Morgunblaðið - 05.03.2008, Side 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 19
eða trúarlegt. Hans
boðskapur gengur
þvert á þær yfirlýs-
ingar, sem iðulega má
heyra í fjölmiðlum, um
að íslam þrífist ekki
nema að leggja þjóðfé-
lagið undir sig.
x x x
Arafat kom til Ís-lands í boði banda-
ríska sendiráðsins og
hefur farið víðar á veg-
um bandarískra stjórn-
valda. Stundum hefur
hann mætt tortryggni
af þeim sökum. Í Tan-
saníu brutust út mótmæli þegar
hann átti að leiða þar trúarlega at-
höfn í mosku og varð hann frá að
hverfa. Hann hitti síðar trúar-
leiðtoga þar og þeir gagnrýndu hann
harkalega fyrir að koma í boði
bandarískra yfirvalda og kváðust
ekki geta treyst honum. Þegar fund-
inum lauk féllust þeir í faðma við
hann.
x x x
Frásögnin af þessum fundi sýnir íhnotskurn þá gjá, sem ríkir inn-
an íslams. Arafat segir að Kóraninn
bjóði upp á þann sveigjanleika, sem
eigi að gera múslímum kleift að laga
sig að hvaða þjóðfélagi sem er og ná
þar velgengni. Þeir, sem eru því
ósammála, virðast hins vegar vera
miklu háværari. Þar á milli eru síðan
milljónir múslíma, sem vilja búa í
vestrænu samfélagi og iðka um leið
trú sína. Þeirra togstreita er á tvenn-
um vígstöðvum. Annars vegar við ísl-
amistana, bókstafstrúarmennina,
sem gera trúna að verkfæri til að
kúga konur og predika í andstöðu við
veraldlegt vald, og hins vegar gagn-
rýnendur innflytjendasamfélagsins,
sem draga upp ofureinfaldaða mynd
af öfgamanninnum og setja síðan alla
múslíma undir þann hatt. Rödd Ara-
fats boðar umburðarlyndi, en hann
þarf stærra gjallarhorn ef hann á að
yfirgnæfa bókstafskórinn.
Mohamad BasharArafat var á Ís-
landi í liðinni viku í því
skyni að ræða um íslam
og múslíma í Banda-
ríkjunum. Arafat er
ímam eða múslím-
aklerkur og leiðir einn-
ig stofnun, sem vinnur
að sátt milli menning-
arheima. Hann lítur á
það sem sitt hlutverk
að sýna múslímum
fram á það hvernig þeir
geti lifað í sátt við það
samfélag, sem þeir búa
í hverju sinni, hvort
sem það er veraldlegt
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Það er jafnan líf og fjör áLeirnum, póstlista
hagyrðinga, eins og eftirfarandi
vísur bera með sér. Pétur
Stefánsson orti:
Nú bætum við spreki á bragaglóðir
og byrjum að yrkja meir.
Ferskeytluvinir og félagar góðir;
fundur er settur á Leir.
Friðrik Steingrímsson úr
Mývatnssveit tók þegar undir:
Rýkur allt á rokna span
rímar hver sem getur,
fyrsta mál er ferskeytlan
fundarstjóri er Pétur.
Þá Jón Ingvar Jónsson, stundum
nefndur „leirlöggan“:
Fundarstjórnin finnst mér djók,
farið allt í klessu.
Einhver skratti af mér tók
orðið rétt í þessu.
Og Hallmundur Kristinsson:
Yrkja limir meir og meir,
magnast vísnaæðið;
ástand orðið ljótt á Leir:
Löggan mætt á svæðið!
Jón Gissurarson:
Ferskeytlunnar fagráð kært
fjörið lifnað getur.
Nú er orðið fundar fært
fundinn setti Pétur.
Og Hjálmar Freysteinsson:
Ræðum gæti rutt úr mér
rökfimur með sanni.
Sammála ég sífellt er
síðasta ræðumanni.
Loks sleit Pétur fundi:
Hér var stuð og feikna fjör,
– flestir stigu í vitið.
Nú er lokið ljóðaför,
læt ég fundi slitið.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Fundur á
Leirnum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
vissir
þú að...
OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE) hefur samþykkt að taka hlutabréf Skipta hf. til viðskipta. Skipti hf. verða skráð á OMX ICE og
er fyrirhugað að hefja viðskipti með hlutabréfin þann 19. mars 2008. Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. hefur umsjón með því að fá
hlutabréf Skipta hf. tekin til viðskipta í kauphöll, svo og með útboði í aðdraganda þess. Nánari upplýsingar er að finna í lýsingu Skipta hf.
sem dagsett er 4. mars 2008. Lýsinguna má nálgast hjá félaginu næstu 12 mánuði, en hún er gefin út rafrænt á heimasíðu félagsins, www.
skipti.is. Lýsinguna má einnig nálgast á heimasíðu umsjónaraðila, www.kaupthing.is. Jafnframt má nálgast innbundin eintök frá 5. mars
2008 hjá Skiptum hf. í Ármúla 25, Reykjavík og hjá Kaupþingi banka hf. í Borgartúni 19, Reykjavík.
Skipti hf., kt. 460207-0880, er leiðandi fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtæki á Íslandi og hefur að undanförnu fært út starfsemi sína
til Norðurlanda og Bretlands. Heildarvelta félagsins árið 2007 nam 32,7 milljörðum króna. og jókst um 30,7% frá árinu á undan. EBITDA
félagsins var 9,4 milljarðar króna fyrir árið 2007, samanborið við 8,4 milljarða króna EBITDA fyrir árið 2006. Heildarfjöldi útgefinna hluta
Skipta hf. er 7.368.421.053, hver að nafnverði 1 króna. Hlutir félagsins eru allir í einum flokki og jafn réttháir.
Með því að fá hlutabréf félagsins tekin til viðskipta í kauphöll auk útboðs í aðdraganda þess, er gert ráð fyrir að aðgengi félagsins að
fjármagni aukist og markaðshæfi bréfa þess batni, sem aftur stuðli að frekari vexti og framþróun á næstu árum. Í kjölfar þess að hlutabréf
félagsins verða tekin til viðskipta í kauphöll mun sýnileiki félagsins ennfremur aukast og bréf félagsins laða að breiðari hóp ólíkra fjárfesta,
þar á meðal þeim sem bundnir eru af því að fjárfesta í skráðum félögum. Með þessu er ennfremur verið að uppfylla skyldur um útboð og
kauphallarskráningu samkvæmt samningi frá árinu 2005, sem stærstu eigendur félagsins gerðu við íslenska ríkið um kaup á Landssíma
Íslands hf., forvera Skipta hf.
Útgefnir hlutir í Skiptum hf. verða boðnir til sölu áður en hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta í kauphöll. Með því hyggjast Kaupþing
banki hf. og Exista hf. bjóða allt að 2.210.526.316 áður útgefna hluti til sölu, en þeir nema 30% af þegar útgefnu hlutafé Skipta hf. Kaupþing
banki hf. mun bjóða 2.046.376.398 hluti og Exista hf. 164.149.918 hluti.
Stærð útboðs
Heildarfjöldi hluta Allt að 2.210.526.316
Heildarandvirði Allt að 14,68 – 17,91 milljarðar króna
Hlutfall heildarhlutafjár Allt að 30%
Hlutirnir verða boðnir almenningi og fagfjárfestum á Íslandi auk fagfjárfesta í öðrum löndum þar sem selja má hlutina. Hlutirnir verða
ekki boðnir til sölu í löndum þar sem frekari skrásetningar væri þörf. Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama verði sem verður ákvarðað
með áskriftarverðlagningu (e. bookbuilding). Fyrsti áskriftardagur útboðsins er 10. mars 2008 en útboðinu lýkur klukkan 16:00 þann 13.
mars 2008.
Áskriftir umfram 25 milljónir króna Áskriftir fyrir allt að 25 milljónum króna
Áskriftartímabil 10. – 13. mars 2008 10. – 13. mars 2008
Lágmarksáskrift >25 milljónir kr. 100 þúsund kr.
Hámarksáskrift 25 milljónir kr.
Verðlagning Áskriftarverðlagning Fast gengi*
Gengi 6,64 – 8,10 kr./hlut** 6,64 – 8,10 kr./hlut**
* Áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestir getur skilyrt áskriftina við ákveðið hámarksverð fyrir hlut.
** Endanlegt útboðsgengi, eitt og hið sama til allra kaupenda, verður tilkynnt fyrir kl. 9:45 þann 14. mars 2008.
Reykjavík, 5. mars 2008
Birting lýsingar
Hlutafjárútboð 10. – 13. mars
Skipti hf. skráð á OMX ICE og hlutabréfin tekin til viðskipta 19. mars