Morgunblaðið - 20.02.2008, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
NEFIÐ á Edward Trencom er
glæsilegt, svo glæsilegt að það er
það fyrsta sem menn taka eftir. Það
er þó ekki bara glæsilegt, heldur er
það helsta ástæða þess hvað Edward
Trencom er lykt-
næmur. Hann er
reyndar svo lykt-
næmur að hann
getur ekki bara
greint á milli
ostategunda,
heldur getur
hann greint á
milli búgarða,
sagt til um í
hvaða mánuði viðkomandi ostur var
búinn til og nefnt kúna sem lagði til
mjólkina. Þetta kemur sér vel í ljósi
þess að hann er ostakaupmaður,
reyndar sá fremsti sem uppi hefur
verið.
Sá er hængur á öllu saman að nef-
inu góða fylgir bölvun sem fylgt hef-
ur ættinni í níu ættliði, frá 1666 fram
á okkar daga, og leiðir jafnan til þess
að höfuð fjölskyldunnar stingur af til
Eyjahafs og lætur þar líf sitt.
Einn daginn birtist grískur maður
og varar Edward við því að um hann
sitji tyrkneskir leigumorðingjar.
Edward tekur eðlilega ekki mikið
mark á þessu, en á endanum verður
Edward að halda til Eyjahafs á vit
örlaga sinna líkt og forfeður hans í
gegnum árin.
Þessi bók er í senn blóðug og
bráðfyndin, fullt af kynlífi og æsileg-
um uppákomum og ekki má gleyma
ostunum sem er allt um kring, ríf-
lega 3.000 tegundir; Norfolk tynwo-
od, tomme du Mont Chenis, abbaye
du mont des cats og primus inter
pares Touloumotyri úr Eyjahafi sem
er lykillinn að öllu saman.
Nefið
mikla
Edward Trencom’s Nose eftir Giles Milt-
on. Macmillan gefur út, 270 bls. innb.
Árni Matthíasson
BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. The Appeal – John Grisham
2. 7th Heaven – James Patterson
& Maxine Paetro
3. Duma Key – Stephen King
4. Stranger in Paradise
– Robert B. Parker
5. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
6. Plum Lucky – Janet Evanovich
7. World Without End
– Ken Follett
8. The Senator’s Wife – Sue Miller
9. People of the Book
– Geraldine Brooks
10. Sizzle and Burn –
Jayne Ann Krentz
New York Times
1. Notes from an Exhibition
- Patrick Gale
2. Remember Me - Sophie Kinsella
3. Then We Came to the End
- Joshua Ferris
4. A Thousand Splendid
Suns - Khaled Hosseini
5. On Chesil Beach - Ian McEwan
6. Atonement - Ian McEwan
7. The Appeal - John Grisham
8. No Country for Old Men
- Cormac McCarthy
9. The Kite Runner -
Khaled Hosseini
10. The Book Thief - Markus Zusak
Waterstone’s
1. Temperatures Rising
– Sandra Brown
2. Alibi Man – Tami Hoag
3. Shadow Dance – Julie Garwood
4. Sisters – Danielle Steel
5. 6th Target – James Patterson
6. The Unquiet – John Connolly
7. I Heard That Song Before –
Mary Higgins Clark
8. Overlook – Michael Connelly
9. Brother Odd – Dean Koontz
10. Daddy’s Little Girl –
Lisa Scottoline
Eymundsson
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
BÓKIN Microtrends eftir Mark J.
Penn hefur vakið mikla athygli í
Bandaríkjunum og ber nú meðmæli
á kápunni frá Bill-um tveim, Clint-
on og Gates. Þar lýsir höfundur
nýjum straumum í bandarísku sam-
félagi sem sumir koma verulega á
óvart (eitt prósent unglinga í Kali-
forníu ætlar að verða leyniskytta)
en aðrir eru á allra vitorði (sífellt
fleiri kynnast tilvonandi maka á
netinu).
