Morgunblaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 25
!
"
#
$
!
!
"
%
&
'
(
"
"
) $
$
$ "
*'
+
"
) $
, -
)
'./+/,/01'23343
3!
4
541,6&/315&)+/7 89: ;<== 54
1,>&/315?@A=&B43-/?/&
!
" #
"
$#
%% %
&
'
" "
"
(
9C A:
AA
9D
- kemur þér við
Sérblað um heimili
fylgir blaðinu í dag
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Bændur og verkalýðs-
forysta í hár saman
Steingrímur J. vill kíkja
undir sauðargærurnar
Stöðumælarnir
kreditkortavæddir
Hverjir eru leikarar
framtíðarinnar?
Fangbrögð í stað
fantabragða hjá
Trish Stratus
FYRIR jólin fjárfesti fjölskyldan í
100.000 króna Acer-tölvu hjá BT fyr-
ir háskólastúdentinn á heimilinu.
Ekki svosem í frásögur færandi
nema rúmum tveimur mánuðum síð-
ar biluðu herlegheitin, það var
ómögulegt að kveikja á tölvunni.
Farið var með tölvuna í Skeifuna 17,
á BT verkstæði fimmtudaginn 21.
febrúar. Þar var okkur tjáð að
nokkrar vikur tæki að gera við tölv-
una. Morguninn eftir þ.e. föstudag-
inn 22. febrúar hringdi ég á verk-
stæðið og var ekki hress með að
þurfa að bíða í nokkrar vikur eftir
niðurstöðunni, enda glæný tölva.
Mér var boðin flýtimeðferð á 4.000
krónur sem ég þáði og þá var mér
ennfremur sagt að það þýddi að tölv-
an færi strax á borðið í viðgerð.
Síðar um daginn hringdi ég og þá
sögðust þeir vera að skoða hana en
gætu ekki lofað henni fyrir lokun. Á
mánudagsmorgunn hringdi ég aftur
og þá fékk ég sömu svör. Þetta væri
eitthvað snúið með tölvuna og þeir
þyrftu að skoða hana betur. Á
þriðjudegi hringi ég svo í þá enda
farið að lengja eftir niðurstöðu skoð-
unarinnar – ég var jú að borga fyrir
flýtimeðferð. Þá er mér sagt að það
vanti lykilnúmer á tölvuna og að þeir
hafi reynt að hringja í mig fyrr um
morguninn. Ég get ekki séð það á
farsímanum mínum. Lykilnúmerinu
er auðvitað reddað en enn finnst mér
furðulegt að lykilorð hafi ekki þurft
fyrr. Þeir segjast hafa náð að
kveikja á henni og nú ætli þeir að
skoða þetta aðeins betur. Síðdegis
má svo sækja tölvuna.
Þegar hún er sótt er rukkað um
12.500 krónur. Í fyrsta lagi 4.500
krónur fyrir skoðunargjald á tölv-
unni sem mér var aldrei tilkynnt um
og tölvan þar að auki í ábyrgð. Fyrir
utan þetta þá er flýtimerðferðin nú
komin úr 4.000 krónum í 7.500 krón-
ur. Ég fór ekki sjálf að ganga frá
greiðslunni. Ég mætti á hinn bóginn
morguninn eftir og líklega hefur
upplitið ekki verið skemmtilegt enda
ég óhress með að borga dágóðan
hluta af virði tölvunnar í viðgerð og
hún ekki nema 2 mánaða. Ég vildi fá
útskýringar. Kurteis afgreiðslumað-
urinn baðst afsökunar á 7.500 krón-
um og sagði að ef mér hefði verið
sagt að flýtimeðferð kostaði 4.000
krónur þá skyldi það standa. Okkur
greindi hinsvegar á um skoð-
unargjaldið. Hversvegna á ég að
þurfa að greiða 4.500 krónur í skoð-
unargjald af tölvu sem er glæný og
bilar? Það er 2 ára ábyrgð á tölv-
unni? Ég bað um útprentun á við-
gerðinni en hann sagði að þar stæði
ekkert nema: Tölvan kveikir ekki á
sér og að engir aukahlutir hefðu
fylgt henni í viðgerð. Ég græddi lítið
á því. Ég er enn ósátt. Mér finnst
stórundarlegt að
1. Mér hafi ekki verið sagt frá
þessu 4.500 króna skoð-
unargjaldi fyrirfram á glænýrri
tölvu sem ekki fer í samband.
