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Hjörtur J. Guðmundsson | 19. febrúar
Hvað með að
taka þá bara upp
brezka pundið?
Samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun fyrir Við-
skiptaráð Íslands vill
meirihluti þeirra
fyrirtækja sem aðild
eiga að því, að evran
verði tekin upp hér á
landi í stað íslenzku krónunnar, en þó
án aðildar að Evrópusambandinu.
Samkvæmt sömu könnun vill nefni-
lega …
Meira: sveiflan.blog.is
Laufey Ólafsdóttir | 18. feb.
Við bíðum enn …
Eitthvað fer lítið fyrir
hreyfingum í húsnæðis-
málum. Biðlistar halda
áfram að lengjast og
borgin er ekki með
neina stefnumótun
hvað varðar þessi mál
nema þá að halda áfram í sama
farinu og verið hefur, þ.e. að kaupa
100 íbúðir á þessu ári þótt um 2.000
manns séu á biðlista eftir húsnæði.
Sjálf held ég að lausnin felist í að
styrkja þá sem hafa leigt lengi hjá Fé-
lagsbústöðum og eru komnir yfir.
...Meira: lauola.blog.is
Magnús Þór Hafsteinsson | 19. febr.
Löggur í kjarabaráttu
Fáar stéttir vinna jafn
erfið og krefjandi störf
og lögreglufólk.
En það að vera lögga
er illa launað starf.
Ekki bara hér á Ís-
landi – augljóslega líka í
nágrannalöndunum.
Nú rakst ég á myndbandsauglýs-
ingu sem Samtök norskra lögreglu-
manna hafa látið gera. Hún blasir nú
við á stórum netfréttamiðlum í Noregi
svo sem Verdens Gang. Sennilega er
hún einnig sýnd í sjónvarpi.
Meira: magnusthor.blog.is
Ómar Ragnarsson | 19. feb.
Dómarinn er hluti
af leikvanginum
Dómarinn er hluti af
leikvanginum í knattleik
og við það situr oftast.
Mistök hafa komið fyrir
áður í spurningakeppni
og sjálfur minnist ég
mistaka Baldurs Her-
mannssonar og minna
þegar í keppni Þingeyinga við Eyfirð-
inga var spurt: „Á hvað horfir Hamlet
Danaprins þegar hann segir: Að vera
eða vera ekki?“ Svarið: „Hauskúpu“
var dæmt sem rétt svar en hið rétta er
að Hamlet horfir á hauskúpu á allt
öðrum stað í leikritinu og alls ekki
þarna.
Þetta svar réð úrslitum og raunar
komumst við Baldur að þeirri nið-
urstöðu að hægt væri bæði að dæma
svarið rétt og rangt vegna þess að hér
væri um að ræða það sem kalla
mætti „viðurkenndan misskilning“.
Annað dæmi um viðurkenndan mis-
skilning er spurningin um það hver sé
frægasta setningin úr myndinni Casa-
blanca. Ef svarað er: „Play it again,
Sam,“ er það viðurkenndur misskiln-
ingur því að hið rétta er að þessi setn-
ing er aldrei sögð í myndinni þótt lang-
flestir haldi það.
Sjálfur á ég við viðurkenndan mis-
skilning að glíma því að mjög margir,
jafnvel gamlir bekkjarbræður mínir,
eru harðir á því að fyrsti bíllinn minn,
sem ég eignaðist meðan ég var í
skóla, hafi verið þriggja hjóla. Hið
rétta er að hann var með fjögur hjól og
þau öll úti í hornunum.
Misskilningurinn byggist á því að í
einum af skemmtiþáttum Sjónvarps-
ins sat ég í þriggja hjóla Messer-
schmitt sem ýtt var inn í stúdíó og
það var í eina skiptið á ævinni sem ég
sat í slíkum bíl. En þetta sýnir hve
Sjónvarpið getur verið sterkur miðill,
þetta eina skipti varð eins og fjöðrin
sem varð að mörgum hænum. Gildir
einu þótt ég eigi núna nákvæmlega
eins bíl og minn fyrsta bíl til að sanna
að hann hafi verið með fjögur hjól.
Þriggja hjóla bíllinn er viðurkenndur
misskilningur.
Spurningar sem byggjast á við-
urkenndum misskilningi ber auðvitað
að forðast en mistök geta alltaf orðið
og munu halda áfram að verða.
Þess má geta að úrslitin sem réð-
ust á hauskúpunni sem Hamlet hélt á
urðu til þess að keppnin varð mun
skemmtilegri en ella.
Meira: omarragnarsson.blog.is
BLOG.IS
OPINN fundur um framlag kvenna
til friðarferlisins í Mið-Austurlöndum
með fulltrúum friðarráðs palestínskra
og ísraelskra kvenna verður haldinn á
Grandhóteli Reykjavík í dag, mið-
vikudaginn 20. febrúar kl. 12.15.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
fundurinn er haldinn í tilefni heim-
sóknar tveggja áhrifakvenna úr frið-
arráðinu, Anat Saragusti, sjónvarps-
fréttakonu frá Ísrael, og Maha
Abu-Dayyeh Shamas, baráttukonu
fyrir auknum réttindum kvenna í Pal-
estínu. Þær munu halda erindi um
ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs,
friðarferlið og aðkomu ráðsins að því.
Auk þess eru erlendar áhrifakonur
heiðursfélagar, þeirra á meðal Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra. Ráðið, sem nefnist á ensku Int-
ernational Women’s Commission for
a Just and Sustainable Palestinian-
Israeli Peace, nýtur stuðnings Þróun-
arsjóðs Sameinuðu þjóðanna fyrir
konur, UNIFEM.
Fundarstjóri verður Ólafur Steph-
ensen ritstjóri, en fundurinn, sem
fram fer á ensku, er öllum opinn.
Ræða framlag kvenna til
friðar í Mið-Austurlöndum
FRÉTTIR
Traustasta fjarskipta-
fyrirtækið