Morgunblaðið - 08.03.2008, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn kl. 14 í Gullsmára 13. Venjuleg
aðalfundarstörf. Skvettuball verður
í Gullsmára 8. mars kl. 20. Miða-
verð 500 kr. Þorvaldur Halldórsson
leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Gjábakki |
Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Virka
daga er fjölbreytt dagskrá kl. 9-
16.30. Sund og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug á mánud. og miðvi-
kud. kl. 9.50. Þriðjud. 18. mars er
leikhúsferð í Þjóðleikhúsið á Sól-
arferð, sýning hefst kl. 14 (breyttur
tími), skráning á staðnum og s.
575-7720.
Grensáskirkja | Fundur verður
haldinn í Kvenfélagi Grensássóknar
10. mars kl. 14 í safnaðarheimilinu.
Páskaeggjabingó.
Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Ís-
landssöguspjall, myndlist, bók-
menntir, framsögn og framkoma,
Bör Börson, söngur, páfagaukar,
hláturhópur, Skapandi skrif, postu-
lín, Þegar amma var ung, hug-
myndabanki, Müllersæfingar, hönn-
un fermingarkorta, Vorferð á vit
skálda o.fl. Sími 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla, Víðigrund kl. 9.30.
Uppl. í síma 564-1490.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Sunnudagaskóli í
kapellu kl. 11. Hátíðarmessa kl. 14.
Predikun Jóna Lovísa Jónsdóttir,
Óskar Pétursson syngur. Allur Kór
Akureyrarkirkju syngur, organisti er
Eyþór Ingi Jónsson. Kaffitónleikar
kórs Akureyrarkirkju í Safn-
aðarheimilinu að messu lokinni.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Jesú-konur og Jesú-stelpur, hittast
í kaffisal kirkjunnar kl. 10-12 og
eiga samfélag saman. Nánari uppl.
á www.filadelfia.is
Kristniboðssambandið | Loka-
samkoma kristniboðsviku verður á
morgun kl. 17 í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður Haraldur Jóhannsson
varaformaður Kristniboðs-
sambandsins. Sýndar verða myndir
frá Eþíópíu, einsöngur o.fl. Sölu-
borð og dregið í línuhappdrættinu
eftir samkomuna. Skúli Svavarsson
kristniboði prédikar í guðsþjónustu
í Grensáskirkju á morgun kl. 11 og
er það liður í kristniboðsviku. Tekið
verður við gjöfum til kristniboðsins.
Selfosskirkja | Messa kl. 11 á morg-
un. Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup í Skálholti, prédikar og þjón-
ar fyrir altari.
50ára afmæli. Í dag, 8.mars, er Sigríður
Ágústsdóttir Kríuási 25,
Hafnarfirði, fimmtug. Sig-
ríður fagnar þessum áfanga
í dag með ættingjum og vin-
um á heimili sínu.
dagbók
Í dag er laugardagur 8. mars, 68. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14,20.)
Félagið París hefur starfaðí fimm ár og hefur þaðað markmiði að skapaskemmtilegan vettvang í
kringum áhugamál þeirra sem eru
einar/einir. Allt frá stofnun hefur
starf félagsins verið mjög líflegt
og vel metið af félagsmönnum.
Sigrún Höskuldsdóttir er for-
maður Parísar: „Starfið byggir á
hópastarfi þar sem flestir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar
má nefna bíóhóp og gönguhóp sem
standa fyrir vikulegum viðburðum.
Ennfremur spjallhóp sem hittist
öll miðvikudagskvöld á kaffi Míl-
anó kl. 20:00. Einnig má finna í fé-
laginu ferðahóp, danshóp, lista- og
menningarhóp sem sækir fjöl-
breytta listviðburði, og starfræktir
eru heim-að-borða hópar, sem
gera sér glaðan dag með góðum
mat og einnig út-að-borða hópur.