Hugmyndin sem Penn gengur út
frá er sú að breytingar í litlum
hluta samfélagsins, jafnvel allt nið-
ur í eitt prósent, geti haft djúpstæð
áhrif á allt þjóðfélagið; ráðið kosn-
ingaúrslitum, komið af stað fjölda-
hreyfingum og verið gullnáma fyrir
þá sem eru á höttunum eftir nýjum
markaðstækifærum. Bókin er
byggð upp í stuttum köflum þar
sem tekin eru dæmi af breyttri
hegðun hluta fólks á ákveðnu sviði,
til dæmis stjórnmála, atvinnulífs,
tísku eða heilsuræktar, og sýnt
fram á hvernig litlar þúfur geta, og
hafa, velt þungum hlössum.
Nýir repúblikanar
Í einum athyglisverðasta kafl-
anum segir Penn frá þjóðfélagshópi
sem hann telur hafa ráðið úrslitum
um kosningaúrslit undanfarin ár í
Kaliforníu. Íbúum sem eiga rætur í
Mið- og Suður-Ameríku hefur fjölg-
að þar mikið undanfarin ár og mik-
ill meirihluti þeirra hefur jafnan
stutt Demókrataflokkinn í kosn-
ingum. En vaxandi hluti þessa
hóps, og það er það sem Penn telur
skipta sköpum, skilur kaþólskuna
eftir í heimahögunum og tekur upp
lúterstrú í nýju landi. Þar sé kom-
inn hópur sem finni sterka sam-
svörun með þeim hugmyndum sem
Repúblikanaflokkurinn hefur byggt
á; trú á svokölluð fjölskyldugildi og
sannfæringu um að hver komist
áfram á eigin verðleikum með sem
minnstum afskiptum ríkisvaldsins.
Þessir latínó-lúterstrúarmenn
sýndu áhrif sín í forsetakosning-
unum 2004 þar sem stuðningur
þeirra við Bush var lykilatriði í
sigri hans að því er Penn telur. En
repúblikanar kunnu ekki að nýta
sér þetta tækifæri og í þingkosn-
ingunum 2006 ráku þeir harðan
áróður gegn ólöglegum innflytj-
endum í kosningabaráttunni. Þar
með fældu þeir frá sér þessa nýju
stuðningsmenn sem eiga margir
nákomna ættingja sem ekki komu
löglega til landsins og svo fór að
repúblikanar töpuðu kosningunum.
Þarna er kominn kjarninn í
kenningu Penns; þeir sem ekki eru
vakandi fyrir látlausum þjóðfélags-
breytingum eiga það á hættu að
verða undir í hljóðlátum byltingum.
Forvitnilegar bækur: Microtrends
Þúfur og þung hlöss
Reuters
Microtrends Bush og Cheney fengu stuðning úr óvæntri átt í kosning-
unum 2004, frá íbúum sem eiga rætur í Mið- og Suður-Ameríku.
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000
SÝND Í REGNBOGANUM
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
eee
- S.V, MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
- S.V. MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÞAÐ ÁTTI
ENGINN AÐ
MEIÐAST
SÝND Í REGNBOGANUM
NJÓTTU MEÐAN Á NEFINU STENDUR
LEIKSTÝRT AF
SIDNEY LUMET
LEIKSTJÓRA SERPICO
OG DOG DAY AFTERNOON
STÓRKOSTLEG MYND
Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM
ATBURÐUM.
HAMINGJAN FELST EKKI
Í EFNISLEGUM GÆÐUM.
Jumper kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Before the devil knows you’re dead kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Meet the Spartans kl. 6 - 8 - 10
Walk hard kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
Aliens vs. Predator kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
eee
DÓRI DNA, DV
Cloverfield kl. 8 - 10 B.i.14 ára
Ástríkur á Ól... ísl. tal kl. 3:30 - 5:40
Nú mætast þau aftur!
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Jumper kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Rambo kl. 10 B.i. 16 ára
Ástríkur á Ól... kl. 5:50
Brúðguminn kl. 8 B.i. 12 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Meet the Spartans kl. 4 - 6 - 8 - 10
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
eeee
„Into the Wild skilur við áhorfandann snortinn
af andstæðum, fegurðinni og vægðarleysinu
sem hún lýsir svo skýrt og fallega.“
-S.V., Mbl
TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL