Morgunblaðið - 05.03.2008, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
HANN var ánægður litli snáðinn Kristófer
Máni Sveinsson þegar hann fékk spennandi
gjafir úr hendi Lúðvíks Geirssonar, bæjar-
stjóra Hafnarfjarðar, í gær, í viðurkenning-
arskyni fyrir að vera Hafnfirðingur númer
tuttugu og fimm þúsund.
Til að halda upp á tímamótin bauð bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar gestum og gangandi
upp á kaffiveitingar í þjónustuveri bæjarins
í ráðhúsinu við Strandgötu í gær.
Hafnfirðingar náðu þessum áfanga 29.
febrúar sl. þegar Kristófer Máni, sem er
eins og hálfs árs gamall, flutti úr nágranna-
sveitarfélaginu Garðabæ í Hafnarfjörð.
Bæjarbúum hefur fjölgað hratt, árið 2000
voru Hafnfirðingar 19.640 og hefur því
fjölgað um rúmlega 27% á sl. 8 árum.
Fjölgunin mest síðustu tvö árin
Að sögn bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar
hefur fjölgunin verið mest tvö síðustu árin,
eða á milli 5 og 6% sem samsvarar því að
íbúum fjölgi um liðlega 100 í hverjum mán-
uði. Til samanburðar kemur fram í tilkynn-
ingu bæjarskrifstofunnar að íbúum á höf-
uðborgarsvæðinu öllu hafi fjölgað um 12% á
árunum 2000 til 2007 og í Kópavogi um 21%.
Hafnfirðing-
ar nú 25.000
Morgunblaðið/Kristinn
Tímamót Kristófer ásamt föður sínum,
Sveini Jónassyni, og Lúðvík Geirssyni.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
LAUN lífeyrisþega ættu að taka
mið af neyslukönnun Hagstofu Ís-
lands sem birt var 18. desember sl.
og vera 226.000 krónur á mánuði
fyrir skatta. Jafnframt ættu skatt-
leysismörk að hækka í 150.000 kr.
og frítekjumark að vera að lágmarki
100.000 krónur á mánuði.
Svona hljómar hluti áskorunar
Félags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, FEB, til stjórnvalda um
kjaramál aldraðra, en þrýst er á um
að þessar breytingar verði komnar
að fullu til framkvæmda þegar á
næsta ári.
Stjórn FEB gerði þessar og aðr-
ar kröfur um aðbúnað aldraðra að
umtalsefni á blaðamannafundi í höf-
uðstöðvum félagsins í gær.
Fundarmenn voru sammála um
að fjölmennur hópur félagsmanna
hefði ekki nægar tekjur til grund-
vallar framfærslu og að binda þyrfti
enda á skerðingu tryggingabóta
vegna tekna úr lífeyrissjóði. Einnig
þyrfti að einfalda kerfi lífeyr-
istrygginga og tryggja að öryrkjar
sem næðu ellilífeyrisaldri héldu
áfram aldurstengdum, óskertum ör-
orkubótum.
Fundarmenn tóku hins vegar
fram að þeir væru ánægðir með þau
skref sem að undanförnu hefðu ver-
ið stigin í þá átt að leiðrétta kjör
aldraðra. Flutningur málaflokksins
til félags- og tryggingamálaráðu-
neytisins væri fagnaðarefni, sem og
flutningur á lífeyrisþætti almanna-
trygginga til sama ráðuneytis.
Fagna tilfærslunni yfir til
félagsmálaráðuneytisins
Margrét Margeirsdóttir, formað-
ur FEB, fagnar tilfærslunni.
„Við teljum að málefni aldraðra
séu félagsleg viðfangsefni en ekki
heilbrigðismál,“ segir Margrét.
„Með því að flytja þau til félags-
málaráðuneytisins eru stjórnvöld
búin að viðurkenna að þetta var rétt
mat hjá okkur. Nú er nefnd á veg-
um félagsmálaráðherra að störfum
til að skoða frá grunni lífeyr-
istekjukafla almannatryggingalag-
anna, þannig að við hljótum að
fagna því að þetta er komið til fé-
lagsmálaráðherra sem núna ber
ábyrgð á málefnum aldraðra eftir
flutninginn frá heilbrigðisráðuneyt-
inu 1. janúar sl. Félag eldri borgara
hefur lengi barist fyrir heildarend-
urskoðun á almannatryggingalög-
unum.“
Þá er skorað á borgarstjórn að
fjölga búsetuúrræðum fyrir eldri
borgara, m.a. með afgreiðslu um-
sóknar um lóð við Árskóga.
Sökum þess að verðlag, s.s. á
húsaleigu, hafi farið hækkandi sé
brýnt að bæta kjör þeirra eldri
borgara sem minnstar hafi tekj-
urnar. Það sé mannréttindamál.
Laun lífeyrisþega verði
226.000 kr. fyrir skatta
Stjórn FEB krefst
bættra kjara fyrir
eldri borgara
Í HNOTSKURN
»Félag eldri borgara í Reykja-vík skorar á stjórnvöld að
lækka skatta á lífeyrissjóðs-
greiðslum úr 35,72% í 10% og að
útfærslan verði ákveðin í sam-
ráði við aðila vinnumarkaðarins
og samtök lífeyrisþega.
»Skorað er á stjórnvöld aðstofna embætti umboðs-
manns aldraðra.
»Skorað er á stjórn hjúkr-unarheimila að ófaglært
starfsfólk verði hvatt til að
sækja námskeið fyrir fólk sem
starfar við umönnun aldraðra.
Morgunblaðið/RAX
Baráttumál Margrét Margeirsdóttir og félagar hennar í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
fara yfir stöðuna á fundinum í gær. Töldu fundarmenn mjög brýnt að hækka tekjur þeirra sem minnst hafa.
AKUREYRI
Í FORSENDUM þriggja ára áætl-
unar Akureyrarbæjar, sem lögð var
fram í bæjarstjórn í gær, er gert ráð
fyrir að íbúum fjölgi um 200 á ári.
Fólki í bænum hefur fjölgað meira
en það að meðaltali síðustu 10 ár en
aldrei eins og í fyrra, þegar bæjarbú-
um fjölgaði um ríflega 400 manns.
Framkvæmdaáætlun áranna 2009
til 2011 gerir áfram ráð fyrir miklum
fjárfestingum í grunngerð sam-
félagsins framan af þessu tímabili,
eins og það er orðað í tilkynningu frá
bænum.
„Helst ber þar að nefna að bygg-
ingu Hofs menningarhúss, fyrri
áfanga Naustaskóla og fimleikahúss
verður lokið á árinu 2009. Unnið
verður áfram að uppbyggingu
íþróttasvæða í tengslum við væntan-
legt landsmót UMFÍ.“
Auk framangreindra verkefna
verður unnið að hefðbundinni upp-
byggingu á gatna- og fráveitukerfi
bæjarins en framkvæmt verður fyrir
rúma tvo milljarða króna á tíma-
bilinu í þessum málaflokkum. „Inni-
falið í því er bygging hreinsivirkis í
Sandgerðisbót sem kosta mun nær
700 milljónir króna en þar af falla til
tæpar 500 milljónir kr. á árunum
2009-2011.“
Fram kemur að framkvæmdir
Norðurorku munu halda áfram og
miðast þær að því að tryggja fyr-
irtækjum, bæjarfélaginu og ná-
grannasveitarfélögum nægjanlega
orku til upphitunar húsnæðis og efl-
ingar atvinnulífs.
Velta sveitarfélagsins og fyrir-
tækja þess er um 14 milljarðar króna
á ári þessi ár en þar af eru skatt-
tekjur tæpir sex milljarðar króna á
ári. „Mikil uppbygging í stoðþjón-
ustu bæjarfélagsins undanfarin ár
hefur leitt til vaxandi rekstrarút-
gjalda en tekjuþróun sveitarfé-
lagsins brúar bilið að mestu leyti.
Tekið er á þessari þróun með 50-150
milljóna kr. árlegri hagræðingar-
kröfu í rekstri málaflokka,“ segir í
fréttinni frá bænum.
Þar segir að í heildaráætlun bæj-
arfélagsins og fyrirtækja þess sé
gert ráð fyrir „góðum rekstraraf-
gangi á tímabilinu, þrátt fyrir aukna
þjónustu við bæjarbúa á flestum
sviðum“.
Fjárhagurinn
sagður traustur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hof Bygging menningarhússins er
stræsta framkvæmdin í bænum.
Í HNOTSKURN
»Útsvarsprósenta verðuróbreytt á Akureyri á milli ára
eða 13,03%.
»Fjárhagsleg staða Akureyr-arbæjar er traust, segir í
frétt frá bææjarfélaginu, „og
þrátt fyrir miklar framkvæmdir
aukast skuldir A- og B-hluta lítið
á tímabilinu en verða þó nokkuð
lægri á hvern íbúa árið 2011 en
var í árslok 2006“.
ÞAÐ var kuldalegt í gærmorgun þar sem Hilmar Stef-
ánsson og Baldur Vilhjálmsson frá ÞJ verktökum unnu
við lagfæringar á gömlu Torfunefsbryggjunni í mið-
bænum ásamt starfsmönnum Hafnasamlags Norður-
lands. Bryggjukanturinn er orðinn gamall og lúinn og
skemmdist líka töluvert í óveðri á dögunum og því er
verið að laga hann fyrir sumarið. Aftur á móti er óvíst
hvort bryggjan verður þarna til frambúðar; skv. skipu-
lagi verður nefnilega a.m.k. að hluta til fyllt upp í dokk-
ina þar sem trébáturinn Húni II liggur alla jafna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tjaslað í Torfunefið
BÆJARSTJÓRN Akureyrar vill
kanna möguleika á því að semja við
ríkið um byggingu og rekstur vist-
unarrýmis fyrir geðsjúka afbrota-
menn, réttargeðdeild, í bænum.
Samþykkt var samhljóða á fundi
bæjarstjórnar í gær tillaga bæjar-
fulltrúa VG að fela bæjarstjóra að
kanna möguleika á þessu.
„Mikil þörf er á að fjölga rýmum
fyrir geðsjúka afbrotamenn. Mjög
æskilegt er að slík starfsemi fari
fram þar sem sérmenntað fólk er
nærtækt og aðstaða góð til þjónustu
við fangana. Slík þjónusta og sér-
menntun er til staðar á Akureyri,“
segir í greinargerð Baldvins H. Sig-
urðssonar og Kristínar Sigfúsdóttur,
bæjarfulltrúa VG, með tillögunni.
Baldvin og Kristín segja að það
hljóti að teljast mikill kostur að hafa
slíka afplánun á tveimur stöðum á
landinu frekar en að byggja við
Sogn. „Áætla má að 10-12 vistunar-
pláss gæfu mörg fjölbreytt störf.
Ríkisfangelsi verður rekið á Akur-
eyri hvort eð er sem styddi við þessa
starfsemi, auk þess sem geðdeild og
fullbúið sjúkrahús er til staðar. Ef
miðað er við fjölda rýma til saman-
burðar við nágrannalöndin ætti að
þurfa 21 pláss hérlendis en 8-9 pláss
hafa verið fullnýtt á Sogni undanfar-
in ár. Slíkt er óviðunandi. Sam-
kvæmt skýrslu um úttekt á stöðu
þessara mála sem heilbrigðisráðu-
neytið lét vinna fyrir tveimur árum
er ástandið slíkt að það þolir enga
bið,“ segir í greinargerðinni.
Réttargeðdeild norður?