Morgunblaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ég kynntist Finna
frænda ekkert al-
mennilega fyrr en á
síðasta ári. Hann hafði verið búsettur
á Taílandi síðastliðin ár og ég frétti af
honum af og til í gegnum ömmu og
afa. Þegar Finni kom til Íslands í síð-
asta skipti, í fyrra, kynntumst við bet-
ur og mikið rosalega er ég þakklát
því. Ég og Finni gátum spjallað tím-
unum saman og man ég sérstaklega
Finnur Freyr
Guðbjörnsson
✝ Finnur FreyrGuðbjörnsson
fæddist í Keflavík
29. júní 1963. Hann
lést á sjúkrahúsi í
Taílandi hinn 7.
febrúar síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju
20. febrúar.
eftir einu áhugamáli
sem við áttum sameig-
inlegt, það voru
hundar. Finni átti eitt
sinn hundinn Mozart
og ég er með stóran
hund á mínu heimili
svo við gátum skipst á
mörgum sögum. En nú
er hann frændi minn
farinn og ég er viss um
að honum líði vel, hvar
sem hann er.
Elsku pabbi minn,
ég samhryggist þér
innilega,
Tinna María.
Kæri vinur. Það eru orðin ansi
mörg ár síðan við vorum óaðskiljan-
legir vinir og brölluðum við margt
saman sem lengi var hlegið að. Því
miður skildu leiðir okkar þegar við
vorum 17 ára gamlir þar sem við fór-
um hvor í sína áttina en vorum þó
ávallt góðir vinir. Mig hefur oft orðið
hugsað til þín í gegnum lífið og veit að
þín verður vel gætt hinumegin.
Stefaníu, Bóa og fjölskyldu sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Sverrir.
Mig langar að fara nokkrum orðum
um æskufélaga minn Finn Frey Guð-
björnsson sem fallinn er frá langt fyr-
ir aldur fram.
Það voru forréttindi að alast upp í
hverfinu okkar Finna í Keflavík þar
sem gleði, leikur og gaman voru okk-
ar aðalsmerki. Það voru aðeins þrjú
hús á milli heimila okkar þar sem ég
bjó við Krossholtið og hann á Faxa-
brautinni. Það var því oft sem við
heimsóttum hvor annan, tókum spil
eða spiluðum borðtennis. Heim til
Finna var gott að koma, enda heimilið
hlýlegt og snyrtilegt í alla staði.
Ósjaldan var matar- og bökunarlykt í
eldhúsinu sem var gott því henni
fylgdi alltaf góðgæti frá Stefaníu,
móður Finna. Í baklóðinni var svo æv-
intýrastaðurinn þar sem krakkarnir í
hverfinu komu allir saman, spiluðu
fótbolta og léku sér. Finnur var góður
íþróttamaður og gaf sig allan í fótbolt-
ann hvort sem um leik eða keppni var
að ræða. Heiðarbúar hét liðið okkar
og þar var spilað af krafti og ánægju í
öllum frítímum sem í minningunni
voru æði margar. Úr þessu hverfi eig-
um við öll sem þarna ólumst upp ynd-
islegar minningar um góða, áhyggju-
lausa og skemmtilega tíma.
Þegar ég sjálfur fór í heimavistar-
skóla skildi leiðir en fréttir af Finna
voru aldrei langt undan. Það var svo
fyrir um tíu árum að við vorum svo
heppinn að fá foreldra Finna, þau
Stebbu og Guðbjörn, til liðs við okkur
í fjölskyldufyrirtækinu, Hótel Kefla-
vík, þar sem þau starfa enn af miklum
krafti og eru orðin órjúfanlegur hluti
af liðinu okkar og þeirri þróun sem
þar hefur orðið. Umhyggja þeirra
sem við þar upplifum var sú um-
hyggja sem Finni naut einnig frá for-
eldrum sínum alla tíð og gaf honum
mikið enda leitaði hann mikið til
þeirra sem um leið gaf okkur tíma til
að hittast og ræða liðna tíma.
Síðast þegar ég hitti Finna seint á
síðasta ári á skrifstofu minni gaf hann
sér góðan tíma til að segja mér frá
nýja lífinu sínu í Taílandi þar sem
hann hefði fundið ástina og staðinn
fyrir sína framtíðardrauma. Spenntur
sagði hann mér frá sinni paradís, fólk-
inu sem þarna bjó, landinu og hrís-
grjónaræktinni sem hann tók nú full-
an þátt í og hafði lagt sitt af mörkum
með verklegri þekkingu og dugnaði.
