Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
JUMPER kl. 6 - 8 - 10 B.i.12 ára
MR. MAGORIUMS WONDER ... kl. 6 - 8 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10 B.i.16 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
MR. MAGORIUMS WONDER .... kl. 6 LEYFÐ
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
UNTRACEABLE kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
UNTRACEABLE kl. 5:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
SWEENEY TODD kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10:30 B.i.12 ára
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 B.i.7 ára
Það er
Besta þjónusta farsímafyrirtækja
Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2007
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG var næstum því búinn að skrifa
undir samning við Wild Bunch, en
svo kom hinn risinn í Frakklandi og
bauð enn þá betur. Hann heitir
Cellulite Dreams og er einn stærsti
aðilinn í þessu,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Baltasar Kormák-
ur sem skrifaði undir stóran sölu-
samning vegna Brúðgumans í
Frakklandi um helgina. „Þeir eru þá
búnir að kaupa rétt til þess að fram-
selja myndina til dreifingaraðila í
hverju landi fyrir sig,“ segir Baltas-
ar, sem vill þó ekki nefna nákvæm-
lega hve mikils virði samningurinn
er. „En þetta hleypur á tugum millj-
óna,“ segir hann.
Sanngjörn skipti
Samningurinn virkar þannig að
franska fyrirtækið borgar fyrirtæki
Baltasars, Sögn/Blueeyes Product-
ions, nokkra tugi milljóna sem lág-
markstryggingu. Ef fyrirtækið sel-
ur svo myndina upp í þann kostnað
fær Sögn/Blueeyes 75% af hverri
sölu eftir það.
Aðspurður segist Baltasar ekki
vita til þess að samningur af þessari
stærðargráðu hafi verið gerður
vegna annarrar íslenskrar kvik-
myndar. „Þegar kemur að íslensk-
um myndum hafa menn yfirleitt
ekki fengið greitt fyrir svona samn-
inga, menn eru yfirleitt heppnir að
fá einhvern sem tekur að sér að
selja myndina,“ segir hann. „Það er
venjulega þannig með íslenskar
myndir að menn fá enga peninga
nema myndin seljist. En ég fæ strax
þessa upphæð sem þeir leggja til,
síðan er það þeirra að selja upp í þá
upphæð, og svo förum við að skipta
á milli okkar peningunum.“
En hvaða þýðingu hefur þessi
samningur fyrir dreifingu á Brúð-
gumanum? Verður myndin sýnd úti
um allan heim í kjölfarið? „Það veit
maður aldrei, en þetta er eins góð
vísbending og maður getur fengið.
Það verður bara að koma í ljós hvert
hún fer. En svona fyrirtæki myndi
aldrei eyða svona miklum peningum
í mynd nema það hefði mikla trú á
að það gæti selt hana. Þannig að
núna reyna þeir að koma henni á
nokkrar góðar hátíðir, og svo fara
þeir á alla markaði og selja hana.“
Baltasar segir að um tíu aðilar
hafi barist um að kaupa Brúðgum-
ann og að verðhugmyndir hafi
margfaldast á stuttum tíma. „Það
var mikill slagur um myndina og all-
ir þeir sem ég sýndi hana tóku þátt í
þeim slag. Það hljóp mikið kapp í
menn og sumir görguðu á mig í sím-
ann að fara að loka samningum. Svo
voru menn líka að hóta að draga til-
boðin til baka og svona, þannig að
maður þarf að spila þetta rétt. En
það er frábært að finna fyrir svona
miklum áhuga.“
Kostnaður við Brúðgumann nam
um 150 milljónum króna, en auk
nýja samningsins hefur myndinni
vegnað mjög vel í kvikmyndahúsum
hér á landi. „Hún stendur undir sér,
það er alveg ljóst,“ segir Baltasar
og bætir því við að hugsanlegur
hagnaður fari í að gera fleiri bíó-
myndir.
„Nú get ég bara farið að gera
næstu mynd, þeir sjá um allt,“ segir
leikstjórinn, en hans næsta verkefni
verður líklega bandaríska kvik-
myndin Run For Her Life. Stefnt er
að því að hefja tökur á henni í vor,
en það gæti þó tafist. „Hún verður
tekin í Los Angeles og svo líklega
eitthvað í Nýju-Mexíkó, út af
skattaívilnunum þar. Svo tökum við
kannski eitthvað í Tijuana sem er
reyndar svo hættulegur staður að
menn þora varla að taka þar, það er
svo miklu stolið af græjum og
svona.“
Baltasar segir að myndin muni
líklega kosta á bilinu sex til tíu millj-
ónir dollara, 400 til 700 milljónir ís-
lenskra króna. Það yrði því hans
stærsta verkefni hingað til. „Þetta
er líka verkefni sem ég barðist fyrir
að fá. Ég fékk handritið upphaflega
sent, ásamt nokkrum öðrum leik-
stjórum. Ég missti það svo til ann-
ars leikstjóra, en þegar ég fór að
hitta Wes Craven sem bauð mér að
leikstýra hryllingsmynd sem ég
endaði á að afþakka, fór ég að at-
huga með þetta verkefni og þá hafði
eitthvað klikkað varðandi hinn leik-
stjórann. Þannig að ég fór bara og
sagði þeim mína skoðun á þessu, og
þá vildu þeir endilega fá mig.“
Spagettí-vestri víkinganna
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í byrjun árs mun Baltasar
líklega gera kvikmynd byggða á
skáldsögunni The Bird Artist eftir
Howard Norman í Kanada í ágúst.
Hann vonast til að geta tekið bæði
verkefnin vestan hafs að sér. „En ef
það verður ekki af þessu í vor fer ég
bara að skrifa, við Ólafur Egill Eg-
ilsson erum að skrifa handrit að
stórmynd sem er byggt á Íslend-
ingasögunum, við erum að taka það
besta úr þeim og búa til svona
spagettí-vestra víkinganna,“ segir
hann og hlær. „Þetta er sjálfstæð
saga, með minni úr Íslendingasög-
unum. Ég var búinn að vinna lengi
með Njálu, en mér fannst hún aldrei
verða að almennilegu kvikmynda-
handriti. Þannig að ég ákvað bara
að gera sjálfstætt handrit,“ segir
leikstjórinn, en bætir því við að
langt sé í að sú mynd verði að veru-
leika.
Verðið á Brúðgumanum margfaldaðist
Franskt fyrirtæki keypti söluréttinn að kvikmynd Baltasars Kormáks Kaupverðið hleypur á
tugum milljóna króna Einn stærsti samningur sem gerður hefur verið vegna íslenskrar myndar
Brúðguminn Ólafur Darri Ólafsson og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum. „Nú get ég bara farið að gera næstu mynd,“ segir Baltasar.
Árvakur/Einar Falur