Morgunblaðið - 05.03.2008, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Það eru ekki allir
svo heppnir að eiga
ömmu. Við systurnar
erum svo heppnar að
hafa átt fimm ömmur,
hvorki meira né minna. Þrátt fyrir að
hinn eiginlegi skyldleiki væri ekki
fyrir hendi var frú Birna alltaf amma
Bíbí í okkar augum. Mikill vinskapur
móður okkar, Guðrúnar Helgu, og
Siggu leiddi til þess, að við fengum
að kynnast ömmu Bíbí. Þær vinkon-
urnar hafa alltaf verið mjög sam-
rýndar, svo samrýndar, að þær eign-
uðust báðar sitt fyrsta barn sama
árið og sitt annað barn þremur árum
síðar, og eignuðumst við systur þar
okkar bestu vini. Sigga eignaðist svo
Villa sex árum síðar, en tókst ekki að
fá móður okkar í lið með sér í það
skiptið, og erum við systurnar því að-
eins tvær. Það var þó ekki aðeins
þessi vinskapur, sem tengdi móður
okkar og ömmu Bíbí, því afi okkar
Agnar og Vilhjálmur voru frændur
og góðir vinir.
Amma Bíbí átti stóran þátt í upp-
eldi okkar þar sem við eyddum
ófáum stundum á Ásvallagötunni og
seinna á Flyðrugrandanum hjá
Siggu og fjölskyldu, Ingaló með Þór-
arni Alvari og Anna Helga með
Birnu. Það var alltaf spennandi að
komast að því hvort amma Bíbí væri
í heimsókn, sem hún var ósjaldan,
því að það þýddi meðal annars
pönnukökur – og það engar venju-
legar pönnukökur heldur heimsins
bestu pönnukökur. Við minnumst
þess hve hissa hún var á því, að stelp-
ur, sem voru „ekkert nema skinn og
bein,“ gætu borðað svona margar
pönnukökur. Það var nefnilega aldr-
Birna Halldórsdóttir
✝ Birna Halldórs-dóttir fæddist í
Reykjavík 20. apríl
1918. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sóltúni 15. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Dómkirkjunni
25. febrúar.
ei hætta á öðru en að
amma Bíbí segði sínar
skoðanir, sama hvort
það var á holdafari,
klæðaburði eða ein-
hverju öðru, en hún
hafði einstakt lag á að
gera það á þann máta
að engum sárnaði.
Við gætum sagt
margar skemmtilegar
sögur af ömmu Bíbí,
skemmtilegri konu var
erfitt að finna þó að
víða væri leitað. Ein af
þeim er af því þegar
hún hitti vonbiðil annarrar okkar í
fyrsta sinn. Eftir að hafa heilsað hon-
um með handabandi greip hún um
kjálka hans svo hann átti ekki ann-
arra kosta völ en að opna munninn.
Hún leit upp í hálfskelkaðan dreng-
inn og sagði: „Hann er vel tenntur
þessi“. Án frekari málalenginga var
hann samþykktur á staðnum. Frá
þessari stundu minntist amma Bíbí
alltaf á, að það væri með eindæmum
hversu vel tenntur sá ungi maður
væri, þegar nafn hans bar á góma.
Amma Bíbí var án efa mesti kven-
skörungur, sem við systurnar höfum
kynnst, og erum við einstaklega
þakklátar fyrir að hafa fengið að
kynnast henni. Með þessum orðum
viljum við senda Laufeyju, Halldóri,
Siggu og fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Anna Helga og
Ingunn Jónsdætur.
Það er komið að kveðjustund
mætrar konu.
Birna eða Bíbí hans Villa, eins og
hún var alltaf kölluð á Brekkunni á
Sigló, er kvödd í dag.
Þær eru margar minningarnar
sem við eigum um æskuárin á Hlíð-
arveginum á milli kirkjugarðsins og
Gryfjanna á Siglufirði. Samfélag það
samanstóð af sex íbúðarhúsum sem
var búið í: Ólahúsi, sem var miðdepill
tilverunnar, Bíbíar og Villahúsi, Þrá-
inshúsi, Kjartanshúsi, Guðbrands-
húsi og Hátúni. Á Brekkunni voru yf-
ir 30 börn, flest undir fermingu. Öll
þessi börn áttu sér mikið og gott
samfélag, léku sér alltaf saman alla
daga uppi í bæjarlæknum í fjallinu
og á Ólatúninu, en það var aðalleik-
svæðið. Flesta daga lékum við okkur
úti í gömlu, góðu leikjunum.