Við höfum ferðast mikið hér heima
og víða farið erlendis. Árlega höld-
um við sumargrill, þorrablót og
árshátíð“ segir Sigrún. Virkir fé-
lagsmenn eru á milli 60-70 talsins,
á aldrinum frá um 50 ára.
“París býður upp á öflugt og
skemmtilegt félagslíf og er vett-
vangur þar sem fólk kemur saman
og hefur tækifæri til að mynda
kunningsskap og vináttu,“ segir
Sigrún og leggur á það áherslu að
vel sé tekið á móti nýjum félags-
mönnum.
Að sögn Sigrúnar er þörfin mik-
il fyrir vettvang af þessu tagi:
„Við erum mörg í samfélaginu,
bæði karlar og konur, sem búum
ein, ýmist að eigin vali eða í kjöl-
far skilnaðar eða makamissis.
Fjölskylduhættir og samfélag hafa
breyst, og auðvelt er að eingangr-
ast jafnvel þótt fólk búi að góðri
stórfjölskyldu eða vinahópi. Hraði
og tímaleysi er mikill hjá yngra
fólki og aldurshópar einangrast
hverjir frá öðrum,“ segir hún. „Þá
er gott að eiga félagið París að,
þar sem finna má ljómandi góðan
hóp fólks til að eiga samveru-
stundir með.“
Félagið starfar allan ársins
hring. Mánaðarlega, fyrsta laug-
ardag hvers mánaðar, eru haldnir
formlegir félagsfundir kl. 11.30 á
Kringlukránni og eru þeir vel sótt-
ir. „Auk venjulegrar starfsemi
skipuleggja félagsmenn nú ferðir
til Madeira og til Írlands. Í júlílok
er stefnan svo sett á Ólafsvöku í
Færeyjum.“ segir Sigrún að lok-
um.
Á slóðinni www.paris.is má finna
upplýsingar um hópastarfið og
símanúmer hópstjóra.
Samfélag | Félagið París stendur fyrir fjölbreyttu félagslífi allt árið
Vinalegur vettvangur
Sigrún Hösk-
uldsdóttir er
fædd í Reykja-
vík 1949. Hún
lauk verslunar-
prófi frá Versl-
unarskóla Ís-
lands. Sigrún á
að baki langan
feril sem skrif-
stofustjóri, aðalbókari og fjár-
málastjóri. Hún tók við starfi for-
manns félagsins Parísar árið 2007.
Sigrún á tvær dætur og eitt barna-
barn.
Tónlist
Norræna húsið | Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópran og Val-
gerður Andrésdóttir píanóleik-
ari flytja verk eftir Karólínu Ei-
ríksdóttur, Tryggva M.
Baldvinsson, Hjálmar Ragn-
arsson, R. Strauss og Rachm-
aninov á tónleikum kl. 15.15 á
morgun.
Salurinn, Kópavogi | Helga
Rós Indriðadóttir og Guðrún
Dalía Salómonsdóttir halda
síðdegistónleika til heiðurs
tónskáldinu Jórunni Viðar. Jór-
unn verður 90 ára á þessu ári.
Tónleikarnir eru á morgun og
hefjast kl. 16. Miðasala og nán-
ari upplýsingar á www.sal-
urinn.is
Von, tónleikasalur SÁÁ | Unn-
ur Sigmarsdóttir messósópran
og Kolbrún Sæmundsdóttir pí-
anóleikari halda burtfar-
arprófstónleika í Tónleikasaln-
um Von, Efstaleiti 7, Reykjavík,
á morgun kl. 17. Á efnisskránni
eru m.a. íslensk sönglög, ljóða-
söngvar eftir Brahms og Ma-
hler og söngvar Edith Piaf.
Myndlist
Eplið | Sigríður Rut Hreins-
dóttir sýnir olíumálverk í Eplinu
hársnyrtistofu Borgartúni 26.
Þetta er 4. einkasýning Sigríð-
ar Rutar en hún útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands árið 1990. Sýningin
stendur til 30. apríl og er opin
kl. 9-6 virka daga og laug-
ardaga kl. 9-15.
