Morgunblaðið - 05.03.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 9
LÍFSHLAUPI Íþrótta- og ólympíusambands Ís-
lands var hleypt af stokkunum í gærmorgun en
Lífshlaupið er hvatningar- og átaksverkefni sem
miðar að því að hvetja alla landsmenn til að
hreyfa sig meira og auka líkamsrækt.
Lífshlaupið hófst í Álftamýrarskóla í Reykja-
vík í morgun að viðstöddum skólabörnum sem
skemmtu sér hið besta þegar Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
reyndu með sér í dekkjahlaupi og hefðbundnu
sippi. Þorgerður vann.
Að sögn Ólafs Rafnssonar, forseta ÍSÍ, er fyr-
irmynd verkefnisins að hluta til hið vel þekkta
hreyfingarátak undir yfirskriftinni Hjólað í
vinnuna.
„Við viljum nota stjórnskipulag okkar til að fá
allan almenning til að taka þátt í hollri hreyfingu
og flétta við hana góðlátlega keppni sem fram
fer á netinu en þar fer fram skráning á tíma-
fjölda og iðkun,“ segir Ólafur.
Samstarfsaðilar ÍSI í Lífshlaupinu eru, auk
heilbrigðis- og menntamálaráðuneytis, Lýð-
heilsustöð, Skýrr, Ávaxtabíllinn og Rás 2.
Lífshlaupinu, hvatningar- og átaksverkefni ÍSÍ, hleypt af stokkunum í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Ráðherrarnir kepptu í dekkjahlaupi
SKILJANLEGT er að landeigend-
um við neðri hluta Þjórsár, þar
sem áform eru uppi um að reisa
þrjár virkjanir, finnist ganga hægt
í samningavið-
ræðum við
Landsvirkjun.
Þetta segir Þor-
steinn Hilmars-
son, upplýsinga-
fulltrúi Lands-
virkjunar. Í
Morgunblaðinu
á dögunum
sagði Renate
Hanneman,
landeigandi á
Herríðarhóli í Ásahreppi, að eng-
inn gangur væri í samningavið-
ræðum við landeigendur á svæð-
inu.
Herríðarhóll kæmi til með að
missa 70-80 hektara land og rætt
hefur verið um að byggja varn-
argarð til að koma í veg fyrir það.
Þrátt fyrir að því hafi verið lofað á
fundi í febrúar í fyrra að íbúar
fengju gögn um slíkan garð hefðu
þau enn ekki borist.
Þorsteinn segir að við hönnun-
arvinnu vegna Urriðafossvirkjun-
ar, sem er neðst virkjananna
þriggja, hafi verið leitast við að
minnka lónið verulega. Næst stífl-
unni hafi verið gert ráð fyrir að
hæð lónsins yrði um fimm metrar,
en nú hafi verið ákveðið að hún
verði fjórir metrar. „Við það
minnkar lónið úr tólf ferkílómetr-
um í níu,“ segir Þorsteinn.
Vitað að lónið
færi inn á láglendi
Hann segir að við Herríðarhól
hafi verið vitað að lónið færi þar
inn á láglendi ef ekkert yrði að
gert. Þorsteinn segir að meðan
verið sé að ganga frá endanlegri
hönnun virkjunarinnar muni
ákveðin óvissa ríkja, t.d. um varn-
argarð sem kunni að verða reistur,
eða aðrar lausnir. Hann hyggi að
reynt hafi verið að útskýra þessa
stöðu fyrir landeigendum.
Þorsteinn segir að málefni Urr-
iðafossvirkjunar hafi líka tekið
langan tíma hvað varðar skipu-
lagsmál hjá Flóahreppi. „Vatns-
réttindi í þessari virkjun eru að
litlum hluta í einkaeigu þar en
ekki bara í eigu ríkisins sem aftur
á við um efri virkjanirnar í neðri
hluta Þjórsár [Holta- og Hvamms-
virkjun]. Þar eru vatnsréttindin að
fullu í eigu ríkisins,“ segir Þor-
steinn. Lausn þessara atriða hafi
gert að verkum að málin hafi
dregist á langinn.
Þorsteinn segir að unnið sé að
því að leysa málin. En það að ver-
ið sé að minnka lónið og lækka
vatnsborðið geri að verkum að
auðveldara ætti að reynast að
bjarga því landi sem um ræðir á
Herríðarhóli frá því að fara undir
vatn. Málin séu hins vegar komin
lengra hvað varðar virkjanir ofar í
ánni. Verði virkjanirnar ekki
byggðar allar í einu megi vænta
þess að sú efsta verði byggð fyrst
og Urriðafossvirkjun síðast. „Eðli-
lega hefur frágangurinn fikrast
niður eftir ánni og þessi landeig-
andi er við neðsta hlutann á þessu
svæði.“
Skilur að landeigend-
um finnist hægt ganga
Ár síðan íbúum var lofað gögnum um mögulegan varnargarð
Í HNOTSKURN
»Renate Hanneman, landeig-andi á Herríðarhóli í Ása-
hreppi, sagði nýlega að enginn
gangur væri í samninga-
viðræðum við landeigendur á
svæðinu.
»Þorsteinn Hilmarsson, upp-lýsingafulltrúi Landsvirkj-
unar, segir að unnið sé að því að
leysa málin.
»Næst stíflunni var í upphafigert ráð fyrir að hæð lónsins
yrði um fimm metrar, en nú hef-
ur verið ákveðið að hún verði
fjórir metrar.
Þorsteinn
Hilmarsson
'
)!*
<
+!
,
" )
)&
4
%1 4.
&1 >
.
30&
, %
< 94?@@>?
AB96
4?@@>?
CD96EF
F8(@7?G96
4?@@>?
?98F<?HC8FIJ?9
- ,-
!
.
-! "
-%. /
ÁKVEÐNAR tegundir tóbaks
hækkuðu í verði um mán-
aðamótin, en almennt hefur tóbak
hækkað um 2-3
prósent frá ára-
mótum, að sögn
Sigrúnar Óskar
Sigurðardóttur,
aðstoðarfor-
stjóra Áfengis-
og tóbaksversl-
unar ríkisins,
ÁTVR. Hún
segir að sumar
tegundir hafi
hækkað í jan-
úar, aðrar í febrúar og enn aðrar
nú í mars.
Sigrún Ósk segir að ÁTVR
kaupi tóbak á verði sem birgjar
ákveði. ÁTVR leggur síðan lög-
bundinn skatt á tóbakið. Skattur
er á hinn bóginn lagður á áfengi
við innflutning.
Sigrún Ósk segir að birgjar
geti breytt verði áfengis mán-
aðarlega.
Hún segir að nokkrar hækk-
anir hafi orðið á áfengi í febrúar,
en þá hækkaði verð þess um 1,15
prósent miðað við sölu síðustu
tólf mánaða. 1. mars síðastliðinn
breyttist verðið um 0,66 prósent
miðað við sömu forsendur.
Tóbak hef-
ur hækkað
um 2-3%
Sigrún Ósk
Sigurðardóttir
Breyta má áfengis-
verði mánaðarlega
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Nir kjlar frÆ TUZZI
! "#$
%
&$ "#
! "
#
# # $ % & '
# (#
( ''
)( *+'
$ ' ,-%
& " . %/
"
! "#$
' ( )
$ * * +** ) "!*
,-
." / !
#* 0!1! AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111