Morgunblaðið - 19.03.2008, Side 9

Morgunblaðið - 19.03.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 9 FRÉTTIR BÆJARSTJÓRN Hveragerð- isbæjar lýsti á síðasta fundi bæj- arstjórnar eindregnum áhuga á því að efla almenningssamgöngur milli sveitarfélagsins og höf- uðborgarsvæðisins. Samþykkt var tillaga um að fela bæjarstjóra að hefja nú þegar viðræður við Sveitarfélagið Ár- borg um möguleikann á því að sveitarfélögin sæki í sameiningu um einkaleyfi á almennings- samgöngum milli Árborgar, Hveragerðis og Reykjavíkur. Sömu aðilum verði ennfremur fal- ið að ræða við Vegagerðina og væntanlega samningsaðila um kostnað og fyrirkomulag almenn- ingssamgangna á umræddri leið og að leggja fyrir bæjarstjórn/ bæjarráð tillögur að framkvæmd. Í greinargerð með tillögunni segir að strætisvagnaferðir milli Reykjavíkur, Hveragerðis og Sel- foss hafi verið eitt af baráttu- málum bæjarstjórnar Hveragerð- isbæjar til langs tíma. Gildandi sérleyfi á umræddri leið hafi aft- ur á móti gert það að verkum að ekki hefur verið hægt að vinna málinu brautargengi þar til nú. Um næstu áramót rennur núver- andi sérleyfi út og þá gefst sveit- arfélögunum tækifæri til að stór- bæta búsetuskilyrði á svæðinu með því að sækja um einkaleyfi á umræddri leið. Ef af verður er hér á ferðinni spennandi verkefni sem hefur mikla þýðingu fyrir íbúa sveitarfélaganna, segir í greinargerðinni. Hvergerð- ingar vilja strætó aust- ur fyrir fjall Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Sumarkjólar KRINGLUNNI - Sími: 568 9955 stelpu&stráka S PA R IB A U K U R www.tk.is FERMINGAR GJAFIR SKARTGRIPATRÉ TILBOÐSVERÐ KR. 4.990.- Rúmföt 20 teg. TULIP 3 litir Skartgripaskrín yfir 30 teg. Opið á morgun Skírdag1-5 Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Norðurlandaráð veitir í ár náttúru- og umhverfisverðlaun í fjórtánda sinn. Þau nema 350.000 dönskum krónum og eru veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi sem sýnt hefur sérstakt frumkvæði á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Verðlaunin í ár skulu veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi (t.d. hugvits- eða vísindamanni) fyrir norræna vöru, uppfinningu eða þjónustu, sem hefur átt þátt í að draga úr orkunotkun almennings. Vöruna, uppfinninguna eða þjónustuna, skal vera hægt að nota á öllum Norðurlöndum með umtalsverðum árangri. Um getur verið að ræða kerfisbundna lausn eða sértækan hlut. Öllum er heimilt að tilnefna verðlaunahafa á þar til gerðu eyðublaði. Í fylgiskjali með eyðublaðinu skal tilnefningin rökstudd, lýst í hverju frumkvæðið felst og hver hafi staðið fyrir því. Koma skal fram hvernig varan, uppfinningin eða þjónustan, hefur komið að gagni, hver útbreiðsla hennar er og hverjir nota hana. Fylgiskjalið skal vera í mesta lagi tvær blaðsíður í A4-stærð til fjölföldunar fyrir dómnefnd. Dómnefnd er skipuð fulltrúum Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Tilnefningin skal send á eyðublaði sem þarf að berast Danmerkurdeild Norðurlandaráðs í síðasta lagi föstudaginn 25. apríl kl. 12. Eyðublaðið má nálgast á heimasíðu ráðsins, www.norden.org, eða hjá skrifstofu dönsku landsdeildarinnar: Nordisk Råd Den Danske Delegation Christiansborg DK-1240 København K Sími +45 3337 5999 Fax +45 3337 5964 Netfang: nrpost@ft.dk F í t o n / S Í A Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2008

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.