Morgunblaðið - 08.03.2008, Page 34
34 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bragi ViðarPálsson fæddist
á Akureyri 19. des-
ember 1940. Hann
andaðist á heimili
sínu 27. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Páll Frið-
finnsson húsasmíða-
meistari og Anna
Ólafsdóttir hús-
móðir. Hann var
næstyngstur af sex
systkinum.
Bragi kvæntist
14.3. 1964 Hafdísi
Jóhannesdóttur. Börn þeirrra
eru: a) Sigmar,
kvæntur Önnu Þóru
Ólafsdóttur og eru
börn þeirra Krist-
ófer Fannar, Daniel
Freyr og Kristín
Ellý. b) Viðar,
kvæntur Ólafíu
Snælaugsdóttur,
Hann á eina dóttur,
Fanndísi.
Bragi verður
jarðsunginn frá
Möðruvallakirkju í
Hörgárdal í dag og
hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Elsku afi, við söknum þín sárt og
það er skrítið að hugsa til þess að
sjá þig ekki aftur í bráð. Við bjugg-
um undir sama þaki og voru sam-
skipti okkar mikil og góð. Ekkert
þurfti að óttast þegar maður vissi
af þér og elsku ömmu í sama húsi
og þær voru ófáar stundirnar sem
við vorum í mat hjá ykkur ömmu
enda ekki lengra að fara en upp
einn stiga. Nú hefjast nýir tímar
hjá okkur öllum. Við þurfum að
venjast því að hafa þig ekki hjá
okkur lengur, en við vitum að þú
ert ekki búinn að yfirgefa okkur al-
veg. Elsku afi þú ert örugglega að
passa okkur öll á milli þess sem þú
ert að fylgjast með námunni og
pabba. Hvíldu í friði, elsku afi,
hafðu þökk fyrir allt sem þú gafst
okkur. Við lofum að passa ömmu og
veita henni styrk.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Við elskum þig.
Kristófer Daníel og Kristín Ellý.
Bragi Viðar Pálsson
✝ Valgerður Stein-unn Sigurvins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 7. sept-
ember 1954. Hún lést
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 2. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Hallfríður Hansína
Guðmundsdóttir, f. í
Bæ á Ströndum 10.
apríl 1917, d. 14.
september 1993, og
Sigurvin Grundfjörð
Georgsson, f. á Ísa-
firði 12. mars 1920, d. 28. maí 2001.
Alsystkini Valgerðar eru Guð-
finnur Georg, f. 1945, Signý, f.
1949, d. 1992, Hrafnhildur, f. 1951,
Linda Björk, f. 1957, d. 1994, og
Rakel, f. 1957, f. 1957. Sammæðra
systkini eru Margrét Jóna Halls-
dóttir, f. 1935, Regína Valbjörg
Hallsdóttir, f. 1936, d. 1980, Ragn-
heiður Edda Hallsdóttir, f. 1938, d.
1974, og Kolbrún Hjartardóttir
Millie, f. 1942, d. 2001.
Valgerður giftist 24. febrúar
1974, Halldóri Ómari Eyland Páls-
syni, f. 19. sept 1953. Foreldrar
hans eru Indiana Þórhallsdóttir
og Páll Guðfinnur Halldórsson.
Börn Valgerðar og
Halldórs Ómars eru:
1) Páll Guðfinnur, f.
30. desember 1972,
d. 18. desember
1974; 2) Halldór
Páll, f. 4. janúar
1976, maki Bryn-
hildur Ólafsdóttir, f.
19. desember 1977,
börn þeirra eru
Kristlaug Lilja, f. 25.
febrúar 1998, og
Ólafur Ómar Ey-
land, f. 24. apríl
2002; og 3) Dagbjört
Rós, f. 16. september 1982, börn
hennar eru Sindri Páll Grund-
fjörð, f. 29. maí 2001 og Caitlin
Viktoria Grundfjörð, f. 24. janúar
2006.
Valgerður bjó lengst af með
manni sínum á Suðurnesjum og hóf
störf hjá Heilbrigðiseftirliti Suð-
urnesja 1982 og starfaði þar til ævi-
loka. Valgerður stofnaði einnig
kvennasveitina Dagbjörg árið 2004
ásamt fleiri kjarnakonum og sat
þar í stjórn allt þar til hún varð frá
að hverfa vegna veikinda sinna.
Útför Valgerðar fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
Elsku frænka, ó, hve sárt ég sakna
þín. Ég er að kveðja enn eina frænk-
una eftir hetjulega baráttu við þenn-
an illvíga sjúkdóm.
Þegar að ég hugsa til þín, þá eru
nokkur atriði, sem koma fyrst upp í
huga mér. Valla frænka, glæsileg
kona, staðföst, þrjósk, réttsýn, jarð-
bundin og umfram allt yndisleg
frænka. Það eru ótal minningar sem
fara í gegnum hugann á þessari
stundu, svo órjúfanlegur hlekkur hef-
ur þú verið í lífskeðju minni. Didda
frænka ólétt og endalaust svöng í
pönnsur hjá Völlu frænku og ekki
stóð á því, alltaf var staflinn mættur á
borðið, ég held að ég hafi verið í ein-
stöku uppáhaldi hjá manni þínum og
börnum, því það var þvílíkt nostrað
við ólétta frænku sína og allir nutu
góðs af.
Svo kom að því að þriðja barnið
myndi líta dagsins ljós og mamma á
leiðinni til Spánar (það er nú þekkt í
dag að við getum ekki fætt börnin
nema að mamma sé) og þá voru góð
ráð dýr (eða ekki), mamma hringdi í
Völlu systur og bað hana að vera stað-
gengil fyrir sig, en ekki hvað, ef
mamma er ekki þá er það bara Valla
frænka svo einfalt er það.
Þú sast hjá mér allan daginn, dag-
urinn fór rólega af stað, þetta var 6.
sept. ’99, daginn fyrir 45 ára afmælið
þitt, við spjölluðum mikið, þú tókst
þessu hlutverki mjög alvarlega og
vékst ekki frá frænku, þetta var ynd-
islegur dagur og gott að ylja sér við
minninguna.
Ég vildi gefa þér barnið í afmæl-
isgjöf en þú vildir að hann ætti sinn
eigin dag, eins og við réðum einhverju
um það. Þú hugsaðir vel um mig
þennan dag og tókst á móti litlum
frænda kl. 20.40 (það vantaði bara
smá upp á afmælisdaginn þinn) og við
grétum bara saman, þetta var mikil
upplifun fyrir okkur báðar. Þetta var
fyrsta fæðingin sem þú varst viðtödd
(sem áhorfandi), ég var að vonum
stolt af því, þér fannst gott að fá æf-
inguna áður en Dabba færi að koma
með kríli.
Hvernig er hægt að halda veislu án
þín, þú varst veisluglöð frænka, alltaf
fyrst inn með peruterturnar og síðust
út með ruslapokana, án þín eru veisl-
urnar ekki eins. Þú hélst uppi fjörinu í
þrítugsafmælinu mínu, settir snör-
urnar á fóninn og fékkst alla með þér
út á gólf og reyndir að kenna okkur
línudans, þér tókst það með sum okk-
ar en önnur ekki.
Síðasta heimsóknin þín var að
koma í sjoppuna til mín, þvílík ham-
ingja að fá þig til mín og leggja bless-
un þína yfir þetta nýstofnaða fyrir-
tæki okkar, því að það er bara þannig
að ef eitt okkar er að gera eitthvað þá
verða hinir að taka þátt, það var
ómetanleg stund að geta gefið þér að
borða og smá nammi í nesti.
Elsku frænka, ég gæti haldið enda-
laust áfram en verð að láta staðar
numið í bili.
Það eiga margir erfitt núna, mað-
urinn þinn, börn, tengdadóttir og
barnabörn og ekki síður systkini þín
sem kveðja sjöttu systurina langt fyr-
ir aldur fram og bið ég algóðan Guð að
vaka yfir þeim og gefa þeim styrk til
að halda áfram. Ég elska þig.
Þín frænka
Hallfríður (Didda) og fjölskylda.
Söknuður og sorg ríkja þegar kær
vinkona og frænka er hrifin á brott
langt fyrir aldur fram.
Valla var einfaldlega ein af þessum
sérstæðu boðberum birtu og vinar-
þels, sem aldrei þarf að „kveikja“ á,
því í þeirra innra sjálfi er birtan svo
skær að hún lýsir sjálfkrafa upp allt
þeirra umhverfi.
Hún var baráttukona sem aldrei lét
deigan síga þrátt fyrir erfiða lífsbar-
áttu og mikinn missi í gegnum lífið.
Lífsgleði hennar og hlátur var
smitandi. Hún var mikill gleðigjafi og
hafði einstaka hæfileika til að sjá allt-
af björtu hliðarnar á tilverunni.
Það var alveg sama hvað við vorum
að bralla saman. Ef eitthvað gekk ekki
upp hjá okkur, þá tókst okkur að ljúka
því sem við vorum að gera, því úrræð-
argóð og þolinmóð var hún og fann allt-
af leiðir ef við vorum komnar í þrot.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ómar minn, þitt sár er djúpt en eft-
ir sitja minningar um ástkæra eigin-
konu og góðan vin
Elsku Palli Dabba og Billa. Þið haf-
ið misst mikið, en hún mun fylgjast
með ykkur og börnunum ykkar.
Minnist þess sem hún gaf ykkur, um-
hyggju, móðurást og hlýju.
Habba, Lilli, Magga og aðrir að-
standendur: Innilegar samúðarkveðj-
ur til ykkar allra.
Kveðja,
Rúnar og Auður.
Hún Valgerður okkar er öll, langt
fyrir aldur fram. Við hér á skrifstofu
SSS og HES söknum hennar sárt.
Hún var alltaf hrókur alls fagnaðar.
Alltaf hress og keik hvað sem dundi á
í hennar lífi, sem var ekki alltaf dans á
rósum.
Valgerður var alltaf til í að vera með
í öllu sem brallað var. Valla eins og hún
var alltaf kölluð var ein af stofnendum
kvennasveitarinnar Dagbjargar og var
það henni mikil gleði að starfa þar.
Meðal annars fengu þær kennslu í
línudansi á skemmtifundum sveitar-
innar. Hún var líka óspör á að kenna
okkur samstarfsfólkinu hann hvar sem
við vorum að gera okkur glaðan dag.
Við smituðumst af gleði hennar og vor-
um öll farin að dansa og allir skemmtu
sér konunglega.
Valgerður var mjög vel liðin í sínu
starfi sem hundaeftirlitsmaður. Hún
var vakin og sofin yfir velferð ferfæt-
linganna og ef eigendurnir brugðust í
umönnun þeirra fengu þeir góðlátlegt
tiltal. Hún var ósérhlífin og alltaf tilbú-
in að gera allt sem var í hennar valdi til
að létta öðrum lífið. Sótti okkur heim
ófáar ferðirnar í vinnuna ef við vorum
ekki á bíl og margar ferðirnar sentist
hún í þágu vinnunnar. Elsku Ómar og
fjölskylda, megi guð gefa ykkur styrk
til að takast á við sorgina.
Við brottför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtum blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
Og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Elsku Valla, hafðu kæra þökk fyrir
samfylgdina.
Samstarfsfólk SSS og HES.
Valgerður Steinunn
Sigurvinsdóttir
Fleiri minningargreinar um Val-
gerði Steinunni Sigurvinsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝
Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma,
systir, frænka og fyrrum eiginkona,
HAFDÍS ÞÓRARINSDÓTTIR
sjúkraliði,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
10. mars kl. 13.30.
Þórdís Brynjólfsdóttir,
Þórarinn Jakob Þórisson, Maren Óla Hjaltadóttir,
Hanna Bryndís Þórisdóttir, Gunnar Jón Eysteinsson,
Brynjar Davíðsson, Gréta Björk Halldórsdóttir,
Sigurður Heiðar Davíðsson, Sylvía Dögg Tómasdóttir,
Dröfn Þórarinsdóttir, Sigurður B. Friðriksson,
barnabörn og aðrir aðstandendur,
Davíð Hauksson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar sonar, föður, tengdaföður,
afa, bróður og mágs,
RAGNARS GUÐBJÖRNS AXELSSONAR,
Háaskála,
Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir vegna frábærrar umönnunar eru
til starfsfólks Hornbrekku Ólafsfirði.
Petrea Rögnvaldsdóttir,
Sumarrós Ragnarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
FRÍÐA GUÐBJARTSDÓTTIR
frá Kvígindisdal,
Kjartansgötu 15,
Borgarnesi,
sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi,
fimmtudaginn 28. febrúar, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 13.00.
Valur Thoroddsen,
Haukur Valsson, Kristín Einarsdóttir,
Hildur Valsdóttir,
Snædís Valsdóttir, Ólafur Sigurðsson,
Anna Valsdóttir, Árni Magnússon,
Magnús Valsson, Guðrún Ásgeirsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
VILBORG JÓNSDÓTTIR
frá Hrísum,
Norðurbraut 13,
Hvammstanga,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. mars.
Útförin auglýst síðar.
Magnús Helgi Sveinbjörnsson,
Friðbjörg Dröfn Magnúsdóttir, Birgir Jónsson,
Jón Heiðar Magnússon, Ása Kristín Knútsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Hilmar Hjartarson,
Guðrún Birna Magnúsdóttir, Ómar Jónsson,
Sveinbjörn Ævar Magnússon, Ólína Kristín Austfjörð,
Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir, Júlíus Bjarni Líndal
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS G. SIGURÐSSON
frá Brekkum í Holtum,
andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 6. mars.
Guðný A. Hammer,
Herdís Albertsdóttir,
Kristjana Sigurðardóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson,
Herdís R. Þorgeirsdóttir, Davíð B. Sigurðsson,
Sigríður S. Jónasdóttir, Flosi Ólafsson,
Ragnheiður Jónasdóttir,
Sigurður Jónasson, Ásdís G. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.