Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 19

Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 19
við að taka 40 ára lán með endur- skoðunarákvæði eftir 5 ár. Það þýðir að verðtryggðu vextirnir eru ekki bundnir nema í þessi fimm ár. Verð- tryggingin er hins vegar þegar búin að tryggja lánveitandanum að hann fái ákveðna raunvexti, sama þó að himinn og jörð hrynji í kringum hann. Eins og Valgerður Sverris- dóttir orðaði það þegar hún var við- skiptaráðherra, þetta er eins og að ganga um með belti og axlabönd.“ Talið berst að gengisbundnum lánum. „Bankarnir hafa varað fólk við að taka gengisbundin lán og bent á að sveiflurnar geti orðið það miklar að greiðslurnar hækki um 20-25%. Í dæminu sem ég nefndi hér að ofan hækkuðu vextirnir hins vegar um 80% og greiðsla af láninu um 55%.“ Ingólfur segir geta verið réttlæt- anlegt að hafa verðtryggð lán á föst- um vöxtum til 40 ára eða þaðan af lengur ef einhver vill lána eða taka lán á slíkum kjörum. „Verðtryggðu lánin hafa þann kost, ef svo má segja, að þegar verð- bólgan fer upp þá leggst hún á höf- uðstólinn og dreifist á allt að 40 ár og því finnur maður ekki ýkja mikið fyr- ir hækkuninni. Óverðtryggðu lánin, líkt og flest erlendu lánanna eru, hafa hins vegar þann kost að eignamyndun er hraðari. Þau eru svo kölluð afborg- analán, ekki jafn- greiðslulán, en ókosturinn er að sveiflur í greiðslum geta verið mikl- ar.“ Hann bætir við að til lengri tíma eigi slíkar sveiflur að jafna sig út. „Menn ættu hins vegar bara að gleyma því að bjóða verðtryggð lán með breytilegum vöxtum, þau eru nánast glæpsamleg í óstöðugu geng- is- og hávaxtalandi eins og á Íslandi líkt og ég tel að eigi eftir að koma skýrt í ljós haustið 2009.“ Ekki tími til fasteignakaupa Eigi þessi myrka spá eftir að ræt- ast segir Ingólfur hugsanlegt að vandamál svipuð þeim sem hafa ver- ið að koma upp í Bandaríkjunum geri vart við sig. „Þar voru menn að taka lán sem voru á lágum vöxtum fyrstu eitt til þrjú árin, en þá hækk- uðu vextirnir og menn sprungu á limminu.“ Í nýlegri grein í bandaríska við- skiptatímaritinu Business Week kemur fram að fasteignaverð í Bandaríkjunum gæti lækkað um allt að 25% til viðbótar áður en botninum er náð og telja ýmsir þarlendir sér- fræðingar að það verði ekki fyrr en árið 2010. Samkvæmt nýlegri könn- un bandaríska seðlabankans hefur ekki reynst erfiðara að fá fast- eignalán vestanhafs í 17 ár, en fyrir ekki svo löngu gat nánast hver sem er fengið lán til fasteignakaupa. Ingólfur segir borga sig að forðast fasteignakaup við núverandi að- stæður. „Útspil ríkisstjórnarinnar í síðustu kjarasamningunum var að fella niður stimpilgjöld af lánum þeirra sem eru að kaupa sér í fyrsta sinn sem er bara fínt, þetta er jú 1,5% af lánsupphæðinni. Ég hef hins vegar alltaf haldið því fram að það væri betra fyrir ungt fólk sem er að byrja sinn búskap að vera í leigu. Fólk er ekkert að kasta peningum sínum á glæ þó það búi í leiguhúsnæði fyrstu 3-5 árin. Með þeim verðtryggðu fasteignalánum sem eru á markaðnum í dag verður eignamyndunin svo hæg að hún er engin fyrstu árin. Þvert á móti má segja að menn séu að tapa peningum þessi fyrstu ár. Það er ekki fyrr en eftir 20 ár, sé maður með 40 ára lán, sem farið er að greiða niður lánið