Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 10

Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 10
10 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Frúin hefur eitthvað ruglast í menúinum, enda slöpp í útlenskunni, við ætluðum bara að halda okkur við SKYR.IS, ekki evru-fiskisúpuna, mr. Jóse Barroso. VEÐUR Viðskiptaheimurinn á meginlandiEvrópu er í uppnámi. Upplýs- ingar um skattaundanskot, sem koma frá Liechtenstein hafa sett allt á annan endann. Þýzka ákæruvaldið hefur fram- kvæmt húsleitir um allt Þýzkaland á heimilum manna og á skrif- stofum.     Á listan-um, sem þýzk yf- irvöld hafa komizt yfir um innistæður í Liechtenstein eru 1400 nöfn. Þar af eru 600 Þjóð- verjar.     Forystumaður samtaka banka íSviss hefur gagnrýnt þýzk yf- irvöld fyrir að nota aðferðir Gestapó til þess að komast yfir upp- lýsingar um skattsvik. Þetta þótti nokkuð langt gengið og talsmaður samtakanna baðst af- sökunar á því að hafa líkt aðgerð- um þýzkra stjórnvalda við aðgerðir hinnar alræmdu lögreglu nazista.     Nú sitja skattayfirvöld í Banda-ríkjunum, Bretlandi, Frakk- landi, Kanada og Ástralíu yfir þess- um listum.     Skattayfirvöld á Norðurlöndumhafa a.m.k. sum hver listana undir höndum. Skattayfirvöld á Ís- landi hafa lýst áhuga.     Þung orð falla á milli yfirvalda íÞýzkalandi og Liechtenstein að hluta til vegna þess að Þjóðverjar borguðu fyrir upplýsingarnar.     Hvers vegna þessi læti? Af hverjufara menn að tala um Gestapó ef upplýsingar nást um skattsvik?     Er ekki sjálfsagt að allir þjóð-félagsþegnar borgi þá skatta, sem þeim ber samkvæmt lögum við- komandi lands? STAKSTEINAR Aðferðir Gestapó? SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                    *(!  + ,- .  & / 0    + -       !     "##"       "##"$$  %$ % &$$  %$ %  # 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (       & $$" ##'     & $$" ##' #    :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? %  %  %   % %   % %  %      !%                               *$BC $$$$                                  !  *! $$ B *! ()  * $ $) $    + <2 <! <2 <! <2 (* #" $, #' -$."#/  D                 <   "     #  $          %    &      '     (  &            )     *    +   6 2  ,     -     #    $ &$ "  .   %         & &$   01"" $$22  #"$$3  $, #' Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Magnús Ragnar Einarsson | 2. mars Coen-bræður og græðgin Nýbúinn að sjá No Country For Old Men. Gæti skrifað mikið um myndina en sleppi því. Þegar ég fór að hugsa um þær myndir sem ég hef séð eftir þá bræður þá er eitt stef sem einkennir þær flestar ef ekki allar...ætla því að koma með þá kenningu að myndir Coen bræðra snúist um græðgi. Um peninga og þá óhamingju sem af þeim getur hlotizt. Meira: raggissimo.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 2. mars 2008 Ekki meira fannfergi í Vestmannaeyjum í 15 ár Oft snjóar í Vest- mannaeyjum og það oft þó hvergi annars staðar fenni á landinu. Þann snjó tekur hins vegar oft- ast upp fljótt aftur og snjódýptin er sjaldan yfir fet, þ.e meiri en 30 sm eða svo. Meiri snjór en það heyrir til tíðinda í Vest- mannaeyjum og síðast varð snjódýptin á Stórhöfða álíka mikil og nú þann 19. janúar 1993. Meira: esv.blog.is Ómar Ragnarsson | 1. mars 2008 Þetta ber að gera en hitt eigi ógert... „Þetta ber að gera en hitt eigi ógert að láta“ var stundum viðkvæði Emils Björnssonar, míns gamla frétta- stjóra... Ég er sam- mála því að það sé hlálegt að láta stranda á 80 millj- ónum króna við að bjarga fyrstu þotu Íslendinga en hins vegar er ég ósammála því að álykta sem svo að rangt sé að varðveita önnur verð- mæti... Meira: omarragnarsson.blog.is Ólína Þorvarðardóttir | 1. mars 