Leiklist
Listaháskóli Íslands | Opinn
dagur í Leiklistardeild kl. 13-16,
í tilefni af leiklistarhátíðinni
Lókal. Dagskrá allan daginn
ásamt veitingum.
Einnig munu Kristín Ingólfs-
dóttir rektor HÍ, Joanne Sand-
ler starfandi aðalframkvæmda-
stóri UNIFEM í New York og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra hafa framsögu.
Styrkur | Samtök krabba-
meinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra verða með
fræðslufund í húsi Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð
8, Reykjavík 11. mars kl. 20. Sr.
Bragi Skúlason sjúkra-
húsprestur fjallar um karlmenn
og krabbamein. Kaffiveitingar.
Fréttir og tilkynningar
GA- fundir | Ef spilafíkn hrjáir
þig eða þína aðstandendur er
hægt að fá hjálp með því að
hringja í síma 698-3888.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Fé-
lagsvist í Breiðfirðingabúð 9.
mars kl. 14. Annar dagur í
þriggja daga keppni. Nánari
uppl. á heimasíðu bf.is
Fyrirlestrar og fundir
Háskólatorg, stofa 105 | Ut-
anríkisráðherra Líberíu, Olu-
banke King Akerele, verður
heiðursgestur á opnum fundi
sem Háskóli Íslands býður til í
samvinnu við utanríkisráðu-
neytið, á alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna, 8. mars.
Fundurinn, sem ber yfirskrift-
ina Konur um heim allan: Sam-
staða og samvinna, verður
haldinn í HÍ og hefst kl. 12.
PIPARINN þykir ómissandi í marga indverska rétti,
ekki síst þá með uppruna í suðrinu, eins og í Kerala-
fylki en fyrsti piparinn barst þaðan til Evrópu.
Sterkur pipar á Indlandi
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudags-
blað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að senda á
netfangið dagbok-
@mbl.is.
Einbýlishús við Tjarnargötu eða í Þingholtunum óskast.
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega
250-350 fm hús á framangreindum svæðum.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS ÓSKAST
M
bl
9
78
69
3
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 6.3.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Jón Lárusson - Ragnar Björnss. 262
Bragi Björnss. - Albert Þorsteinss. 252
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 249
Árangur A-V
Örn Sigfússon - Hannes Ingibergss. 239
Soffía Theodórsd. - Elín Guðmannsd. 237
María Huld - Þorbjörg Bjarnad. 236
Bridsfélag Hreyfils
Annað kvöldið í þriggja kvölda
tvímenningi var spilað sl. mánu-
dagskvöld.
Staða efstu paranna:
Rúnar Gunnarss. – Ísak Örn Sigurðss.163
Eyvindur Magnúss. – Ingvar Haukss. 156
Björn Stefánss. – Árni Kristjánss. 155
Daníel Halldórss. – Ágúst Benediktss. 148
Eiður Gunnlaugss. – Jón Egilsson 147
Lokaumferðin verður spiluð nk.
mánudagskvöld kl. 19.30 í sal
Sendibílastöðvarinnar.
Frá Hreppamönnum
Karl Gunnlaugsson og Jóhannes
Sigmundsson sigruðu í aðaltví-
menningskeppni vetrarins sem ný-
lega er lokið en keppnin tók fimm
kvöld og var spilað á átta borðum.
Úrslit urðu á þennan veg:
Karl Gunnlaugss.– Jóhannes Sigmundss.
950
Guðrún Einarsd. – Hreinn Ragnarsson
909
Jón Þ. Hjartarson – Hörður Úlfarsson 909
Knútur Jóhanness. – Ari Einarsson 901
Magnús Gunnlss. – Pétur Skarphéðinss.891
Ingibj. Steindórsd. – Loftur Þorsteinss. 882
Viðar Gunngeirss. – Gunnar Marteinss.
877
Næst verður tekið til við að
keppa í sveitakeppni og hafa sjö
sveitir verið skráðar, spilað er á
þriðjudögum á Flúðum.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is