Morgunblaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 11
ALÞINGI
NIKÓTÍNLYF gætu verið til sölu í næstu
sjoppu og hægt verður að fá lyf send í pósti ef
nýtt frumvarp heilbrigðisráðherra verður að
lögum en það var lagt fram á Alþingi í gær.
Frumvarpinu er ætlað að efla samkeppni á
lyfjamarkaði og auka þjónustu við neytendur
en einnig er gert ráð fyrir því að verð á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum verði það sama um allt
land. Lyfjaheildsalar, lyfjaramleiðendur og
umboðsmenn þeirra eða smásöluaðilar munu
því ekki veita afslátt á slíkum lyfjum heldur
aðeins tilkynnt lægra verð sem verður birt í
lyfjaverðskrá. „Afslættir lyfjabúða eins og
þeir birtast sjúklingum í dag mismuna þeim
eftir búsetu, enda eru þeir flóknir og
ógagnsæir og hvetja ekki til notkunar ódýrra
lyfja,“ segir í greinargerð með frumvarpinu
og tekið er fram að afslættir með núverandi
fyrirkomulagi virki sem inngönguhindrun
fyrir nýja aðila og auki enn frekar á fákeppni.
Með breytingunni sé komið í veg fyrir mis-
munun eftir búsetu.
Nikótínlyf í sjoppum og
sama lyfjaverð um allt land
Morgunblaðið/Kristinn
Allt eins Sama verð verður um allt land en það dregur úr fákeppni.
MENN gjaldfella eigin sér-
fræðiþekkingu ef þeir taka bæði
að sér að hanna mannvirki og
meta hönnunina sem slíka. Þetta
sagði Álfheiður Ingadóttir, þing-
maður Vinstri grænna, í um-
ræðum um þingsályktunartillögu
fjögurra þingmanna VG um að
ríkisstjórnin láti vinna óháð
áhættumat vegna fyrirhugaðra
virkjana í Þjórsá en Ragnheiður
Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki,
taldi vegið að starfsheiðri starfs-
manna Landsvirkjunar með til-
lögunni.
Lagt er til að skipaður verði
hópur sérfræðinga á sviði jarðvís-
inda, mannvirkjagerðar, áhættu-
mats og veiðimála og sérstaklega
áskilið að enginn þeirra hafi áður
unnið að áhættumati vegna þess-
ara sömu virkjana, hönnun mann-
virkja Landsvirkjunar eða eigi að
öðru leyti hagsmuna að gæta
vegna framkvæmdanna. „Þarna
finnst mér verið að gefa í skyn að
starfsmenn Landsvirkjunar eigi
einhverra annarlegra hagsmuna
að gæta sem komi í veg fyrir að
þeir geti unnið faglegt hættu-
mat,“ sagði Ragnheiður.
Álfheiður var hins vegar á
öðru máli og sagði ekki vegið að
starfsheiðri manna með því að
gera kröfu til þess að þeir sem
meti það hvort mannvirki stand-
ist tiltekna raun séu óháðir. Mat
á eigin verkum verði alltaf
ómarktækt.
Álfheiður
Ingadóttir
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
Vegið að starfsheiðri?
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
BYGGING nýs álvers gæti haft mik-
il áhrif og blásið lífi í þær glæður sem
nú virðast vera að kólna hratt í ís-
lensku atvinnulífi. Þetta kom fram í
máli Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra í utandagskrárumræðum um
efnahags-, atvinnu- og kjaramál á
Alþingi í gær. Guðni Ágústsson, for-
maður Framsóknarflokksins, tók
undir með Geir og sagði að það kynni
að draga svo skarpt saman að mik-
ilvægt gæti verið að flýta fram-
kvæmdum á þessu kjörtímabili.
