Morgunblaðið - 05.03.2008, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Álver til bjargar?
Geir H. Haarde sagði á Alþingi í
gær að bygging nýs álvers gæti blás-
ið lífi í kólnandi glæður íslensks at-
vinnulífs. Hann sagði einnig að nýir
kjarasamningar myndu stuðla að
auknum jöfnuði og jafnvægi í efna-
hagsmálum. » 11
Heimgreiðslur
Meirihlutinn í borgarstjórn lagði
til í gær að foreldrar sem er biðu eft-
ir leikskólaplássum fengju heim-
greiðslur. Í umræðum um tillöguna
voru heimgreiðslurnar kallaðar
„kvennagildra.“ » 8
Einkaneysla eykst
Almenningur hefur ekki dregið úr
neyslu þrátt fyrir neikvæðar fréttir
af efnahagslífinu. Bílar og utan-
landsferðir seljast sem aldrei fyrr.
» Miðopna
Stórar fjárfestingar
Þrír af stærstu lífeyrissjóðunum
hafa fest stóran hluta þess fjár sem
þeir verja til fjárfestinga í skráðum
innlendum hlutabréfum í Kaupþingi,
Exista og Bakkavör. » Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Eru rök drykkju-
mannsins gild?
Forystugreinar: Vextir og verð-
trygging | Framtíð Kenýa bjargað?
Ljósvaki: Morgunvaktarmenn sofa
lengur
UMRÆÐAN»
Evran og ESB
Akureyri: Öll lífsins gæði?
Þingmaður á réttri braut?
Álftanes – er ekki allt í lagi?
!!4 !!4 4!
4
4 !4
4!'!
!4 5&""%6(&/$",
$%
7&$#"
$"$#
!!4 ! 4'
4 4 ! 4! !4 4
."82 (
!!4 4!'
! 4 4 4!
! 4! 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(88=EA<
A:=(88=EA<
(FA(88=EA<
(3>((A G=<A8>
H<B<A(8?H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 2°C | Kaldast -6°C
NA 8-18 m/s, hvass-
ast á annesjum og
slydduél eða él norðan
til. Léttir til SA-lands
síðdegis. » 10
Valgarður í
Fræbbblunum er
pirraður og miður
sín yfir því hvernig
fólk misskilur pönk-
ið í dag. » 36
TÓNLIST»
Misskilið
pönk
TÓNLIST»
Útför Jakobínurínu fer
fram um helgina. »36
Allsráðandi tölvu-
tækni vakti þrá eftir
hinu persónulega og
innilega. Teikningar
eru aftur komnar í
tísku. » 40
LISTIR»
Innilegar
teikningar
FÓLK»
Farin að þéna vel eftir
langa pásu. » 40
BÆKUR»
Flysjungur og lygalaup-
ur með nýja bók. » 38
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Vinstri fóturinn tekinn af …
2. Leita að nýrri vinnu
3. Varað við stórhríð
4. Orðstír Íslands í ólgusjó
Íslenska krónan veiktist um 0,17%
Þríburaferming verður í Grafarvogskirkju á pálmasunnudag
Amma fermir barnabörnin
Morgunblaðið/Ómar
SÉRA Ólöf Ólafsdóttir fermir þrjú barna-
börn sín, þríbura úr Reykjanesbæ, í Graf-
arvogskirkju 16. mars næstkomandi. Ólöf
starfaði sem prestur aldraðra. Hún skírði
systkinin á sínum tíma og hefur skírt og
fermt barnabörnin frá því hún tók vígslu.
„Þetta er bara ein ferming, þótt þau séu
þrjú, sömu gestirnir og sama veislan. Ein-
tóm hamingja,“ segir Inga Ingólfsdóttir,
móðir fermingarbarnanna Ólafar, Söru og
Sindra Stefánsbarna, þegar hún er spurð
að því hvort ekki sé mikið mál að undirbúa
fermingu þriggja barna. Fjölskyldan flutti
úr Grafarvoginum í Dalshverfi í Reykja-
nesbæ í desember. „Við vorum búin að
panta kirkjuna og salinn fyrir ári og vild-
um halda því þótt við værum flutt. Það er
nóg fyrir börnin að aðlagast nýjum skóla
og umhverfi,“ segir Inga og tekur fram að
allt gangi vel. Fermingin fer fram við
messu þannig að allir gestirnir geta verið
við athöfnina og farið síðan í veisluna á
eftir.
Í gærkvöldi mátaði Sindri hvítu ferming-
arskyrtuna – einu hvítu skyrtuna í eigu
sinni. Systur hans lágu ekki á liði sínu við
mátunina. Foreldrarnir, Inga Ingólfsdóttir
og Stefán Svavarsson, fylgdust stoltir með.
Þríburarnir skírðir Ólafur Bergmann heldur á Sindra, Inga
Ingólfsdóttir, móðir barnanna, heldur á Söru, Stefán Svav-
arsson, faðir barnanna, heldur á Ólöfu. Amman, séra Ólöf
Ólafsdóttir, er svo lengst til hægri í fullum prestsskrúða.
Fremst á myndinni er stóri bróðir þríburanna, Svavar.
TÖLUVERT hefur verið fjallað um tón-
leika Bjarkar Guðmundsdóttur í
Sjanghæ í Kína á sunnudaginn í erlend-
um fjölmiðlum undanfarna daga og þá
sérstaklega þá ákvörðun hennar að til-
einka Tíbetum lagið „Declare Independ-
ence“.
Jónas Sen, einn meðlima í hljómsveit
Bjarkar, segir að hann fundið fyrir
óánægju meðal tónleikagesta vegna
þessa. „Fyrir aukalögin var allt vitlaust
og brjáluð fagnaðarlæti en þegar hún
var búin að syngja „Declare Independ-
ence“ fannst mér salurinn kólna mjög
mikið,“ segir Jónas sem sjálfur var
ánægður með tileinkun Bjarkar. | 41
Björk veldur
titringi í Kína
ERLENDUM leikmönnum hefur
fjölgað mikið í ensku úrvalsdeild-
inni á síðustu árum og er nú svo
komið að heimamenn eru í minni-
hluta.
Af þeim 499 sem leika í deildinni
þessa dagana eru 327 þeirra er-
lendir leikmenn. Aðeins 35 prósent
leikmanna í ensku úrvalsdeildinni
eru gjaldgengir í landslið Eng-
lands. Hin 65 prósentin flokkast
sem erlent vinnuafl. Flestir eru er-
lendu leikmennirnir frá Frakklandi
eða 33 talsins og Íslendingar eiga
fimm fulltrúa þar eins og Finnar og
Argentínumenn. | Íþróttir
Englendingar í minnihluta
Erlendir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar eru 327 af 499
Reuters
Fáir heimamenn Dirk Kuyt, leikmaður Liverpool, er einn fjöl-
margra erlendra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni.