Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 12

Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Vorum að fá í einkasölu fallegt enda- raðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr á þessum vinsæla stað. Stofur með hurð út á stóra vesturverönd, eldhús, búr/geymsla, gestasnyrting, baðherb. sjónvarpshol og 3 herbergi. Vestursvalir, glæsilegt útsýni. Botn- langagata. Hiti í stétt og bílaplani. Ásett verð 48,8 millj. KLETTÁS – RAÐHÚS – GARÐABÆR Vorum að fá í sölu fallega 4ra herb. íbúð í þríbýli ásamt um 40 fm risi með ýmsum möguleikum. Stofa, borðst., 2 herb., eldhús, endurnýjað baðherb. þvottahús. Nýl. járn á þaki, endurn. raflagnir og -tafla. Einnig hafa lagnir út í götu svo og dren verið endurnýjað. Sérhiti og -rafmagn. Mjög góð staðs. Laus strax. Ásett verð 24,5 millj. HOFTEIGUR – HÆÐ – LAUS Vorum að fá í sölu fallega og rúmgóða 3ja herb. íb. ofarlega í lyftuhúsi með stórglæsilegu útsýni í þrjár áttir og 15 ferm. yfirbyggðar svalir. L.f. þvottavél í íbúð, þurrkherbergi á hæðinni. Sér- bílastæði. Ásett verð 22,2 millj. ORRAHÓLAR – 3JA – ÚTSÝNI Vorum að fá í einkasölu fallega 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn- gangi, á þessum vinsæla stað. For- stofa, eldhús, gott svefnherbergi, bað- herbergi og stofa með suðvesturver- önd. Parket og flísar á gólfi. Glæsilegt útsýni. Stutt á golfvöllinn. Ásett verð 17,8 millj. KLUKKUBERG - 2JA - HAFNARF. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is AFLAVERÐMÆTI íslenzkra skipa nam 75,3 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2007 saman- borið við 70,5 milljarða á sama tíma- bili 2006. Aukningin nemur tæpum 5 milljörðum króna eða 6,7% milli ára. Aflaverðmæti í nóvember var 6 millj- arðar sem er svipað og í nóvember 2006. Þetta kemur fram í útreikningum hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botn- fisks var í lok nóvember orðið 56,7 milljarðar miðað við 52,9 milljarða á sama tíma árið 2006 og hefur því auk- ist um 7% á milli ára. Verðmæti þorskafla var 27,5 milljarðar og jókst um 10,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,5 milljörðum, sem er 27,7% aukning. Aflaverðmæti karfa dróst saman um rúm 10% á milli ára, var 5,6 milljarðar. Ufsaafli dróst sam- an að verðmæti um 8,5%, var 4 millj- arðar króna fyrstu ellefu mánuði árs- ins 2007. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17%, nam 4 milljörðum kr. Aukning í uppsjávarfiski Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 14,9% og nam 13,7 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra. Verðmæti síldarafla var 4,9 milljarðar og dróst saman um 14,6% á milli ára. Aflaverð- mæti kolmunna var 3 milljarðar sam- anborið við 3,6 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2006. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innan- lands var 31,1 milljarðar króna, sem er auking um 4,5 milljarða eða 17,1% á milli ára. Verðmæti afla sem keypt- ur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 8,5%, var 12 milljarðar. Afla- verðmæti sjófrystingar var 22,2 millj- arðar og dróst saman um 5,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8 milljörðum sem er 7,1% aukning. Mest verðmæti á Suðurnesjum Þegar litið er á aflaverðmæti eftir landsvæðum, kemur í ljós að þau voru mest á Suðurnesjum. Á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs var verðmæti landaðs