Grétar Mar Jónsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, var einnig
fylgjandi framkvæmdum en öðru
máli gegndi um málshefjandann og
formann Vinstri grænna, Steingrím-
ur J. Sigfússon. Hann furðaði sig á
því að menn virtust ekki ætla að
stunda hóflega sjálfsgagnrýni og
læra af mistökunum. „Þess vegna er
það ekki sérstakt fagnaðarefni að
hæstvirtur forsætisráðherra virðist
enn vera við sama heygarðshornið
og trúa á það að álver geti orðið
lausn allra okkar vandamála,“ sagði
Steingrímur og gagnrýndi Geir einn-
ig fyrir að ræða í þessu efni sína eig-
in persónulegu skoðun en ekki
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Heimatilbúinn vandi
Steingrímur sagði vandann sem
nú steðjaði að þjóðarbúskapnum
vera að yfirgnæfandi meirihluta
heimatilbúinn. Seðlabankinn hefði
verið eini aðilinn sem reyndi sitt til
að halda aftur af þenslu, vaxandi
verðbólgu og viðskiptahalla með því
að keyra stýrivextina upp. „Mér
finnst það undarlegt að enn skuli
staðan vera sú að engar viðræður
séu í gangi milli ríkisstjórnar og
Seðlabanka og engar ákvarðanir hafi
verið teknar um að þær hefjist,“
sagði Steingrímur og var ósáttur við
efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Á hans valdatíma hefðu erlendar
skuldir þjóðarbúsins farið úr því að
vera um þriðjungur af landsfram-
leiðslu og upp í að vera tvöföld lands-
framleiðslan. Allt síðasta kjörtímabil
hefðu stjórnvöld „dælt olíu á verð-
bólgubálið“. Verðbólgan væri því nú
á bilinu 6-8%, erlendar skuldir orðn-
ar 210-220% af vergri landsfram-
leiðslu og skuldir heimilanna svo
miklar að það tæki þau tvö og hálft
ár að borga þær upp þó að fólk byggi
í tjaldi á meðan og lifði á loftinu.
„Enn sem komið er virðist ríkis-
stjórnin föst í afneitunarhjólförum
undangenginna ára og hefðbundnum
leik að kenna bara einhverju öðru
um,“ sagði Steingrímur og nefndi
Seðlabankann, stórmarkaðina,
tryggingafélögin, olíufélögin og
bankana. Aldrei væri við ríkisstjórn-
ina sjálfa eða stóriðjustefnuna að
sakast. „Og nú síðast er þetta orðinn
ímyndarvandi,“ sagði Steingrímur
og gaf lítið fyrir hugmyndir um
ímyndarherferð í útlöndum.
Frjálsar fjármálastofnanir
Geir H. Haarde sagði hins vegar
mikilvægt að koma á framfæri rétt-
um upplýsingum um efnahagsmál á
Íslandi enda væri ástandið allt annað
en oft er gefið til kynna í erlendum
blöðum. Benti hann á að stærstu
skuldir þjóðarbúsins væru skuldir
fjármálastofnana sem nú væru
frjálsar og vakti einnig athygli á því
að nýtilkomnir kjarasamningar
hefðu eytt óvissu og kæmu til með að
stuðla að auknum jöfnuði og jafn-
vægi í efnahagsmálum.
Geir sagði jafnframt að það hefði
verið vitað að hægjast myndi á í
efnahagslífinu þegar stórfram-
kvæmdum við Kárahnjúkavirkjun
og álver á Austurlandi lyki. „En nú
er þetta að gerast samtímis. Það er
að hægja á vegna þess að það tímabil
er frá en líka vegna þess að bank-
arnir eru byrjaðir að grípa í taumana
vegna ytri aðstæðna,“ sagði Geir og
vísaði til umróts á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum og skorts á lánsfé.
Þá þyrfti ráð til að bregðast við.
Ríkisstjórnin hefði þegar ákveðið
mikla aukningu á framkvæmdum
sem kæmu nú til góða, t.d. í sam-
bandi við samgöngur en næsta spur-
ing væri hvort meira þyrfti til. „Og
þar er það sem framkvæmdir á borð
við nýtt álver geta skipt miklu máli,“
sagði Geir.
Blæs lífi í glæðurnar?
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Frjálslyndra og Framsóknar hlynntir álversfram-
kvæmdum VG á móti en ekkert kom fram hjá Samfylkingu í umræðum í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Eniga meniga Steingrímur J. Sigfússon sagði Illuga Gunnarsson og Bjarna Benediktsson hafa raunsærra mat á
stöðu efnahagsmála en forsætisráðherra en tvímenningarnir hafa ekki legið á skoðunum sínum.
Ekki sama hvað er
Allsherjarnefnd hefur nægan tíma til
að fjalla um það ef bæta á kjör ráða-
manna en eigi að færa kjör þeirra
nær því sem ger-
ist meðal lands-
manna gefst ekki
tími, sagði Val-
gerður Bjarna-
dóttir, Samfylk-
ingu, í umræðum
um störf þingsins
á Alþingi í gær.
Hún var ósátt við
að frumvarp
hennar um breyt-
ingar á lögum um lífeyriskjör Alþing-
ismanna, ráðherra og hæstarétt-
ardómara hafði ekki verið afgreitt en
það var lagt fram 31. október sl.
Birgir Ármannsson, formaður alls-
herjarnefndar, sagði málið hafa verið
sent út til umsagnar en ekki tekið fyr-
ir síðan. Venjan væri að stjórn-
arfrumvörp gengju fyrir í þing-
nefndum og eftir atvikum frumvörp
frá forsætisnefnd eða formönnum
þingflokka.
Innan mánaðar
Helgi Hjörvar tók undir með Valgerði
og rifjaði upp hversu greiðlega gekk
að afgreiða frum-
varp sem bætti
lífeyriskjör ráða-
mannanna árið
2003. Mælt hefði
verið fyrir þeim í
desember og þau
afgreidd í sama
mánuði. „Það
sýnir svo að ekki
verður um villst
að þetta mál hef-
ur ekki sömu áherslu í umfjöllun
þingsins og eftirlaunafrumvarpið á
sínum tíma,“ sagði Helgi og Jón
Magnússon, Frjálslyndum, var á
sama máli og var einnig andvígur
þeirri venju að setja ráðherra-
frumvörp í forgang. Mál ættu að vera
tölusett og tekin fyrir í réttri röð.
Hermengun
Steinunn Þóra Árnadóttir, VG, mælti
fyrir tveimur frumvörpum á Alþingi í
gær sem fjalla um heræfingar á Ís-
landi. Í öðru þeirra er gert ráð fyrir því
að nýting lands til heræfinga sé háð
framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar að
fenginni umsögn svæðisskipulags-
nefndar. Hitt frumvarpið kveður á um
að heræfingar séu teknar inn í mynd-
ina þegar kemur að umhverfismati. Í
greinargerð segir að slíkar æfingar
geti haft mikil og neikvæð umhverfis-
áhrif enda fylgi þeim oft mikil meng-
un.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 13:30 í dag og
á dagskrá eru 22 fyrirspurnir auk ut-
andagskrárumræðu um einkavæð-
ingu Iðnskólans.
Valgerður
Bjarnadóttir
Helgi Hjörvar
ÞETTA HELST …
EKKERT ríki getur haldið uppi þeim vaxtamun sem nú
er milli íslensku krónunnar og helstu gjaldmiðla heims
á tímum þegar fjármagn getur flust óhindrað milli
landa. Þetta kom fram í máli Illuga Gunnarssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks, í utandagskrárumræðum
á Alþingi í gær. „Ekkert atvinnulíf og þar með engin
heimili geta staðið undir slíkum vöxtum til langs tíma,
þá mun eitthvað gefa eftir,“ sagði Illugi og taldi jafn-
framt eðlilegt að augu manna beindust að Seðlabank-
anum sem hefði gengið illa að ná verðbólgumarkmiðum
sem sett voru með lögum árið 2001.
Illugi sagði áhyggjuefni að Seðlabankinn virtist miða
stýrivexti sína fyrst og fremst við það að gengi krón-
unnar gæfi ekki eftir. „Af virðist sú hugsun að stýri-
vextir séu tæki sem virki tólf til átján mánuði fram í
tímann,“ sagði Illugi og bætti við að það setti spurning-
armerki við þá stefnu sem var mörkuð árið 2001.
Kallaði Illugi eftir samstöðu milli ríkisvaldsins,
Seðlabankans og atvinnulífsins alls til aðgerða sem
skiptu máli í að vinna á vandamálunum. Framundan
væri varnarbarátta og Seðlabankinn ætti að horfa til
þeirra markmiða sem sneru að stöðugleika fremur en
verðbólgumarkmiða.
Illugi sagði jafnframt nýja kjarasamninga koma til
með að auka verðbólguna og þegar kæmi að kjara-
samningum hins opinbera væri ekki svigrúm til að auka
kaupmátt. „Þeir kjarasamningar verða að vera þannig
úr garði gerðir að þeir verji kaupmáttinn og komi í veg
fyrir að það dragi úr kaupmætti, ekki bara opinberra
starfsmanna heldur allra annarra,“ sagði Illugi.
Atvinnulíf og heimilin geta ekki
staðið undir vöxtunum til langs tíma