Morgunblaðið - 08.03.2008, Side 35
✝ Sigurður Gunn-arsson fæddist í
Arnarnesi í Keldu-
hverfi 24. maí
1931. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík sunnudaginn 2.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Gunnar
Jóhannsson bóndi
og veiðimaður í
Arnarnesi, f. 13.
júní 1897, d. 23.
okt. 1978, og Sig-
urveig Björnsdóttir frá Lóni í
Kelduhverfi, f. 8. júní 1908, d.
12. des. 1946. Sigurður var elst-
ur 6 systkina, en hin eru Jóhann,
f. 29. júní 1932, Björn, f. 5. apríl
1934, Gunnar, f. 18. maí 1935,
Sigurveig, f. 18. jan. 1941, og
Jón, f. 13. febr. 1943.
Sigurður kvæntist hinn 8.
ágúst 1954 Þorbjörgu Theodórs-
dóttur, f. á Hafursstöðum í Öx-
arfirði 13. júlí 1926. Foreldrar
hennar voru Theodór Gunn-
laugsson bóndi og refaskytta frá
Bjarmalandi, f. 27. mars 1901, d.
12. mars 1985, og kona hans
Guðrún Pálsdóttir frá Svínadal,
f. 3. mars 1902, d. 19. júlí 1987.
Börn Sigurðar og Þorbjargar
eru: 1) Sólveig, f. 4. janúar 1954,
maki Þorsteinn Rúnar Eiríks-
son, f. 1. des. 1952. Börn þeirra
eru a) Jóhanna Björg, f. 3. febr.
1978, maki Mohamed Raafat
Oda, f. 1. maí 1972, sonur þeirra
er Adam, f. 21.
ágúst 2005, b) Sig-
urður Birkir, f. 4.
maí 1983 og c)
Bergþór, f. 22. maí
1985. 2) Theodór
Gunnar, f. 23. nóv.
1956, maki Guðrún
Lárusdóttir Blön-
dal, f. 28. júlí 1956.
Börn þeirra eru
Gunnlaugur Krist-
inn, f. 24. ágúst
1984, Þorbjörg Lie-
sel, f. 30. nóv. 1987,
og Lárus Heiðar, f.
15. ágúst 1990. 3) Guðrún Ásta,
f. 16. nóvember 1958, sambýlis-
maður Stefán Rúnar Bjarnason,
f. 23. des. 1954, dóttir er Re-
bekka Guðrún, f. 11. jan. 1984,
unnusti Guðni Rúnar Helgason,
f. 16. júlí 1976.
Sigurður ólst upp í Arnarnesi
og bjó þar til 1958 en fluttist
með fjölskyldu sína til Húsavík-
ur 1959 þar sem hann bjó til ævi-
loka. Hann var sjómaður, lengst
af með eigin útgerð en starfaði
einnig um árabil sem lög-
reglumaður. Lífríki náttúrunnar
til lands og sjávar var honum
hugleikið og einnig öryggi sjó-
manna. Hann tók þátt í stofnun
Landssambands smábátaeigenda
og sat mörg ár í stjórn þess. Sig-
urður hætti sjómennsku um mitt
sumar 2007 vegna veikinda.
Útför Sigurðar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku afi, sárt er að hugsa til
þess samveru okkar með þér hér á
jörðu sé lokið. En um leið getum
við ekki annað en glaðst yfir því að
nú er bundinn endi á þau miklu
veikindi sem þú hefur þurft að
berjast við, með hléum, síðustu
tuttugu árin eða svo. Oft höfum við
börnin þín og barnabörn talað um
að þú hafir haft níu líf eins og
kettirnir. Þrátt fyrir að útlitið um
bata hafi oft verið svart náðir þú
alltaf á einhvern undraverðan hátt
að koma þér á fætur aftur. Þú gast
aldrei setið auðum höndum enda
sýndi það sig svo vel hversu erfitt
þú áttir þitt síðasta ár og varst
ósáttur við sjálfan þig því þú hafð-
ir ekki krafta í að vinna neitt eða
dunda þér.
Við systkinin erum að stórum
hluta til alin upp undir þinni hand-
leiðslu í sumarbústaðnum okkar í
Svarfhólsskógi. Það var paradísin
þín enda er ekki hægt að ganga
þar um húsið eða það fallega land
sem það stendur á, án þess að rek-
ast á hvern hlutinn á fætur öðrum
sem er verk þitt. Við eigum þar
með stóran fjársjóð sem segir
sögu dugnaðarmanns og lofum því
að varðveita hann sem best. Þú
varst tvímælalaust hjálparhella
númer eitt enda alltaf boðinn og
búinn til að smíða eitthvað eða
laga fyrir okkur. Það var alveg
sama hvers eðlis verkið var eða
hversu mikið vesen það var, þér
tókst alltaf með þínu sterka jafn-
aðargeði að finna lausn á öllu.
