Morgunblaðið - 08.03.2008, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
DRAUGAMYNDIR eru oftar en
ekki heldur ómerkilegar, áhorfand-
inn beittur ódýrum brögðum þar
sem draumfarir koma mikið við sögu
og núna í seinni tíð: tölvuunnar of-
urbrellur. Flestar eru gerðar fyrir
unglingamarkaðinn sem sækist
meira eftir nokkrum hressilegum
augnablikum þar sem taugarnar fá á
baukinn en rökstuddri framvindu og
trúverðugum persónum.
El Orfanato er gott dæmi um hið
gagnstæða; „vitræna draugamynd“,
ef svo má að orði komast. Hún tekur
oft og óþyrmilega á taugakerfinu en
atburðarásin er óvenju þétt og lúrir
á köflum þar sem finna má skýringar
á reimleikunum sem angra persón-
urnar og myndinni lýkur mjög
ásættanlega samkvæmt þeirri rök-
semdafærslu.
Laura (Rueda), og fjölskylda
hennar, kjörsonurinn Simón (Prin-
cep), og eiginmaðurinn Carlos (Ca-
yo), eru búin að festa kaup á af-
skekktu sveitasetri þar sem hún
dvaldist um sinn á bernskuárunum á
meðan það var notað sem munaðar-
leysingjahæli. Þau eru ekki búin að
koma sér fyrir þegar skuggar fortíð-
arinnar taka að læðast að mæðg-
inunum, sérstaklega. Laura kemst
að því að sorglegir atburðir áttu sér
stað eftir að hún var ættleidd og lauk
vistinni á hælinu, örlög barnanna
sem urðu eftir voru öllu dapurlegri.
Simón litli segir mömmu sinni af
nýju leikfélögunum sínum sem eng-
inn sér annar en hann. Eru það
framliðnu hælisbörnin. Hann tjáir
foreldrum sínum að hann verði ekki
langlífur frekar en hinir ósýnilegu
vinir hans, en það er ekki tekið mark
á honum fyrr en allt er um seinan og
Simón litli hverfur.
Að baki góðra draugasagna og
mynda þarf að búa flétta sem tengir
hið yfirskilvitlega og raunveruleik-
ann saman; þótt það sé lítið meira en
hálmstrá þá hjálpar slíkur stuðn-
ingur efninu, gerir það mikið mun
forvitnilegra. Það liggur í loftinu að
endurkoma Lauru boðar ekkert gott
fyrir hana og fjölskylduna, litli
drengurinn er skyggn og tengist því
sorgarsögu hælisins sem býr yfir
óhugnanlegum glæpaverkum sem
eru unnin af öfund og hatri. Að þessu
leyti minnir El Orfanato á meist-
araverk Kubricks, The Shining.
Börn eru áhrifaríkir leiksoppar.
Handritið, með sinni dulmögnuðu
fléttu raunalegs óhapps sem hendir
Lauru, voðaverka fortíðarinnar,
miðilsfunda, atferlis illmenna og
varnarvinnu velviljaðrar fjölskyldu,
táknmálslausnir, er langt yfir með-
almennskuna hafið. Einn framleið-
andinn er Mexíkóinn Guillermo del
Toro, gæðaleikstjóri og framleiðandi
(El laberinto del fauno). Bayona
leikstjóri heldur vel á spöðunum, eitt
atriðið, bílslys í snævi þöktum
smábæ, er sérlega vel sviðsett, brell-
ur og leikhljóð yndislega óhugnanleg
og minna á The Haunting eftir Ro-
bert Wise. Leikkonan Rueda á ekki
lítinn þátt í að skapa magnað and-
rúmsloft myndarinnar, hún er ein af
fremstu leikkonum Spánar og er
minnisstæð sem hjúkrunarkonan í
Mar adrento. Aðrir leikarar standa
sig með ágætum og ánægjulegt að
sjá Geraldine Chaplin í litlu en mik-
ilvægu hlutverki miðilsins.
Myrkraverk á munaðarleysingjahæli
KVIKMYND
Regnboginn – Græna ljósið
Leikstjóri: Juan Antonio Bayona. Aðal-
leikarar: Belén Rueda, Fernando Cayo,
Roger Príncep, Mabel Rivera, Montser-
rat Carulla, Geraldine Chaplin. 100 mín.
Spánn/Mexíkó 2007.
Munaðarleysingjahælið – El Orfanato
bbbbn
Vitræn draugamynd „Að baki góðra draugasagna og –mynda, þarf að búa
flétta sem tengir hið yfirskilvitlega og raunveruleikann saman.“
Sæbjörn Valdimarsson
FJALAKÖTTURINN frumsýnir
finnsku kvikmyndina Ár úlfsins,
eða Suden Vuosi á frummálinu, í
Tjarnarbíói á mánudag. Heimild-
armyndin Ridd-
arar hvíta
tjaldsins og
verðlauna-
myndin Re-
quiem verða
einnig sýndar
sama dag, en
þær voru frum-
sýndar fyrir
viku.
Í Ári úlfsins
frá árinu 2007
segir af mið-
aldra kennara, Mikko, og Sari, gáf-
aðri og bráðfallegri háskólastúlku
sem þjáist af svefnsýki. Sari ein-
angrar sig frá umheiminum og
reynist það Mikko erfitt þar sem
hann ber til hennar sterkar tilfinn-
ingar.
Leikstjóri myndarinnar er Olli
Saarela sem hlotið hefur marg-
vísleg verðlaun fyrir kvikmyndir
sínar. Með aðalhlutverk fara Krista
Kosonen og Kari Heiskanen. Ár
úlfsins er sýnd kl. 20, Requiem kl.
22 og Riddarar hvíta tjaldsins kl.
17. Nánari upplýsingar er að finna
á www.fjalakottur.is.
Ár úlfsins hjá
Fjalakettinum
Ár úlfsins Úr
finnsku kvikmynd-
inni Suden Vuosi.
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
UNDRAHUNDURINN
ER BESTI VINUR
MANNSINS
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ WALT DISNEY.
DARK FLOORS kl. 10:30 B.i.14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
MR. MAGORIUMS ... kl. 2 - 4 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl tali kl. 1:30 - 3:30 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
THE BUCKET LIST kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL
AUGUST RUSH kl. 5:30 - 8 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
THERE WILL BE BLOOD kl. 10:30 B.i.16 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 2 B.i.16 ára LÚXUS VIP
THE BUCKET LIST kl. 6:10 - 8:20 - 10.30 B.i. 7 ára
JUNO kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 2:10 - 4:10 - 6:10 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 2 - 4 - 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 2 LEYFÐ
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
SÝND Á SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI
OG KEFLAVÍKSÝND Í KRINGLUNNI
eee
- S.V.
FRÉTTABLAÐIÐ
ÚR BÝFLUGNABÚINU
Í BULLANDI VANDRÆÐI
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALISÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA