Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Hópferðafyrirtækið Guðmundur
Tyrfingsson ehf. á Selfossi er með allra öfl-
ugustu fyrirtækjum á staðnum og hefur
starfsemi vaxið og dafnað vel í þau tæplega
40 ára sem fyrirtækið hefur starfað.
Guðmundur Tyrfingsson ehf. er fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem Benedikt G. Guðmundsson
er framkvæmdastjóri. Auk þess að stýra fyr-
irtækinu er hann hvatamaðurinn að stofnun
Draugasetursins á Stokkseyri og Álfa-,
trölla- og norðurljósasafnsins. Þá kemur
hann að rekstri nokkurra annarra fyrirtækja.
Henta betur á Íslandi
Það vekur sérstaka athygli hjá Guðmundi
Tyrfingssyni að meira og minna allar rútur
fyrirtækisins eru hannaðar og smíðaðar af
starfsmönnum fyrirtækisins. „Já, það er rétt.
Guðmundur Laugdal Jónsson bifreiðasmíða-
meistari hefur teiknað allar yfirbyggingarnar
og unnið við smíðina ásamt Guðmundi Tyrf-
ingssyni og öðrum starfsmönnum okkar. Bif-
reiðar þessar hafa komið feiknalega vel út,
hvort heldur sem er í fínni hótelferðir eða
ferðir inn á hálendið. Með því að hanna og
byggja yfir bílana fáum við yfirbyggingar
sem henta mun betur fyrir íslenskar að-
stæður en með því að kaupa bifreiðar sem
smíðaðar eru fyrir hraðbrautir í Evrópu, þó
svo að vissulega eigum við talsvert af slíkum
bílum með.
Hitt er annað að bílarnir sem við smíðum
eru dýrari en innfluttir bílar og það er alls
ekki víst að fleiri rútur verði smíðaðar hér á
landi. Þetta er almenn þróun, íslenskur iðn-
aður á undir högg að sækja og í raun bendir
margt til að evrópskur iðnaður eigi það einn-
ig. Vegakerfið hér á landi er einnig óðum að
batna og það er bara tímaspursmál hvenær
hálendisvegir verða gerðir ökufærir fyrir al-
mennar hópferðabifreiðar. Við búum svo vel í
dag að eiga mjög mikla breidd af fjölnota
grindarbílum sem veita okkur forskot í
harðri samkeppni,“ sagði Benedikt.
Í dag býður Guðmundur Tyrfingsson upp á
27 bifreiðar með um 700 farþegasætum með
þriggja punkta öryggisbeltum. Auk þess er
fyrirtækið með 14 bifreiðar með um 500 far-
þegasætum með tveggja punkta örygg-
isbeltum.
„Við erum leiðandi í beltavæðingu hóp-
ferðabifreiða, fyrst með tveggja punkta ör-
yggisbeltum og svo með þriggja punkta ör-
yggisbeltum en síðan árið 2000 hafa allir nýir
bílar sem við höfum smíðað og eða innréttað
verið með þriggja punkta öryggisbeltum. Við
erum ekki stórt fyrirtæki á þessum markaði
en leggjum meiri áherslu á sveigjanleikann
og gæðamálin,“ sagði Benedikt þegar hann
var spurður út í fjölda bíla og sæta sem fyr-
irtækið hefur.
Viðkvæmur flutningur
En hvað með umhverfis- og öryggismálin,
leggur fyrirtækið mikið upp úr þeim málum?
„Já, svo sannarlega, enda erum við með
mjög viðkvæman flutning, sem þýðir að um-
hverfis-, öryggis- og gæðamál eru óaðskilj-
anlegir þættir sem tvinnast saman í okkar
rekstri. Við höfum verið og ætlum okkur að
vera áfram leiðandi félag í þessum efnum,
m.a. vorum við fyrsta félagið til að mynda
okkur stefnu í þessum málaflokkum, fá vott-
un á okkar umhverfisstjórnunarkerfi, halda
árleg námskeið og vorum fyrsta fólksflutn-
ingafyrirtækið til að fá umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs árið 2002. Við reynum að
gera okkar besta í þessum efnum en erum
fyllilega meðvituð um að það er alltaf hægt
að gera betur. Vissulega verða mistök hjá
okkur eins og öðrum en það er okkar skylda
að reyna að fyrirbyggja þau og bregðast rétt
við.
Árlegt námskeiðhald fyrir bifreiðastjóra er
fastur liður í þessari viðleitni okkar auk þess
sem bifreiðastjórum er uppálagt að vinna eft-
ir gæðahandbók okkar sem er í öllum okkar
bifreiðum. Vistaksturs- og skyndihjálp-
arnámskeið eru árviss viðburður auk þess
sem bifreiðastjórar miðla sinni þekkingu á
milli sín og í framhaldinu er gæðahandbók
bifreiðastjóra uppfærð,“ sagði Benedikt.