sjálft og fyrst eftir 30 ár ertu kom- inn með hreina eign. Hann bætir við að 40 ára lán sé líka eitt dýrasta lán sem hægt sé að taka og nefnir sem dæmi að mánaðarleg með- alafborgun af 20 milljón króna hús- næðisláni með 5% vöxtum í 3% verð- bólgu til 40 ára sé 173.268 kr. en af 25 ára láni sé hún 184.732 kr. sem er ekki svo mikill munur. Heildar- greiðsla af 25 ára láninu er hins veg- ar 52 milljónir kr. en 89 milljónir kr. af 40 ára láninu „En séu menn komnir í einhver vandræði og greiðslubyrðin orðin of há, þá getur verið ákveðið bjargræði að skuldbreyta bara öllu yfir í verð- tryggt lán til 40 ára. Þannig má nefnilega lækka greiðslubyrðina. En geri maður ekkert annað þá er þetta eins og að pissa í skóinn. Skuldirnar vaxa þá bara jafnt og þétt á nýjan leik. Það eina rétta er að byrja að byggja upp sparnað og þá er ágætis regla að leggja í upphafi hvers mán- aðar 10% af tekjum eftir skatt inn á góðan reikning. Þá á maður eftir 90% af útborguðum tekjum og fæstir finna nokkuð fyrir því hvort þeir eyða 90 eða 100% tekna sinna.“ annaei@mbl.is önd „Margir tóku þessu, enda voru vextirnir ekki nema 4,8%. Í dag eru vextirnir hins vegar orðnir 8,8%. Þeir hafa hækkað um 80%.“ MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 19 FRANKFURT Verð frá 8.800 kr.* STOKKH ÓLMUR Verð frá 8.800 kr.* HELSINKI Verð frá 8 .800 kr.* handa þeim sem vilji læra listina að skrifa glæpasögur. En hann þekki sjálfur enga betri aðferð en þá sem hann valdi; hann fór í sagn- fræði við Háskólann. Fyrirsögn greinarinnar er: „Við Háskóla Ís- lands undirbúa rithöf- undar farsælan glæpa- feril.“ Athyglisvert er að af um 12.500 nemendum H. Í. eru konur nú tveir af hverjum þremur sem gefur okkur vísbend- ingu um að á næstu ára- tugum muni hlutur kvenna aukast í ýmsum stjórn- unarstöðum. En varla gengur það þrautalaust fyrir sig, karlar verja oft hefðbundna yfirburðastöðu sína með kjafti og klóm. Þessi harkalegu viðbrögð kyn- bræðra Víkverja hafa svo þá auka- verkun að stundum verða þær/þeir sem berjast fyrir breytingu á þessum gömlu hefðum að nota öfgafullar að- ferðir og sjást ekki alveg fyrir. En það er runnið upp fyrir Víkverja dagsins að sérréttindi sem karlar náðu með harkalegum aðferðum (t.d. barsmíðum) verða varla rifin af þeim með blíðunni einni saman. Víkverja áskotn-uðust miðar á La Traviata og var stór- hrifinn. Verkið er að sjálfsögðu eitt af helstu meistarastykkjum Ver- dis og gaman að heyra ýmis velþekkt lög sem allir hafa heyrt en vita ekki endilega um upp- runann. Að öðrum ólöstuðum fannst Vík- verja þau Hulda Björk Garðarsdóttir og Tóm- as Tómasson ekki að- eins syngja best heldur einnig sýna mestu leik- hæfileikana og vonar að Tómas verði oftar á fjölunum hér heima. Og í lokaþætt- inum var Hulda svo stórkostleg, inn- lifunin svo mikil að steinhjarta hefði viknað. x x x Víkverji komst nýlega yfir prýði-legt kynningarrit frá Háskóla Íslands og vakti reyndar fyrst athygli hans hversu fagmannlega ritið er unnið, vel skreytt myndum og fyrir- sagnir oft bráðsnjallar. Dæmi: Rætt er stuttlega við Arnald Indriðason rithöfund og sagt frá afrekaferli hans og verðlaunum. Hann minnir á að til séu fjölmargar sjálfshjálparbækur        víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.