afla þar 14,1 milljarður króna og hafði aukizt um 16,6%. Höfuðborg- arsvæðið kom næst með 13,3 millj- arða króna, en þar varð samdráttur upp á 7,7. Næstmest verðmæti bárust á land á Norðurlandi eystra, 10,7 milljarðar og jukust þau um 20,6%. Austurland fylgir fast á eftir með 10 milljarða króna og aukningu upp á 10,7%. Á Suðurlandi var aflaverð- mætið 7 milljarðar króna og stóð nán- ast í stað milli ára. Tæplega 10% sam- dráttur varð á Norðurlandi vestra, en þar var aflaverðmætið 4,7 milljarðar. Vesturland kemur næst með 3,8 millj- arða króna, en þar varð mest aukning milli ára, eða 39%. Loks koma Vest- firðir með 3,7 milljarða og 4,5% sam- drátt. Skýringar á breytingum milli ára eru fyrst og fremst vegna almennrar hækkunar fiskverðs, þar sem fiskafli hefur í flestum tilfellum dregizt sam- an. Mismunandi breytingar milli staða má svo rekja til tilfærslu á lönd- unum. Verðmæti fiskaflans jukust um tæplega 7% Aflaverðmæti ýsu nam 13,5 millj- örðum á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs, sem er 27,7% aukning        ! " # $% ! "& ' # ( )! " ' ( * $!  ! +   ,    - $.  /  # "" 0    1'& 2'& '1& &2 &  1'&2 21&'  1& 1& &   3%! " ' ( 2&1 12'& &' & &    ''&( 1 1& 2''& &2 &                       Í HNOTSKURN »Aflaverðmæti botnfisks var ílok nóvember orðið 56,7 milljarðar miðað við 52,9 millj- arða á sama tíma árið 2006 og hefur því aukist um 7% á milli ára. »Verðmæti síldarafla var 4,9milljarðar og dróst saman um 14,6% á milli ára. Aflaverð- mæti kolmunna var 3 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2006. »Mest aflaverðmæti voru áSuðurnesjum, minnst á Vest- fjörðum en mest aukning milli ára var á Vesturlandi, 39%. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „ÞETTA eru náttúrlega bara enn óútfærðar hugmyndir svo að ég get ekki tekið efnislega afstöðu til þeirra. Ég vil hins vegar taka öllum hugmyndum opnum huga sem lúta að fiskveiðistjórnun, ekki sízt þegar þær eru settar fram til þess að skapa meiri sátt um umgjörð fisk- veiðistjórnunarkerfisins. Þess vegna vil ég ekki slá þessar hugmyndir út af borðinu, en bendi á þá praktísku annmarka, sem koma strax upp í hugann,“ segir Einar K. Guðfinns- son sjávarútvegsráðherra. Þetta segir hann um hugmyndir Samfylkingarinnar að setja byggða- kvóta á uppboð í stað þess að deila honum út eins og nú er gert. Höfum verið að skerpa reglur um úthlutun „En það er auðvitað mjög margt sem þarf að íhuga í þessu sambandi. Til dæmis að það sé ljóst mál að veikustu byggðirnar færu illa út úr því ef ekki væri til staðar einhver lágmarks byggðakvóti. Ég mundi óttast það mjög að hugmyndir sem gengju út á það að leggja fram pen- ingagreiðslur í staðinn myndu ekki koma sér vel fyrir þessar minni bygðir. Það hefur verið bent á að það séu vandamál uppi við útdeil- ingu á byggðakvótanum og það er alveg rétt. Við höfum hins vegar verið að skerpa reglurnar mjög um þessa úthlutun kvótans og bregðast þar meðal annars við ábendingum frá umboðsmanni Alþingis. Ég tel í raun að þar höfum við verið að ná ágætum árangri. Þarf að skoða í samhengi við veiðileyfagjaldið Ég bendi á það að lögin, sem nú gilda um byggðakvótann voru sam- þykkt samhljóða á Alþingi fyrir rétt um ári síðan. Mér finnst líklegt að svipuð vandamál komi upp við út- deilingu fjármuna á svona byggð- arlegum forsendum eins og eru allt- af til staðar, þegar við erum að deila