Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 23

Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 23 aríkjafor- hvarf Fid- ðræðis á breytinga a ætti að æðislegum létt ksins á gn Fidels tækifæri sem hann nauðsyn- in hefur mbótum á ð þarlend íkjastjórn ra komm- r embætt- ndamál á fundi í Madríd í vikunni sem leið og stjórnin í Havana féllst þá á að láta sjö pólitíska fanga lausa. Hún sam- þykkti einnig að undirrita tvo mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Annar þeirra fjallar um efnahagsleg, félagsleg og menning- arleg réttindi en hinn um borgara- leg og pólitísk réttindi. Mariano Rajoy, leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins á Spáni, sagði að það væri „tímaskekkja“ að kommúnistastjórn skyldi vera við völd á Kúbu. „Ég vona að lýðræði verði komið á sem fyrst vegna þess að það væri fáránlegt ef það gerðist ekki.“ Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, sagði að Fidels Castros yrði ekki saknað. „Þetta getur aðeins verið skref í rétta átt, við vonum að þetta greiði fyrir umbótum.“ Breska stjórnin tók í sama streng og mannréttindasamtökin Amnesty International sögðust vona að stjórnvöld á Kúbu létu pólitíska fanga lausa og kæmu á umbótum sem tryggðu mannréttindi, Samtökin hvöttu einnig stjórn- völd í Bandaríkjunum til að aflétta viðskiptabanni sem sett var á Kúbu í október 1960 eftir að eignir Bandaríkjamanna í landinu voru þjóðnýttar. John Negroponte, að- stoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, kvaðst ekki telja að við- skiptabannið yrði afnumið á næstunni þrátt fyrir afsögn Fidels Castros. Helstu frambjóðendurnir í for- kosningunum í Bandaríkjunum tóku í sama streng. Þeir sögðu að það væri löngu tímabært að Fidel Castro færi frá en viðskiptabannið yrði ekki afnumið fyrr en lýðræð- islegum umbótum yrði komið á. Fidel Castro hafði verið við völd frá árinu 1959, lengur en nokkur annar þjóðhöfðingi í heiminum að konungum undanskildum. Tíu bandarískir forsetar höfðu reynt að koma Castro frá og talið er að leyni- þjónustan CIA hafi margoft reynt að ráða hann af dögum. Frásagnir af morðtilraunum CIA eru skraut- legar, til að mynda er sagt að reynt hafi verið að fá Castro til að kveikja sér í vindli sem fylltur hafi verið með sprengiefni. Fabian Escalente, fyrrverandi lífvörður Castro, full- yrti í viðtali við breskt dagblað að CIA hefði reynt alls 638 sinnum að ráða Castro af dögum. fur á mikl- m á Kúbu      "# $ %&          !! " #$%    ' ( " !    !     ) % *    01453 6.75. 8 #9-7 > /93?>) @/9>7/ :  +  $% &'2%$; + (  <  + ) (*" + , "&  =6 +  - & > <;?  +.* = % +%*'.    + (* .    +/    0 , 1  , 3 && 1& !&    ;  !+ 4  ' ( A6 ,"& !1   ;;4 , ,    ?"@1& , :"&"A    # 8"&     "    C ,, &  C ,C & BB !   BB ! BBB  AC 6    -  : :  %.  D -! +# # +   ,  -. /  0& # #4#5# 6"22# 2##   "  7 +3 8  0 %  ! #      ! # 4" " +3 #6"2# # #+7  2# 47# 32+7" +7#4## 3 "& (' * *+ L / A ,1&K  " ! ,"&   8  8 ,  A! /  ,  + , "  C* + A ,1    8&  "&             ;;"  &1  B* *+A ,1 &   A! & "   ,    ;        * *+ A ,1 & A &    ,       * *+ A  ,A ,1    !8  & 1  " 6 ,"&  1  ! # 8 & * *+ /, & A       !  &  ;     A! ,* *+ 6 ,"&M52   8 &   1 A!     !"  !  N! A ,1!        , # 8"&    1        ,   C* *+ # 8& ;+ &K " &       # 8   ,     " " 6 ,"&   &&A! 6 ,"&  1&&  1      "@1& , /  0 & 7* ;<  =>  . ?  ! @  :     1  !  /,   &   +, O   +     "&    &  &&   1     8 8A  ;=               -   + ,*(, : &  + * u gi í astro argoft Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur fbi@mbl.is Eitt sinn lá leið mín yfir há-lendið með litlum hópifólks, mestmegnis út-lendingum. Eftir nokkr- ar klukkustundir var ég farin að veita því athygli hversu ólík upp- lifun útlendinganna virtist. Ein- hverjir voru búnir að fá nóg eftir ör- stutta stund; auðnirnar og það tilbreytingarleysi sem sumir upplifa í fjarveru mannlífs og manngerðra þátta virtist svæfa þá þrátt fyrir að stórkostleg náttúran blasti við á báða bóga. Hinir voru uppnumdir af upplifun sinni; af óendanleika auðnarinnar, af einangruninni og ósnertanleikanum. Sá elsti í hópn- um – kominn yfir áttrætt – tjáði sig lítt en hélt þó augljóslega vöku sinni. Er bíllinn tók að renna niður í jökulsorfið gildrag, þar sem vatns- lítill árfarvegur gaf fyrirheit um ofs- ann er mótað hafði svartar brekk- urnar, vildi hann stöðva bílinn hið snarasta. Samferðamennirnir litu undrandi í kringum sig – það var „ekkert“ að sjá; engan foss, engan jökul, ekkert fjall. Ekkert nema breiður af örsmárri og að því er virt- ist lítilsigldri eyrarrós. Alain Robbe-Grillet, sem lést eins og kunnugt er í fyrradag, vissi meira en flestir um grös. Hann varð himinlifandi þegar hann sá hvernig smágerð og viðkvæmnisleg eyr- arrósin hafði skotið rótum í urðinni og tekist að lita svartan og gljáandi jökulruðninginn bleikan. Hann vatt sér út úr bílnum og var léttastur allra á fæti, enda í fyrstu sá eini sem skynjaði það undur sem hafði átt sér stað í þessu hrjóstruga lands- lagi. En skynjun hans smitaði út frá sér og loks voru allir komnir út að taka myndir af þessum – hugs- anlega eilífu – smáblómum. Hóp- urinn rann saman í eitt í upplifun sinni; ekki bara á eyrarrósinni held- ur í lotningu aðdáanda hennar. Robbe-Grillet hafði komið auga á það sem aðrir sáu ekki. Rannsókn á takmörkum tungumáls og tjáningar Því hefur verið haldið fram að hug- myndasmiðir „nýju skáldsögunnar“ frönsku hafi verið knúnir áfram af þörf til að bregðast við gamaldags notkun á tungumálinu. Sumir telja að skáldsaga Jean Paul Sartre, Nausea [Ógleði] frá árinu 1938, hafi varðað leið nýju skáldsögunnar, en þar kemst aðalsöguhetjan að því að tungumálið sem slíkt nýtist ekki mannskepnunni sem beintenging við lífið. Helstu forsprakkar nýju skáldsögunnar, þau Nathalie Sarraute og Alain Robbe-Grillet, unnu út frá því að túlkun okkar á heiminum í gegnum tungumálið, hlyti að vera skáldskapur. Raun- sannar lýsingar væru ekki til vegna afstæðis allra frásagna. Þau lögðu grunn að nýju skáldsögunni – og um leið hinu póstmóderníska tímabili heimssögunnar – með ritum sínum; L’Ére du soupçon [Öld grunsemd- anna, Sarraute ’56] og Pour un Nouveau Roman [Í átt að nýrri skáldsögu, Robbe-Grillet ’63). Sar- raute, sem hafði verið að velta þess- um hlutum fyrir sér í skrifum í hart- nær tvo áratugi, hafnaði nauðsyn þess að skáldsaga byggi yfir sam- felldum söguþræði og fagnaði dauða sögupersónunnar. Í hennar stað boðaði hún tilkomu „efnis sem er jafn persónueinkennalaust og blóð, einhverskonar kviku“. Robbe- Grillet tók fram að með hugtakinu „nýja skáldsagan“ væri hann ekki að reyna að búa til nýja bókmennta- hreyfingu eða þjappa saman skil- greindum hópi rithöfunda er ynnu á áþekkum nótum, heldur væri „skil- greiningin einungis heppilegur merkimiði sem hægt væri að nota yfir alla þá sem leituðu nýrra forma fyrir skáldsöguna, forma sem gætu tjáð (eða skapað) ný tengsl á milli mannsins og umheimsins, yfir alla þá sem væru ákveðnir í því að finna skáldsöguna upp, eða m.ö.o. finna manninn upp.“ Þarna skín í hugmyndafræði sem mótaðist af uppgjöri eftirstríðs- áranna. Öll fagurfræðileg, hug- myndafræðileg og siðferðileg gildi höfðu verið í uppnámi og listin sner- ist um að henda reiður á nýrri heimsmynd eða öllu heldur annars- konar skynjun á heimsmyndinni og allri þeirri óreiðu sem í henni felst. Tími hinna hreinu lausna í listum þar sem gerð var tilraun til að túlka raunveruleikann og búa til eft- irmynd hans var liðinn undir lok. Hinum tilbúna heimi var hafnað í viðurkenningu á tvístrun og óreiðu – því ómótaða afli, eða „kviku“, sem liggur að baki veruleikanum og er sameiginlegt okkur öllum. Það sama átti við um kvikmynda- gerð Robbe-Grillet, ekki síst hina frægu mynd Marienbad á síðasta ári, en þar renna innri og ytri heim- ur, veruleiki og dulvitund saman á einstakan hátt. Þegar frá leið og rit hans urðu að skyldulesningu í háskólum var bent á vægi tilrauna hans við að kryfja einn stærsta vanda lista á tutt- ugustu aldar, nefnilega kreppuna er felst í því að feta í fótspor annarra og bera byrðar hefðarinnar. Lorna Sage, einn merkasti bókmennta- kennari og gagnrýnandi síðari hluta tuttugustu aldar í Bretlandi, sagði að Robbe-Grillet hefði afhjúpað nauðsyn þess að losa skáldskapinn undan oki raunsæisstefnunnar, hann hefði áttað sig á því að ein- ungis þannig gæti skáldskapurinn verið trúr veruleika samtímans. Þáttur minninga í menningunni Léttfætti maðurinn er ég sá rjúka út úr bílnum til að skoða eyrarrós- ina í jökulgilinu fyrir tæpum þrem- ur árum hélt ferðalaginu áfram með mér og öðrum samferðamönnum sínum allt inn í Nýjadal – næturstað okkar á þessu ferðalagi. Hann var enn léttur í spori er við teygðum úr okkur á hlaðinu fyrir framan skálann í síðdegissólinni, full til- hlökkunar yfir fyrirheitum kvöldsins í samneyti við þennan hugsuð. En þegar Robbe-Grillet kom inn í skálann þyrmdi yfir hann. Byggingin, með margra manna koj- um til hliðanna og langborðinu í miðjunni, var nánast eftirmynd skálans í þrælkunarbúðum sem hann hafði verið neyddur til að strita í fyrir Þjóðverja í stríðinu. Við, samferðafólk hans, urðum vitni að því er minningarnar báru hann nærri ofurliði. Spor hans úr skál- anum voru þung og sýndu glöggt hversu hörmungar mannkynssög- unnar eru íþyngjandi þeim sem hafa upplifað þær á eigin skinni líkt og hann, en ekki einvörðungu fyrir til- stuðlan tungumálsins eins og við hin. Alain Robbe-Grillet var af kynlóð þeirra hugsuða samtímans er upp- lifðu hrikalegasta hildarleik nútíma- sögu Evrópu. Þessi kynslóð er nú óðum að týna tölunni. En í verkum hennar býr sá vitnisburður er reynsla þeirra knúði fram í hug- myndafræðilegum skilningi. Hún verður vonandi til þess að fólk muni hvers konar umrót hverfðist í skap- andi verkum þessarar kynslóðar og í uppgjöri hennar við eyðileggingu og siðferðislegt skipbrot menningar sinnar. Árvakur/Fríða Björk Ingvarsdóttir Á leiðinni í Nýjadal Alan Robbe-Grillet afhjúpaði nauðsyn þess að losa skáldskapinn undan oki raunsæisstefn- unnar, hann hafði áttað sig á því að einungis þannig gæti skáldskapurinn verið trúr veruleika samtímans. Aðdáandi eyrar- rósarinnar allur »Helstu forsprakkar nýju skáldsögunnar, þau Nathalie Sarraute og Alain Robbe-Grillet, unnu út frá því að túlk- un okkar á heiminum í gegnum tungumálið hlyti að vera skáld- skapur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.