Morgunblaðið - 05.03.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ARSENAL SIGRAÐI
FYRST ENSKRA LIÐA TIL AÐ VINNA AC
MILAN Á SAN SIRO Á ÍTALÍU >> ÍÞRÓTTIR
Óþelló, Desdemóna og jagó >> 37
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
FYRSTI viðskiptadagur með bréf
Skipta hf., móðurfélags Símans og
fleiri fjarskiptafyrirtækja, verður 27.
mars nk. Útboð á 30% af hlutafé
Skipta hefst næsta mánudag, 10.
mars, og stendur yfir til 13. mars.
Ekki verður gefið út nýtt hlutafé,
heldur eru 27,8% núverandi heildar-
eign Kaupþings en 2,2% koma frá
stærsta hluthafa Skipta, Exista.
Hver hlutur verður seldur á 6,64-
8,10 kr. Gengið er ekki endanlega
ákveðið en heildarmarkaðsvirði er
skv. þessu 49-60 ma.kr. Lágmarks-
kaup í útboðinu eru fyrir 100.000 kr.
en 25 milljónir kr. fyrir erlenda fjár-
festa. Skráningin eykur vægi fjar-
skiptageirans á íslenskum markaði og
kveðst talsmaður Skipta eiga von á já-
kvæðum viðbrögðum fjárfesta.
Samkvæmt samningnum við ríkið
frá 2005 átti skráningunni að vera lok-
ið fyrir árslok 2007, en fjármálaráð-
herra veitti Skiptum frest til mars-
loka vegna viðræðna við Telekom
Slovenije. Á mánudag varð ljóst að
ekki verður af þeim viðskiptum. | 16
Skráð á
markað
27. mars
Áætlað virði 49-60
milljarðar króna
Í Kauphöllina Nær allt hlutaféð í
útboði Skipta kemur frá Kaupþingi.
ÞRÍR af stærstu lífeyrissjóðum
landsins hafa fest stóran hluta
þess fjár sem þeir verja til fjár-
festingar í skráðum innlendum
hlutabréfum í þremur félögum sem
öll tengjast fyrirtækjum sem eru
að hluta í eigu bræðranna Ágústs
og Lýðs Guðmundssona, þ.e. Ex-
ista, Bakkavör og Kaupþingi.
Samanlagt vægi þessara félaga í
innlendu hlutabréfasafni sjóðanna,
sem eru Gildi, Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7 og Lífeyrissjóður
verslunarmanna, er á bilinu 62-
63% en samanlagt vægi þeirra í úr-
valsvísitölu kauphallarinnar er
44,3%. Exista er, sem kunnugt er,
stærsti hluthafi í bæði Kaupþingi
og Bakkavör en þeir Ágúst og
Lýður fara með töglin og hagld-
irnar í Exista þar sem félag þeirra,
Bakkabræður Holding, fer með
meira en 45% hlut.
Meira en í úrvalsvísitölu
Samkvæmt hlutahafalistum frá
21. febrúar voru 42-45% innlendr-
ar hlutabréfaeignar sjóðanna
þriggja bundin í Kaupþingi, sem
vegur ríflega 32% í úrvalsvísitöl-
unni, og 12-14% bundin í Bakka-
vör, sem vegur um 5% í úrvals-
vísitölunni. Vægi Exista í safni
Gildis var lítillega yfir vægi í vísi-
tölunni en undir því í söfnum
hinna sjóðanna tveggja. Þess má
geta að gengisþróun Exista og
Bakkavarar á hlutabréfamarkaði
hefur verið afar óhagstæð það
sem af er ári og eru félögin meðal
þeirra fjögurra sem lækkað hafa
mest á árinu.
Fjárfesta aðallega í Kaup-
þingi, Exista og Bakkavör
Hafa mikið vægi í innlendu hlutabréfasafni þriggja af stærstu lífeyrissjóðunum
!
MIKIL rigning eða slydda var
víða um land í gær en dálítil snjó-
koma norðaustan til. Veðurstofan
spáði norðan- og norðaustanvindi
með éljagangi um norðanvert
landið seint í nótt, en í dag á að
draga úr vindi og ofankomu. Gert
er ráð fyrir að það þykkni upp í
kvöld og frysti víða á landinu.
Í Vestmannaeyjum var úrhelli í
gær og mikið vatn á götum, en
lögreglan hafði ekki fengið nein-
ar tilkynningar um að það flæddi
inn í hús. Sömu sögu var að segja í
Vík í Mýrdal. Þar var unnið hörð-
um höndum að því að ryðja götur
og sjá til þess að vatnsflaumurinn
kæmist í niðurföllin. Í Reykjavík
rigndi sem víða annars staðar en
skokkarar létu það ekki á sig fá
frekar en fyrri daginn.Morgunblaðið/Frikki
Hlaupið
sem fyrr
Umhleypingar og mikil úrkoma víða um land áður en frystir á ný
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SALA á bílum og sólarlandaferð-
um hefur sjaldan gengið betur þrátt
fyrir tal um niðursveiflu í efnahags-
lífinu, lánsfjárkreppu og lækkandi
verð hlutabréfa. Haraldur Þór Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri Toyota í
Kópavogi, segir að sviptingar í fjár-
málalífi þjóðarinnar breyti litlu fyrir
stærstan hluta almennings. Hann
gerir því ráð fyrir að áfram verði góð
sala í bifreiðum.
„Almenningur er ekki að upplifa á
eigin skinni þá kreppu sem blöðin
eru að fjalla um. Þorri almennings er
ekki í hlutabréfakaupum og gengis-
áhættupælingum. Sala í bílum, fjór-
hjólum og vélsleðum er því góð og ég
sé ekki nein merki um að það sé að
breytast,“ segir Haraldur.
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins
jókst sala á fólksbílum um 43%. Sala
á utanlandsferðum hefur einnig ver-
ið mjög góð. „Við erum með tvær vél-
ar á Tenerife og tvær vélar á Las
Palmas í hverri einustu viku og það
er uppselt í þær allar langt fram á
vorið. Það er ekkert lát á sölu fyrir
sumarið,“ segir Guðrún Sigurgeirs-
dóttir, markaðsstjóri hjá Úrvali-Út-
sýn.
Skuldir heimilanna
jukust um 38% á einu ári
Einkaneysla dróst saman á fyrsta
ársfjórðungi síðasta árs, en það var í
fyrsta skipti í fimm ár sem Hagstof-
an mældi samdrátt í einkaneyslu.
Þessi samdráttur reyndist hins veg-
ar aðeins vera tímabundinn því að
einkaneysla hefur aukist hröðum
skrefum síðan. Samkvæmt tölum
Seðlabankans jókst greiðslukorta-
velta einstaklinga í janúar um 7,5%
að raungildi frá sama mánuði í fyrra.
Þetta er þó aðeins minni vöxtur en á
fjórða ársfjórðungi í fyrra þegar
greiðslukortavelta jókst um 11,5%.
Aukin einkaneysla er að nokkru
leyti knúin áfram af lántökum.
Heimilin skulduðu í lok janúar sl.
tæplega 868 milljarða króna sem er
aukning um 38% á einu ári. Erlendar
skuldir heimilanna jukust þó miklu
hraðar eða um 119%.
Sala á bílum og utanlandsferðum
sjaldan meiri þrátt fyrir niðursveiflu
Í HNOTSKURN
» Ársvöxtur dagvöruveltuvar 12,5% í janúar og
greiðslukortavelta jókst um
7,5% að raungildi í janúar í
samanburði við janúar 2007,
samkvæmt Hagvísum Seðla-
bankans.
» Flest bendir til að einka-neysla á árinu 2007 hafi ver-
ið meiri en árið 2006, en í jan-
úar sl. höfðu skuldir heimilanna
aukist um 38% á einu ári. Almenningur | Miðopna