Morgunblaðið - 20.02.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 39
Óvenjuleg ljósmyndasýningstendur yfir í Gerðubergi íBreiðholtinu um þessar
mundir. Hún nefnist Hið breiða holt
og sýningarstjóri er myndlistar-
konan Berglind Jóna Hlynsdóttir en
verkefnið er unnið í samstarfi við
Gerðuberg og íbúa í Efra-Breið-
holti, en Breiðholtin eru eiginlega
þrjú, Fella- og Hólahverfi, Selja-
hverfi og Bakka- og Stekkjahverfi. Í
Efra-Breiðholti eru m.a. stóru
blokkirnar í Fellunum, Fuglabjarg-
ið svokallaða og í hverfinu búa þús-
undir. Breiðholt er áhugavert fyrir-
bæri, fyrsta alvöru úthverfi borg-
arinnar og skemmst að minnast
sýningar um sögu þess í Listasafni
Reykjavíkur.
Titill sýningarinnar vísar að hlutatil hins breiða mannlífs sem þar
er að finna, en Berglind Jóna tók þá
markvissu stefnu að skoða sér-
staklega samskipti unglinga og
eldri borgara, tengsl unglinga við
ömmur sínar og afa. Eftir uppsetn-
ingu auglýsinga víðs vegar um
hverfið gátu áhugasamir haft sam-
band og tekið þátt, verkefnið var
síðan kynnt og þátttakendur fengu
myndavélar til afnota. Unglingur-
inn myndaði ömmuna eða afann og
öfugt, sýningarstjórinn var síðan
hið utanaðkomandi auga sem mynd-
aði þau saman. Afraksturinn er tíu
myndraðir sem birta margvísleg
persónuleg tengsl, einnig koma
fram listræn sjónarhorn og áhuga-
verð persónusköpun á sér stað af
beggja hálfu. Enginn texti fylgir
myndunum sem látnar eru tala sínu
máli. Umgjörð þeirra er oftast
heimilið þar sem innanstokksmunir
birta ákveðna stemningu. Ég get
ímyndað mér að verkefnið hafi ver-
ið ánægjulegt þeim sem tóku þátt
og e.t.v. orðið til þess að einhverjir
sáu nána ættingja í nýju ljósi. Sem
heimild um sammannlega reynslu
eru myndirnar forvitnilegar og
vekja upp umhugsun um tengsl kyn-
slóðanna í samtímanum.
Hið breiða holt má síðan sjá nán-ar á myndum í innra gangi
sem einnig er opinn áhorfendum,
þar sem umgjörð verkefnisins er
myndlýst með myndum af þátttak-
endum, myndum teknum út um
glugga íbúða og af hverfinu sjálfu.
Gerðuberg er tengiliður margra
íbúa og starfsemin þar afar blóm-
leg, á staðnum ríkir geðþekkt and-
rúmsloft og tómstundastarf Gerðu-
bergs hefur einatt verið
metnaðarfullt og að sama skapi vin-
sælt, þetta er sannkölluð hverf-
ismiðstöð og starfsemin til eft-
irbreytni.
Berglind Jóna vinnur sýningu
sína í anda strauma og stefna sem
um þó nokkurt skeið hafa verið á
döfinni í samtímalistum undir heit-
inu „relational aesthetics“ eða „new
genre public art“, þar sem lista-
menn leggja áherslu á að vinna verk
sín í tengslum við íbúa einstakra
hverfa, minnihlutahópa eða innan
borgarskipulags. Að baki liggur
hugsjón um betra mannlíf, þar sem
listin er hluti af lífinu og mannleg
gildi eru í hávegum höfð. Um leið
leitast listamaðurinn við að notfæra
sér einstaka þekkingu sína á sjón-
rænum miðlum og listasögunni til
að skapa lifandi listaverk sem er
hluti af samtíma sínum.
Sýningin stendur til 20. apríl og
er opin virka daga 11–17 og 13–16
um helgar.
Þátttakendur í lífi og list
AF LISTUM
Ragna Sigurðardóttir
»Unglingurinn mynd-aði ömmuna eða afann
og öfugt, sýningarstjór-
inn var síðan hið utanað-
komandi auga sem
myndaði þau saman.
Lifandi listaverk „Ég get ímyndað mér að verkefnið hafi verið ánægjulegt þeim sem tóku þátt og e.t.v. orðið til
þess að einhverjir sáu nána ættingja í nýju ljósi,“ segir meðal annars í pistli höfundar.
ragnahoh@gmail.com
Ánægðustu viðskiptavinir
farsímafyrirtækja
Samkvæmt Íslensku
ánægjuvoginni 2007
„Brúðguminn er heilsteypt
og skemmtileg mynd sem kemur eins
og ferskur andvari inn í skammdegið.”
-S.P., Kvika Rás 1
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sýnd kl. 6, 8 og 10 POWERSÝNING
-bara lúxus
Sími 553 2075
10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5:30 m/ísl. tali
Sýnd kl. 8 og 10
HANN HELDUR AÐ ÞAU
SÉU STRANDAGLÓPAR....
EN HÚN VEIT BETUR.
Into the wild kl. 6 - 9 B.i. 7 ára
Rambo kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Ástríkur á Ólympíuleikunum kl. 5:30
Atonement kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
FRIÐÞÆING
Kauptu bíómiða á netinu á
www.laugarasbio.is
Stærsta kvikmyndahús landsins
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
LANG VINSÆLASTA KVIKMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
40.000 GESTIR - 5 VIKUR Á TOPPNUM!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
- H.J. , MBL
eeeee
eeee
„Frábær mynd”
- E.E., DV
„Myndin er verulega vel leikin
og að öllu leyti frábær”
- E.E., DV
- V.I.J. 24 STUNDIR
eeee
- V.J.V. TOPP 5
- V.I.J. 24 STUNDIR
eeee
- V.J.V. TOPP 5
eeee
“Brúðguminn er skemmtileg mynd sem
lætur áhorfendur hljæja og líða vel“
- G. H., FBL
eeee
Besta íslenska fíl-gúdd myndin
fyrr og síðar “
- S.S. , X-ið FM 9.77