Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
RÉTT FRAMKVÆMD TRYGGIR ÁRANGUR
Reykjavík – þriðjudaginn 4. mars
Grand Hótel Reykjavík – Gullteig kl. 8:30-10:00
Egilsstöðum – þriðjudaginn 4. mars
Hótel Héraði – kl. 17:30-19:00
Akureyri – miðvikudaginn 5. mars
Hótel KEA – kl. 9:00-10:30
Ísafirði – miðvikudaginn 5. mars
Hótel Ísafirði – kl. 12:00-13:30
SA hvetja félagsmenn til að
mæta og kynna sér samningana.
Vinsamlegast skráið þátttöku
á vef SA – www.sa.is
Rafræn atkvæðagreiðsla um
samningana fer fram 3.-7. mars.
N Ý I R K J A R A S A M N I N G A R
Á A L M E N N U M V I N N U M A R K A Ð I
K Y N N I N G A R F U N D I R S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S
Reykjavík – Egilsstöðum – Akureyri – Ísafirði
ÞETTA HELST ...
● AÐALFUNDUR Tryggingamiðstöðv-
arinnar, TM, fer fram í dag. Sem
kunnugt er verður félagið afskráð úr
kauphöllinni en FL Group hefur tekið
yfir félagið. FL Group er hins vegar
ekki komið með samþykki Fjármála-
eftirlitsins fyrir virkum eignarhlut í
TM en það mál hefur verið alllengi til
meðferðar. Fyrir aðalfundi liggur m.a.
að skipa nýja stjórn en í framboði eru
Árni Hauksson, Gunnar Karl Guð-
mundsson og Pétur Guðmundarson.
Þá liggur fyrir tillaga um greiðslu arðs
upp á 2,1 milljarð króna eða 1,94
krónur á hlut. Hagnaður síðasta árs
nam 4,3 milljörðum króna en af vá-
tryggingastarfseminni eingöngu varð
349 milljóna hagnaður.
Tillaga um 2,1 millj-
arða króna arð hjá TM
● BERKSHIRE
Hathaway, fjárfest-
ingasjóður í eigu
auðkýfingsins
Warrens Buffetts
hagnaðist um
13,2 milljarða doll-
ara á síðasta ári,
jafnvirði um 860
milljarða króna. Það er 20% meiri
hagnaður en árið 2006. Hins vegar
dróst hagnaðurinn á fjórða ársfjórð-
ungi saman um 18%, og nam 2,3
milljörðum dollara, til samanburði
við 3,6 milljarða á sama tíma 2006.
Í árlegu bréfi sínu til fjárfesta varar
Buffett m.a. við því að trygg-
ingabransinn eigi erfiða tíma fram-
undan. Sjóður Buffetts á hluti í um
60 fyrirtækjum, einkum trygginga-
félögum en einnig fataverslunum og
húsgagna- og skartgripaverslunum.
Þá á sjóðurinn stóran hlut í Coca-
Cola, Anheuser-Busch og Wells
Fargo. Buffett ætlar að fara hægja á
sér og mun sonur hans taka við
stjórnarformennsku í sjóðnum.
Sjóður Buffetts með
860 milljarða hagnað
● CLOSE Brothers Group, breska
fjármálafyrirtækið sem Landsbank-
inn hafði hug á að kaupa ásamt fleiri
fjárfestum, hefur hætt viðræðum við
aðra áhugasama kaupendur, að því
er fram kemur í Hálffimmfréttum
Kaupþings. Tilkynnt var í janúar sl.
að Landsbankinn hefði ásamt Cenk-
os Securities hætt við þátttöku í
gerð yfirtökutilboðs. Fyrsta boð hljóð-
aði upp á um 173 milljarða króna.
Eftir það var m.a. rætt við Black-
stone, Tata og Orix. Þegar viðræðu-
slitin spurðust út fyrir helgi lækkuðu
hlutabréfin í Close Brothers um 13%
en frá því að Landsbankinn hætti við
hafa bréfin lækkað um 30%, að því
er segir í Hálffimmfréttum.