2. Ég hef engar viðhlítandi skýr-
ingar fengið á því hvað var að
tölvunni.
3. Og í þriðja og síðasta lagi er ég
ósátt við að ég skuli yfirhöfuð
þurfa að borga skoðunargjald af
tölvu sem er 2 mánaða gömul og
virkar ekki. Hvað með þessa
ábyrgð sem er á tölvum?
Mín skilaboð eru einfaldlega. Ef
lesendur ætla að kaupa tölvu, þá
skoðið ekki bara verð tölvunnar
heldur ábyrgðarskilmála og viðgerð-
arþjónustuna. Fáið á hreint hvernig
ábyrgð og viðgerðum er háttað ef
eitthvað bregður útaf meðan tölvan
er sögð í ábyrgð.
GUÐBJÖRG R.
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Seltjarnarnesi.
Hvað er innifalið í
tölvuábyrgð hjá BT?
Frá Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HLÆGILEG frétt á RÚV – sjón-
varpi. „Grátlegar“ RÚBLU-fréttir
Á-listans.
Það bar við í fréttatíma RÚV –
sjónvarpi kl. 22.00 fimmtudaginn 28.
febrúar sl. að lesin var tilkynning frá
meirihluta bæjarstjórnar Álftaness,
um að frétt stöðvarinnar frá því á
fimmtudagskvöldið 21. febrúar sl.
um bæjarstjórnarfund
þá um kvöldið hafi ver-
ið röng. En því var
haldið fram í fréttinni
að fundur bæjar-
stjórnar þá um kvöldið
hefði verið í uppnámi
og fjölmennur. Til-
kynningin gekk út á að
ekki hafi verið uppnám
eða fjölmenni á fund-
inum. Þannig bar þó
við að í fréttinni voru
sýndar myndir frá
upphafi fundarins, sem
sýndu mikið tilstand og
um 50 manns í salnum.
Væntanlega er bara sú staðreynd að
íbúar fjölmenntu á fundinn, nóg til
þess að útskýra uppnámið. Frétta-
stjórinn sem las upp tilkynningu Á-
listans, sagði að fréttastofan stæði
við fréttina!
Sjálfsagt hefur fjölmiðlafulltrúi
bæjarstjórans, Bæjarútgerðin ehf.,
komið þessari furðulegu tilkynningu
að. Útgerð þessi sér um að koma
skrumskældum fréttum úr bæjarlíf-
inu á framfæri við íbúa, á heimasíð-
unni alftanes.is og til fjölmiðla fyrir
tæpar tvær milljónir á ári. En skila-
boð útgerðarinnar eru ávallt pöntuð
og stílsett af bæjarstjóranum.
Úr því að hér er farið yfir þessa
stórundarlegu tilkynningu Á-listans
í fréttatímanum, þá er ekki úr vegi
að taka fyrir í stuttu máli nokkrar
„fréttir“ Á-listans.
Samningar og frændsemi
Bæjarstjóri lagði mikla áherslu á
að gera samninga við VST-
verkfræðistofu, strax í júní 2006.
VST hefur unnið ótæpilega fyrir
bæjarsjóð í gengdarlausri vinnu
vegna breytinga á skipulagi og
fleira. Við hlið bæjarstjórans býr
frændi bæjarstjórans, þeir eru
systkinabörn. Frændinn er umferð-
arverkfræðingur VST. Frændinn er
einn eigenda VST. Frændtengsl
þessi eru frekar óheppileg, svo vægt
sé til orða tekið. Bæjarstjóri tók þátt
í atkvæðagreiðslu í bæjarstjórn um
samninga við VST, algerlega van-
hæfur, og vakti ekki athygli á þess-
um frændtengslum. Svo virðist sem
enginn viðstaddra á þeim fundi bæj-
arstjórnar, nema bæjarstjóri, hafi
vitað að hann var bullandi vanhæfur
við afgreiðslu samn-
inga við VST. Fulltrúar
Á-listans sökuðu þann
sem þetta ritar um
óheilindi og jafnvel
mútur, þegar rætt var
um framlengingu
samnings við VSÓ-
ráðgjöf, vegna vinnu
fyrir bæjarfélagið á
síðasta kjörtímabili.