út byggðakvótum. Enn fremur held ég að hugmynd- ir af þessu tagi verði þá að minnsta kosti að skoðast í samhengi við inn- heimtu veiðileyfagjalds. Þessi hug- mynd gengur út á það að útgerð- armenn greiði fyrir afnotaréttinn af þeim aflaheimildum sem nú felast í byggðakvótum. Þess vegna hlýtur það að kalla á endurskoðun á því veiðileyfagjaldi sem er til staðar í dag,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Ýmsir praktískir annmark- ar koma upp í hugann Sjávarútvegsráðherra segir að veikustu byggðirnar færu illa út úr því ef ekki væri til staðar einhver lágmarks byggðakvóti Morgunblaðið/Sverrir Fiskveiðistjórnun Einar K. Guð- finnsson vill ekki slá hugmyndir Samfylkingarinnar út af borðinu en telur ýmsa annmarka á þeim. Í HNOTSKURN »Mér finnst líklegt að svipuðvandamál kæmu upp við út- deilingu fjármuna á svona byggðarlegum forsendum eins og eru alltaf til staðar, þegar við erum að deila út byggðakvótum. »Ég bendi á það að lögin, semnú gilda um byggðakvótann voru samþykkt samhljóða á Al- þingi fyrir rétt um ári síðan. »Ég vil hins vegar taka öllumhugmyndum opnum huga sem lúta að fiskveiðistjórnun, ekki sízt þegar þær eru settar fram til þess að skapa meiri sátt um umgjörð fiskveiðistjórnunar- kerfisins. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is KARL V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd- ar Alþingis, segir að hugmyndir Sam- fylkingarinnar um byggðakvóta séu byrjun á hugsanlegum breytingum en eftir eigi að útfæra þær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utan- ríkisráðherra og formaður Samfylk- ingarinnar, sagði eftir vinnufund Samfylkingarinnar á Akureyri í fyrradag, að hugmyndin um að byggðakvótinn yrði settur á almenn- an markað væri til að koma til móts við ályktun mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og um leið til að slá á deilur sem hafi staðið um byggðakvótann. Í grunninn er hugmyndin sú að leigja byggðakvótann árlega á al- mennum markaði og skapa þannig tekjur fyrir hin ýmsu byggðarlög. Að sögn Karls V. Matthíassonar hefur ekki verið tekin afstaða til þess hvort kvótinn eigi að vera bundinn ákveðnum byggðarlögum, honum skipt eftir stærð skipa, það er til báta í litla eða stóra kerfinu eða í báðum og svo framvegis. Aðalatriðið sé að finna lausn sem sem henti betur en núver- andi fyrirkomulag. „Þetta eru bara hugmyndir, sem búið er að varpa upp og eru í umræðunni, en engar ákvarð- anir hafa verið teknar,“ segir hann. Karl bendir á að ekki hafi mátt nefna í þjóðfélaginu að setja byggða- kvóta á markað, jafnvel þó sveitar- félög hafi óskað eftir því. Hugsunin hafi alltaf verið sú að úthluta á ein- staklinga eða báta. Hins vegar þurfi að opna kerfið eftir ályktun mann- réttindanefndar SÞ auk þess sem gera megi því skóna að fleiri óánægjuraddir heyrist en ánægju- raddir með núverandi kerfi. Hins vegar verði að hafa í huga að byggða- kvóti hafi víða verið til góðs og gæta þess að kippa ekki stoðum undan at- vinnulífinu, þar sem hann hafi verið burðarás. „Hugmyndirnar eru byrj- unin á umræðunni,“ áréttar hann. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Byggðakvóti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Lúðvík Bergvinsson og Karl V. Matthíasson á fundinum á Akureyri, þar sem fjallað var um byggðakvóta. Hugmyndir enn á byrjunarstigi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.