Morgunblaðið - 05.03.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 27
bestu stundir að vera í tjaldi og
með prímus og annan útilegubún-
að. Bragi og Gréta eiga sumarbú-
stað við Rauðavatn, þar undi fjöl-
skyldan sér vel. Sat Bragi oft og
horfði á Snæfellsjökul og sagði:
Þetta er dýrleg sjón, drengurinn
minn. Þarna fór hann með Grétu
og Huldu mágkonu sinni sem nú er
látin, Bragi var alltaf til taks ef
Huldu vantaði eitthvað. Með þess-
um fáu orðum kveðjum við góðan
vin.
Elsku Gréta og fjölskylda, við
vottum ykkur dýpstu samúð. Guð
veri með ykkur.
Sævar og Ragnheiður.
Eitt sinn verða allir menn að
deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð
að segja, að sumarið líður allt of
fljótt. V.V
Bragi, gamall vinnufélagi og vin-
ur er látinn, ég kynntist honum
fljótt eftir ég kom til vinnu hjá Agli
Vilhjálmssyni hf. haustið 1955.
Hann var verkstjóri á Smurstöð
E.V. hf. og hugsaði um hana eins
og sjáaldur auga síns, snyrtimenni
mikið, það sást á öllu þar. Bragi
átti flottan bíl þá sem við öfund-
uðum hann af „Morris R 40“ og
það var ósjaldan sem við sáum
hann við að snyrta hann og bóna ef
smáhlé kom á vinnu hjá honum.
Starfsmannafélag var mjög virkt
á þessum árum hjá fyrirtækinu því
hátt á annað hundrað manns unnu
við það og samheldni góð. Bragi
var vel virkur í því og tók þátt í
öllu sem þar fór fram, hvort sem
voru sumarferðir, spilakvöld eða
böll sem voru minnst þrjú á ári og
að sjá hann á dansgólfinu, með sína
ektakvinnu Grétu, dansandi polka,
ræla, valsa og tangó var flott á að
horfa. Þau voru mjög samrýnd í
öllu, hvort sem var á heimilinu eða
sumarhúsinu, það sá maður á öllu
er heim til þeirra var komið.
Undanfarin ár höfum við nokkrir
gamlir vinnufélagar komið saman í
morgunkaffi, skötuveislu og þorra-
mat þegar það hefur átt við og þín
verður sárt saknað úr þeim hópi og
sendir hann samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Elsku Gréta, við sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til þín
og fjölskyldna.
Drottinn blessi ykkur.
Ásvaldur og Erna María.
Í dag kveðjum við Braga Þor-
steinsson, góðan félaga úr hópi
fyrrum starfsmanna Egils Vil-
hjálmssonar. Við höfum haldið hóp-
inn í 26 ár og hist einu sinni á ári
ásamt mökum við mikinn fögnuð
allra félaganna.
Í þessum hófum hefur verið rifj-
að upp og sýndar myndir úr göml-
um ferðalögum og uppákomum
sem haldið var þegar fyrirtækið
Egill Vilhjálmsson var upp á sitt
besta. Söngur og gleði var Braga
mikilvægt enda mikill söngmaður.
Þeir feðgar Steini og hann voru oft
beðnir um að taka „lagið“ og jóðla
við mikinn fögnuð. Danslag sett á
fóninn og var þá Bragi sá sem hélt
uppi fjörinu enda mikill og góður
dansmaður og ekki hætt fyrr en
búið var að dansa við allar stelp-
urnar.
Gréta og Bragi dönsuðu mikið
fyrr á árum og fóru gjarnan á
gömlu dansana vikulega ásamt góð-
um vinum.
Bragi bjó í miðbæ Reykjavíkur
gekk oft um miðbæinn enda mikill
bæjarbúi og síðast þegar við hitt-
umst í janúar sagði hann okkur
sögur af ýmsum gömlum húsum í
Reykjavík og hvaða hús hann vildi
sjá standa eftir.
Á kveðjustundu eru Braga þökk-
uð góð kynni, og Bragi minn, við
stelpurnar eigum eftir að sakna
þess að fá okkar árlega faðmlag
þitt með óskum um gleðilegt ár.
Elsku Gréta, það er erfitt að
missa góðan vin og lífsförunaut til
margra ára, Guð veri með þér. Við
sendum þér og fjölskyldunni allri
innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Egilshópsins.
Birna og Þorgeir.
Elsku afi minn, takk fyrir allt
sem þú ert búinn að gefa mér.
Nú ert þú kominn til guðs.
Ég veit að þér á eftir að líða
vel með ömmu hjá guði.
Þú þarft ekki að kveljast
lengur.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þórey Rut.
Hann afi Reynir var góður
afi. Hann var gjafmildur og
alltaf tilbúinn að hjálpa
manni. Hann kom oft að
styðja okkur á fótboltaleikjum
og var ekki spar á hrós. Hann
lét okkur vita að hann væri
stoltur af okkur og þætti vænt
um okkur. Okkur þótti líka
rosalega vænt um hann og
söknum hans.
Lára Kristín og Andrea Rut.
HINSTA KVEÐJA
✝ Reynir Krist-insson fæddist í
Reykjavík 5. sept-
ember 1930. Hann
lést á Líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi hinn 25.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hans voru Kristinn
Kristjánsson, f. 3.
júní 1903, d. 23.
mars 1963, og Vil-
borg Sigmunds-
dóttir, f. 2. sept-
ember 1906, d. 25.
júní 1997. Reynir var einkabarn
þeirra hjóna.
Hinn 26. október 1957 kvænt-
ist Reynir Ernu Haraldsdóttur, f.
17. október 1939, d. 13. júní
1977. Dætur þeirra eru: 1) Elín,
f. 9. mars 1958, í sambúð með
Bárði Smárasyni. Dætur Elínar
eru Þórey Rut Jóhannesdóttir og
Erna Guðmundsdóttir, sambýlis-
maður Ingólfur Már Grímsson.
Þau slitu samvistum.
Reynir var í sambúð síðustu
æviárin með Björgu Stef-
ánsdóttur, f. 1. maí 1939. Börn
hennar og Halldórs Runólfs-
sonar eru: 1) Stefán, í sambúð
með Hjördísi Andrésdóttur, son-
ur þeirra er Davíð Funi. 2) Jó-
hanna Sigríður, í sambúð með
Viðari Baldurssyni. Synir henn-
ar eru: a) Halldór Örn, kvæntur
Hildi Brynjólfsdóttur, börn
þeirra eru Sigrún Björg, Ásgeir
Örn, Ólöf Harpa, og b) Pétur
Ágúst.
Reynir var atvinnubílstjóri
alla sína starfsævi. Framan af
keyrði hann rútur hjá föður sín-
um, síðar leigubíl hjá Hreyfli og
síðustu starfsárin vörubíl hjá
Þrótti. Einnig starfaði hann um
tíma hjá Mælastöð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Hann var
mikill hestamaður, átti alltaf
góða hesta. Reynir var söng-
maður og söng með Karlakór
Reykjavíkur um nokkura ára
skeið.
Útför Reynis verður gerð frá
Lágafellskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
2) Vilborg, f. 28.
apríl 1959, í sambúð
með Jónasi Karli
Harðarsyni. Synir
þeirra eru Kristinn,
í sambúð með
Thelmu Þorbergs-
dóttur og Jónas
Karl. 3) Kristín, f.
15. júlí 1961, í sam-
búð með Jakobi
Hólm. Börn hennar
og Guðmundar Más
Ástþórssonar eru: a)
Ástþór Reynir,
kvæntur Ásrúnu
Ósk Bragadóttur, börn þeirra
eru Guðmundur Bragi og Katrín
Ósk, b) Ásdís Rut, í sambúð með
Hilmari Guðmundssyni og c)
Gísli Már. 4) Erna, f. 2. sept-
ember 1968, gift Herberti Ped-
ersen. Dætur þeirra eru Lára
Kristín og Andrea Rut.
Reynir var um tíma í sambúð
með Andreu Helgadóttur, f. 13.
nóvember 1927, d. 26. júlí 2003.
Elsku afi,
nú ertu kominn til ömmu og
hættur að vera veikur. Ég sakna
þín en ég veit að þér líður betur
núna og að þú vakir yfir okkur.
Síðustu mánuðirnir voru þér erf-
iðir en þér tókst að halda skop-
skyninu í gegnum þennan tíma og
það var svo indælt að koma í heim-
sókn til þín og hlusta á sögurnar
þínar.
Ég gleymi aldrei kvöldinu sem
ég kom til þín þegar mesta frostið
var. Mér var svo kalt á höndunum
en þú tókst utan um þær og hlýj-
aðir mér og við sátum hönd í hönd
allan tímann sem ég var hjá þér.
Takk fyrir það, afi minn. Takk fyr-
ir þann tíma sem við fengum að
hafa þig hjá okkur og hvíl í friði,
elsku afi Reynir.
Erna.
Afi Reynir.
Elsku afi minn. Eftir langa bar-
áttu ertu nú farinn á betri stað,
þín verður sárt saknað. En ég held
í góðu minningarnar úr Ljósheim-
unum, Njálsgötunni, hesthúsinu,
hjólhýsinu og vörubílnum. Ég
þakka þær stundir sem ég átti með
þér í hesthúsinu við Rauðavatn,
þar sem ég fékk mína fyrstu
reynslu í að umgangast hesta, sem
varð svo að stórum hluta í mínu
lífi. Í hjólhýsinu áttum við góðar
stundir og sérstaklega þegar við
sóttum hundinn Hýra niður í Lax-
árnes. Eftir á að hyggja var það
ótrúlegt hversu oft þú nenntir að
sækja mig inn í Logafold á vöru-
bílnum til að skutla mér upp í
hesthús í miðri vinnu. Við systk-
inin munum ávallt minnast þín sem
góðs afa, sem ávallt var gott að
eiga að. Hvíldu í friði, kæri afi, og
megi minning þín lifa sem lengst.
Ástþór Reynir Guðmundsson.
Myndin sem leitar á huga minn
er falleg. Reynir á sjúkrabeði sín-
um og leitar eftir hönd Bjargar
sem situr við rúmið. Ég fann að á
milli þeirra streymdi meiri kær-
leikur en ég hafði gert mér í hug-
arlund og að þetta var ekki í fyrsta
skipti sem þau héldust í hendur á
þennan hátt. Þetta var viku áður
en Reynir kvaddi þennan heim, á
Líknardeildinni í Kópavogi þar
sem hann lá frá því á Þorláks-
messu. Ég hafði aldrei þessu vant
ekið Björgu og heilsað upp á Reyni
í leiðinni
Ég hitti Reyni fyrst fyrir um 19
árum þegar hann byrjaði að draga
sig eftir Björgu sem var ekkja og
hann ekkill. Við Björg kynntumst
hins vegar fyrir meira en 30 árum.
Makar okkar voru í JC og við báð-
ar í fyrstu stjórn JC Víkur. Björg
segir að ég hafi verið sú eina sem
áttaði mig ekki á að eftir jarðarför
Halldórs mannsins hennar hafi
heimsóknartíminn verið búinn. Ég
hélt nefnilega áfram að koma við
þegar ég átti leið í bæinn.
Með Björgu sem milligöngu-
mann fékk ég íbúð á Njálsgötunni
hjá móður Reynis 1988 eða 1989
þegar ég var í KHÍ. Næstu ár hitti
ég Reyni af og til þegar ég heim-
sótti Björgu. Fyrst á Baldursgöt-
unni þar sem hún bjó en síðar á
öðrum stöðum þar sem þau bjuggu
saman.
Hvenær þekkir maður aðra
manneskju? Svörin eru mismun-
andi og öll geta verið rétt. Ég
kynntist Reyni á síðasta skeiði lífs
hans. Ég þekkti ekki grallarann,
bílstjórann, söngmanninn, dansar-
ann eða hestamanninn Reyni. En
ég heyrði af honum. Hins vegar
kynntist ég kurteisum hæglátum
manni sem alltaf heilsaði mér af
hlýleik með „Komdu sæl, Valla
mín“, þegar ég kom í heimsókn.
Honum tókst að fá þessa pjattrófu
hana Björgu á hestbak og hefði ef-
laust gert hana að hestakonu ef
honum hefði enst heilsa.
Seiglan í Reyni var ótrúleg.
Hann fékk heilablóðfall fyrir 5 ár-
um og lamaðist en komst aftur á
fætur og byrjaði líka að keyra. Síð-
ustu 4 ár hef ég heimsótt þau í
litlu fallegu íbúðina þeirra á Þórð-
arsveig. Aftur fékk hann áfall og
náði sér furðanlega. Þegar þau
voru á Heilsustofnuninni í Hvera-
gerði í október/nóvember gerðist
þetta enn og hann fór á spítala. Þá
datt engum í hug að hann væri
með krabbamein. Það var ekki fyrr
en eftir ítarlega rannsókn að það
varð ljóst og átti að skera smá
meinsemd úr maganum. Hún
reyndist meiri en hægt var að ráða
við. Honum var lokað aftur og þá
hófst biðin.
Það hefur skapast sú venja að
ég heimsæki Björgu eftir nætur-
vaktir því hún fór alltaf til Reynis
um hádegið og var hjá honum fram
á kvöld. Þannig fylgdist ég með
veikindum hans. Þetta vissi hann
greinilega því hann spurði mig
hvort ég hefði verið á næturvakt
þetta síðasta skipti sem ég sá hann
vakandi og getið er um hér í upp-
hafi. Alltaf jafn notalegur þakkaði
hann mér fyrir að hafa komið með
hana. Hann var ánægður með
umönnun á Líknardeildinni og
sagðist vera eins og á 5 stjörnu
hóteli. Æðrulaus beið hann síns
skapadægurs.
Elsku Björg og Reynisdætur, ég
bið ykkur Guðs blessunar og megi
minningin um góðan félaga og föð-
ur lifa sem lengst.
Valbjörg (Valla.)
Ég trúi á ljós, sem lýsir mér,
á líf og kærleika,
á sigur þess, sem sannast er,
og sættir mannanna.
Á afl sem stendur ætíð vörð
um allt, sem fagurt er,
á Guð á himni, Guð á jörð
og Guð í sjálfum mér.
(Ólafur Gaukur.)
- Amazing Grace
Takk fyrir allt.
Jóhanna og fjölsk.
Gefðu ungum gæðingum. Nú
þegar fyrrum tengdafaðir minn er
látinn eftir snörp veikindi, hugsa
ég til baka og þá hlaðast upp
minningar sem aðalega tengjast
hestamennsku. Þessi laglína kom
þá upp í huga mér. Um leið og ég
kynntist Reyni, 1976, tók hann mig
strax með sér í hestastúss sem
leiddi af sér margar ánægjustund-
ir. Þó að Reynir væri borgarbarn
var hann búinn að stunda hesta-
mennsku frá því hann var ungur
maður og því margt sem ég gat
lært af honum. Einhvern veginn
varð hestaumræðan minnisstæðust
í samskiptum okkar og þegar ég
heimsótti hann í veikindunum var
fátt annað rætt en hestamennska
og þá eins og oft áður var gjarnan
slegið á létta strengi.
Gefðu ungum gæðingum
græna tuggu’ á morgnunum.
Launa þeir með léttfærum,
lipru, sterku fótunum
Ég votta fjölskyldu Reynis sam-
úð mína.
Guðmundur Már
Ástþórsson.
Reynir Kristinsson
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KOLBEINN KOLBEINSSON
frá Kollafirði,
Reynihvammi 40,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 29. febrúar.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju föstudaginn
7. mars kl. 11.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Agnar Kolbeinsson, Lóa Hallsdóttir,
Kolbeinn Agnarsson, Guðríður Jónsdóttir,
Kristrún Agnarsdóttir,
Róbert Agnarsson, Sigrún Ósk Ómarsdóttir,
Ásdís Helga Agnarsdóttir
og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
MAGNÚS ÞORVARÐARSON,
Fannafold 127a,
112 Reykjavík,
lést að heimili sínu laugardaginn 1. mars.
Hólmfríður Gísladóttir,
Rósa Magnúsdóttir, Pétur Eysteinsson,
Steinunn Magnúsdóttir, Georg Eggertsson,
Þ. Hjalti Magnússon, Sigríður María Sverrisdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN GUÐLAUGSSON
frá Vík í Mýrdal,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
4. mars.
Margrét Ögmundsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Oddur Þórðarson,
Jóna Jónsdóttir, Pétur Eiríksson,
Guðlaugur G. Jónsson, Sigríður Ingunn Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.