Close Brothers Group
hættir viðræðum
● BYGGÐASTOFNUN tapaði 179
milljónum króna í rekstri sínum á
síðasta ári, borið saman við 10 millj-
óna króna hagnað árið 2006. Hrein-
ar vaxtatekjur námu 221 milljón
miðað við 38 milljónir árið áður.
Rekstrartekjur námu 376 milljónum
og rekstrargjöld 416 milljónum
króna. Að meðtöldum framlögum í
afskriftarreikning útlána og niður-
færslu hlutafjár upp á 360 milljónir
eru heildarrekstrargjöldin 777 millj-
ónir. Til að styrkja eiginfjárstöðuna
samþykkti Alþingi í lok árs 2007
framlag til stofnunarinnar upp á 1,2
milljarða króna. Eiginfjárhlutfallið
samkvæmt lögum um fjármálafyrir-
tæki er 14,15%. Eignir Byggðastofn-
unar í lok árs námu 12,9 milljörðum,
þar af námu útlán 9,5 milljörðum.
Skuldir námu 10,8 milljörðum og
lækkuðu um 2,5% á milli ára.
Tap Byggðastofnunar
179 milljónir í fyrra
Milljarðamær-
ingurinn Sam
Zell telur að
húsnæðismark-
aður í Banda-
ríkjunum, sem
hefur verið í
dúpri lægð, muni
taka að rétta úr
kútnum í vor.
Vegna verðlækkunar á húsnæði
hafi dregið verulega úr nýbygg-
ingum. Þess vegna fari markaður-
inn að ná jafnvægi á nýjan leik.
Kom þetta fram í viðtali við hann
nýlega á CNBC.
Þegar Zell tjáir sig um húsnæð-
ismarkaðinn er vert að leggja við
hlustir, að mati tímaritsins For-
bes, því hann hafi efnast stórkost-
lega í gegnum tíðina á þeim mark-
aði, með því að kaupa lélegt,
illseljanlegt húsnæði og gera upp.
Blaðið segir marga fjárfesta vera
sammála Zell um að botninum
verði fljótlega náð.
Verð á íbúðarhúsnæði í Banda-
ríkjunum hrundi um 8,9% á fjórða
ársfjórðungi miðað við árið á und-
an og hefur ekki lækkað meira í
áratugi. Þá dróst saman um 33% í
nýbyggingum í janúar miðað við
sama mánuð í fyrra.
Réttir úr
kútnum
í vor?
Sam Zell
KEPPNISLIÐ frá MBA-náminu í
Háskólanum í Reykjavík vann til
bronsverðlauna í alþjóðlegri sam-
keppni í gerð viðskiptaáætlana sem
fram fór í Bangkok á Taílandi um
helgina. Í tilkynningu frá HR kem-
ur fram að yfir 100 af bestu við-
skiptaháskólum heims sendu lið í
keppnina en í janúar sl. var lið MBA
í HR valið eitt af 16 liðum til að fara
til Bangkok í undanúrslit.
Liðið tryggði sér sæti í undan-
úrslitum á föstudag og í úrslitum á
laugardag hafnaði liðið í 3. til 4.
sæti. Viðskiptaháskólinn í Árósum
hampaði gullverðlaunum og í öðru
sæti varð Indian Business School.
Lið Háskólans í Reykjavík lagði
lið frá Bandaríkjunum, Suður-
Kóreu og Taílandi á leið sinni í und-
anúrslit. Viðskiptaáætlun liðs MBA-
nemenda í HR byggir á nýtingu
tækninýjunga sem er þróunarvinna
nemenda í tækni- og verkfræði-
deild Háskólans í Reykjavík og unn-
ið er að í frumkvöðlafyrirtæki inn-
an Klaks, nýsköpunarmiðstöðvar
atvinnulífsins.
