Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 33

Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofa kl. 916.30, postulínsmálning kl. 9 og 13. Árskógar 4 | Bað, handavinna, smíði/útskurður og heilsugæsla. Upplýsingar í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, glerlist, almenn handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/ dagblöð, hádegisverður, spiladagur, kaffi. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16 m/ leiðb. kl. 13-16. Leikfimi kl. 10. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 kl. 10-11.30, s. 554-1226. Skrif- stofan í Gjábakka er opin kl. 15-16, s. 554-3438. Félagsvist í Gjábakka á kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga kl. 10, söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður Jónsson og Helgi Seljan. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Aðalfundur FEB verður 23. febrúar kl. 13.30, á Hótel Loftleiðum í sal 1-3. Munið fé- lagsskírteinin. Leikhópurinn Snúður og Snælda frumsýna 24. febr. kl. 14 í Iðnó, Flutningana eftir Bjarna Ingvarsson og inní sýninguna er fléttað atriðum úr Skugga-Sveini eftir Matthías Joh- umsson. Næstu sýningar verða 27. febr. 2.-6. og 9. mars allar sýningar hefjast kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, tveir glerlistarhópar að störfum, handavinnustofan opin, félagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30 og dansæfing í umsjón Sigvald kl. 18-20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist og ganga kl. 9, hádegisverður, postínsmálning og kvennabrids kl.13. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns- leikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, brids kl. 13, bútasaumahópur kl. 13, tréskurður/ trésmíði kl. 13.30. Ferð í Þjóðleikhúsið frá Jóns- húsi kl. 19 og Garðabergi kl. 19.15. Skráning í bæjarferð 25. febrúar, 1.500 kr., ekki er tekið við greiðslukortum. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug kl. 9.50 og dansæfing kl. 10. Frá hádegi er spilasalur opinn. Mánud. 10. mars er veitt fram- talsaðstoð frá Skattstofunni, uppl. og skráning á staðnum og s. 575-7720. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, bókband. Létt leikfimi kl. 13.15, framhaldssagan, Halla og Heiðarbýlið, kl. 14, kaffiveitingar. Hárgreiðslu- stofan, s. 553-6048, fótaaðgerðastofan, s. 588-2232. Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin kl. 9, handa- vinna kl. 9-16.30, útskurður kl. 9, hádegismatur, brids kl. 13, kaffi. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt á Keilisvelli kl. 10, handmennt og línudans kl. 11, handmennt kl. 13, pílukast kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9 hjá Sigrúnu, keramik, tau- og glermálun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður. Hársnyrting. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu kl. 9.30, ringó í Smáranum kl. 12, línudans í Húnabúð, kl. 17. Uppl. í símum 564-1490, 554-2780 og 554- 5330. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun verður spiluð keila í Keiluhöllinni við Öskjuhlíð kl. 10 og lista- smiðjan er opin á Korpúlfsstöðum kl. 13-16. Laugarneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin kl. 10.30. Kirkju- prakkarar, 1.-4. bekkur kl. 14.15, umsjón hafa prestar og kirkjuvörður safnaðarins. Ferming- artímar kl. 19.30 og Adrenalín gegn rasisma o.fl. kl. 20. Unglingar úr kirkjunni taka þátt í tónleik- unum, bræður og systur í austurbæ. Norðurbrún 1 | Smíðastofa og handavinnustofa opin kl. 9-16. m/leiðb. kl. 9-12, félagsvist kl. 14. Hárgreiðslustofa s. 588-1288, s. fótaaðgerð- arstofa 568-3838. Sjálfsbjörg | Félagsvist kl. 19, í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir og að- stoð v/böðun. Handavinna, sund, hádegisverður, verslunarferð í Bónus, tréskurður og kaffi. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, morgunstund kl. 10, handavinnustofan opin allan daginn, verslunarferð kl.12.30, upplestur kl. 12.30, bókband kl. 13, dans kl. 14, við undirleik harmónikkuhljómsveitar. Uppl. í síma 411-9430 Þórðarsveigur 3 | Almenn handavinna kl. 9-13, opinn salur kl. 13, ganga kl. 15, boccia kl. 14, kaffi- veitingar kl. 15. Kirkjustarf Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safnaðarsal kl. 11. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn kl. 10-12 í Holtakoti, Valentína Björnsdóttir kynnir heilsu- matvörur frá Móður Náttúru og hefur sýni- kennslu í því að baka hollt pönnubrauð. Opið hús eldri borgara kl. 13-16 í Litlakoti, spil og spjall. Bessastaðasókn | Bæna- og kyrrðarstund í Leikskólanum Holtakoti kl. 20. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safn- aðarheimili eftir stundina. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf eldri borgara kl. 13-16.30. Spilað, föndrað og handavinna. Hafið samband við kirkjuvörð í s: 553-8500 ef bílaþjónustu er óskað. Digraneskirkja | Alfanámskeið kl. 19. digranes- kirkja.is Dómkirkjan | Bænastundir kl. 12.10-12.30. Létt- ur hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænar- efnum má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með tölvupósti til domkirkjan@domkirkj- an.is. Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Kennsla, tónlist og samvera. Allir unglingar vel- komnir. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Fyr- irbænir og altarisganga, tekið við fyrirbænum í síma Grafarvogskirkju: 587-9070. Léttur há- degisverður á vægu verði að stundu lokinni. TTT fyrir börn 10-12 ára í Rimaskóla og Kokrpuskóla kl. 17-18. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra les 11. passíusálm kl. 18. Grensáskirkja | Samverustund aldraðra, matur og spjall kl. 12, helgistund kl. 14. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. Hugvekja, altarisganga. Morgunverður í safnaðarsal eftir messuna. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund kl. 12-13, skrifstofan lokar á meðan. Unglinga- fræðsla kl. 17.30 og fjölskyldusamveran kl. 18,„súpa og brauð“, gegn vægu gjaldi. Biblíu- kennsla kl. 19 og Royal Rangers skátastarf fyrir 5 ára og eldri. KFUM og KFUK | Hátíðar- og veislufundur verður 21. febrúar og hefst kl. 19 með kvöldverði, hátíðardagskrá. Nýir félagar boðnir velkomnir. Verð 3.500 kr. Skráning í síma 588-8899 til há- degis fimmtudag. Kristniboðssalurinn | Freddy Fillmore verður gestur á samkomunni í kvöld. Kaffiveitingar í lok samkomu. Hægt verður að kaupa miða á Eþíóp- íukvöldið 1. mars. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús kl. 15, Herdís Þor- valdsdóttir leikkona spjallar um líf sitt og starf og rifjar upp minningar frá löngum leikferli í Þjóðleikhúsinu og víðar. Kaffiveitingar á Torginu. Selfosskirkja | Foreldramorgunn í Safn- aðarheimilinu kl. 10.30. Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari ræðir um sund ungbarna. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10 - 12:30. Foreldramorgnar í Vídalínskirkju eiga afmæli í dag og verður veisla. Allir velkomnir, pabbar og mömmur, afar og ömmur. 70ára afmæli. Sjötug er í dag20. febrúar Finnlaug Guð- björg Óskarsdóttir. Í tilefni af- mælisins tekur Finnlaug á móti vinum og ættingjum laugardaginn 23. febrúar, milli kl. 14 og 17, í Logasölum 2 í Kópavogi. 60ára afmæli.Þessir ungu menn, tvíburarnir Haukur og Örn Helgasynir, slitu barnsskónum í Hvera- gerði og á Laug- arvatni. Nú hafa þeir tekið fram skíðaskóna og fagna sextíu ára af- mæli sínu, 20. febrúar, í bænum Falera í Sviss ásamt stórfjölskyld- unni. Natan Örn Helgason verður 8 ára sama dag. 60ára afmæli. Sextugur er ídag, 20. febrúar, Bergur Hjaltason. Hann og eiginkona hans Guðrún J. Haraldsdóttir taka á móti vinum og vandamönnum í Framheimilinu við Safamýri næst- komandi föstudag kl. 19. dagbók Í dag er miðvikudagur 20. febrúar, 51. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Félag íslenskra fræða heldurrannsóknarkvöld á morgun,fimmtudag, í húsi Sögu-félagsins Fischersundi 3. Að þessu sinni mun Kristján Ei- ríksson, verkefnisstjóri hjá Árna- stofnun, flytja erindið Ljóðmæli Ein- ars í Eydölum og útgáfur bundins máls frá lærdómsöld. Einar Sigurðsson í Eydölum (1539 til 1626) var helsta trúarskáld sinnar tíðar: Guðbrandur biskup Þorláksson og Einar voru kunnugir úr skóla, og þegar Guðbrandur gaf út sína frægu Vísnabók árið 1612 var Einar höf- uðskáld þeirrar bókar og fyrsti hluti bókarinnar að mestu eftir hann,“ seg- ir Kristján. „Einar fylgdi þeirri stefnu Guðbrands að bæta sálmakveðskap og leita til þess fyrirmynda í verald- legum kveðskap. Í þeim anda orti Einar til dæmis sálma undir víkivaka- háttum, eins og Nóttin var sú ágæt ein. Hann orti og rímur út frá Biblí- unni og kvað þó nokkuð undir forn- háttum eins og kaþólsk helgikvæða- skáld höfðu gert. Þannig brúar Einar bilið milli hins kaþólska kveðskapar og hins nýja. Sálmakveðskapur í upp- hafi hins nýja siðar hafði verið heldur dapurlegur og er skáldskapur Einars yfirleitt miklu betri en það sem á undan kom. Með Einari fleygir trúar- legum kveðskap fram, og má segja að hann plægi akurinn fyrir Hallgrím Pétursson.