Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 22
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hönnuðurinn Ingibjörg Friðriksdóttir hefur meðal annars saumað föt á móður sína.
I
ngibjörg fékk hugmyndina að við-
burðinum í október í fyrra en móðir
hennar hefur legið á Grensásdeild
síðastliðið eitt og hálft ár eftir að hafa
lent í hestaslysi. Tækið sem Ingi-
björg safnar fyrir er fyrir ein-
staklinga sem þjást af hreyfihömlun í
handleggjum og mun móðir hennar hafa mikil
not fyrir slíkt tæki. „Hugmyndin kom í fram-
haldi af því að pabbi stóð fyrir því að Sjóvá
keypti svipað tæki fyrir fætur handa Grensás-
deild,“ útskýrir Ingibjörg. Síðan í janúar hefur
hún svo unnið hörðum höndum að því að hanna
og sauma fimmtán flíkur sem sýndar verða í
Saltfélaginu í dag kl. 15. Þeir sem leggja leið sína
í Saltfélagið geta mátað fötin eftir sýninguna og
síðan gert tilboð í flíkurnar. Uppboðið hefur
staðið yfir í vikunni á heimasíðunni www.my-
space.com/ifdesign og hefur fólk tækifæri til að
bjóða í fötin fram til 10. mars þegar lokað verður
fyrir tilboð.
Saumað síðan hún var lítil
Tækið kostar rúmar fjórar milljónir en auk
uppboðsins hefur Ingibjörg fengið styrki hjá
nokkrum fyrirtækjum og einstaklingum. Þar á
meðal Baugi, Sjóvá, Minningarsjóði Margrétar
Björgólfsdóttur, Steinunni Sigurðardóttur og
fleirum. „Það er orðið svo algengt að einkaaðilar
styrki kaup á tækjum og Grensásdeildin er mjög
ánægð með að fá svona tæki til sín,“ segir Ingi-
björg. „Ég held að þegar fólk liggur lengi á
sjúkrastofnunum finni það hvað vantar en sjái
líka möguleika til að bæta aðstöðuna.“
Ingibjörg hefur saumað föt frá því hún var lítil
stelpa og segir hönnun og sauma vera sitt helsta
áhugamál. „Ég sauma mikið fyrir sjálfa mig og
vini mína og eftir að mamma lenti í slysinu hef
ég líka saumað á hana,“ segir hún. „Föt fyrir
mömmu þurfa að vera þannig að auðvelt sé að
komast í þau og úr.“ Ingibjörg segist vera sjálf-
lærð í saumi en einnig var mamma hennar nokk-
uð góð saumakona áður fyrr og hún hefur því án
efa lært heilmikið af henni. Tískuhugmyndirnar
fær Ingibjörg frá ýmsum, svo sem úr blöðum,
sjónvarpi og fólkinu í kringum sig.
25 flíkur á tískusýningunni
Ingibjörg hefur fengið mikið af góðu fólki til
liðs við sig í tilefni af sýningunni og uppboðinu.
Þar á meðal er plötusnúðurinn Frigore, sem
spilar í Saltfélaginu, Rán Magnúsdóttur sem
ljósmyndaði allar flíkurnar, Emm School of Ma-
keup leggur til förðunarvörur og góðar vinkon-
ur Ingibjargar sem sýna munu fötin.
Þó svo að aðeins fimmtán séu á tískuuppboð-
inu verða sýndar allt í allt 25 flíkur sem Ingi-
björg hefur hannað og saumað. „Þessi vinna er
búin að vera spennandi og ég hef lært mikið af
þessu,“ lýsir Ingibjörg. „Það er að mörgu að
huga og ég hef ekki fengið mikinn svefn undan-
farið,“ segir hún og brosir en auk þessa verk-
efnis stundar hún nám í Verzlunarskóla Íslands
og er í söngnámi. Það er því nóg að gera hjá
Ingibjörgu og nauðsynlegt að skipuleggja tím-
ann vel til að allt gangi upp.
Frjáls framlög vel þegin
Flíkurnar fimmtán eru hannaðar sérstaklega
með uppboðið í huga og ákvað Ingibjörg því að
hafa þær ekki of skrítnar heldur þannig að þær
höfðuðu til sem flestra og myndu passa sem
flestum. „Ég hef ekki neinar hugmyndir um það
hvað fólk kemur til með að bjóða í flíkurnar,“
segir Ingibjörg, en nú þegar hafa nokkrar vin-
konur hennar boðið í flíkurnar ásamt ein-
hverjum ókunnugum og segist Ingibjörg vera
ánægð með það.
Vinaklæði Ingibjörg saumar föt á vini sína.
Ljósmynd/Rán Magnúsdóttir
Vetrarflík Hlýleg yfirhöfn frá Ingibjörgu.
Hversdags Föt sem eiga að höfða til flestra.
Út á lífið Sparilegur toppur.
Sparilegt Litríkur og líflegur kjóll.
Tískusýning með tilgang
Ingibjörg Friðriksdóttir hefur saumað föt frá því hún var lítil stelpa. Í dag stendur þessi 19 ára stúlka fyrir tískusýningu og upp-
boði á fimmtán flíkum sem hún hefur hannað og saumað. Markmiðið er að safna nægum fjármunum til að kaupa endurhæfing-
artækið Armeo fyrir endurhæfingarstöðina á Grensásdeild. Vala Ósk Bergsveinsdóttir ræddi við hana.
Köflótt Kjóll fyrir hversdaginn.
Á heimasíðu Ingibjargar má sjá að búið er að bjóða í u.þ.b. helming flíkanna og eru tilboðin flest í
kringum 10.000 krónur. Tískusýningin og uppboðið fer fram í Saltfélaginu í dag og hefst kl. 15. Hægt
er að mátað flíkurnar á staðnum en einnig er hægt að ná sambandi við Ingibjörgu í gegnum heimasíðu
hennar www.myspace.com/ifdesign. Þá er tekið á móti frjálsum framlögum til að styrkja tækjakaupin
frekar og getur fólk lagt inn á söfnunarreikning 0120-26-14096, kennitala 2403892589.
|laugardagur|8. 3. 2008| mbl.is
daglegtlíf