Og þarna leið honum vel, í austrinu,
þar sem dagurinn rís með suðrænum
þey átti hann sér þann æðsta draum
með unnustu sinni að kaupa litla land-
spildu og rækta sinn eigin garð. En
nú þegar stundin er komin hjá Finna
er gott að rifja upp góðar minningar
um liðnar æskustundir og láta hug-
ann reika um drauma hans og upp-
lifun á nýjum framandi stað sem hann
lét sína nánustu hér á Íslandi fylgjast
með minnst vikulega allt til enda. Þó
þau samtöl þaðan verði ekki fleiri að
sinni munum við hitta Finna aftur á
nýjum og enn meira framandi stað.
Elsku Stebba mín og Guðbjörn, ég
votta ykkur mína dýpstu samúð og
bið góðan Guð að gefa ykkur styrk á
sorgarstundu sem og bræðrum Finna
og öðrum aðstandendum.
Blessuð sé minning hans.
Steinþór Jónsson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Minningargreinar
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES BJARNASON
áður til heimilis í Sólheimum 25,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn
29. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmunda H. Jóhannesdóttir,
Bjarni M. Jóhannesson, Herdís Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, fósturföður, tengdaföður og afa,
ÁRMANNS HALLDÓRSSONAR
fyrrum kennara á Eiðum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 3. hæðar Skjóls fyrir
umönnun síðustu árin.
Ingibjörg Kristmundsdóttir,
Eygló Eiðsdóttir, Knútur Hafsteinsson,
Kári, Vera og Elín Inga.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI HELGASON
fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma,
sem lést þann 27. febrúar verður jarðsunginn frá
Stykkishólmskirkju laugardaginn
8. mars og hefst athöfnin kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð
Stykkishólmskirkju - Heimahornið s. 438 1110 og Kristniboðssamband
Íslands s. 533 4900.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.00 sama dag.
Gunnlaugur A. Árnason, Sigrún Valtýsdóttir,
Halldór Árnason, Anna Björg Eyjólfsdóttir,
Helgi Árnason, Aðalbjörg Jónasdóttir,
Vilborg Anna Árnadóttir, Jón Trausti Jónsson,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON
frá Sólvangi í Vestmannaeyjum,
Hagaseli 28,
Reykjavík,
lést föstudaginn 22. febrúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 7. mars kl. 15.00.
Margrét Guðjónsdóttir,
Guðjón Harðarson, Hrönn Ólafsdóttir,
Ágúst Harðarson, Bryndís Guðjónsdóttir,
Bjarni Harðarson,
Hilmar Harðarson,
Fanney Harðardóttir, Guðmundur Már Þorvarðarson,
María Harðardóttir, Siggeir Kolbeinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR
Fellsmúla 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
7. mars kl. 14.00.
Einar Norðfjörð,
Guðrún Norðfjörð, Steinar V. Árnason,
Sigurbjörg Norðfjörð, Þorgeir Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGA JENNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn
7. mars kl. 13.00.
Gyða Vigfúsdóttir, Knútur Birgisson,
Gréta Vigfúsdóttir, Guðmundur Birgisson,
Árni Guðjón Vigfússon, Hrönn Hallgrímsdóttir,
Karen Jenný Heiðarsdóttir, Arnar Þór Guttormsson,
Vigfús Þór Heiðarsson,
Birgir Kristján Guðmundsson, Jóna Björg Ólafsdóttir,
Inga Vigdís Guðmundsdóttir,
Gísli Pétur Árnason,
Kristjana Ólöf Árnadóttir
og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
lést laugardaginn 1. mars á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 11. mars kl. 14.00.
Guðni Þ. Skúlason, Magnea Valdimarsdóttir,
Snorri S. Skúlason, Sigrún Einarsdóttir,
Guðrún Skúladóttir, Björn Bjarnason,
Birna B. Skúladóttir, Sigurður H. Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÚLÍUS RAFNKELL EINARSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
2. mars.
María Guðrún Ögmundsdóttir,
Ástríður Júlíusdóttir, Samúel Ingimarsson,
Guðrún Júlíusdóttir, Ingibergur Þór Kristinsson,
Einar Júlíusson, Lára Brynjarsdóttir,
Ragnheiður Júlíusdóttir, Rúnar Oddur Guðbrandsson,
Ásdís Júlíusdóttir, Jónas Guðbjörn Þorsteinsson,
Sigrún Júlíusdóttir, Sigurður I. Hreinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
VALGERÐUR STEINUNN SIGURVINSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
2. mars.
Útför fer fram frá Njarðvíkurkirkju laugardaginn
8. mars kl. 11.00.
Halldór Ómar Pálsson,
Halldór Páll Halldórsson, Brynhildur Ólafsdóttir,
Dagbjört Rós Halldórsdóttir
og barnabörn.