Elsku afi, ástarþakkir fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum,
alla þá trú og traust sem þú sýndir
okkur. Við búum ævilangt að
sterkri og heiðarlegri fyrirmynd
þinni.
Þín heittelskandi barnabörn,
Helgi Steinar, Íris Alda og
Arnar Sigurður.
Hann er genginn, vinur minn
Sigurður Gunnarsson, trillukarl á
Húsavík. Það eru nokkur ár síðan
hann tók mig á eintal og tjáði mér
hvert stefndi. Það gerði hann ekki
til að leita meðaumkunar. Ekkert
var fjær honum – honum fannst
einfaldlega rétt að láta mig vita.
Hugprýði var honum eðlislæg.
Leiðir okkar Sigurðar lágu sam-
an árið 1985 þegar ég var á ferð
um landið til að aðstoða við stofn-
un svæðisfélaga smábátaeigenda,
sem síðar mynduðu Landssam-
band smábátaeigenda. Hann
reyndist mér sannur haukur í
horni. Sigurður áttaði sig strax á
nauðsyn þess að trillukarlar sam-
einuðust í baráttunni fyrir tilveru
sinni. Hann var kosinn í fyrstu
stjórn samtakanna í desember
1985 og sat þar til ársins 1991.
Einlægni hans og áhugi á fram-
gangi þess sem barist var fyrir fór
ekki fram hjá neinum.
Sigurður var „orginal“ trillukarl.
Allt frá árinu 1972 reri hann eigin
smábátum frá Húsavík og allir
báru þeir sama nafn dóttur þeirra
hjóna – Sólveig. Uppruni þessa
fallega nafns er ráðgáta, sem er í
góðu samræmi við þá skoðun hans
að þrátt fyrir öll vísindi nútímans
væru leyndardómar náttúrunnar
okkur enn að mestu huldir.
Sigurður bjó yfir fágætu brjóst-
viti um það umhverfi sem hann
helgaði líf sitt. Hann var ekki að-
eins góður fiskimaður og farsæll í
sjósókn. Hann var sjálfmenntaður
sérfræðingur í fuglum, gróðurfari
og samspili veðurfars, hafstrauma
og fiskgengda. Hann kunni þá fá-
gætu list að lesa náttúruna. Sig-
urður var náttúrubarn af Guðs
náð; djúpvitur um eðli hlutanna en
á sama tíma meðvitaður um tak-
mörk mannlegrar þekkingar.
Hann var engu að síður óhræddur
við að mynda sér skoðanir á mál-
um. Notkun veiðarfæra var honum
sérlega hugleikin. Hann var sann-
færður um að eitt af grundvall-
aratriðum þess að nýta ekrur hafs-
ins rétt, væri að gera það með
viðeigandi veiðarfærum.
Í desember sl. skrifaði ég grein í
Fiskifréttir, undir fyrirsögninni
„Útgerðarmaður ársins“. Þar til-
nefndi ég Sigurð Gunnarsson og
tilefnið var sú einstæða ákvörðun
hans að lána endurgjaldslaust
kvótann sinn til tveggja félaga
sinna á Húsavík vegna niðurskurð-
ar í veiðiheimildum. Í símtali hafði
ég orðrétt eftir honum: „Ég fer
ekki oftar á sjó og við konan höf-
um nóg. Börnin spjara sig prýði-
lega. Ef ég geri þetta komast þeir
betur en ella í gegnum þrenging-
arnar. Ég myndi gjarnan vilja sjá
einhverja fylgja þessu fordæmi“.
Með þessum orðum lýsti Sig-
urður sjálfum sér prýðilega. Ef
hann gat rétt hjálparhönd, þá
gerði hann það.
Ungur maður bjó Sigurður fjöl-
skyldu sinni heimili í Hlíð, litlu
húsi skammt undan fæti Húsavík-
urfjalls. Þaðan blasa við Kinnar-
fjöllin, Skjálfandaflói og inn af
liggur dýrðlegur Aðaldalurinn. Til
norðurs tróna Lundey og Mán-
áreyjar með fiskimiðum í kring.
Þetta var hin jarðneska paradís
Sigurðar Gunnarssonar.
Ég kveð góðan dreng og vin og
þakka honum frábær kynni. Fyrir
hönd Landssambands smábátaeig-
enda þakka ég honum fyrir að hafa
lagt hönd á plóg, svo um munaði.
Fjölskyldu og aðstandendum
votta ég mína dýpstu samúð.
Arthur Bogason, formaður
Landssamb. smábátaeigenda.
Látinn er á Húsavík Sigurður
Gunnarsson. Sigurði kynntist ég
fljótt eftir að ég hóf að vinna fyrir
trillukarla. Hann var í fyrstu
stjórn LS sem fulltrúi Kletts,
svæðisfélags þeirra Norðlendinga.
Sigurður var traustur maður og
gott til hans að leita. Öryggismál
sjómanna voru Sigurði hugleikin
og sat hann í sérstakri nefnd á
vegum LS er fjallaði um þau mál-
efni. Þar var Sigurður á heimavelli
og miðlaði af reynslu og þekkingu
auk þess sem hann fylgdist með
þeim nýjungum sem boðið var upp
á. Sigurður minnti mig oft á að
þrátt fyrir öll öryggistækin og
hæfni skipstjórans væri helsta ör-
yggistækið báturinn sjálfur. Frá-
gangur um borð væri því afar mik-
ilvægur og á opnum bátum yrði að
vera hægt að skjóta segli yfir þil-
far í miklum sjó.
Sigurður var mikill náttúruunn-
andi. Auk sjómennskunnar stund-
aði hann fuglaskoðun og vissi allt
um þá sem svífa yfir höfðum okk-
ar. Hann stundaði alla tíð neta-
veiðar á Sólveigu sinni og veiddi
jöfnum höndum þorsk, ýsu og
rauðmaga.
Ég átti því láni að fagna að fara
á sjó með Sigurði. Við vitjuðum
um nokkur net sem hann var með
á Saltvíkinni. Fórum snemma
morguns í frábæru veðri; glaða-
sólskin og Skjálfandinn eftir því.
Ég gleymdi mér brátt í að fylgjast
með öruggum vinnubrögðum Sig-
urðar við veiðarnar og tók því ekki
eftir þoku sem silaðist í átt til okk-
ar. En skyndilega var hún lögst yf-
ir eins og teppi og þá sagði ég við
sjálfan mig að nú væru góð ráð
dýr. Enginn beygur var þó í mér
því ég vissi að sá gamli hafði
örugglega oft upplifað þetta áður.
Sólveig rann hægt eftir hafflet-
inum og fylgdist Sigurður vel með
dýptarmæli og áttavita, en ég
starði í áttina sem siglt var. Allt í
einu sagði Sigurður – við erum
komnir í höfn, frændi.
Stuttum en lærdómsríkum róðri
var lokið. Það á einnig við um ævi
Sigurðar. Hann hefur kvatt og
lætur eftir sig fagrar minningar.
Sigurði þakka ég kynnin og hans
fórnfýsi við réttindabaráttu trillu-
karla.
Eiginkonu og afkomendum votta
ég samúð.
Örn Pálsson.
Sigurður Gunnarsson
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 35
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
FREYGERÐAR GUÐRÚNAR BERGSDÓTTUR,
Austurbyggð 17,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Bakkahlíð og
Asparhlíð fyrir góða umönnun.
Sigrún Finnsdóttir, Daníel Þórðarson,
Guðmundur Finnsson, Gréta Stefánsdóttir,
Bergur Finnsson, Sumarrós Ragnarsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýju vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ALDÍSAR JÓNU ÁSMUNDSDÓTTUR,
Lindargötu 57,
Reykjavík.
Sigríður Jóhannesdóttir, Ásgeir Árnason,
Ásmundur Jóhannesson, Margrét Guðbjartsdóttir,
Auður Jóhannesdóttir, Haraldur Lárusson,
Guðni Jóhannesson, Bryndís Sverrisdóttir,
Arnbjörn Jóhannesson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Múlavegi 3,
Seyðisfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Seyðisfjarðar.
Guðlaug Vigfúsdóttir, Gunnar Ragnarsson,
Jón Grétar Vigfússon, Jóhanna Sigurjónsdóttir,
Borghildur Vigfúsdóttir, Árni Arnarson,
Ólafur Vigfússon,
Gunnar Árni Vigfússon, Ágústa Berg Sveinsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
STURLA HALLDÓRSSON
fyrrverandi hafnarvörður,
Hlíf II,
Ísafirði,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju í dag,
laugardaginn 8. mars kl. 14.00.
Rebekka Stígsdóttir,
Frímann Aðalbjörn Sturluson,Auður Harðardóttir,
Jónína Sturludóttir, Helgi Jónsson,
Stígur Haraldur Sturluson, Ásgerður Ingvadóttir,
Guðjón Elí Sturluson, Hrefna Rósinbergsdóttir,
Friðgerður Ebba Sturludóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
KRISTINN SIGURÐSSON,
Þórufelli 18,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn
12. mars kl. 15.00.
Jóhanna Antonía Sigsteinsdóttir,
Sigsteinn Sigurðsson, Halla Pálsdóttir,
Sigríður Sara Sigurðardóttir, Guðmundur Björnsson,
Herdís Elísabet Kristinsdóttir, Sveinn Ingi Steinþórsson,
Helena Kristinsdóttir, Sverrir Kári Karlsson,
Halldór Sigurðsson,
Haraldur Sigurðsson,
Dagný Karlsen,
barnabörn og aðrir aðstandendur.