Góðir starfsmenn
Að lokum er Benedikt spurður hvernig
gangi að reka hópferðafyrirtæki eins og Guð-
mund Tyrfingsson?
„Reksturinn hefur gengið vel og við höfum
verið mjög heppin með starfsmenn allt frá
stofnun félagsins. Mikil þensla á atvinnu-
markaði sl. ár hefur vissulega gert okkur
sem öðrum erfiðara um vik, sérstaklega með
afleysingafólk yfir aðalvertíðina en þetta hef-
ur allt sloppið til. Einnig er það svo að bók-
anir berast sífellt með styttri fyrirvara og því
skiptir sveigjanleiki fyrirtækisins miklu máli
og oft þarf að bregðast mjög hratt við,“ sagði
Benedikt.
Með margar heimasmíðaðar rútur
Athafnamaður Benedikt Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Tyrfingssonar ehf. á
Selfossi, kemur víða við í atvinnulífinu á Suðurlandi. Rútufyrirtækið er þó aðalatvinnan.
Í HNOTSKURN
»Guðmundur Tyrfingsson hóf starfsemimeð fyrsta hópferðabílinn árið 1963
en fyrirtækið var formlega stofnað árið
1969. Það hefur frá upphafi verið með
starfsemi á Selfossi en gerir nú út bíla frá
Reykjavík, Selfossi og ýmsum stöðum á
Suðurlandi.
»Stærsti hluti starfseminnar felst í hóp-ferðaakstri fyrir innlendar og erlend-
ar ferðaskrifstofur sem og í almennum
hópferðum fyrir einstaklinga, skóla og fé-
lagasamtök. Fyrirtækið er einnig með
bílaleiguleyfi og leigir minni hópbifreiðar
jafnframt án bifreiðastjóra auk þess sem
fyrirtækið hefur ferðaskrifstofuleyfi.
Yfir 40 rútur hjá Guð-
mundi Tyrfingssyni
með um 1.200 sætum
Skagafjörður | Karlakórinn Heim-
ir lauk söngsýningum sínum um óp-
erusöngvarann Stefán Íslandi með
tónleikaferð
austur á firði
um liðna helgi,
þar sem dag-
skráin var flutt
á Eskifirði og í
Egilsstaða-
kirkju fyrir
troðfullu húsi.
Alls voru gest-
ir um 400 á þessum sýningum en
talið er að vel á þriðja þúsund
manns, eða um 2.500, hafi hlýtt á
dagskrá Heimismanna.
Frá áramótum hefur sýningin
verið flutt 9 sinnum víða um land,
þar af komu um 1.000 manns á tvær
uppfærslur í Langholtskirkju í
Reykjavík. Að auki var sýningin
sett upp í Skagafirði, Reykholti í
Borgarfirði, á Akranesi og í tví-
gang á Akureyri.
Sýningum er nú lokið í bili en
aldrei að vita hvað gerist ef kórinn
verður beittur þrýstingi, eins og
talsmaður Heimismanna orðaði
það.
Um 2.500 sáu
sýningu Heimis
um Stefán Íslandi
LANDIÐ
Garður | Sveitarfélagið Garður
býður til söngskemmtunar í Gerða-
skóla á morgun, sunnudag, klukkan
20. Skemmtunin er liður í afmæl-
isdagskrá bæjarins.
Flutt verða lög og textar eftir
fólk tengt Garði. Fram koma
Dagný Jónsdóttir, Vignir Berg-
mann, Barnakór Gerðaskóla, Söng-
sveitin Víkingar, Grænir vinir og
hljómsveitin Crash. Veislustjóri er
Þorsteinn Eggertsson. Spilað verð-
ur bingó á milli atriða.
Garðveisla í tilefni
afmælis Garðsins
Eftir Sigurð Sigmundsson
Skeið | Hjónin Kristín Vigfúsdóttir
og Finnur Ingólfsson buðu til hófs í
Vesturkoti á Skeiðum á dögunum en
jörðina keyptu þau fyrir þremur ár-
um. Jörðin er í Ólafsvallahverfi, ekki
allangt austan Hvítár, og er 160
hektarar að stærð.
Í Vesturkoti hefur verið byggð
upp glæsileg aðstaða til hestahalds.
Fjósi sem byggt var árið 1988 hefur
verið breytt í 28 hesta hesthús ásamt
rúmgóðri folaldastíu, kaffistofu og
hnakkageymslu.
Síðastliðið sumar var byggð rúm-
lega 900 fermetra reiðhöll. Um
verkið sá Landstólpi ehf. sem er í
sama sveitarfélagi. Hringvöllur og
250 m skeiðbraut er rétt við hest-
húsið ásamt rúmgóðum hestagerð-
um.
Um 250–300 manns sóttu þau hjón
heim. Glæsileg reiðsýning fór fram,
meðal annars sýndi Einar Öder
Magnússon margs konar æfingar á
stóðhestinum Þey frá Akranesi. Þá
sýndi ráðsmaðurinn á bænum, Ólaf-
ur Ásgeirsson, stóðhestinn Sædyn
frá Múla en báðar þessar sýningar
vöktu verðskuldaða athygli.
Í Vesturkoti er ætlunin að stunda
hrossarækt, tamningu og þjálfun
hrossa en einnig að reka hesttengda
ferðaþjónustu en jörðin er vel stað-
sett til þeirra hluta.
Þegar hafa verið haldin þrjú reið-
námskeið í reiðhöllinni þar sem Ein-
ar Öder leiðbeindi en einnig hefur
Portúgalinn Joulio Dorba reiðkenn-
ari kennt á einu námskeiði. Ýmislegt
annað er á döfinni og segir Finnur
bóndi að vegleg stóðhestasýning fari
fram í Vesturkoti 19. apríl.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Merking Kristín Vigfúsdóttir og Finnur Ingólfsson með bæjarskiltið.
Opnuð ný aðstaða
til hestahalds
Eftir Örn Þórarinsson
Skagafjörður | Kýrin Smella nr.
181 á Hlíðarenda í Skagafirði
mjólkaði mest skagfirskra kúa á
síðasta ári. Nyt hennar var 11.798
kíló og próteinhlutfall 3,18. Hún
var önnur í röðinni yfir landið með
afurðamagn.
Hlíðarendabúið varð efst í hér-
aðinu með meðalafurðir eftir kú.
Kýrnar þar mjólkuðu 7.242 kg.
hver en á búinu voru 61,5 árskýr.
Jón Einar Kjartansson, bóndi og
eigandi Smellu, sagði að hún hefði
borið í janúar 2007 sínum fimmta
kálfi og í raun mjólkað mjög vel
allt árið en vegna áfalla ætti hún
ekki mörg mjólkurskeið eftir.
Hann sagði að móðir Smellu hefði
verið mjög góð afurðaskepna, bor-
ið níu sinnum og enst sérlega vel.
Jón var að vonum ánægður með
góðar afurðir af búinu á síðasta ári
sem byggðist upp á ýmsum þáttum
eins og natni við umhirðu gripanna
og lét þess einnig getið að lítið
hefði verið um veikindi og óhöpp.
Góðar afurðir
Önnur kýr í röðinn með afurðir
yfir héraðið var Eygló á Kúskerpi
með 11.193 kíló. Næst varð Fram-
tíð á Skúfsstöðum með 10.675 kíló
og Túlla á sama bæ mjólkaði
10.374 kg. Ekki fóru fleiri kýr í
héraðinu yfir tíu þúsund kílóin á
síðasta ári.
Næstu bú með mestu afurðir
eftir hverja kú voru Tunguháls II,
með 7.066 kg að meðaltali. Þá
Flugumýri með 6.948 kg. Næst
voru Ytri-Hofdalir með 6.947 kg.
Fimmtu í röðinni voru Skúfsstaðir
með 6.890 kg og sjötta varð Keldu-
dalsbúið ehf. með 6.882 kíló eftir
hverja árskú.
Smellu kippir í kynið
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Hlíðarendi Kýrnar á Hlíðarenda
voru afurðahæstar í Skagafirði.
Blönduós | Leikfélag Blönduóss
frumsýndi í gærkvöldi gamanleik-
inn „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Coo-
ney í þýðingu Árna Ibsen. Næsta
sýning er á morgun, sunnudag,
klukkan 16.
Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir
og þetta er í annað skipti sem hún
leikstýrir á Blönduósi. Leikarar eru
átta talsins en að sýningunni koma
í kring um tuttugu manns. Leikritið
er fjörugur farsi sem fjallar um al-
þingismanninn Orm Karlsson, eig-
inkonu hans Pálínu og aðstoðar-
manninn Hrein. Inn í þetta fléttast
hjákonan Ásthildur, kínverski
þjónninn Sjú-Lí, Doddi, María og
síðast en ekki síst hótelstjórinn á
Hótel Höll þar sem þetta gerist nú
allt saman.
Leikritið „Tveir tvöfald-
ir“ sýnt á Blönduósi