Ástæðan var vina-
tengsl mín við fyrrum
eiganda verkfræðistof-
unnar. Þetta atriði
hafði mér ekki hugn-
ast. „Það er aldrei
hægt að koma í veg fyrir að ein-
hverjir þekkist eða séu frændur,
sem samningar eru gerðir við,“ sagði
bæjarstjórinn á bæjarstjórnarfund-
inum þann 21. febrúar sl.!
Kaupum landið,
nóg til af aurum
Mikill hamagangur er í bæjar-
stjóranum við að gera viljayfirlýs-
ingar og/eða samninga um kaup á
landi helst við alla landeigendur á
Álftanesi. Hann vill kaupa land af
eigendum Vestra-Sviðholts, Hala-
kots og Þórukots. Hann vill kaupa
land og eignir Bessans. Hann hefur
skrifað undir sterkt orðaða vilja-
yfirlýsingu við eigendur Eyvind-
arstaða um kaup á landi vegna
„færslu Norðurnesvegar.“ Eina ves-
enið er að hvað gerist ef vegurinn
verður ekki færður, á þá „bara að
næra margæsina á dýru landinu?“
Hugmynd bæjarstjórans er að færa
veginn til þess að koma þar í staðinn
fyrir röð af þriggja hæða blokkum.
Fallega hugsað, ekki satt? En smá-
vesen er að einn aðila að sölu lands-
ins er Úlfar Ármannsson, einn af
hugmyndafræðingum Á-listans og
meðal hörðustu stuðningsmanna og
ráðgjafa. En, æ, æ, annar aðili að
sölu landsins til bæjarsjóðs, ef vilja-
yfirlýsingin gengur eftir, er Ari Sig-
urðsson, sem er venslaður eig-
endum. En Ari þessi er einn af
hugmyndafræðingum Á-listans og
guðfaðir, ásamt Úlfari og fleirum,
aðalráðgjafi bæjarstjóra og sá sem
byrjaði hafnarframkvæmdirnar á
Eyrinni í janúar sl. með því að sturta
grjóti í fjöruna „án þess að hafa leyfi
bæjarstjórans“ og „án þess að bæj-
arstjórinn, vinur hans, vissi!“ Eitt
enn, bæjarstjórinn er búinn að
skrifa undir viljayfirlýsingu um
kaup á landi Eyvindarholts, eigandi
Úlfar sá sami Ármannsson, já, sami
Úlfar og hér er nefndur að framan.
En Úlfar er faðir fyrsta varamanns
Á-lista í bæjarstjórninni. Eyvindar-
holt hvað? Ekki á að fara að byggja
þar? Jú jú, það er þess vegna sem
landið verður keypt, sagði bæjar-
stjórinn! Alls hljóða þessar yfirlýs-
ingar um kaup á landi hér og þar um
Álftanesið upp á um 780.000.000 kr.
Hvað gerist ef áætlanir Á-listans um
alla þessa uppbyggingu á árinu 2008
ganga ekki eftir? Hvar verður bæj-
arsjóður þá staddur? Hvar á þá að
taka peninga til þess að borga? Er
ekki vænlegra að mýkja orð í tali og
yfirlýsingarnar allar og skoða mögu-
leg kaup, þegar og ef aurarnir eru í
sjónmáli? Reglulegar tekjur 2008
verða um 1.000.000.000 kr.? Hvað ef
fjárhagsáætlun ársins 2008, með
850.000.000 kr. hagnaði, gengur ekki
eftir?
Þetta eru ekki „ekki fréttir“ held-
ur einfaldur veruleiki úr stjórnsýslu
Á-listans á Álftanesi. Lifi lýðræðið.
Lifandi og linnulaus hamingja,
lætin eru rétt að byrja,
þúsundir peninga látlaust dyngja,
þá er ekki að lokum að spyrja.
Álftanes – er ekki allt í lagi?
Guðmundur G. Gunnarsson
skrifar um skipulagsmál á
Álftanesi
» Á Álftanesi eru uppi
deilur um skipulag
og fjárhag, þessi grein
skýrir málið með óhefð-
bundnum hætti.
Guðmundur G.
Gunnarsson
Höfundur er bæjarfulltrúi
á Álftanesi.