Brons til HR í
alþjóðlegri keppni
Brons Keppnisliðið f.v. Karítas Kjartansdóttir, Ragnar B. Pálsson, Sólveig
Lilja Einarsdóttir, Anna Sigríður Arnardóttir og Thomas Skov Jenssen.
Andstaða við yfirtöku
Baugs á Moss Bros
SAMKVÆMT ítarlegum frásögnum
bresku blaðanna um helgina, einkum
Sunday Times og Sunday Tele-
graph, er komin upp andstaða við yf-
irtökutilboð Baugs og tengdra félaga
í verslanakeðjuna Moss Bros.
Tilboðið hljóðaði upp á 40 milljónir
punda, eða 42 pens á hlut, jafnvirði
um 5,2 milljarða króna, og telja aðrir
hluthafar það vera alltof lágt.
Fremst í flokki fer Gee-fjölskyld-
an, sem á 8% hlut í Moss Bros, en
hlutur Baugs og tengdra félaga er
kominn í 29,9%, eða við yfirtöku-
mörk. Einnig er andstaða sögð vera
meðal lífeyrissjóðs og John Hansen,
sem rekur jakkafataleiguna
Greenwoods.
Samkvæmt fréttum bresku blað-
anna gætu þessir hluthafar safnað
kröftum til að bjóða betur en Baug-
ur. Hefur Michael Gee, fv. stjórnandi
hjá Moss Bros, verið í viðræðum við
HSBC bankann um að fjármagna til-
boð í a.m.k. 20 af 29% hlut Unity,
fjárfestingafélags í eigu Baugs og
fleiri aðila. Er tilboðið talið geta orð-
ið 50 pens á hlut.
Sunday Times hefur eftir Michael
Gee að ef áform þeirra ganga ekki
eftir verði farið fram á aukahluthafa-
fund til að skipta um stjórnendur
keðjunnar. Hann telur tilboð Baugs-
manna allt of lágt og sakar Íslend-
ingana um að ætla að yfirtaka fyr-
irtækið fyrir slikk.
„Ég vil gjarnan setja saman tilboð
til að ná bréfum af Baugi og ná völd-
um. Ég tel vel mögulegt að fá hæft
stjórnendateymi til að reka fyrir-
tækið með mun betri árangri,“ segir
Gee við Sunday Times.
Í HNOTSKURN
»Um 150 verslanir undirmerkjum Moss Bros eru
starfræktar í Bretlandi.
»Tvær afkomuviðvaranirhafa verið gefnar út á síð-
ustu mánuðum.
Karlmannsföt Moss Bros á að baki 157 ára sögu, frá því að klæðskeri að
nafni Moses Moss stofnaði sína fyrstu verslun í Covent Garden.
AIRBUS, evrópski flugvélafram-
leiðandinn, náði ásamt bandaríska
fyrirtækinu Northrop Grumman
Corp stórum samningi af keppi-
nautnum Boeing, þ.e. við banda-
ríska herinn um smíði nýrra elds-
neytisflugvéla. Samkvæmt frétt
Wall Street Journal kom þessi nið-
urstaða á óvart þar sem talið var að
herinn myndi semja við Boeing.
Samningurinn snýst um smíði á
179 vélum sem eru af gerðinni Air-
bus A330. Andvirði verksins er um
40 milljarðar dollara, eða um 2.600
milljarðar króna og því um risa-
samning að ræða. Fyrstu vélarnar
verða teknar í notkun árið 2013 og
eiga að leysa af hólmi vélar sem
sumar hverjar hafa verið í þjónustu
bandaríska flughersins í meira en
40 ár. Þetta er þó aðeins fyrsti
áfangi því í dag notar herinn um
500 eldsneytisflugvélar.
Airbus náði
samningi
af Boeing
Flug Airbus náði góðum samningi
við bandaríska flugherinn.