2008 Mikilvægum stofn- unum ekki treyst Maður er nú ekkert hissa á þessum 9% eft- ir allt sem á undan er gengið og sjálfsagt er enginn hissa – nema kannski Vilhjálmur. Hann virðist enn halda að hann eigi eitthvað inni hjá kjós- endum. Og innan við helmingur treystir Alþingi! Það er svakalegt – af því við erum jú að tala um sjálfa lög- gjafarsamkunduna. En ég er undrandi á því að ein- ungis 68% skuli treysta heilbrigð- iskerfinu. Það hlýtur að vera alvar- legt umhugsunarefni fyrir þá sem þar halda um stjórnartauma. Við eigum bara eitt heilbrigðiskerfi . Í raun ætti almenningur að bera sama traust til heilbrigðiskerfisins og Háskóla Ís- lands – en það er ekki svo. Það finnst mér áhyggjuefni. Mín tilgáta er sú að hin linnulausa hagræðingarkrafa sem gerð er í heil- brigðiskerfinu sé loks að skila sér í skertu trausti almennings á þessu kerfi. Að sjúkrahúsin séu einfaldlega orðin of stór og vélræn á kostnað mannlegra samskipta og umhyggju. Sjúkrahús á ekki að reka í of stórum einingum. Framleiðslufyr- irtæki eins og kjúklingabú geta notið hagræðingar stærðarinnar og sam- legðaráhrifa á markaði. En sjúkrahús eru þjónustustofnanir og því lúta þau öðrum lögmálum. Í þjónustu gildir að hafa smærri einingar til að tryggja nálægð við þá sem njóta þjónustunnar, og til að tryggja sveigjanleika og viðbragðs- flýti þegar á þarf að halda. Þetta segja að minnsta kosti stjórn- unarfræðin sem ég stúderaði hér um árið. En sú speki virðist nú ekki höfð í hávegum hér á landi. Að minnsta kosti hefur miklu verið til kostað á undanförnum árum til að sameina sjúkrahúsin og stækka þau sem stjórnsýslueiningar – til skaða fyrir þiggjendur heilbrigðisþjónustu, held ég. Sparnaðarkrafan hefur orðið til þess að deildum er lokað, sjúklingar útskrifaðir fyrr en ella, mannafla er haldið í lágmarki og hagræðing í rekstri virðist stundum ráða meiru um ákvarðanir í kerfinu en umhyggja fyrir sjúklingunum. Þetta hefur grafið undan trausti. Traust er ekki sjálf- gefið – þess þarf að afla. Meira: olinathorv.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR LIÐ lagadeildar Háskóla Íslands hefur tryggt sér þátttökurétt í loka- keppni Jessup-málflutningskeppn- innar með því að bera sigurorð af liðum frá lagadeild Háskólans í Reykjavík og lagadeild Háskólans á Akureyri. Í fréttatilkynningu kem- ur fram að sigurinn hafi verið nokk- uð öruggur en þrír stigahæstu mál- flutningsmenn keppninnar komu úr röðum liðs HÍ. „Dómarar í lands- keppninni komu m.a. frá við- urkenndum erlendum háskóla sem og frá utanríkisráðuneytinu. Var það mál manna að keppnin hefði verið í háum gæðaflokki. Lið Háskóla Íslands mun því verða fulltrúi Íslands í þessari stærstu málflutningskeppni heims, sem haldin er í Washington D.C., þar sem lið frá 80 löndum keppa í lokakeppninni. Keppt er í túlkun laga á sviði þjóðaréttar. Að þessu sinni er fjallað um baráttuna gegn hryðjuverkum og vernd mannrétt- inda,“ segir í tilkynningu. Lið Háskóla Íslands keppir annað árið í röð í þessari keppni. Liðs- menn lagadeildar HÍ eru Anna Pála Sverrisdóttir, Bragi Dór Hafþórs- son, Davíð Örn Sveinbjörnsson, Kári Hólmar Ragnarsson og Egg- ert Ólafsson laganemar. Þjálfari liðsins er Eggert Páll Ólason, lög- fræðingur hjá Landsbanka Íslands, og umsjónarmaður af hálfu laga- deildar HÍ er Pétur Dam Leifsson lektor. Lið lagadeildar HÍ Neðri röð f.v.: Kári Hólmar Ragnarsson, Anna Pála Sverrisdóttir og Davíð Örn Sveinbjörnsson. Efri röð f.v.: Pétur Dam Leifs- son, starfsmaður Háskóla Íslands, Eggert Páll Ólason hdl., þjálfari liðsins, og laganemarnir Bragi Dór Hafþórsson og Eggert Ólafsson. Keppa í stærstu mál- flutningskeppni heims

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.