“ Í lok síðasta árs gaf Árnastofnun út ljóðmæli Einars og bjuggu Jón Sam- sonarson og Kristján Eiríksson bók- ina til prentunar. Segir Kristján frá útgáfunni, auk þess að fjalla um út- gáfu kveðskapar frá lærdómsöld al- mennt, bæði í fræðilegum útgáfum og útgáfum ætluðum almenningi: „Mikið skortir á að skáldskapur frá þessu tímabili hafi verið gefinn út og það sem út hefur komið er gjarnan ófáan- legt,“ útskýrir Kristján. „Mikil áhersla hefur verið á rannsóknir og útgáfu á hinum forna skáldskap en hálfgert tómarúm þegar kemur að lærdómsöld.“ Rannsóknarkvöldið hefst kl. 20 og er aðgangur öllum heimill og ókeypis. Finna má nánari upplýsingar um við- burði á vegum Félags íslenskra fræða á vefsíðu félagsins slóðinni http:// islensk.fraedi.is. Bókmenntir | Fyrirlestur um kveðskap á lærdómsöld á morgun kl. 20 Lærdómsöld í sviðsljósið  Kristján Eiríks- son fæddist á Fagranesi á Reykjaströnd 1945. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri, BA-prófi og cand.mag.-prófi í íslenskum bók- menntum frá HÍ. Kristján kenndi um langt skeið við Menntaskólann að Laugarvatni, var síðar lektor í ís- lenskum bókmenntum í Björgvin í Noregi og kenndi við KHÍ. Kristján hefur starfað hjá Árnastofnun síðan 1999. Eiginkona Kristjáns er Sig- urborg Hilmarsdóttir cand.mag. og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Tónlist Hótel Hamar | South River Band heldur tónleika 21. febrúar kl. 20, í tilefni af hér- aðsskemmtunni „Fóður og fjör“ í Borg- arnesi. Húsið er opið frá 18.30 fyrir mat- argesti. South River Band hefur gefið út fjóra geisladiska. Dans Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús kl. 20.30 í Álfabakka 14A. Gömlu dansarnir. Uppákomur Norræna húsið | Hönnunartvíeykið Clay- dies, eða Karen Kjældgård-Larsen og Tine Broksö vinna með samspil matar og nytja- listar. Þær hafa hlotið lof fyrir nýtt mat- arstell sem þær unnu með bundið fyrir augun, sitjandi á gólfinu. Þær sýna aðferð sína í Norræna húsinu kl. 15.30 í dag. Fyrirlestrar og fundir Vináttufélag Íslands og Kanada | Friðþór Eydal, fyrrum upplýsingafulltrúi varnarliðs- ins, mun fjalla um bók sína, Frá heimsstyrj- öld til herverndar; Keflavíkurstöðin 1942- 1951. Erindið verður flutt kl. 20, í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 201 og er á vegum Vináttufélags Íslands og Kanada. Náttúrufræðistofnun Íslands | Lilja Karls- dóttir líffræðingur, flytur erindi um rann- sóknir á frjókornum ilmbjarkar og fjall- drapa. Erindið er flutt í sal Möguleikhússins á Hlemmi og hefst kl. 12.15. Nánar á www.ni.is. Norræna húsið | Baldvin Jónsson sem stýrir markaðssetningu íslenskra matvæla í Bandaríkjunum heldur fyrirlestur kl. 13 og mun fjalla um íslenska drauminn – útflutn- ingsævintýri. Sögufélag, Fischersundi 3 | Félag þjóð- fræðinga á Íslandi heldur þemakvöld kl. 20. Yfirskrift kvöldsins er Þankagangur þjóð- arinnar: Menning skoðuð út frá sjó- mannalögum og veðurþjóðtrú. Erindi flytja Rósa Margrét Húnadóttir og Eiríkur Valdi- marsson. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Þjóðminjasafn Íslands | Dagur ungra fræðimanna í Evrópumálum II hefst kl. 10. Ráðstefna á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Samtaka iðnaðarins. Ungir og/ eða nýútskrifaðir fræðimenn kynna rannsóknarverkefni sín á sviði Evr- ópufræða. Capacent, Rannís og Al- þjóðaskrifstofa háskólastigsins verða með vinnustofu fyrir hádegi. Nánar á http:// www.hi.is/ams Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við KFC í dag. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið við hreinum fatnaði og öðrum varningi á þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349 Net- fang maedur@simnet.is PÁFAGAUKUR hjólar á þríhjóli á sýningu í dýragarði og áhorfendur horfa agndofa á í Jiaozuo í Henan-héraði í miðhluta Kína í síðustu viku. Ekki fylgdi sögunni hvort páfagaukurinn spjallaði við áhorfendur að sýningu lokinni. Skrítinn fugl á skrítnu hjóli Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.