Morgunblaðið - 05.03.2008, Qupperneq 8
Smökkun Rúnar Marvinsson, kokkur í Vinakaffi,
bragðar á soðinu sem hann setur í fiskisúpuna.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
MATUR og menning verður samtvinnað í starf-
semi veitingahúss sem opnað verður á morgun,
fimmtudag, í Borgarnesi. Staðurinn hefur fengið
nafnið Vinakaffi/Café des Amis, sem vísar í þá
stemningu sem ætlunin er að skapa í félagsskap
náttúrunnar við Hrafnaklettana en þar hefur hús-
inu verið fundinn staður. Það er hinn landsþekkti
kokkur Rúnar Marvinsson sem hefur veg og
vanda af matseðlinum en umgjörðin, húsið sjálft,
er ekki síður þekkt. Það hét áður Nauthóll og var
við Nauthólsvík í Reykjavík. Húsið var fyrir
nokkru flutt í Borgarfjörðinn og hefur nú gengið í
endurnýjun lífdaga og fengið nýtt nafn. „Kaffi-
húsamenningin lagði sem sagt af stað til Borg-
arness fyrir meira en ári,“ segir Páll Björg-
vinsson, arkitekt og annar eigandi Sólorku ehf. og
Borgarvogs ehf. sem rekur Vinakaffi. Hann segir
eftirspurn eftir veitingastað með útsýni á Borg-
arfjörðinn og á ekki von á öðru en að ferðalangar,
sumarbústaðaeigendur sem og heimamenn eigi
eftir að kunna að meta þessa nýjung. Þá á hann
von á því að háskólanemar og menntskælingar
taki Vinakaffi fagnandi.
Matur og menning
Í Vinakaffi er nefnilega ekki aðeins stefnt að því
að bjóða upp á kaffi og metnaðarfulla matreiðslu
heldur einnig menningu af ýmsu tagi. Þannig er
ætlunin að staðurinn tengist gamla Mjólk-
ursamlaginu hvað varðar listviðburði og sýningar
og eru eigendur Vinakaffis nú að leita að lista-
mönnum, þekktum sem óþekktum, er vilja troða
upp, hvort heldur sem er í Vinakaffi sjálfu eða
Mjólkursamlaginu. Einnig er nú leitað að starfs-
fólki á veitingastaðinn sjálfan.
Matseðill Vinakaffis er enn í þróun en Rúnar
segir að boðið verði m.a. upp á gæðakaffi, girni-
legar hnallþórur og gómsæta smárétti. Þá verði
fiskisúpa á boðstólum og var hann einmitt að gera
soðið í súpuna er Morgunblaðið ræddi við hann í
gær. Þá segir Rúnar að einnig verði boðið upp á
fleiri fiskrétti sem og kjötrétti og er framtíð-
arsýnin m.a. sú að nýta sem mest af þeim afurðum
sem verða til í gróskumiklum landbúnaði Borg-
arfjarðarins. Og af nógu er að taka í þeim efnum.
„Hérna er hægt að finna allan fjandann,“ segir
hann. „Hér er bæði nautagripa-, fjár- og geitabú-
skapur og nóg af fersku grænmeti og sjávarfangi.
Svo er líklegt að hér sé að finna villtan gróður sem
ég hef líka áhuga á að nota í matargerðina.“
Húsnæðið hefur verið stækkað um helming eft-
ir flutninginn í Borgarnes. Búið er að byggja stórt
eldhús með aðstöðu fyrir starfsmenn og lag-
erplássi. Enfremur var byggður við húsið 30
manna funda- og veislusalur ásamt stórri verönd
allt í kringum húsið. En hugmyndin er engu að
síður sú að halda í þann góða anda sem útivist-
ardýrkendur nutu yfir kaffibollunum í Nauthóls-
víkinni.
Kið og leyndarmál
„Það er enn þá torf á þakinu og við fengum
reyndar þá hugmynd að ala þar kiðlinga sum-
arlangt og slátra að hausti,“ segir Rúnar á léttu
nótunum. „En svona í alvöru talað, þetta hús er
mjög hlýlegt og ég ætla mér að reyna að halda í
það.“
Rúnar er fluttur í Borgarnes til að sinna þessu
nýja verkefni. Þar verður hann a.m.k. næstu tvo
mánuðina. „En ef mér líkar vel, sem ég á nú frek-
ar von á, þá kem ég til með að vera hér áfram því
héðan er svo stutt á Snæfellsnesið. Og ég er með
hausinn fullan af hugmyndum um framtíðina.“
Spurður hverjar þær séu hvíslar Rúnar og hlær:
„Það er leyndó, algjört leyndó.“
Hann vill ekki segja meira en að sé matargerð
sýnd alúð þá náist árangur og aðrir hrífist með.
„Það er ekkert flóknara en það.“
Vinakaffi drukkið við fjörðinn
Ljósmynd/Páll Björgvinsson
Útsýni Vinakaffi er við Hrafnaklett í Borgarnesi og þaðan er gott útsýni og mikil náttúrufegurð.
Dreymir um að nýta afurðir
héraðsins við matreiðsluna
8 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DAGANA 7.-10. mars stendur
Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun,
sem er einn af árvissum viðburðum
félagsins. Landsmenn eru hvattir
til þess að taka þátt í garðfugla-
skoðuninni, sérstaklega þeir sem
fóðra fugla í görðum sínum. Þeir Ís-
lendingar sem gefa fuglum að vetri
til teljast örugglega í þúsundum.
„Markmið garðfuglaskoðunar er
að fá sem flesta til að skoða fugla í
görðum sínum og vekja áhuga á
fuglaskoðun og hversu auðvelt er
að stunda hana, fá fólk til að fóðra
fugla, vekja áhuga á fuglum og
töfrum þeirra,“ segir í tilkynningu.
Um framkvæmd athugunarinnar
má lesa á heimasíðunni fuglavernd-
.is og þar er einnig að finna eyðu-
blöð til að skrá niðurstöðurnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fuglaskoðun
EFNT verður til útifundar á Lækj-
artorgi í hádeginu í dag, miðviku-
dag, til að mótmæla blóðbaðinu á
Gazaströnd. Yfirskrift fundarins er
„stöðvum fjöldamorðin og rjúfum
umsátrið um Gaza“.
Ræðumenn verða Katrín Fjeld-
sted læknir og Ögmundur Jónasson
alþingismaður. Fundarstjóri er
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður
Félagsins Ísland-Palestína.
Útifundur
vegna Gaza
MÁLÞING um tungutækni og hug-
búnaðarþýðingar á vegum Ís-
lenskrar málnefndar og Tungu-
tækniseturs verður haldið í
Háskólanum í Reykjavík, stofu
231b, föstudaginn 7. mars kl. 14-17.
Frummælendur verða Sigrún
Helgadóttir, formaður orðanefndar
Skýrslutæknifélagsins, Eiríkur
Rögnvaldsson, stjórnarformaður
Tungutækniseturs, Trod Troste-
rud, Háskólanum í Tromsö, Hjálm-
ar Gíslason, Símanum, Halldór
Jörgenson, Microsoft Íslandi og
Bogi Arnar Emilsson, Skjali þýð-
ingarstofu. Fundarstjóri verður
Hrafn Loftsson, stjórnarmaður í
Tungutæknisetri.
Stuttar fyrirspurnir verða að
loknu hverju erindi en í lokin verða
almennar umræður.
Málþing um málið
VILHJÁLMUR
Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálf-
stæðisflokks í
borgarstjórn,
vék að því í ræðu
sinni í gær að
hann hefði beðið
innri endurskoð-
endur borg-
arinnar að fara
yfir samskipti
borgaryfirvalda og Knattspyrnu-
sambands Íslands vegna fram-
kvæmda í Laugardal. Sagði Vil-
hjálmur að ef kröfur KSÍ væru
réttar hefði kostnaður borgarinnar
vegna framkvæmdanna aukist um
80-90% frá kostnaðaráætlun. Vil-
hjálmur sagði svör endurskoðenda
verða lögð fram á borgarráðsfundi
á morgun og að allt yrði lagt á
borðið, þ.m.t. fundargerðir bygg-
inganefndar. Var framtaki oddvit-
ans fagnað.
Óraunhæfar
kröfur KSÍ?
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
STUTT
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
MEIRIHLUTI F-lista og Sjálf-
stæðisflokks lagði fram breyting-
artillögur við frumvarp að þriggja
ára áætlun um rekstur, fram-
kvæmdir og fjármál Reykjavíkur-
borgar í gærdag. Að því er fram
kom í framsöguerindi Ólafs F.
Magnússonar borgarstjóra hefur
slíkt ekki gerst áður milli um-
ræðna um áætlunina. Breytingarn-
ar gera ráð fyrir aukinni áherslu á
skóla- og velferðarmál en ekki var
hljómgrunnur fyrir öllum hug-
myndum meirihlutans.
Hvað helst skar í augu borg-
arfulltrúa minnihlutans hugmyndir
um að teknar yrðu upp greiðslur
til þeirra foreldra sem biðu eftir
niðurgreiddum leikskólaplássum.
Ekki komu borgarfulltrúar sér
saman um hvort kalla ætti greiðsl-
urnar þjónustugjöld eða heim-
greiðslu en Degi B. Eggertssyni,
oddvita Samfylkingarinnar, fannst
við hæfi að þær væru greiddar
undir kjörorðinu „konurnar heim“.
Dagur gagnrýndi einnig hugmynd-
ina á þeim forsendum að hún gerði
ekkert til að stytta biðlista – líkt
og borgarstjóri boðaði. „Foreldrar
ungra barna árið 2008 eru ekki að
bíða eftir skaðabótum, heldur
þjónustu. Þau eru að bíða eftir
þjónustu leikskóla eða dagmæðra.“
Dagur sagði óviðunandi að börn-
um í Reykjavík fjölgaði meira en
leikskólaplássum og kallaði eftir
örari uppbyggingu leikskóla.
Borgarstjóri taldi fráleitt að
verið væri að kalla konurnar heim
á heimilin en taldi greiðslurnar
koma foreldrum vel við að kaupa
aðra þjónustu. Nýir leikskólar
yrðu byggðir í takt við aðra upp-
byggingu, s.s. í nýjum hverfum og
með viðbyggingum við eldri skóla.
„Kvennagildra“ borgarstjóra
Á blaðamannafundi fyrir borg-
arstjórnarfundinn var Ólafur F.
spurður hversu háar greiðslurnar
yrðu en fátt var um svör. Sagt var
að nokkrar tölur væru í um-
ræðunni en alla vega væri um að
ræða upphæð sem skipti verulegu
máli; tugi þúsunda króna. Um
1.200 börn eru á biðlistum eftir
plássi á leikskóla.
Í innblásinni ræðu sinni tók
Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG,
í svipaðan streng og Dagur hvað
varðaði heimgreiðslurnar. „Ég
nefni heimgreiðslu til foreldra
meðan beðið er eftir leikskóla-
plássi […] fyrirheit um stærsta
skref aftur á bak í kvenfrelsismál-
um sem við höfum séð í sögu borg-
arstjórnar.“ Svandís sagði femín-
ista í öllum flokkum geta
sammælst um það og kallaði
greiðslurnar ekkert annað en
kvennagildru.
Borgarstjóri vék einnig að
íþróttamálum í ræðu sinni og sagði
m.a. að borgarfulltrúar hefðu gefið
íþróttafélögum fyrirheit án þess að
bera þau fyrst undir borgarstjórn.
Sagðist hann vilja koma á styrkri
peningastjórn. „Ég hef væntingar
um að geta lagt fram tillögur í
borgarráði að fjármálareglum fyr-
ir borgina innan skamms.“
Jafnframt sagði hann að áform
um t.d. þrjár stúkur austan Elliða-
áa gætu ekki verið forgangsverk-
efni. „Borgarstjóri hefur fullan
skilning á ríkri þörf íþróttafélag-
anna fyrir velli og aðstöðu í sínum
hverfum. Ég hef hins vegar talið
að tækifæri hljóti að vera til sam-
nýtingar fleiri íþróttafélaga á
keppnisvöllum með fullbúnar stúk-
ur. Þess vegna hef ég falið emb-
ættismönnum að ræða við forystu-
menn í íþróttafélögum um hvernig
sé skynsamlegt að byggja upp
íþróttamannvirki til lengri fram-
tíðar þar sem hagkvæmni verður
gætt.“
Hann áréttaði að framlög til
starfsemi íþróttafélaga eru aukin í
áætluninni, auk þess sem frí-
stundakort muni hækka úr 25 þús-
und krónum í 40 þúsund krónur í
ársbyrjun 2009.
Aukin aðkoma einkaaðila
Grunnskólamál voru einnig til
umræðu á blaðamannafundi með
borgarstjóra. Þar sagði hann að
meirihlutinn vildi auka fjölbreytni
og framboð á þjónustu grunnskól-
ans. Áður hafa verið nefndar fimm
ára deildir en einnig verður skoð-
uð aukin aðkoma einkaaðila þar
sem reynslan af samstarfi borg-
arinnar við einkarekna grunn- og
leikskóla hefur verið afar góð.
Ólafur minntist ennfremur á
málefnasamning meirihlutans og
sagði ljóst að meira hefði verið
gert á fyrstu 40 starfsdögunum en
100 daga meirihlutinn hefði áork-
að. Þá lagði hann áherslu á að
meirihlutinn yrði dæmdur af verk-
um sínum og sagði fimmtán af
sautján áhersluatriðum málefna-
samningsins annaðhvort hafa verið
efnd eða komin í ákveðið ferli.
Heimgreiðslur til foreldra
eða „konurnar heim“
Í HNOTSKURN
»Um 1,6 milljarða króna sér-stöku viðbótarframlagi verð-
ur varið til heimaþjónustu, húsa-
leigubóta, sérskóla og sérdeilda.
»Framlög til rekstrar grunn-skóla eru 3,3 milljörðum
hærri en í fyrri áætlun.
»Framlög til rekstrar íþrótta-og tómstundamála eru 2
milljörðum hærri en í fyrri
þriggja ára áætlun.
»Framlög til velferðarmálaeru 1,6 milljörðun hærri en í
fyrri áætlun.