Í þessu samfélagi fannst okkur að
Bíbí væri „fína frúin“ enda hafði hún
og Villi búið í Danmörku. Heimili
þeirra var mikið menningarheimili
og þar var píanó. Bíbí spilaði á það;
flottur stóll, Eggið, sem nú er orðinn
mjög fræg hönnun, og svo var Bíbí í
bridgeklúbb. Kaffið var alltaf drukk-
ið úr næfurþunnum, fallegum postu-
línsbollum og stundum var kveikt í
Chesterfield-sígarettu sem var reykt
úr munnstykki. Þetta þótti okkur
krökkunum mjög fínt.
Þó að okkur krökkunum fyndist
heimilið afar fínt þá vorum við alltaf
hjartanlega velkomin þangað og
fengum að leika okkur inni með
þeirra börnum eins og við værum
heima hjá okkur. Það var ávallt
ánægjulegt að fá að hjá henni ristað
brauð í kaffitímanum vegna þess að
það var boðið upp á jarðarberjasultu
á það sem var ekki á boðstólum hjá
okkur hinum þar var rabbarbar-
asulta. Ekki spilltu húsráðendur fyr-
ir því að þau tóku okkur öllum af
hlýju og elskusemi. Engin mann-
eskja sem við höfum kynnst brosti
eins mikið og fallega og Bíbí. Það var
sama hvenær maður mætti henni þá
var strokinn vanginn og brosið henn-
ar náði svo sannarlega til augnanna.
Villi var verkfræðingur og stjórn-
aði Síldarverksmiðjunum, SR. Hann
var alltaf að flýta sér en gaf sér þó
tíma til að kyssa Bíbí bless og segja
„takk fyrir matinn, ástin mín“ og líka
að kyssa börnin sín. Já þau voru svo
sannarlega elskulegt og yndislegt,
gott fólk. Það var mikið áfall fyrir
alla þegar Villi dó af slysförum langt
um aldur fram.
Það er gott að eiga svona minn-
ingar um gullmola æskunnar. Maður
er miklu ríkari fyrir vikið.
Við sendum öllum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Birnu Hall-
dórsdóttur.
Guðbrandsbörnin af Brekkunni.
MINNINGAR
Kristinn var ofsa-
lega skemmtilegur
maður. Aldrei logn-
molla í kringum hann.
Hugmyndaríkur, frjór,
forvitinn, uppátækja-
samur, fyndinn og mikill eldhugi. En
hann var ekki bara uppspretta ný-
Kristinn Kristjánsson
✝ Kristinn Krist-jánsson fæddist
í Reykjavík 23. sept-
ember 1954. Hann
lést á heimili sínu 5.
febrúar síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Fossvogskirkju
15. febrúar.
stárlegra hugmynda.
Hann hrinti þeim líka í
framkvæmd. Það hafði
hann umfram marga
aðra menn. Um það
vitna öll félögin sem
hann hefur komið ná-
lægt því að stofna og
starfrækja.
Ég man hvenær við
hittumst fyrst en ein-
hverra hluta vegna
finnst mér ég hafa
þekkt hann alla ævi.
Samt höfum við allt-
af farist á mis. Þannig
séð. Fyrst fórumst við á mis þegar
hann byrjaði í Ísaksskóla en ég var þá
nýútskrifaður þaðan. Næst var það
þegar ég hætti í Hlíðaskóla en sama
ár var hann að stíga sín fyrstu skref
þar. Svo var það árið sem hann út-
skrifaðist úr íslenskudeild Háskóla
Íslands en það ár hóf ég nám í ís-
lensku við sama skóla. Þegar ég hætti
að kenna íslensku í Fjölbrautaskólan-
um við Ármúla tók hann við af mér.
Svo þegar hann lét af foringjatign
Hins íslenska glæpafélags og settist í
virðulegan sess heiðursforingja þá
tók ég við af honum sem foringi.
Þrátt fyrir að hafa ævinlega farist á
mis á þennan hátt höfum við alltaf
þekkst. Þannig er það bara. Og núna
förumst við á mis enn einu sinni og í
þetta skipti í hinsta sinn.
Ég sendi Vilbergi, systkinum
Kristins og öðrum ástvinum samúð-
arkveðjur.
Eiríkur Brynjólfsson.
Elsku amma. Við er-
um viss um að þér líður
vel núna og að afi hefur tekið á móti
þér með opinn faðm. Það verður
skrýtið að koma á Hvammstanga eða
í sveitina núna þegar þú ert farin. En
við munum hugsa til þín og ef til vill
muntu kíkja við til okkar án þess að
við verðum þess vör.
Við munum alltaf muna þig. Við
Ósk Ágústsdóttir
✝ Ósk Ágústs-dóttir fæddist í
Kirkjuhvammi í V-
Húnavatnssýslu 20.
febrúar 1923. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Hvamms-
tanga 8. febrúar síð-
astliðinn og fór
útför hennar fer
fram frá Hvamms-
tangakirkju 15.
febrúar.
munum muna þig sem
glaðværa, umhyggju-
sama, einstaklega dug-
lega og hlýja mann-
eskju. Manneskju sem
hafði mikla samúð,
manneskju sem grét ef
aðrir grétu eða áttu
bágt. Barngóð og gef-
andi varstu líka. Þú
varst konan sem iðu-
lega hugsaðir um aðra
á undan sjálfri þér,
settir matinn á borðið
en beiðst með að fá þér
sjálf þar til allir voru
búnir að borða. Við munum muna þig
sem óstöðvandi í því sem þú tókst þér
fyrir hendur hvort sem það var elda-
mennska, bakstur, garðurinn eða að
annast börnin eða dýrin. Sum okkar
þurfa að biðjast afsökunar á því að
stela jarðarberjum úr garðinum þín-
um.
Elsku amma, þau voru bara svo
góð, eins og allt sem þú ræktaðir. Þú
hafðir einstakt lag á blómum og garð-
urinn þinn var alltaf svo fallegur. Við
viljum þakka þér fyrir að halda tásl-
unum okkar heitum á veturna með
því að senda okkur ullarsokka og
peysur sem þú hafðir sjálf prjónað.
Við viljum þakka fyrir allar kleinurn-
ar og pönnsurnar og við þökkum fyrir
að þú skammaðir okkur þegar við
gerðum eitthvað af okkur. Við þökk-
um þér líka fyrir að hugga okkur þeg-
ar eitthvað var að. Við þökkum fyrir
að hafa fengið að vera hjá þér í sveit-
inni. Það var okkur dýrmætt.
Með þessum fáu orðum viljum við
þakka fyrir allt sem þú hefur gert fyr-
ir okkur og gefið okkur fjölskyldunni.
Við þökkum Guði fyrir þig og alla ætt-
ina okkar og biðjum þess að englarnir
gæti þín og afa. Einnig biðjum við
Guð að blessa stelpurnar þínar,
tengdasyni, barnabörn og barna-
barnabörn, aðra ættingja, vini og
kunningja sem nú eiga um sárt að
binda. Við gleymum þér aldrei.
Lísa, Svava og Sindri.
FRÉTTIR
BERGÞÓRA Sigríður Snorradóttir,
Fífa Konráðsdóttir, Phatsawee
Jansook og Skúli Skúlason, dokt-
orsnemar við lyfjafræðideild Há-
skóla Íslands, hafa hlotið viðurkenn-
ingu úr Verðlaunasjóði Bergþóru og
Þorsteins Scheving Thorsteinssonar
lyfsala.
Þetta er í fjórða sinn sem sjóð-
urinn veitir doktorsnemum í lyfja-
fræði við Háskóla Íslands viðurkenn-
ingu fyrir framúrskarandi
rannsóknir í lyfjafræði. Heildar-
upphæð styrks er 1.400.000 krónur
og hlýtur hver styrkhafi kr. 350.000.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
Verðlaunasjóði Bergþóru og Þor-
steins Scheving Thorsteinssonar lyf-
sala er ætlað að styrkja vísindaleg
afrek á sviði lyfjafræði, rannsóknir
og framhaldsnám í faginu. Hefur
sjóðurinn stutt við kraftmikla upp-
byggingu doktorsnáms í lyfjafræði
við Háskólann og gert nemendum
kleift að kynna rannsóknir sínar er-
lendis og taka þátt í erlendu sam-
starfi í tengslum við doktorsnámið.
Rannsóknarverkefni Bergþóru
gengur út á að rannsaka eiginleika
sílíkonforðakerfa og þróa forðakerfi
fyrir gjöf á lyfjum og öðrum líf-
virkum efnum í gegnum húð.
Rannsóknarverkefni Fífu felur í
sér þróun augndropa og burðarefna
fyrir lyf sem innihalda fitusýrur sem
einangraðar eru úr fiskalýsi.
Rannsóknarverkefni Jansook
fjallar um þróun á nanótækni til
lyfjagjafar í auga með það fyrir aug-
um að auka flæði lyfja inn í bakhluta
augans sem og mynda lyfjaforða í
auga þannig að fækka megi lyfja-
gjöfum.
Markmið rannsóknaverkefnis
Skúla er að bæta lyfjagjöf á slímhúð
og þróa lyfjaform sem ná góðri slím-
himnuviðloðun og gefa möguleika á
að stjórna losun lyfs frá því.
Bent Scheving Thorsteinsson
stofnaði sjóðinn í maí árið 2001 til
minningar um föður sinn, Þorstein
Scheving Thorsteinsson lyfsala í
Reykjavíkurapóteki, og eiginkonu
hans Bergþóru Patursson. Í desem-
ber 2007 bætti Bent um betur og
lagði til viðbótarframlag við höf-
uðstól sjóðsins. Eigið fé sjóðsins er
því orðið um 20 milljónir króna en
samtals hefur Bent gefið Háskóla Ís-
lands 60 milljónir króna sl. sjö ár
með stofnun þriggja sjóða sem heyra
undir Styrktarsjóði Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Afhending Doktorsnemarnir fjórir ásamt aðstandendum sjóðsins og
starfsmönnum Háskóla Íslands, þ.á m. Kristínu Ingólfsdóttur rektor.
Styrkir veittir til dokt-
orsnema vegna fram-
úrskarandi verkefna
Bridsfélag Kópavogs
Þriggja kvölda hraðsveitakeppni
hófst sl.fimmtudag.
Eftir fyrsta kvöldið er staða
sveita:
Sveit Guðlaugs Bessasonar 564
Sveit Vina 555
Sveit Svölu Pálsdóttur 552
Sveit Lofts Péturssonar 549
Sveit Baldurs Bjartmarssonar 544
Spilamennsku verður fram haldið
næsta fimmtudag.
Bridsdeild Sjálfsbjargar,
Reykjavík
Tvímenningur var spilaður á 10
borðum sl.mánudag.
Úrslitin í N/S:
Kristján Albertss. - Guðjón Garðarss. 254
Lilja Kristjánsd.- Haraldur Sverriss. 242
Ingolf Ágústsson - Skúli Sigurðsson 235
A/V
Kári Jónsson - Marteinn Marteinss. 262
Unnar Guðmss. - Jóhannes Guðmannss.244
Sigríður Gunnarsd.- Björn Björnsson 236
Keppni lýkur næsta mánudag, en
l7. mars verður spilaður eins kvölds
barometer - páskakeppni. Allt spila-
áhugafólk velkomið í Hátún.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 3.3.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 292
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 272
Ólafur Ingvarss. – Birgir Sigurðss. 232
Árangur A-V
Ólafur Kristinss. – Vilhj. Vilhjálmss. 276
Oddur Jónsson – Oddur Halldórsson 262
Jón Hallgrímss. – Eyjólfur Ólafsson 237
Þröstur Sveinss. – Bjarni Ásmunds 237
Gullsmárinn
Það var spilað á 12 borðum 3/3 og
urðu úrslitin þessi í N/S:
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 201
Birgir Ísleifsson – Örn Einarsson 195
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánss. 189
Gunnar Sigurbjörnss. – Karl Gunnarss. 175
A/V
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 210
Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmundss. 200
Steindór Árnason – Einar Markússon 182
Óli Gíslason – Sigfús Skúlason 182
Úrslit í N/S 28/2 10 borð
Ólafur Gunnarss. – Sigurður Björnsson 229
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 213
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 187
Jón Stefánsson – Eysteinn Einarsson 181
A/V
Katarínus Jónsson – Magnús Ingólfsson 202
Aðalheiður Torfad. – Guðrún Gestsd. 191
Dóra Friðleifsd. – Heiður Gestsdóttir 190
Guðríður Ingimundard. – Kristín Sigfúsd.
174
Fimmtudaginn 13. mars verður
svo spilað á 20 borðum (samtals) við
Reykjavík.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 2/3 var spilaður tví-
menningur í Breiðfirðingabúð. Röð
efstu para var þessi:
Norður/Suður
Björgvin Kjartanss. - Bergljót Aðalstd. 243
Ráðhildur Sigurðard. - Magnús Sigurbjs.234
Björn Sigurbjörnss. - Bragi Bjarnas. 234
Austur/Vestur
Garðar V Jónsson - Baldur Bjartmars 252
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 246
Sigfús Skúlason - Óli Gíslason 238
Sunnudaginn 9/3 verður spilaður
einskvölds tvímenningur Barometer
Síðan verður páskahlé.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is