Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Ferðaþjónusta Aðstaða fyrir ferðamenn í Grundarfirði verður athuguð
við stefnumörkun. Á síðasta sumri var óvenjumargt á tjaldsvæðinu.
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Grundarfjarðar-
bær vinnur á eigin vegum að mót-
vægisaðgerðum vegna niðurskurðar
þorskkvótans. Liður í því er stefnu-
mótun í ferðamálum og ráðning
markaðsfulltrúa.
Í október sl. ákvað bæjarstjórn
Grundarfjarðar að ráðast í stefnu-
mótunarvinnu í ferðamálum og jafn-
framt var ákveðið að ráða sérstakan
markaðsfulltrúa fyrir Grundarfjarð-
arbæ. Að sögn Guðmundar Inga
Gunnlaugssonar bæjarstjóra voru
þessi verkefni fyrstu beinu mótvæg-
isaðerðir bæjarstjórnarinnar gagn-
vart afleiðingum af skerðingu þorsk-
kvótans og verkefnin alfarið á vegum
bæjarfélagsins. Til aðstoðar við
stefnumótunarvinnuna var ákveðið
að ganga til samstarfs við ráðgjafa-
fyrirtækið Alta og mun það stýra
þessari vinnu.
Greina stöðu mála
„Það sem lagt verður til grund-
vallar í þeirri vinnu,“ sagði Guð-
mundur, „er m.a. að greina núver-
andi stöðu mála ásamt væntingum
og framtíðarsýn hjá þeim aðilum
sem koma að ferðaþjónustu nú þeg-
ar.“ Þá er þess vænst að út stefnu-
mótunarvinnunni komi fram tillögur
um nýjar leiðir og tækifæri í ferða-
þjónustunni. Þá vilja bæjaryfirvöld
fá úr því skorið hvernig samstarfi
bæjarfélags og aðila í ferðaþjónust-
unni verði best við komið ásamt því
hvernig sveitarfélagið geti tengst
ímyndarsköpun Grundarfjarðar.
Guðmundur sagði stefnumótunar-
vinnuna vera komna á fullt skrið hjá
Alta sem hefði þegar haldið einn
fund með þeim aðilum sem tengjast
málinu, á einn eða annan hátt, og nið-
urstöður þess fundar yrðu kynntar
bráðlega.
Laða að ný fyrirtæki
Nýráðinn markaðsfulltrúi, Jónas
Guðmundsson, mun ásamt bæjar-
stjóra verða tengiliður við þetta
verkefni meðan það er í vinnslu hjá
Alta en reiknað er með að þeirra
vinnu ljúki á vordögum. Um starf
markaðsfulltrúa Grundarfjarðar
sagði Guðmundur: „Það er ekkert
launungarmál að honum er ætlað að
leita uppi áhugasama fjárfesta og
laða að ný fyrirtæki. Hlutverk hans
er að kynna Grundarfjörð sem væn-
legan stað fyrir atvinnustarfsemi,
orlofsdvöl, heimsóknir og hvers
konar þjónustu og afþreyingu. Þar
kæmi sterkt inn hin góða hafnarað-
staða og frábær þjónusta Grundar-
fjarðarhafnar. Síðan verður
markaðsfulltrúinn að taka þátt í og
styðja við stefnumótun í ferðaþjón-
ustu ásamt því að sinna nauðsynlegu
kynningarstarfi út á við,“ sagði Guð-
mundur.
Stefna í ferðamálum og
ráðinn markaðsfulltrúi
Bærinn fer í
mótvægisaðgerðir
á eigin vegum
Eftir Jóhann Óla Hilmarsson
Stokkseyri | Framkvæmdir eru nú
hafnar við nýtt skólahús Barna-
skóla Eyra, eftir áralangar deilur
um hvernig standa ætti að bygging-
armálum skólans.
Löngu var kominn tími á endur-
nýjun eða nýbyggingar, en skóla-
húsin á Eyrarbakka og Stokkseyri
eru orðin úr sér gengin. Það kerfi
er haft á, að nemendum grunnskól-
ans er skipt í tvo hópa, eldri og
yngri hóp, og hefur eldri börnunum
verið kennt á Eyrarbakka en þeim
yngri á Stokkseyri og ekur skóla-
bíll á milli.
Deilurnar stóðu um það hvort
reisa ætti ný skólahús í báðum
þorpunum, öðru hvoru, eða byggja
nýjan skóla miðsvæðis. Niðurstaðan
var sú að byggja ný skólahús á báð-
um stöðum og var hafist handa á
Stokkseyri. Fyrsta skóflustungan
var tekin um miðjan síðasta mánuð
og önnuðust það yngsti og elsti
nemendur skólans.
Kostar 450 milljónir
Nýja skólabyggingin á Stokks-
eyri verður tilbúin haustið 2010 og
þá verður hafist handa á Eyrar-
bakka. Kostnaður við bygginguna
er áætlaður 450 milljónir. Verk-
takafyrirtækið Tindaborgir sér um
framkvæmdir.
Barnaskólinn á Eyrarbakka og
Stokkseyri er elsti starfandi grunn-
skóli landsins, verður 156 ára á
þessu ári. Miðað er við stofnun skól-
ans á Eyrarbakka en nú eru starfs-
stöðvar á báðum stöðum.
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Nýr skóli Framkvæmdir eru hafnar við nýbyggingu Barnaskóla Eyra.
Skólinn mun standa við gamla skólahúsið á Stokkseyri.
Elsti skóli landsins
fær andlitslyftingu
Grindavík | Viðburða- og menning-
ardagskrá Saltfisksetursins og
Grindavíkurbæjar fyrir árið 2008
verður kynnt við athöfn í Saltfisk-
setrinu næstkomandi laugardag, kl.
17 til 19. Óskar Sævarsson forstöðu-
maður og Sigrún Jónsd. Franklín
verkefnastjóri kynna dagskrána.
Í boði verða ýmsir menningarvið-
burðir, svo sem þjóðháttakynningar,
menningar- og sögutengdar göngur,
fræðslukvöld, listviðburðir og tón-
leikar, auk hefðbundinna dagskrár-
liða, Sjóarans síkáta, Jónsmessu-
göngu á Þorbjörn og fleira.
Dagskráin er birt á heimasíðu
Grindavíkur, www.grindavik.is.
Sigrún mun jafnframt kynna
gönguverkefnið „Af stað á Reykja-
nesið“, gamlar þjóðleiðir, þjóðleiðar-
bæklinga, skipulagðar ferðir með
leiðsögn og gönguhátíð um verslun-
armannahelgina.
Kynna við-
burðadagskrá
Borgarnes | Hafþór Ingi Gunnars-
son körfuknattleiksmaður úr Skalla-
grími hefur verið kjörinn íþrótta-
maður Borgarbyggðar 2007.
Auk Hafþórs voru ellefu íþrótta-
menn tilnefndir við kjörið: Guð-
mundur Margeir Skúlason, Heiðar
Árni Baldursson, Bjarki Þór Gunn-
arsson, Arnar Hrafn Snorrason, Jón
Ingi Sigurðsson, Rósa Marinósdótt-
ir, Ísfold Grétarsdóttir, Davíð Ás-
geirsson, Björk Lárusdóttir, Einar
Þorvaldur Eyjólfsson og Bjarki Pét-
ursson.
Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir
hlaut viðurkenningu úr minningar-
sjóði Auðunar Hlíðkvists Kristmars-
sonar sem efnilegasti íþróttamaður-
inn af yngri kynslóðinni og ýmsar
fleiri viðurkenningar voru veittar við
þetta tækifæri, að því er fram kemur
á vef Borgarbyggðar.
Kjörinn íþrótta-
maður Borgar-
byggðar
♦♦♦
EXISTA hf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 www.exista.com
AÐALFUNDUR EXISTA HF.
28. FEBRÚAR 2008
Aðalfundur Exista hf. verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2008
á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2 og hefst fundurinn kl. 17:00
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2007.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2007 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar vegna ársins 2007.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðunarfélags.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
7. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Exista hf.
8. Tillaga um að samþykkja heimild stjórnar til þess að breyta og gefa út hlutafé í evrum.
9. Tillögur til breytinga á samþykktum Exista hf.:
a. Breyting á 2. mgr. 4. gr. um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um allt að 7.000.000.000 kr. að nafnverði
eða samsvarandi fjárhæð í evrum með útgáfu nýrra hluta.
b. Breyting á 1. mgr. 7. gr. um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum.
10. Önnur mál.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að
minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu um framboð til
stjórnar skal gefa, auk nafns hluthafa, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og
hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila, samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa
sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Stjórn félagsins skal yfirfara tilkynningar þeirra sem kost á sér gefa til stjórnar og gefa viðeigandi
aðilum tækifæri, á sannanlegan hátt, til þess að leiðrétta ágalla á tilkynningu innan ákveðins tíma, sem skal ekki vera lengri en 24 klukku-
stundir. Ef ekki er bætt úr ágöllum á tilkynningu innan tilsetts tímamarks, mun stjórn félagsins ákveða um gildi framboðsins. Mögulegt er
að bera ákvörðun stjórnar félagsins upp á hluthafafundi sem hefur úrslitavald um gildi framboðs til stjórnar félagsins.
Upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins skulu vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund félagsins.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir
aðalfund. Enn fremur verður hægt að nálgast þær á vefsíðu félagsins www.exista.com frá sama tíma.
Aðalfundur Exista mun fara fram á ensku. Boðið verður upp á túlkun á íslensku.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 16:00 á fundarstað að Hilton Reykjavík Nordica.
Reykjavík 20. febrúar 2008
Stjórn Exista hf.